Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Page 17
16
+
17
Útgáfufélag: Útgáfufélagifi DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blafiaafgreifisla, áskrift:
Skaftahliö 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Afirar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagifi DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki vifimælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Upphaf endaloka R-listans
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri hefur tekið af skarið. Hún
verður i framboði fyrir Samfylking-
una, í fimmta sæti í norðurkjör-
dæmi Reykjavíkur, í alþingiskosn-
ingunum í vor. Flokkurinn þarf að
vísu góða kosningu til þess að borg-
arstjóri setjist á þing eftir kosningar
en engu að síður tekur hún sæti á lista formanns flokksins í
sæti sem kalla má baráttusæti.
Nái Ingibjörg Sólrún kosningu á þing getur hún að sönnu
setið áfram sem borgarstjóri, fyrir því eru fordæmi. Fram hjá
því verður þó ekki litið að með ákvörðun sinni stígur hún
fyrsta skrefið á leið sinni út úr borgarstjórn Reykjavikur. Sam-
fylkingin sækist leynt og ljóst eftir ríkisstjórnarsetu næsta
kjörtímabil. Setjist ílokkurinn í stjóm er Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir augljóst ráðherraefni og myndi þá hætta sem borg-
arstjóri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er öflugur stjórnmálamaður,
það sýndi hún sem alþingismaður og síðar borgarstjóri þar sem
hún hefur leitt samstarf ólíkra flokka til sigurs í þrígang. Marg-
ir hafa séð í henni helsta framtíðarleiðtoga vinstri manna í
landsmálum. Vandi borgarstjórans varðandi þingframboðið nú,
ekki síður en þegar hún lagðist undir feld í september og íhug-
aði þingframboð, er hins vegar trúverðugleiki hennar sem
stjórnmálamanns og traust það sem kjósendur hafa borið til
hennar.
Ingibjörg Sólrún sagði í vor að hún stefndi ekki á þingfram-
boð. Hvað sem líður deilum um loforð borgarstjóra er vart um-
deilanlegt að kjósendur R-listans treystu því að Ingibjörg Sól-
rún gegndi starfi borgarstjóra út kjörtímabilið. Hún er límið í
sambræðingi Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna í Reykjavíkurlistanum. Á kosninganótt eftir
borgarstjómarkosningamar í vor ræddi fréttamaður Ríkisút-
varpsins við borgarstjóra sem sagði: „Ég fullyrði algerlega að
ég er ekki að fara í þingframboð að ári, það er alveg ljóst.“
Yfirlýsing borgarstjóra var afdráttarlaus. Svo var einnig í
september, eftir að Ingibjörg Sólrún hugleiddi þátttöku í kom-
andi alþingiskosningum. Þá sagði hún í viðtali við DV: „Ég
sagði í vor að ég stefndi ekki á þingframboð, ég ítreka það núna
og hef engu við það að bæta.“ Nú, rúmum þremur mánuðum
síðar, er afstaða borgarstjóra breytt. Hún tekur sæti á lista
Samfylkingarinnar, leiðir hann að vísu ekki, en situr í baráttu-
sæti líkt og hún hefur kosið að gera í borgarstjórnarkosning-
um.
Áhugi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hefur færst að lands-
málapólitík. Þótt meirihluti R-listans sitji við völd til loka kjör-
tímabilsins er óvissa um það hversu lengi borgarstjóri gegnir
embættinu. Það helgast m.a. af næsta ríkisstjórnarsamstarfl.
Allar líkur em því á nýjum leiðtoga R-listans í næstu borgar-
stjórnarkosningum, haldi samstarf hinna þriggja ólíku flokka
yfirhöfuð áfram. R-listinn er annar og veikari án Ingibjargar
Sólrúnar. í borgarstjómarflokki R-listans er enginn augljós arf-
taki borgarstjóra og enn síður einhver sem haldið getur bræð-
ingnum saman með sama hætti og Ingibjörg Sólrún hefur gert.
Ákvörðun borgarstjóra nú gæti því þýtt upphaf endaloka R-list-
ans.
Með tilliti til R-listans má heldur ekki vanmeta þau áhrif
sem það hefur að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fer fram fyrir
Samfylkinguna í þingkosningunum í vor, meðal annars sem
andstæðingur Framsóknarflokksins og Vinstri grænna. í norð-
urkjördæmi Reykjavíkur etur hún meðal annars kappi við for-
mann Framsóknarflokksins. Hætt er við að þessir stuðnings-
menn R-listans líti borgarstjóra öðrum augum eftir að til þing-
framboðsins kom. Merki þess sjást í nýrri skoðanakönnun sem
DV birtir í dag. Þar kemur í ljós að þriðjungur kjósenda R-list-
ans er andvígur þingframboöi leiðtoga listans.
Jónas Haraldsson
______________________________________FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002_FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
DV
Skoðun
Vort
Kjallari
Nokkur umræða er af
stað farin um „venjulegt
fólk“ hér á landi sem
sagt er að eigi hvergi
heima í pólitík og geti
varla kosið nokkurn
þeirra flokka sem
í boði eru.
Að eiga hvergi heima
Kenningin er eitthvaö á þessa leið
í greinum og ummælum Hallgríms
Helgasonar, Þrastar Helgasonar og
fleiri: Sjálfstæðisflokkurinn er fyrir
þá ríku og markaðsvænu. Samfylk-
ingin er of bundin af gamaldags vel-
ferðartali um fátæka, öryrkja og
aldraða. Framsóknarflokkurinn er
bara fyrir framsóknarmenn. Vinstri-
grænir eru þverhausar sem ekki
sinna um annað en gagnrýni. Útkom-
an er sú, að því er manni skilst, að
enginn sé að hugsa um þetta „venju-
lega fólk“ sem er hvorki rikt né fá-
tækt, er á góðum aldri (25-45 ára),
hefur sæmilegar tekjur en mikil út-
gjöld og á því í nokkru basli.
Kannski mætti koma því fyrir í
lægri millistéttum. Talið er líklegt að
þetta fólk sé eins konar hægrikratar
að pólitísku upplagi og vilji bæði
frelsi eins og markaðshyggjumenn
og velferð eins og vinstrikratar - en
í öðrum hlutfóllum þó.
Og þá er að spyrja: um hvaða hlut-
foll gæti verið að ræða? Þar stendur
nefnilega hnífurinn í kú heimilis-
leysingjanna pólitísku sem hafa
Sandkom
Enn lœti á Kistunni
Flestum er í
fersku minni
lætin sem urðu í
kjölfar bréfa-
skrifa Mikaels
Torfasonar rit-
höfundar á vefn-
um Kistunni,
þar sem hann
lýsti þeirri skoö-
un sinni að til-
tekinn gagnrýnandi væri fífl. Nú
hefur Hermann Stefánsson valdið
litlu minni titringi með gagnrýni
sinni á þýðingu Hallgríms Helga-
sonar rithöfundar á Rómeó og Júlíu
Shakespeares. „Þunnur þrettándi"
og „beinlínis neyðarleg" eru meðal
niðurstaðna Hermanns. En Páll
Valsson hefur brugðist til varnar og
segir að dómur Hermanns sé „al-
gjörlega ómarktækur" enda hafi
hann sjálfur viðurkennt að hann
hafi ekki nennt að bera þýðinguna
saman við frumtextann. Páll segir
að þessi vinnubrögð séu fyrir neðan
allar hellur og gagnrýni Hermanns
falli kylliflöt um sjálfa sig. Þótt skrif
af þessu tagi veki hugsanlega at-
hygli sé ritstjórn Kistunnar komin
á hálan is með að birta þetta sem
gagnrýni, viiji Kistan láta taka sig
alvarlega í bókmenntaskrifum ...
Hátíð í bœ
Opinbert er orðið að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir hefur samþykkt
að skipa 5. sæti á öðrum lista Sam-
fýlkingarinnar í Reykjavík í næstu
þingkosningum, eins og Sandkoms-
ritari spáði i síðustu viku að yrði
raunin. Þetta hefur verið erflð fæð-
líf í þessum lægri millistéttum
reyndar lengi verið meðal vor
og kvartað um sitt auma hlut-
skipti, ekki vantar það.
Bæði með og á móti
Vandi þessa fólks er sá að
það vill bæði einstakmgsfrelsi,
eins og markaðspiltar í Sjálf-
stæðisflokki lýsa því, og vel-
ferðarráðstafanir sem eru jafn-
an á borði vinstriflokka. Þetta
fólk er að vísu varla mjög upp-
tekið af frelsi fjárfesta til að
ösla yfir landið og heiminn og
sér líklega ekki mikla blessun í
því að arður af smásölu hér
innanlands eða kvótasölu sé
hafður til að leggja í verslunar-
ævintýri og kaup á fótboltalið-
um í Bretlandi.
En sem fyrr segir: þetta fólk
þarf að borga margt og mikið -
á því liggja námslánaskuldir,
húsnæðisskuldir, vaxandi
kostnaður af bamauppeldi og
mikil skattheimta. Aukið frelsi
þessu fólki til handa verður því
gjama tengt von um að losna
sem mest undan áþján slíkra
fastaútgjalda til að hafa þá
„frelsi til að ráðstafa sínu afla-
fé“ eins og gjama er sagt. í
framhaldi af því era heimilis-
leysingjar í miðju fúsir til að
hlusta á loforð sem ungir
hægrimenn eru ósparir á, um
að lækka skuli skatta stórlega.
En ef nú skattheimta er stór-
lega lækkuð þá verður að skera
niður velferðarkerflð líka. En
það vilja heimilisleysingjar
ekki.
Að vísu er það svo að allir
geta fundið eitthvað sem þeir
telja óþarft eða ofrausn í vel-
ferðargreiðslum til annarra -
en þessi hópur hér er ekki svo
mjög á þeim buxunum. Hann
viídi bara að velferðarkerfið
væri meira sniðiö að hans þörf-
um; að húsnæðislán væru ódýr-
ari, námslánin líka, barnabæt-
umar meiri, dagvistin ódýrari
asojnun
V skattur
„I framhaldi af því eru heimilisleysingjar í miðju
fúsir til að hlusta á loforð sem ungir hœgrimenn
eru ósparir á, um að lœkka skuli skatta stórlega.
En ef nú skattheimta er stórlega lœkkuð þá verð-
ur að skera niður velferðarkerfið líka. “
og þar fram eftir götunum. En
það kallar allt fremur á meiri
skattheimtu en minni. Með öðr-
um orðum: hinir pólitísku heim-
ilisleysingjar vilja bæði þiggja
hægrimannaráð og vinstri, þeir
vilja bæði minni ríkisútgjöld og
skatta og meiri útgjöld (til mála
sem að þeim snúa). Þeir ætlast
til að pólitíkusar komi og leysi
úr þessari þversögn - en það
geta stjómmálamenn ekki.
Þess vegna eru hinar yngri og
lægri millistéttir í pólitiskri
fýlu. En það er ólíklegt að þær
geri eitthvað í málinu, til dæm-
is með því að stofna sérstaka
hreyfmgu. Slík hreyfmg er lík-
leg til að kafna í þversögnum.
Og ef einhver glaðbeittur lýð-
skrumari mundi reyna að fylla
upp í þá pólitísku eyðu sem
menn hafa verið að hjala um -
þá er ekki líklegt í bili, að hon-
um yrði vel ágengt. í ööram
löndum spila slíkir skramarar
mest á ýmislegan ótta við eða
fordóma í garð innflytjenda: þau
fyrirbæri eru að sönnu til hér á
landi en varla nógu öflug enn til
að menn geti smalað sér miklu
fylgi út á þau.
Ráðleysi mikið
Kannski dettur einhverjum í
hug að leysa úr tilveravanda
bæði hinna pólitísku heimilis-
leysingja og svo þeirra sem enn
verr eru settir með þvi að beina
spjótum að þeim sem eiga land-
ið og miðin og verslunarkeðj-
umar og krefjast þess að þeir og
fyrirtæki þeirra borgi meira í
sameiginlegan brúsa. Og slíkar radd-
ir heyrast að vísu hér og þar í röðum
vinstrimanna. En flestir hrökkva þá
við og biðja þá menn að láta sem
allra minnst fyrir sér fara: sú hug-
myndafræði sem nú ræður telur það
úrelta og bjánalega höfuðsynd að ætl-
ast til þess að fyrirtæki greiði í sam-
eiginlega sjóði eins og „venjulegt
fólk“.
Síðast þegar jafnaðarmannaforingi
setti slíkt á oddinn, en það var Ósk-
ar Lafontaine í Þýskalandi, var fjöl-
miðlamaskínan fljót að lýsa hann
„hættulegasta mann í Evrópu" og
var Óskari bolað úr sínum foringja-
sessi hið snarasta.
Svo það er ekki nema von að fátt
sé um fma drætti úr hinum pólitíska
sjó. Eru margir svo dasaðir orðnir að
okkur heyrast þeir kyrji á hverju
kvöldi þennan gamalkunna og ágæta
texta sem Jónas Árnason bjó til fyrir
leikrit eftir Brendan Behan:
Vort líf í þessum lœgri millistéttum
er lítiö skárra en það foröum var
Við stöndum ennþá eins og fé í réttum
og einskis bíöum nema slátrunar.
Og undir lokin færist styrkur í
kórinn og allir taka með sannri
sjálfsvorkunn undir lokastefið sem
vísar beint á yflrþyrmandi pólitíska
tilvistarkreppu og einsemd:
Og því er þaö ég segi enn og aftur
eins þótt þaö sé löngu fullsannað:
Þaö elskar mann sko ekki nokkur kjaftur
nema ef aö maóur sjálfur skyldi gera þaó.
sandkorn@dv.is
ing en gekk loks
eftir. Spekingar
spá núna í tíma-
setningu þessara
tíðinda - vissu-
lega helgast hún
að einhverju
leyti af þeim
tímamörkum
sem Samfylking-
in hafði sett sér
varðandi skipun á lista, en þeir allra
hörðustu telja að ekki sé verra að
tilkynna ákvörðun sem er að sumu
leyti svolítið óþægileg í ljósi fyrri yf-
irlýsinga svona rétt fyrir jólin ...
Magnaðir listar
Nú má nokkum veginn kort-
leggja hverjir verða í framboði fyrir
hvort kjördæmi í Reykjavík. í norð-
urkjördæminu verða að öllum lík-
indum, meðal emnarra: Davíð Odds-
son, Bjöm Bjarnason, Össur Skarp-
héðinsson, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, Halldór Ásgrímsson og Ög-
mundur Jónasson. í suðurkjördæm-
inu verða á hinn bóginn, ef að lík-
um lætur: Geir H. Haarde, Jóhanna
Siguröardóttir, Kolbrún Halldórs-
dóttir og Jónína Bjartmarz. Fylgj-
umst grannt með búferlaflutningum
næstu vikur ...
Nœg bílastceði
Um 500 ný bílastæði hafa verið
tekin í notkun við Skíðastaði, skíða-
svæði Akureyringa í Hlíðarfjalli.
Þau era glæsileg, en eini gallinn er
að vandséð er hverjir koma til með
að nota þau því enginn er snjórinn
í Hlíöarfjalli og allar skíðalyftur
standa kyrrar.
Enn
Lúðvík
Gizurarson
hæstaréttar-
lögmaöur
Kjallari
Jólin hafa oft verið tími
óþarfa eyðslu síðustu árin
og eru enn árið 2002.
Fólk kaupir og kaupir út
á krítarkortið nú um jólin
og fær svo greiðsludreif-
ingu í janúar 2003 þegar
jólareikningurinn kemur.
íslendingar eru enn eyðslusjúkir
um jólin 2002 enda höfðu þeir oft
ekki nægan mat að borða í seinustu
1000 ár þar á undan. Sultu til dauða
fram í upphaf seinustu aldar.
Lengra er ekki síðan.
Menn tala um hina íslensku
eyðslukló sem sérstakt náttúrufyrir-
bæri á íslandi. Þetta hefur haldið
öllu hagkerfmu gangandi og skapað
velmegun líðandi stundar byggða á
auknum og meiri og meiri erlend-
um lántökum síðustu árin. Mál er
að linni.
Nú ætti að halda sparnaöarjól
árið 2002 en verður varla. Sumir
eyðslujól í ár?
vilja þó spara í dag. Ætla núna á jól-
um 2002 að kaupa minna og borða
enn minna þessi jól. Allir hafa þörf
fyrir að spara peninga og borga þá
skuldir sínar. Menn græöa líka á að
spara mat og fltna þá minna. Það er
gott fyrir heilsuna.
Grunnvextir evrunnar 2,75%
Ákveðið hefur verið að lækka
grannvexti evrannar úr 3,25% í
2,75%. Þetta gerir Seölabanki Evr-
ópu (ECB) þessa dagana til að örva
hagkerfi Evrópusambandsins en
undanfarið hefur mestöll áhersla
Seðlabanka Evrópu verið lögð á það
að halda verðbólgu eins nærri núlli
í evrulandi og hægt hefur verið.
Auka þannig traust á stöðugt og fast
verðgildi evrunnar.
Alþjóðlegur gjaldmiðill eins og
evran verður að hafa þá tiltrú um
allan heim að verðgildi hans sé
stöðugt og því megi treysta. Þá
spara menn evrur og geyma þar
sem þær rýma ekki í verðgildi við
geymslu. Þannig hefm- bandaríski
dollarinn, sem fellur nánast ekkert í
verði, áunnið sér tOtrú um heim all-
an Hann á veldi sitt að þakka traust-
um stöðugleika.
ísland fái evruna sem fyrst
Við eigum að taka upp evruna.
Það er einfaldara hagfræðilega og
tæknilega en menn halda. Það er í
rauninni auðvelt mál þar sem við
erum aukaaðilar að ESB með EES.
Um leið og hér væri komið evruland
myndu íslendingar fljótt halda
spamaðarjól. Almenningur
myndi að stórum hluta halda
fast í nýfengnar alvöraevrur
og ekki tíma að eyða þeim
strax. Venjulegur íslendingur
yrði nískur og búralegur í stað
þess að vera mesta og frægasta
eyðslukló veraldar.
íslendingar era enn fastir í
hugsun fyrri verðbólgu sem
hér réð öllu og rústaði lengi
vel verðmæti okkar aumu ís-
lensku krónu. Þá vildu menn
eyða áður en krónan okkar
félli meira og meira I verði en
hún varð loks næsta verölítil.
Banki allra landsmanna
auglýsti: „Græddur er geymd-
ur eyrir“ en nánast enginn
trúði á eða fór eftir þessu. All-
ir eyddu öllu og gera enn of
margir áriö 2002.
Vaxtaokrið myndi hrynja
Við búum í dag við mikið
vaxtaokur á Islandi. Það hækk-
ar verðlag á allri vöru. Hús-
næði verður miklu dýrara. Allt
verðui’ dýrara. í raun er stór
hluti landsmanna og fyrirtækja
staddur í þeim vitahring að
borga og borga of háa vexti sem
oft er gert með því að taka ný og ný
lán. Með evravöxtum fær allur al-
menningur betri kjör. Vaxtalækkun
er í raun allra stærsta og mesta
kjarabótin. Svo hagnast nánast öll
fyrirtæki okkar óhemjumikið á
vaxtalækkun og jafnvel samtals um
milljarða árlega.
„Banki allra landsmanna auglýsti: „Grœddur er geymdur eyrir“ en
nánast enginn trúði á eða fór eftir þessu. Allir eyddu öllu og gera enn
of margir árið 2002. “
Samkvæmt opinberum skýrslum
skuldar sjávarútvegurinn einn á ís-
landi imi 200 milljarða. Hvert pró-
sentustig í lægri vöxtum eru tveir
milljarðar á ári bara fyrir þessa
einu atvinnugrein sem er stór.
Ef vextir af þessum 200 milljörö-
um lækka um einhver fleiri prósent
með evranni eru það margir millj-
arðar árlega í hagstæðari vexti bara
fyrir sjávarútveginn einan. Það
munar um minna.
Evran skapar sparnaðarjól
Eins og sagt var hér að framan
era stýrivextir evrunnar nú komnir
niður í 2,75%. Ef við
værum með evruna á
íslandi og værum þar
með inni á evrusvæð-
inu með okkar peninga-
kerfi þá væru aðrir
vextir hér á landi mið-
aðir við þessa lágu
stýrivexti. Væru mis-
munandi mikið hærri
en 2,75% miðað við að-
stæður og lánaáhættu.
Við tækjum í raun upp
nýtt hagkerfi þar sem
evran endurspeglar hið
stóra hagkerfi Evrópu-
sambandsins. Okkar
peningakerfi er of lítið
og veikt til að geta tek-
ið á sig áfóll eða sveifl-
ur.
Núna er sveiflan nið-
ur og hagvöxtur núll
eða enginn árið 2002.
Fólk sparar meira en
áður.
Ef við væram hluti af
stærra hag- og peninga-
kerfi með evrunni fengj-
um við þann stöðug-
leika sem okkur vantar.
Með stöðugleikanum
lækka vextir hér svona um helming
sem auðvitað er áætluð tala. Alla
vega lækka þeir mjög mikið. Gjald-
miðill okkar verður alveg stöðugur
að verðgildi. Menn vilja aftur spara
hvem eyri. Með upptöku evrannar
höldum við raunveruleg spamaðar-
jól i fyrsta skipti.
+