Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2002, Blaðsíða 40
Wh Iq art> la ö ÖV L'AUGÁR'ÓAGUR Vd. ÁGÍÚS'T 2o'o2 I | I I ! í I .r Bílar Umsjón Njáll Gunnlaugsson Reynsluakstur nr. 696 I81PP1 Ódýr kostur í flóru fjölnotabíla Kostir: Flutningsrými, lipur, verö Gallar: Hljóöeinangrun, hátt ástig á petulum islendingar viröast loksins vera aöeins að taka við sér í kaupum á fjölnotabílum og eru umboðin farin að bjóða þá meira en áður. Bílar eins og Renault Scenic og Opel Zaflra hafa notið nokkurra vinsælda en minni fjölnotabílamir ekki selst eins vel. í minnsta flokknum eru til bílar eins og SUZUKI WAGON R-f 1,3 Vél: 1,3 lítra, 4ra strokka bensínvél. Rúmtak: 1298 rúmsentímetrar. Ventlar: 16 Þjöppun: 9,5:1 Gírkassi: 5 gíra beinskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: MacPherson Fjöðrun aftan: Þriqqja arma Bremsur: Diskar/skálar, ABS Dekkjastærð: 165/60 R14 YTRI TÖLUR: Lengd/breidd/hæð:_________________3510/1620/1690 mm Hjólahaf/veghæð:_______________________2360/155 mm. Beygjuradíus: 10,6 metrar. INNRI TÖLUR: Farþeqar m. ökumanni: 4 Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 4/2 Farangursrými: 300-1250 lítrar. HAGKV/EMNI: Eyðsla á 100 km: 6,9 lítrar Eldsneytisqeymir: 41 lítri Ábyrqð/ryðvörn: 3/8 ár Grunnverð:__________________________________1.255.000 kr. Umboð:_______________________________________Suzuki-bílar Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður og speglar, fjarstýrðar sam- læsingar, 2 öryggispúðar, útvarp m. kassettutæki, glasastatíf, þokuljós, þakbogar, afturrúðuþurrka, aftursæti felianleg ofan í gólf. SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 76/5500 Snúninqsvæqi/sn.: 115 Nm/4250. Hröðun 0-100 km: Vantar uppl. Hámarkshraði: 155 km/klst. Eiqin þyngd: 920 kq. Toyota Yaris Verso og brátt er væntanleg- ur Ford Fusion en bílar í þessum stærðar- flokki eru ekki síður athyglisverður kost- ur þegar kemur að notkunarmöguleikum og þar að auki þó nokkuð ódýrari. Ódýrastur er þó Suzuki WagonR+ sem DV- bílar hötðu til reynsluaksturs 1 tvær vikur í sumarfríinu og óku bílnum hátt i þúsund kílómetra. Rúmgóður og þægilegur Það er óhætt að segja að litli bíllinn frá Suzuki hafl komið á óvart að mörgu leyti. Fyrir það fyrsta er bíllinn mun rúmbetri en hann lítur út fyrir að vera. Pláss í fram- sætum er gott á alla kanta, sér í lagi hlið- arrými. Með aftursætin á sínum stað er ekki mikið flutningsrými í bilnum en með einu handtaki er hægt að fella þau niður 1 gólf og verður þá til mikið og gott flutn- ingsrými með Ðötu gólfi. Ýmislegt er þá hægt að flytja í bílnum eins og undirritað- ur komst að, meðal annars eldavél í fullri stærð og kom það sífellt á óvart hvað far- angursrýmið gleypti mikið. Þar að auki er mjög þægilegt að ganga um hann því að mikið af yfirbyggingu bílsins fer í hurðir og því auðvelt að koma að bílnum á alla kanta. Setan í bílnum er þægileg enda sitja farþegar frekar hátt og sjá því vel yfir. o Huröir eru stórar og góðar og því auövelt að setjast inn í bílinn sem er i réttri hæö þannig aö maöur sest ekki niöur I hann. © Véiin er 1,3 lítra og nokkuö spræk enda bíllinn lágt gíraöur. Hún er frekar hávær en aö- alkostur hennar er lítil bensíneyösla. © Mælaborö er tiltölulega einfalt og þægi- legt í notkun en fótstig eru frekar hátt uppi sem er óþægilegt til lengdar. © © Á þessum myndum sést vel munur- inn á farangursrými þegar búiö er aö leggja niöur sætin, meö aftursæti niöri er feikilega gott pláss aftur í. Helsti galli hans í innréttingu er þó hátt ástig á fótpetulum sem verður óþægilegt til lengdar. Góöur innanbæjar Vélin í bílnum er ekki stór, aðeins 1,3 lítrar, en hún er nokkuð spræk enda bíll- inn frekar lágt gíraður. Það hentar vel í borgarumferðinni en háir honum aðeins á langkeyrslunni þar sem helsti galli hans kemur í ljós sem er léleg hljóðeinangrun. í fimmta gír á 90 km hraða er vélin á 3000 snúningum sem er fullmikið og því meira vélarhljóð en ella. Billinn er frekar stífur á fjöðrun enda er hún frekar stutt og dekk- in lítil. Að öðru leyti er bíllinn skemmti- legur í akstri. Stýrið er lipurt í borgarum- ferðinni og svarar vel og læsivarðar bremsumar skila vel sínu. Bíflinn er nokkuð þokkalega búinn, sérstaklega þeg- ar verðið er haft í huga. TU dæmis er hann með rafdrifnum rúðum og speglum, þoku- ljósum, þakbogum og hemlalæsivörn. Hægt er þó að sleppa hemlalæsivörninni og er bUlinn þá enn ódýrari. Grunnverð bUsins eru litlar 1.255.000 kr. sem er ekki mikiU peningur fyrir jafn fjölhæfan bU og þessi er. TU samanburðar kostar betur bú- inn Yaris Verso 1.689.000 kr. -NG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.