Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2002, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2002, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2002 27 DV Sport Kim Clijsters frá Belgíu gerði sér lítið fyrir og lagði stigahæstu tenniskonu heims, Serenu Wiiliams frá Bandaríkjunum, í úrslitum á sterku tennismóti sem lauk i Los Angeles í fyrrinótt. Clijsters, sem er 19 ára gömul, segir þetta vera stærsta sigur sinn á keppnisferlinum. Reuters Lowe gafst upp Sydney Lowe, þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfuknattleik, lét af störfum í gær- kvöld og kom sú ákvörðun reyndar fáum á óvart. Liðinu hefur enn ekki tekist að vinna leik í deildinni og fannst Lowe orðið tímabært að yflr- gefa skútuna þegar liðið tapaði sín- um áttunda leik, fyrir Golden State. Lowe hefur verið með Memphis í þrjú og hefur á ýmsu gengið á þeim tíma. Hubie Brown var útnefndur þjálfari félagsins og á ekki öfundsvert verkefni fyrir höndum. -JKS - sagði belgíska stúlkan Kim Clijsters Belgíska stúlkan Kim Clijsters bar sigur úr býtum á WTA-meist- aramótinu í tennis sem lauk í Los Angeles í Bandaríkjunum í fyrri- nótt. Clijsters sigraði bandarísku stúlkuna Serenu Williams í úrslita- leik, 7-5 og 6-3. Þessi árangur er mikill sigur fyrir belgísku stúlkuna, Williams var almennt spáð sigri, hún er í efsta sæti á heimslista kvenna í tennis en Clijsters í 5. sæti. Clijsters var þó búin að leika mjög sannfærandi á þessu lokamóti tenniskvenna en hún tapaði ekki einu einasta setti í mótinu. Þetta var þriðji sigur hennar í síðustu fjórum mótum sem hún hefur tekið þátt í. Clijsters er aðeins 19 ára göm- ul og spá margir henni glæstum frama á næstum árum en hún æfir mikið í Bandaríkjunum. Clijsters sagði að þetta væri tví- mælalaust stærsti sigur sinn á ferl- inum og sér liði stórkostlega eftir að hafa lagt stigahæstu tenniskonu heims að velli. -JKS Guömundur Hrafnkelsson, markvöröur Conversano, segir spennandi leik vera í uppsiglingu þegar ítalska liöiö mætir Haukum á laugardag. Brasilíumenn tilkynna sterkt lið Heimsmeistarar Brasilíu- manna í knattspyrnu leika vin- áttulandsleik gegn Suður-Kóreu- mönnum í Seoul á miðvikudag í næstu viku. Þetta verður fyrsti leikur Brasilíu frá því í sumar þegar liöið vann heimsmeistaratitil- inn. Markveróir: Dida, AC Milan, Julio Cesar, Flamengo. Varnarmenn: Cafu, AS Roma, Bellitti, Villarreal, Ro- berto Carlos, Real Madrid, Juan, Bayer Leverkusen, Anderson, Gremio. Midjumenn: Gilberto Silva, Arsenal, Emerson, AS Roma, Flavio Conceicao, Real Madrid, Kleberson, Paranaense, Ronald- inho, Paris St. Germain, Junin- ho Pamambucano, Lyon, Ze Ro- berto. Sóknarmenn: Bayern Múnchen, Amoroso, Dortmund, Franca, Denilson, Real Betis, Ronaldo, Real Madríd. -JKS Conversano mætir Haukum á Asvöllum á laugardag: Með eðlilegum leik förum við áfram - segir Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður ítalska liðsins Mikil eftirvænting er fyrir síðari leik Hauka og ítalska liðsins Con- versano í Evrópukeppni bikarhafa sem verður háður á Ásvöllum i Hafnarflrði á laugardaginn kemur. Félögin gerðu eins og kunnugt er jafntefli, 27-27, í fyrri viðureigninni sem var á Ítalíu um síðustu helgi. Haukarnir léku þar sinn besta leik á tímabilinu og kom leikur þeirra ítalska liðinu í opna skjöldu en ítal- amir voru nokkuð sigurvissir fyrir þann leik. I staðinn bíður þeirra mjög erfitt verkefni í Hafnarfirði næsta laugardag. Guðmundur Hrafnkelsson, lands- liðsmarkvörður og liðsmaður Con- versano, sagði í samtali við DV í WTA-meistaramótið í tennis: Stærsti sigurinn á mínum ferli gær að þeir gerðu sér fulla grein fyrir því að liðsins biði erflður leik- ur í Hafnarfirði. „Það hefði óneitanlega verið mun betra að mæta til síðari leiksins með einhver mörk í farteskinu en því er ekki að heilsa. Við hlökkum allir til að koma tU íslands en það verður skrýtið að spUa heima gegn íslensku félagsliði. Leikurinn leggst annars vel í okkur og það er alveg ljóst að spennandi leikur er í upp- siglingu," sagði Guðmundur Hrafn- kelsson. Skynsemin fleytti Haukunum langt í fyrri leiknum Guðmundur sagði ennfremur að Haukarnir hefðu leikið mun betur en búist hafði verið við og skynsam- ur leikur hefði fleytt þeim langt í fyrri leiknum um siðustu helgi. „Haukarnir náðu mjög góðum leik á Ítalíu en það sama verður hins vegar ekki sagt um okkur. Við vorum að leika illa og eigum mun meira inni. Ef við leikum af eðli- legri getu í Hafnarfirði eigum við að klára dæmið og komast áfram í keppninni,“ sagði Guðmundur. Engir stuðningsmenn Conversa- no fylgja liðinu til íslands. Ferðalag- ið til íslands er bæði langt og dýrt en áhangendur liðsins eru samt mjög duglegir að fylgja liðinu í úti- leiki og láta sig þá ekki muna um að keyra í 10-15 klukktíma. Conversano kemur til Islands sídegis á fostudag og heldur síðan af landi brott á sunnudagsmorgun. Leið liðsins liggur til Modena á Ítalíu en þar ætlar það að dvelja fram á miðvikudag en þá leikur liðið gegn Modena í ítölsku 1. deildinni. Dómarar leiksins á laugardag koma frá Noregi, Abrhamsen og Kristiansen. Þeir hafa nokkrum sinnum dæmt hér á landi. Eftirlitsmaður leiksins kemur frá Danmörku. -JKS Vicario hætt Spænska tennisdrottningin Arantxa Sanchaez-Vicario hefur ákveðið að hætta að keppa sem at- vinnumaður í íþróttinni. Þetta var tilkynnt opinberlega í Barcelona í gær þar sem Vicario er borin og bamfædd. Þessi ákvöröun hefur legið í loftinu alllengi en Vicario, sem orðin er þrítug að aldri, tók af skarið í gær Vicario er í hópi fremstu tennisspilara sögunnar og sigur- sælasti Spánverjinn í þessari vin- sælu íþróttagrein. Hún vann til tvennra silfurverðlauna á Ólymp- íuleikunum í Barcelona 1992 og að auki einna bronsverðlauna. Á ferl- inum vann hún 29 mót og 67 sinn- um í tvíliðaleik. -JKS Geir og Eggert eftirlitsmenn UEFA Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sem á sæti í framkvæmda- nefnd UEFA, og Geir Þorsteins- son, framkvæmdastjóri KSÍ, verða eftirlitsmenn á þremur leikjum í Evrópukeppninni í þessari viku. Eggert var sérstak- ur sendifulltrúi UEFA á leik Arsenal og PSV Eindhoven á Highbury í gærkvöld og í kvöld verður hann mættur á Old Traf- ford í sömu erindagjörðum þar sem eigast við Manchester United og Bayer Leverkusen í meistaradeild Evrópu. Geir verður eftirlitsmaður á leik Fulham og Dinamo Zagreb á Loftus Road í Lundúnum. Ful- ham vann fyrri leik liðanna í Króatíu. -JKS BLÍ heiðrar sex einstaklinga Blaksamband íslands sæmdi í gær sex einstaklinga heiðurs- merki sambandsins úr gulli. At- höfnin fór fram í tengslum við 30 ára afmælisveislu sambandsins. Þeir sem heiðraðir voru eru Berglind Þórhallsdóttir, Björg- úlfur Jóhannesson, Leifur Harð- arson, Petrún Jónsdóttir, Skjöld- ur Vatnar Bjömsson og Þorvald- ur Sigurðsson. Um síðustu helgi var Þorvarð- ur Bragi Sigfússon, varaformað- ur BLÍ, kosinn gjaldkeri C-þjóða Evrópusambandsins á fundi Evr- ópusambands blakþjóða. -JKS Samningi við Tómas Inga sagt upp Knattspyrnuráð ÍBV hefur sagt upp samningi sínum við Tómas Inga Tómasson en hann hefur leikið með félag- inu sl. þrjú ár. Samn- ingurinn var uppsegj- anlegur þar sem báðir aðilar gátu sagt hon- um upp á ákveðnum tímapunkti eins og fram kemur á fréttavef Eyjafrétta. Tómas Ingi skoraði þrjú mörk í 15 leikjum með ÍBV í Síma- deildinni á síðasta tímabili. Ekki þykir óliklegt að félög falist eftir kröftum leikmannsins sem er 33 ára gamall og býr yflr mikilli reynslu. -JKS Góður lokahringur dugði ekki til Birgir Leifur Hafþórsson átti góðan lokasprett á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina sem fram fór á Spáni í gær. Birgir Leifur lék lokahringinn á 71 höggi eða einu undir pari og því samtals á 225 höggum (77-77-71). Mótið var mjög sterkt sem sést best á því að síðasti maður til að fara áfram lék á 208 höggum eða á átta höggum undir pari. -JKS Viduka og Mills ekki með Leeds Enska úrvalsdeildarliðið Leeds United hélt til Ítalíu í morgun en annað kvöld mætir liðið Hapoel Tel Aviv í síðari leik liðanna í UEFA-bikamum. Danny Mills fór ekki með í ferð- ina af fjölskylduástæðum og af sömu ástæðum lék hann ekki með gegn West Ham um síðustu helgi. Mark Viduka var gefið frí vegna þess að konan hans á von á fyrsta bami þeirra hjóna þessa dagana. Leeds mætir því vængbrotið til leiks en auk Viduka og Mills vantar nokkra sterka leikmenn sem eiga í meiðslum. Leeds vann fyrri leikinn á Elland Road, 1-0, svo róöurinn gæti orð- ið erfiður annað kvöld. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.