Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 28
HelQorblað 33 V LAUGARDAGUR 10. AGÚST 2002 1 tsmmm Knomm ífffíAR ***” whoa uriiA Kerlingabækur á bálið [Hratt og þungt fótatak upp marrandi stiga; svo eftir gangi. Þögn stutta stund; svo niðurbælt bölv og harkaleg högg á læstar dyr. Húnn skekinn, hrópað höstugt:] „Þú verður blindur ef þú hættir ekki að hamast svona á sjálfum þér, strákpjakkur!" Sú var tíðin að óharðnaðir - en þó harðnandi - ung- lingar gátu vart skriðið undir sæng með klístrað tímarit og vasaljós án þess að hugurinn hvarflaði ósjálfrátt að möguleikanum á því að þeim myndi skyndilega sortna fyrir augum og sjá ekki neitt. Og ekki vegna ónýtra raf- hlaðna. Sú goðsögn varð nefnilega býsna gömul og lífseig að sjálfbært kynlíf ylli því að fólk missti sjónina. Þessu héldu menn fram í fúlustu alvöru og eins og mörg önn- ur bábiljan átti þessi væntanlega upptök sín hjá þröngrassa kirkjufeðrum sem vildu hindra með öllum ráðum að menn „misnotuðu" sæði sitt með því að brúka það til annars en barnaframleiðslu. Sjá: Onan, sem setti í svörðinn. Aðrar athafnir sem þóttu óæskilegar út frá strangkristilegu sjónarmiði áttu svo á sambærilegan hátt að leiða til þess að sökudólgurinn yrði sleginn kaunum og hræðilegum sjúkdómum sem leiddu til ómældra þjáninga og dauða. Kannski er ekki óeðlilegt að fólk hafi trúað þessari lygi og öðrum ámóta meðan hjátrú og hindurvitni voru ofarlega í huga almúgans hvarvetna en með vaxandi al- mennri upplýsingu og þekkingu á hvers konar vísindum fór að fjara undan vanþekkingu og tröllasögum. Með þeim afleiðingum meðal annars að nú fróar fólk sér full- komlega áhyggjulaust án þess að depla auga. Og er það vel. Hræðsluáróðri og kerlingabókum af þessu tagi var vit- anlega komið af stað til að stýra hegðun fólks, gera það skelkað við að gera eins og hugur þess girntist - hvort sem um var að ræða saklausa hluti eða alvarlega - og þannig koma í veg fyrir athafnir sem ríkjandi stéttum voru ekki að skapi. Hér gat verið um að ræða siðferðileg prinsipp eða praktísk, oftast þó hið síðara. Stundum var þó ekki um að ræða neinn undirliggjandi tilgang, ekkert lúmskt samsæri gegn sjálfstæðri hegðun að baki heldur kreddurnar einfaldlega sjáifsprottnar upp úr frjóum far- vegi fáfræði og fordóma. En þó rofað hafi til í höfðum mannanna, raunsæið fest rætur og þekkingarheimurinn stækkaö hafa kreddurnar að sjálfsögðu ekki horfið - mannlegt eðli lætur ekki að sér hæða - heldur einfaldlega færst á önnur svið. Það er eðli kreddna að þær eru bornar á borð sem alkunn og örugg sannindi en hvernig fær fólk greint þarna á milli? Hér eru tínd til nokkur vel þekkt „sannindi" sem fólk er gjarnt á að hafa á orði þegar tækifæri gefst. Mörg vekja kannski helst eftirtekt fyrir það hversu ömmu- eða mömmulega þau láta í munni. í hverju tilviki er reynt að komast til botns í því hvort höndlaður sé stórisann- leikur eða um sé að ræða helbert kjaftæði og kerlinga- bækur. Dreptu á bílnum, elskan Á bensínstöðvum er viðkvæðið gjarnan að fólk skuli ekki hafa bíla sína í gangi meðan eldsneytinu er dælt á þá. Frekari útskýringar fylgja ekki og nojan hellist yfir. Hin gullna regla fer ekki bara að taka yfir bílvélina sem slíka heldur allt rafmagnskyns i bifreiðinni. Tónlist- arunnandinn og reykingamaðurinn mega sitja undir skaðræðisöskrum ef þeir teygja sig í viðkomandi raf- magnstæki meðan mælirinn tifar. Stemningin er sú að aldrei sé of varlega farið þegar bensín og neistar eru annars vegar. En hvers vegna er hættulegt að hafa bíl- inn í gangi meðan bensíninu er dælt? Það veit Árni Sig- urðsson, bensínafgreiöslumaður og fyrrum atvinnubíl- stjóri hjá Skeljungi í Öskjuhlíðinni: „Á bensínbílum geta hrokkið neistar úr púströrinu, tii dæmis með sóti. Bensíngufur myndast óhjákvæmilega í kringum stútana og bensínopin þegar verið er að dæla á bílana. Þar sem bensínið er afar rokgjarnt og eldfimt og pústið og bensínopið er staðsett í námunda hvort við annað þá er sjálfsögð öryggisregla að drepa á bílnum." Hættan á þessu er þó ekki jafnmikil í dag og áður var. „Líkurnar á þessu voru miklu meiri með gömlu bíl- ana,“ segir Árni. „Pústkerfið í þeim var miklu einfald- ara og ófullkomnara, nánast bara tómt rör með einföld- um kúti. Þá var hættan á neistaflugi miklu meiri. Eftir að hvarfakútarnir komu i staðinn, miklu fullkomnari og betri, hefur hættan minnkað mikið. En þetta er eftir sem áður góð varúðarráðstöfun." Eitt er eftirtektarvert í þessu samhengi: Dísilbílum og bensínbílum er ólíkt farið hvað þetta varðar. Ámi út- skýrir: „Dísilolía er ekki nándar nærri eins eldfim og bens- Sumir opna helst ekki munninn nema til að vanda um fyrir samborg- urum sínum og veita þeim heilræði. Gengur þeim ef- laust gott eitt til og stundum grísa þeir á að hafa rétt fgrir sér. Mest fara þeir þó með úttuggða frasa, úreltar upplgsingar og ömmuleg heilræði sem gera hvern ærlegan mann grá- hærðan. Hér eru svörin fgrir þá sem nenna að svara. Hlgst liðagigt af þvíað „láta smella“ íliðamótum fingra? Þarfað drepa á bílnum meðan bensíninu er dælt? Er óhollt fgrir augun að IM lesa í rökkri? ín. Þetta er tvennt ólíkt, hættan á neistaflugi lítil sem engin hjá dísilbílum og eld- hættan því hverf- andi.“ Með þetta í huga er óhætt , ,m að álykta að út frá eld- hættu einni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.