Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2002, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002
37
I>V
M
agasm
Fyrsta Hyundai-
jeppaferð B&L
B&L hélt sinn fyrsta Hyundai jeppadag um fyrri helgi og var mæting þar
með ágætum. Ekið var frá B&L austur yflr fjall og stefnan tekin á Geysi í
Haukadal þar sem áð var stutta stund. Frá Geysi var farið um slóða gegn-
um Haukadalsskóg, upp á hina ægifogru Haukadalsheiði og inn á linuveg
sem liggur vestur undir hlíðum Hagafellsjökuls, en þessi leið er rómuð fyr-
ir ægifagurt útsýni með Hlöðufell og Skjaldbreið (1.060 m.y.s.), fagurformað-
an hraunskjöld, sem myndaðist sennilega í löngu hraungosi fyrir um 9 þús-
und árum. Mikill og djúpur gígur, um 300 metra að þvermáli, er uppi á há-
fjallinu.
Um hádegið var stoppað til að njóta útsýnis og kaflihressingar en að því
búnu haldið inn á Kaldadal þar sem
einn af hæstu fjallvegum landsins ligg-
ur (727 m y.s.) Á Kaldadal var jafnframt
einn af fyrstu fjallvegum á íslandi rudd-
Fyrsta 4x4 fjölskylduferö Hyundai var farin laugardaginn 2. nóvember
sl. í tilefni af 10 ára afmæli Hyundai á íslandi. Þátttakan var góö og
stemningin enn betri.
„Mín tilfinning er aö neysla
hvíts kjöts sé aö aukast og ég
hef orðið vör viö aukna eftir-
spurn eftir uppskriftum aö
kjúklingaréttum," segir
Ágústa Johnson.
Magasín-mynd hari
Meðvitaðar
matarvenjur
- hollir kjötréttir
Agústu Johnson
„Fólk er sér betur meðvitandi um
mikilvægi neyslu hollrar fæðu og í
kjölfarið eru matarvenjur tslendinga
að breytast. Ég hef ekki beinar tölur
um kjötneyslu íslendinga en min til-
finning er að neysla hvíts kjöts sé að
aukast og ég hef orðið vör við aukna
eftirspum eftir uppskriftum að
kjúklingaréttum. Þess vegna eru að-
eins fleiri slíkar uppskriftir í bók-
inni,“ segir Ágústa Johnson, likams-
ræktarþjálfari og framkvæmdastjóri
Hreyfmgar - heilsuræktar.
Þessa dagana er að koma út í sam-
vinnu Hreyfmgar og Hagkaupa bók-
in Betri kostur. Fyrirhuguð er útgáfa
bóka í ritröð undir þessari yfirskrift,
en hér er að fmna uppskriftir að holl-
um kjötréttum. „í þessari fyrstu bók
er að fmna úrval uppskrifta að ljúf-
fengum kjötréttum sem allir inni-
halda litla mettaða fitu, lítið kólester-
ól og hæfilegt magn hitaeininga fyrir
eina máltíð,“ sagði Ágústa í samtali
við DV-Magasín.
„Þétta eru hollar uppskriftir að
ljúffengum réttum," heldur hún
áfram. „í hraða nútímaþjóðfélagsins
grípum við oft til þeirrar fæðu sem
fLjótlegast er að nálgast, frekar en að
láta næringargildi ráða. Þetta getur
reynst hættulegt heilsunni því rann-
sóknir hafa til dæmis leitt í ljós að
mun hærri tíðni er á hjartasjúkdóm-
um og krabbameinstilfellum. Mikil
fituneysla hefur einnig verið tengd
við sykursýki, oflitusjúkdóma,
slæma húð, bjúgsöfnun, ofnæmi,
svima og meltingartruflanir."
„Ég hef gríðarlegan áhuga á mál-
efnum um hollar lífsvenjur og hef
reynt að beita mér af krafti fyrir því
að miðla upplýsingum um þessi mál.
Það hefur áunnist mikið í að upplýsa
almenning en betur má ef duga skal,
því á sama tíma hefur þjóðin fitnað.
Það er því ekki nóg að vita að maður
þarf að hugsa um heilsuna, það þarf
líka að bregðast við,“ segir Ágústa
enn fremur.
Hún segir uppskriftimar í bókinni
skv. manneldismarkmiðum, en þær
eru að lamba-, nauta-, svína- og
kjúklingakjötsréttum. „Við einfald-
lega veljum magra hluta af kjötinu,
fituhreinsum það vel og notum ef til
vill aðeins minna af kjötinu og að-
eins meira af grænmeti." -sbs
Halldór Laxness fæddist að Laugavegi 32
23. apríl 1902.
„Fróðir menn segja mér að ég muni ekki hafa
fæðst í timburhúsinu uppí lóðinni á Laugavegi 32
þar sem stelpan misti mig útum gluggann, heldur
muni það hafa gerst í steinbænum fast við
götuna þar sem kötturinn stökk uppí vögguna til
að læsa klónum í andlitið á barninu meðan það
svaf; og var heingdur fyrir vikið.“
í túninu heima.
SJÁÐU
NÝJU VERSIvUNINA AÐ EAUGAVEGI 32
Gleraugnaverslunin Sjáðu hefur tekið til starfa á nýjan leik,
steinsnar neðar á Laugaveginum. Þar er nú full búð af
spánnýjum gleraugnaumgjörðum og öðru tilheyrandi, m.a. frá
belgíska hönnuðinum og framleiðandanum Theo, IC-Berlin
og Booth and Bruch.
Með bestu kveðju og von um að sjá ykkur sem allra fyrst.
Anna Þóra Björnsdóttir
verslunarstjóri
Gylfi Bjömsson
sjónfrœðingur
,xO<bnav£«s
ov ^ %
SJAÐU