Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2002, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002
Fréttir ÐV
Guöjón Lúðvík
Hjörleifsson. Bergvinsson.
Þróunarfélagiö í Eyjum:
„Lítur illa út“
Guðjón Hjörleifsson, fyrrverandi
bæjarstjóri Vestmannaeyja og stjóm-
arformaður Þróunarfélags Vest-
mannaeyja, sagði i samtali við DV í
gær að hann kviði engu um framtíð
félagsins, sem hefði staðið að mörgum
góðum hlutum fyrir bæjarbúa og
mundi gera áfram. Varðandi óreiðu á
bókhaldi og þrem týndum möppum
með fylgiskjölum sagði Guðjón að þar
væri um að ræða mannleg mistök
starfsmanns. Hann taldi að hægt yrði
að finna til eftir öðrum leiðum þau
fylgiskjöl sem vantaði.
„Ég mun ræöa þetta mál nánar eft-
ir stjórnarfund í Þróunarfélaginu í
dag og eftir fund með bæjarstjórninni
í næstu viku,“ sagði Guðjón.
Lúðvik Bergvinsson, alþingismaður
og bæjarfulltrúi í Eyjum, sagði í gær
að málefni Þróunarfélagsins væru
grafalvarleg og að óskað væri eftir
skýrslu stjórnarformannsins um at-
hugasemdir endurskoðendanna. „Það
er mikilvægt að hann skýri sitt mál
og að því loknu þurfi að taka ákvarð-
anir. Ég vil forðast að fella dóma, en
vissulega lítur þetta illa út,“ sagði
Lúðvík Bergvinsson. -JBP
Vill afnema
skatt af
barnafötum
Páll Magnússon, varaþingmaður
Framsóknarflokks í Reykjaneskjör-
dæmi, hefur lagt fram tillögu til
þingsályktunar
um að fjármála-
ráðherra verði
falið að kanna
hvort fella megi
niður virðisauka-
skatt af barnaföt-
Páll
Magnússon.
Páll Magnús-
son segir að í
stjórnarsáttmála
ríkisstjómarinn-
ar sé fjallað um að taka á meintum
jaðarsköttum og hann vill láta
kanna hvort þessi jaðaráhrif bitni
ekki einna helst á fjölskyldufólki
með ung börn. „Þetta er einfóld að-
ferð til þess að koma til móts við
þennan hóp sem stendur í dag und-
ir stærstum hluta af tekjuskatti ein-
staklinga. Ég hef einnig lagt fram
fyrirspurn til íjármálaráðherra þar
sem ég vil fá svör við því hvort
markmið um lækkun jaðarskatta
hafi náðst. Afnám skattsins mundi
auka verslun með barnafot innan-
lands sem mundi skila ríkinu aftur
tekjum í formi skatts af verslun,"
segir Páll Magnússon. Um líkur
þess að þetta mál næði fram að
ganga sagðist Páll alltaf ganga bjart-
sýnn til verks. -GG
Tal meö talsímaþjónustu
Talsímaþjónusta Tals var tekin form-
lega í gaghiö í gær en þaö geröi
Guöni Ágústsson iandbúnaöarráö-
herra. Viö þaö tækifæri var saga tai-
símaþjónustu á ísiandi rakin í stuttu
máli og áhugavert myndefni sem
henni tengist sýnt. Enn fremur voru
mótmæli bænda gegn símanum
snemma á síöustu öld rifjuö upþ. Á
myndinni eru Guöni, sem hefur orö-
iö meö símann á lofti, og Þórólfur
Árnason, forstjóri Tals.
Stuttar fréttir
Sérkennilegt
Bjami Ármanns-
son, forstjóri íslands-
banka, segir ummæli
Valgerðar Sverris-
dóttur viðskiptaráð-
herra um að sam-
keppni milli við-
skiptabankanna sé
ekki virk afar sér-
kennileg. Stöð 2 greindi frá
Vinni ekki í frii
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
beindi nýlega þeim tilmælum til flug-
manna sem starfa hjá Flugleiðum að
þeir tækju ekki að sér vinnu á frídög-
um. Að mati FÍA hafa Flugleiðir geng-
ið allt of langt við fækkun flugmanna.
Mbl. sagði frá.
Styr um nýbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar:
Uppbygging á Rafha
lóðinni í uppnámi
- ekkert byggt að óbreyttu, segir eigandinn
Jón Valur Smárason, eigandi Rafha-
húsanna svokölluðu í Hafnarfirði, segir
að áform um að rífa húsin og byggja þar
upp að nýju séu nú í uppnámi vegna
takmarkana bæjaryfirvalda á fjölda
íbúða sem þar megi koma. „Að óbreyttu
verður því ekkert úr fyrirhuguðum
byggingaráformum Gígant ehf.,“ sagði
Jón Valur í samtali við DV.
Skipulags- og byggingamefnd sam-
þykkti í gær að miða við að á þessum
stað verði byggð fjögur hús. Tvö af þeim
austari verði upp á fjórar hæðir en vest-
ari húsin verði þrjár hæðir. Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri segir að full sam-
staða hafi verið í ráðinu um þessa nið-
urstöðu. Verktakinn fór hins vegar
fram á að byggja upp á fjórar og fímm
hæðir og er hvert húsapar því lækkað
um eina hæð.
Jón Valur segir að fest hafl verið
kaup á Rafha-húsunum, sem eru um
7000 fermetrar, fyrir um ári með það í
huga að byggja þar 125 ibúða hús. Farið
var i að kaupa rekstraraðila út úr hús-
unum til að hægt væri að hefjast handa
sem fyrst. Unnið var nýtt deiliskipulag
og auglýst, en ekki hafl tekist að ganga
frá afgreiðslu málsins fyrir kosningam-
ar í vor. Nýr meirihluti hafl síðan viljað
skoða málin að nýju og niðurstaðan
þýði að þama megi ekki byggja meira
en 80 íbúðir. - „Það þýðir einfaldlega að
það borgar sig ekki að rífa húsin til að
byggja þama upp að nýju. Við munum
því reyna að fá leigjendur í húsin aftur
og skoða svo málið að nýju eftm flmm ár
eða svo.“
Þrátt fyrir andstöðu við byggingar-
áform Gígant ehf., er líka mikil óánægja
með að ekki skuli driflð í að fjarlægja
húsin sem era mörgum Hafnfirðingum
þymir í augum. Lúðvík Geirsson bæjar-
stjóri segir þetta mjög viðkvæmt svæði
í hjarta bæjarins. „Menn hafa ekki ver-
ið sáttir við þær tillögur um uppbygg-
ingu verkataka sem hafa verið kynntar.
Það er hins vegar full samstaða í skipu-
lags- og byggingamefnd um þær útlínur
bygginga sem menn vilja hafa á þessu
svæði. Það eru auðvitað bæjaryfirvöld
sem fara með skipulagsmál í bænum og
hafa um það að segja,“ segir Lúðvik
Geirsson. -HKr.
Uppsögn staðfest
Uppsögn oddvita og bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, Ágústs Þórs
Bragasonar, úr starfi mnhverfis- og
æskulýðsfulltrúa bæjarins, var staðfest
á bæjarstjómarfundi á Blönduósi í
gærkvöld um leið og tillaga um breytt
skipurit fyrir Blönduósbæ var sam-
þyWít með atkvæðum meirihluta H-
lista og Hnjúka gegn tveimur atkvæð-
um sjálfstæðismanna. Mbl. sagði frá.
Fór eftir reglum
Jakob Frímann Magnússon hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann
segir að stuðningsmenn sínir í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík
hafi farið í einu og öllu að þeim leik-
reglum sem fulltrúaráð flokksins hafi
sett.
DV-MYND HH
Liggur brotin á gjörgæslu
Bílveita
Kona og sonur hennar sluppu
ómeidd þegar fólksbill þeirra valt á
Norðurlandsvegi, við bæinn Vatnshom
í Húnaþingi vestra. Að sögn lögregl-
unnar á Blönduósi var ising á vegin-
um. I beygju missti konan stjóm á bif-
reiðinni sem hentist út af veginum og
valt eina og hálfa veltu. Bíllinn er tal-
inn ónýtur eftir.
Tíu ára gömul stúlka liggur mikið
slösuð á gjörgæsludeild Landspítal-
ans eftir bílslys í gær. Stúlkan varð
fyrir bíl á mótum Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar um klukk-
an 16 síðdegis. Læknir á gjörgæslu-
deild sagði í samtali við DV í morg-
un að líðan stúlkunnar væri eftir at-
vikum. Hún mjaðmagrindarbrotnaði.
Tildrög slyssins munu þau að stúlkan
fór yfir Miklubraut i norðurátt, framhjá
bílum sem biðu á beygjurein og kom
þannig skyndilega fram fyrir bíl sem
ekið var vestur Miklubraut á grænu
ljósi. Bilstjórinn náði ekki að stöðva og
varð ákeyrslan mjög harkaleg - stúlkan
kastaðist um 30 metra. Stúlkan var með
vinkonu sinni og var sú síðamefnda
einnig flutt á slysadeild ásamt bílstjór-
anum en bæði urðu fyrir áfaili. -aþ
Niðurstöður Sigríðar Björnsdóttur, sérfræðings í hrossasjúkdómum:
Spatt stafar af arf-
gengum veikleika
- ekki rakið til álags eða annarra umhverfisþátta eins og talið var
Spatt í íslenskum hrossum er arf-
gengur veikleiki samkvæmt niður-
stöðum nýrrar rannsóknar Sigriðar
Björnsdóttur, dýralæknis hrossa-
sjúkdóma. Sigríður kveðst hins veg-
ar hafna kenningunni um að álag
orsaki spatt, þar sem rannsóknin
hafi ekki sýnt fram á að tamning,
þjálfun eða notkun á hrossunum til
reiðar hefði áhrif á spattmyndun.
Fyrstu stig sjúkdómsins hafi til að
mynda fundist hjá ótömdum tripp-
um.
Niðurstöðu rannsóknar Sigríðar
á þessum hvimleiða hrossasjúk-
dómi hefur verið beðið með mikilli
eftirvæntingu af hestafólki og rækt-
endum. Þær liggja nú fyrir og hefur
Sigríður varið doktorsritgerð sína á
grunni rannsóknarinnar. Spatt er
algengur sjúkdómur í hækilliðum
hrossa og lýsir sér i kölkun eða slit-
gigt í flötum liðum hækilsins.
Sigríður kveðst ekki útiloka að sá
arfgengi veikleiki sem valdi spatti
DVWND GVA
Ungir og gamlir
Sþattmyndun er algeng í eldri hross-
um en hefur fundist í veturgömlum
trippum. Niöurstaöa rannsóknarinn-
ar kemur mjög á óvart.
geti legið í byggingu eða hreyfinga-
fræði hækilsins. Spatt sé mjög al-
gengt og aukist tíðni þess línulega
með aldri frá því að vera 18 prósent
í sex vetra hrossum upp í 54 prósent
hjá tólf vetra hrossum. Rannsóknin
náði ekki til hrossa eldri en tólf
vetra.
„Við lítum á að vandinn sé sá
hvað hross fái sjúkdóminn ung,“
segir Sigríður. „Faraldsfræðirann-
sóknin tók yngst til 6 vetra hrossa.
Síðan skoðaði ég yngri hross með
beinafræðilegri rannsókn. Ég fann
að spatt getur verið byrjað að mynd-
ast í veturgömlum trippum og að
þróun sjúkdómsins byrjar að jafn-
aði fyrir tamningu. Þá er um að
ræða breytingar sem ekki sjást á
röntgenmyndum. Siðan þróast þetta
áfram hjá sumum hrossum en ekki
hjá öllum."
Sigríður segir að helmingur
þeirra hrossa sem fái spatt fmni
ekki fyrir því. Ekki sé hreyfmg í
umræddum lið, þannig að spattið
leiði ekki alltaf til helti, en fari svo
komi heltin venjulega fram seint á
ævinni. Sum þeirra geti jafnað sig
eða batni við meðhöndlun, en flest
verði þau ónýt til brúks. Því sé full
ástæða til að fyrirbyggja þennan
sjúkdóm með kynbótum. -JSS
Eiga mörg málverk
Búnaðarbanki og Landsbanki eiga
samtals á annað þúsund málverk. í
húsakynnum bankanna er að fmna
mörg fágætustu myndlistarverk þjóðar-
innar. Mbl. sagði frá.
Keyptu í Tetra
Bandaríska fjarskiptafyrirtækið
Motorola hefur keypt tæplega 20% hlut
í fyrirtækinu Tetra-íslandi.
Selja OR-hlut
Bæjarráð Garða-
bæjar hefur lagt til að
heimfia bæjarstjóra
að ganga til viðræðna
um sölu á eignarhlut
bæjarins í Orkuveitu
Reykjavíkur. Hlutur-
inn er metinn á um
_________ 190 milljónir króna
og hefur OR tekið jákvætt í að kaupa
hlutinn. Ásdís Halla Bragadóttir bæjar-
stjóri segir fyrhhugaða sölu ekkert
hafa með þjónustu OR á svæðinu að
gera.
Sigur gegn Mexíkó
Eftir frekar dapran kafla hjá ís-
lenska karlalandsliðinu í skák á
Ólympíuskákmótinu kom langþráð-
m- sigur í 10. umferð þegar Mexíkan-
ar vom lagðir að velli, 2 1/2 -1 1/2.
Hannes Hlifar Stefánsson og Þröstur
Þórhallsson sigruðu í sínum skákum
og hefur Hannes Hlífar náð 6 1/2
vinningi í 8 skákum á fyrsta borði og
samsvarar árangur hans 2771 skák-
stigi og hafa aðeins 8 skákmenn náð
betri árangri. Kvennaliðið tapaði fyr-
ir Brasilíu, 1/2-2 1/2, þar sem Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir gerði jafh-
tefli. í 11. umferð mætir karlaliðið
Perú en kvennaliðið mætir írak. Is-
lenska karlalandsliðið er í 43. sæti.
-HK/jss