Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Blaðsíða 28
28
Helqctrblað DV LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002
• |
■
'
Teitur Þórðarson og lið hans, Brann, hefur verið í vandræðum í sumar en Teitur er bjartsýnn á að liðið geti bitið frá sér eftir 2-3 ár.
Hér er hann á æfingu hjá liði sínu í Bergen. DV-mynd m
Teitur Þórðarson hefur komið víða við sem knattspyrnumaður og þjálfari:
Lék reglulega
gegn Platini
Teitur, sem er fimmtugur að aldri, er fæddur á
Akranesi og þvi lá beint við að hann færi að æfa
knattspyrnu eins og flestir strákar þar í bæ. Fjöl-
skyldan lifði og hrærðist í þessu, faðir hans var
þekktur knattspyrnumaður með Skagamönnum og
þeir bræður, Teitur og Ólafur, sem nú þjálfar Skaga-
liðið, fóru fljótlega að elta fóður sinn á völlinn. Teit-
ur spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik 1969 og fór
fljótlega að vekja athygli í fremstu víglínu hjá Skaga-
mönnum. Eftir nokkur ár fór að bera á áhuga erlend-
is frá og svo fór að hann gekk til liðs við Jönköping í
Sviþjóð 1976. „Ég fékk þetta tækifæri í gegnum lækni
á íslandi, Daníel Guðnason, sem starfaði í Jönköping
á sumrin. Hann spurði mig hvort ég hefði áhuga á að
leika þar og ég sagði honum að ef tilboðið kæmi
myndi ég örugglega skoða það. Hann kannaði svo
málið i Jönköping þetta sumar og ég fór svo út um
haustið til æfmga í nokkra daga. Það gekk vel og mér
var boðinn samningur og flutti út þá um áramótin."
Teitur sló i gegn hjá Jönköping fyrsta árið og fékk
strax þá tilboð frá Öster sem þá var eitt sigursælasta
félag Svíþjóðar og er með aðsetur í Veksjö. Þar varð
knattspyrnan hans atvinna. Hann varð þrisvar
sænskur meistari með liöinu á þremur og hálfu ári.
Lék reglulega gegn Platini
Árið 1981 flutti Teitur svo til Frakklands og gerðist
leikmaður með Lens, sem var mjög sigursælt félag á
þeim tíma. „Síðasta tímabilið hjá öster gekk mjög vel
hjá mér og það vakti ahygli. Ég fékk tilboð frá Lens
og Bristol City, sem þá var í efstu deild á Englandi.
Mér fannst ekki nógu áhugavert aö fara til Englands
og mig langaði að læra frönsku þannig að ég flutti til
Frakklands."
Teitur sagði veru sína hjá Lens hafa verið stórkost-
lega upplifun. „Það má segja að ég hafi verið í Frakk-
landi á þeim tíma þegar franski boltinn fór að stand-
ast alþjóðasamanburð og Frakkar verða til að mynda
Evrópumeistarar 1984. Eitt það minnisstæöasta frá
veru minni í Frakklandi er að fyrir Evrópukeppnina
1984 var landsliðið með æfingabúðir á stað rétt hjá
okkur. Við æfðum með landsliðinu í tvær vikur og
spiluðum síðan æfingaleik við það þriðja hvern dag.
Þar kynntist ég mörgum af þessum stóru stjörnum
þeirra eins og Michel Platini, Alain Giresse, Jean Tig-
ana o.fl. Þetta voru frábærir knattspyrnumenn og það
var virkilega gaman að æfa með þeim.“
Teitur skipti yfir í Cannes í árslok 1983 og lék með
liðinu í tvö og hálft ár. Það var á þeim árum sem hon-
um datt fyrst í hug að þjálfun gæti átt vel við hann.
„Ég tók að mér unglingalið félagsins ásamt öðrum
leikmanni liðsins yfir hálft tímabil þegar þjálfarinn
hætti skyndilega. Þá fór ég að velta því fyrir mér að
kannski væri þetta ekki svo galið. Ég tók einnig á
þessum tíma stutt námskeið í unglingaþjálfun en ég
hugsaði ekki meira um þetta þá.“
Hann lék síðan með Neuchatel Xamax í Sviss í eitt
ár en sneri svo aftur til Öster sem leikmaður. „Öster
hafði reyndar haft samband við mig meðan ég var í
Cannes um hvort ég vildi hugsanlega koma til þeirra
aftur. Þeir buðu mér vinnu við að sjá um knatt-
spyrnudeild við lýðháskóla í Markarvit sem er bær
fyrir sunnan Veksjö. Þessar deildir eru reknar af
knattspyrnusambandi Svíþjóöar og knattspyrnusam-
böndum á viðkomandi stöðum en maður verður að
vera þjálfaramenntaður til að geta séð um svona
deildir. Þeir lofuðu mér hins vegar að sjá til þess að
ég fengi slíka menntun. Mér fannst þetta áhugavert
tilboð og þáði það að lokum. Þannig gekk ég í gegn-
um þjálfaraskólann í Sviþjóð og það má segja að
þjálfunin hafi byrjað með þessu.“
Teitur lék með Öster og gegndi jafnframt þessu
starfi í tvo vetur. Þá bauð fyrstu deildarliðið Skövde
AIK honum starf spilandi þjálfara og var það fyrsta
meistaraflokksliðið sem hann þjálfaði, sumarið 1987.
Þetta var síðasta sumar Teits sem leikmanns.
Samningur við Brarui
En það er árið eftir sem ferill hans hefst í Noregi
þegar honum er boðið þjálfarastarf hjá Brann. „Ég fór
á landsleik íslands og Noregs í Ósló haustið 1987 og
Það hafa fáir, ef nokkrir, ís-
lenskir knattspyrnumenn
komið jafn i/íða við á vett-
vangi knattspgrnunnar en
Teitur Þórðarson, sem nú
þjálfar lið Brann íBergen í
Noregi. Teitur hefur á sínum
leikmanna- og þjálfaraferli
leikið og þjálfað á Islandi,
Svíþjóð, Frakklandi, Sviss,
Fistlandi og íNoregi þar sem
hann starfar nú. DV hitti
Teit á Brann Stadion í
Bergen og spjallaði við hann
um ferilinn, norska boltann
og það sem fram undan er.
hitti þar þjálfara sem ég hafði kynnst í Svíþjóð sem
hét Arve Mökkelpost. Hann var þá framkvæmdastjóri
Brann. Hann sagöi mér frá því að Tony Knapp, þjálf-
ari liðsins, hefði verið leystur frá störfum og spurði
hvort ég hefði áhuga á að taka við. Ég sagði honum
að ég myndi alveg hafa áhuga á að skoða það og þaö
varð svo úr að ég gerði samning við Brann.“
Teitur þjálfaði liðið í þrjú ár með ágætum árangri.
„Fyrsta árið var mjög erfltt og við þurftum að hreinsa
mikiö til. Af 22 leikmönnum sem voru í aðalhópnum
voru 14 látnir fara og ungir strákar teknir inn í stað-
inn. Á þremur árum urðum við topplið og til marks
um það var að á síðasta tímabilinu, 1990, áttum við
enn möguleika á meistaratitlinum þegar tvær um-
ferðir voru eftir í deildinni.“
Þrátt fyrir góðan árangur voru ýmis vandamál í
veginum. „Það var lítil samstaða í stjórninni og menn
voru mikið að reyna aö koma sjálfum sér í góða stöðu
í stað þess að einbeita sér að rekstri félagsins. Mér
fannst sumir fara á bak við mig og það endaði með
því að ég sagði þeim að ég nennti ekki að standa í
þessu lengur og hætti.“
Þegar það kom fram að Teitur væri að hætta hjá
Brann fékk hann tilboð frá öðru norsku liði, Lyn, og
gerði Teitur tveggja ára samning. Liöiö hafði tryggt
sér sæti í efstu deild haustiö 1990 en stóð sig mjög vel
þessi tvö tímabil og var í toppbaráttunni bæði árin.