Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2002, Side 42
46 H e Iqa rb lað DV LAUGARDACUR 24. ÁGÚST 2002 A attunda og ntunda áratugnum herjaði palestínski flóttamaðurinn íþrem heims- álfum með morðum, sprengingum og flug- ránum. Það voru einkum ggðingar sem urðu fgrir barðinu á hrgðjuverkastarfsemi óaldarflokka Nidals en þeir herjuðu einnig á araba sem þeim þótti sgna Israelum óþarflega mikla linkind og létu íIjósi áhuga á að semja við Israel um skiptingu lands og stöðu Palestínumanna á heima- slóð. íraskur lögreglumaður ineð mynd sem á að sanna að Abu Nidal sé látinn, en hann er sagður hafa framið sjálfsmorð um síðustu helgi. Það er ekki í fyrsta sinn sem opinber aðili tilkynnir lát hermdarverkaforingjans. Skaut af sér hausinn með 900 mannslíf á samviskunni „s Síðasta hermdarverk Abu Nidal var að skjóta sjálfan sig í höfuðið þegar leyniþjónustumenn Saddams Husseins komu til að handtaka hann á heimili hans i Bagdad. Þeir töldu sig hafa komist á snoðir um að hann sæti á svikráðum við gestgjafa sína og að ekki væri við hæfi að hann gengi lengur laus. Þar með lauk ævi eins mest umtalaða hermdarverkamanns aldarinnar sem leið. Hann var eftirlýstur í fjölda landa fyrir morð og skemmdarverk og brottrækur frá mörgum arabaríkjum, sem annars höfðu skotið yfir hann skjólshúsi í lengri eða skemmri tíma. En ofbeldið fylgdi honum hvar sem hann fór og Nidal skipulagði og framdi hryðjuverk hvar sem hann fór eða dvaldi. Einkum var honum uppsigað við ísraela og gyðinga yfirleitt og fengu þeir margsinnis að kenna á heiftaræði hans og hefnigirni. Margt er á huldu um ævi og tiltæki Nidals og jafnvel við dauða hans um síðustu helgi spunnust sögur um hvernig látið bar að og hvort líkið í ibúðinni væri í rauninni af hermdarverkaforingjanum eða einhverjum öðrum og kannski verður aldrei upplýst hvers vegna honum var rutt úr vegi. Þótt Nidal væri hataður víða um lönd og margir ættu honum grátt að gjalda og menn ótt- uðust hann átti hann einnig marga og einlæga stuðn- ingsmenn og má líklegt telja að einhverjir þeirra hugsi þeim gott til glóðarinnar sem kenna má um dauða ógn- valdsins. Abu Nidal fæddist í Jaffa árið 1938. Faðir hans var vel efnaður palestínskur jarðeigandi. Þegar Ísraelsríki var stofnað 1948 var fjölskyldan rekin í útlegð og bjó eftir það í fleiri arabalöndum. Nidal starfaði sem kennari í Egypalandi og Sádi-Arabiu en var gerður brottrækur úr þeim löndum vegna stjórnmálaskoðana. Árið 1967 gekk hann til liðs við Fatah-hreyfinguna og upp úr 1970 var hann fulltrúi hennar í Kartoum og síðar í Bagdad. 1974 sagði hann skilið við forystulið PLO og stofnaði eigin byltingarflokk og krafðist þess að meirihluti PLO-manna fylgdi sér að málum. Hann sló eign sinni á sjóði PLO í Bagdad með stuðningi stjórnarinnar þar sem reyndi leynt og ljóst að ná yfirráðum yfir allri PLO-hreyfing- unni. Þá var öðrum Palestínumönnum í PLO nóg boðið og var Abu Nidal dæmdur til dauða fyrir drottinssvik. Hann hlaut einnig dauðadóma i Líbanon og Jórdaníu. En dauðamaðurinn kom aldrei í réttarsali og voru dóm- arnir kveðnir upp að honum fjarstöddum. 900 ligéja í valnum Á áttunda og níunda áratugnum herjaði palestínski flóttamaðurinn í þrem heimsálfum með morðum, sprengingum og flugránum. Það voru einkum gyðingar sem urðu fyrir barðinu á hryðjuverkastarfsemi óaldar- flokka Nidals en þeir herjuðu einnig á araba sem þeim þótti sýna ísraelum óþarflega mikla linkind og létu í ljósi áhuga á að semja við ísrael um skiptingu lands og stöðu Palestínumanna á heimaslóð. Flokkur Nidals starfaði víða í arabaríkjum og voru höfuðstöðvarnar settar upp í Trípóli 1987. Næsta ár Abu Nidal var einn umsvifamesti hryðjuverkamaður á síðari liluta 20. aldar. Hann end- aði feril sinn með því að skjóta sjálf- an sig. gengu tveir háttsettir menn úr liðinu og ásökuðu Abu Nidal um að hafa myrt 156 félaga sína að ástæðulausu, en hann var haldinn brjálæðislegu ofsóknaræði og hafði engar sannanir í höndum um að mennirnir sem hann tók af lífi hefðu ver- ið svikarar við málstaðinn. Eftir að Pan Am-farþegaþotan var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie var Gaddafi Líbíuyforseti undir mikl- um þrýstingi þar sem talið var að hermdarverkið hefði verið skipulagt í skjóli hans. Stöðvum Nidals í Trípóli var lokað og höfuðpaurinn settur í stofufangelsi. Þá bárust fregnir um að hann hefði gengist undir krabbameinsmeðferð í Egyptalandi og síðan flutti hann til Bagdad. Talið er að Nidal og menn hans hafi myrt um 900 manns á þeim tveim áratugum sem þeir voru hvað mik- ilvirkastir. Nidal var skipuleggjandi margra hermdarverka og aldrei virtist hann eða hans fólk skorta fé til starfsem- innar enda er haft fyrir satt að þeir hafi starfað á vegum fleiri ríkisstjórna, svo sem stjórnanna í frak, Sýrlandi og Líbíu. Þeir voru sérstaklega sendir út af örkinni til að jafna um fylgismenn Arafats og gerðar voru tilraunir til að ráða hann af dögum en án árangurs. Nokkrum sinnum bárust fréttir um að Abu Nidal væri dauður og að dauða hans hefði borið að með þessum eða hinum hættinum. En allar voru þær sögusagnir ótíma- bærar. Einu sinni var heimildin um dauða hryðjuverka- foringjans ekki af verri endanum. Gaddafi sjálfur td- kynnti í blaðaviðtali að Nidal væri allur. En eftir hverja dánarfregn sem leyniþjónustur báru í heimspressuna reis Abu Nidal upp aftur og hélt áfram að myrða fólk og halda við ógninni. Tíðar fregnir um dauða Osama bin Laden er af svip- uðum toga og heimildir jafnvel ekki alveg ólikar þeim sem annað slagið bárust af endalokum palestinska flótta- mannsins sem um skeið var úthrópaður sem ógnvaldur mannkynsins. Að Abu Nidal skaut sig í Bagdad um síðustu helgi er kannski ekki síðasta fréttin af dauða hans. En tíminn mun leiða í ljós hvort hann liggur hauslaus í gröf sinni eða á eftir að spretta upp á óvæntum stað á ný og senda heiminum skilaboð að eigin hætti. En ef strákarnir í CIA vilja trúa kollegum sínum í írösku leyniþjónustunni um afdrif Abu Nidal situr ekki á okkur hinum að ve- fengja svo ágæta heimild. Sýnishom af aðgerðum Hryðjuverkasamtök Abu Nidal störfuðu ýmist upp á eigin spýtur og völdu sér fórnarlömb eða að þau tóku að sér verkefni fyrir rikisstjórnir eða leyniþjónustur og voru því eins konar málaliðar sem herjuðu fyrir fé. Afrekalisti samtakanna er langur og spannar tímabil- ið frá 1973 til 1991 að minnsta kosti. Stundum náðust ein- hverjir úr hópunum en oftast nær sluppu árásarmenn og leika margir þeirra enn lausum hala. Hér verður stiklað á stóru á þeim árásum sem Abu Nidal og hans menn stóðu að og sannanlega má rekja til þeirra. Á áttunda áratugnum var víða ráðist á stjórn- málamenn og embættismenn og bombur sprengdar í flugstöðvum, samkunduhúsum gyðinga og hótelum þar sem fundir voru haldnir um málefni sem hermdarverka- mönnunum hugnaðist ekki. 1980 var verslunarfulltrúi ísraels í Brussel myrtur. Ári síðar var borgarráðsmaður í Vín tekinn af lífi og hótað var að myrða Bruno Kreiski, kanslara Austurrík- is. Tveir voru felldir og 17 særðir í vélbyssuárás í syna- gógu í Vínarborg. Reynt var að ráða sendiherra ísraels i London af dög- um og sendimaður PLO í Róm fórst í bílasprengju. Sex gestir á veitingahúsi í París voru felldir og 22 særðir þegar ráðist var á veitingasalinn með hand- sprengjum og vélbyssuskothríð. Gyðingar voru þar tíðir gestir. Diplómat frá arabísku furstadæmunum var myrtur á skrifstofu sinni í Kúveit og sendiráðsmaður frá sama ríki var myrtur í Madríd. Tilraun var gerð til að myrða jórdanska sendiherrann í Róm og sendiherra Jórdaniu í Indlandi slapp alvarlega særður frá árás hermdarverka- manna. Ráðist var á sendiráð Jórdaníu í Aþenu og verð- ir þar felldir og særðir. Sprengjuárás á menningarmið- stöð Frakklands í Tyrklandi. Sendiherra furstadæmanna tekinn af lífi í París og breskur diplómat var myrtur í Aþenu og háttsettur breskur sendiráðsmaður var myrt- ur í Indlandi. Sendimaður Arafats i Róm var myrtur og jórdanskur sendiráðsmaður í Búkarest sömuleiðis. Breskum blaðamanni var rænt í Beirút og er álitið að hann hafi verið í haldi mannræningjanna í allt að eitt ár áður en hann var myrtur. Ráðist var á skrifstofur jórdanska flugfélagsins í Róm, Aþenu og Nicosiu. Skotið var á flugvél frá sama flugfélagi í flugtaki á flugvellinum í Aþenu. Skrifstofa British Airways 1 Madrid var sprengd og kona dó og 27 manns særðust. Fimm mínút- um síðar sprakk skrifstofa jórdanska flugfélagsins í sömu götu. Handsprengjuárás á Café de París í Róm særði 38 manns. Egypskri flugvél var rænt á leið til Möltu. Þegar reynt var að yfirbuga ræningjana fórust 60 manns. Árásir í flugstöðvunum í Vín og Róm urðu 16 manns að bana árið 1985 og 60 særðust. Ári síðar var Pan Am-flugvél rænt í Pakistan, 17 fór- ust og 150 manns særðust í þeirri aðgerð. 1 sama mánuði voru 22 myrtir i samkunduhúsi gyð- inga í Istanbúl. 15 særðust í árás á veitingahús á Vesturbakkanum 1987. í Khartoum var ráðist á hótel og 8 manns felldir og 21 særður. Flestir gestanna voru Bretar og Bandarikja- menn. Hér eru aðeins talin nokkur sýnishorn af hermdar- verkum Abu Nidals og manna hans. Þótt þeir hafi lengi verið hundeltir í ýmsum löndum njóta þeir samúðar margra sem eru reiðubúnir að veita þeim liðveislu og tryggja þeim felustaði. Þótt Nidal sé sjálfur dauður, að minnsta kosti opinber- lega, ganga meðreiðarmenn hans margir lausir og hafa vafalítið samlagast öðrum hryðjuverkahópum sem eru dreifðir víða um lönd og bíða færis að gera óskunda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.