Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 DV Fréttir Björgun Guðrúnar: Hafa tryggt fé og kafara Samstarfshópur um björgun Guð- rúnar Gísladóttur hefur tryggt nægjanlegt fjármagn, um 50 milljón- ir króna, til þess að tryggja að stað- ið verði við nýjar aðgerðir til að hífa fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísla- dóttur af hafsbotni við Leknes í Norður-Noregi. Kostnaður við verk- ið er áætlaður 120 milljónir króna. Fresturinn sem norsk stjórnvöld gáfu íshúsi Njarðvíkur leið án þess að tryggingar bærust. íslendingar halda verkinu áfram, þótt frestur- inn hafi verið liðinn þegar staðfest- ingin barst. Norsku mengunarvam- irnar voru í startholunum að gera samning við björgunarfyrirtækið Riise Underwater Enginering um að tæma olíu úr skipinu, en nú er tryggt að íshús Njarðvíkur klári verkið. Samningar náðust í gær- kvöld við kafara sem fara niður að flakinu.. Ásgeir Logi Ásgeirsson, talsmað- ur björgunarmanna við Leknes, seg- ir að nú verði tekið til óspilltra mál- anna við björgunina, m.a. að koma lyftitönkum fyrir, en ómögulegt sé að sjá fyrir hvenær skipinu verður lyft af hafsbotni. -GG Allt að 800.000 króna yfirdráttur Svokallaðir vildarvinir íslands- banka geta fengið allt að 800 þúsund króna yfirdráttarheimild án heimild- argjalds og ábyrgðarmanna. Þessi þjónusta er sögð ætluð þeim við- skiptavinum sem eigi mikil og góð innlánsviðskipti við bankann.Við- skiptavinir íslandsbanka, sem eru í svokallaðri valþjónustu, geta fengið allt að 600 þúsund króna yfirdráttar- heimild án heimildargjalds og ábyrgðarmanna, að því er fram kem- ur hjá Þórdísi Pálsdóttur hjá íslands- banka. Yfirdráttarheimildin má þó ekki verða hærri en þrefóld launa- velta á launareikningi. Umrædd valþjónusta er í boði fyr- ir skilvísa viðskiptavini sem eru í magvíslegum viðskiptum við bank- ann. Um þriðjungur viðskiptavina bankans nýtir sér yfirdráttarheim- ildir, að því er fram kemur hjá Þór- dísi. Meðalfjárhæð yfirdráttarheim- ilda einstaklinga í íslandsbanka nú er um 400 þúsund krónur. Þorkell Jónsson hjá Landsbanka tjáöi DV að þeir viðskiptavinir bank- ans, sem væru í góðum og áfallalaus- um viðskiptum við bankann, svo- kallaðir Vörðufélagar, gætu fengið 550 þúsund króna yfirdráttarheimild án heimildargjalds og ábyrgðar- manna. Að öðru leyti væri ekkert sérstakt þak á heimildunum, en um- sóknir metnar í hverju tilviki fyrir sig. Þorkell sagði að mjög stór hluti viðskiptamanna bankans flokkaðist undir þá skilgreiningu sem Vörðufé- lagi félli undir. -JSS/vig mssmm'. Frjálsi á yfirverði SPRON greiddi á bilinu 900 til 1400 milljónum króna of mikið fyrir Frjálsa fjárfestingarbank- ann. Þetta kemur fram í verðmati Deloitte & Touche sem unnið var fyrir Búnaðarbankann að beiðni funm- menninganna sem gerðu tilboð í SPRON sl. sumar. Pétur Blöndal, einn funmmenninganna, segir í samtali við mbl.is að málið verði rætt á fundi stofnfjáreigenda SPRON. Eyöimerkurrall Toyota á íslandi og í Evrópu vinnur nú að því aö halda eyði- merkurrall hérlendis næsta sumar. Toyota býður blaðamönnum jafnan þriðja hvert ár til aksturs á nýjum jeppum á framandi slóðum. Kennarar skoða tölvur Um 160 kennarar í grunn- og framhaldsskólum hérlendis sóttu ráðstefnu I London í liðinni viku. Kennarahópurinn var að kynna sér allt það nýjasta í tölvubúnaði. Minna fæst fyrir lýsi Lægra verð fæst nú fyrir fiski- mjöl og lýsi í upphafi loðnuvertíðar en við upphaf siðustu vertíðar. Að teknu tilliti til gengisbreytinga og verðlækkana á heimsmarkaði hefur lýsisverð lækkað um þriðjung. Fjárnámsbeiðnum hefur farið snarfjölgandi á sl. 5 árum: Æ fleiri fasteignir og bílar á nauðungarsölu - hjá Sýslumanninum í Reykjavík á síðari árum DV-MYNDIR JULIA IMSLAND Jökulsárbrú vin yfir Jökulsá er 108 metra löng hengibrú og var byggö 1967. Séö frá eystri bakka viö ósinn. Verktakafyrirtækið Nóntindur lauk um helgina við að setja grjót- vöm við bakka Jökulsár á Breiða- merkursandi . Verkið tók nokkuð lengri tíma en upphaflega var ætlað þar sem mun meira efni þurfti til að styrkja bakkana en upphaflega var taliö. Alls fóru um 25 þúsund rúmmetrar af grjóti og möl við bakkana í stað 18 þúsund rúmmetra sem var í útboðinu og var ástæðan sú að fyllingin seig mikið. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerð- inni segir að næsti áfangi við Jök- ulsá verði boðinn út 20. janúar, þ.e. að setja grjóthleöslu framan við fyll- inguna sem var veriö að setja við bakkana undir og neðan við brúna beggja vegna árinnar. Einnig verð- ur sett grjótvöm við bakkann þar sem bátamir hafa haft aðstöðu en þar er farið að brjóta úr bakkanum. Tvær grjóthindranir eru þvert yfir ána sín hvorum megin við brúna sem eiga að hindra jakaburð og koma í veg fyrir að dýpi árinnar aukist. Þessir grjótgarðar á botninum hafa lækkað og verður bætt á þá svo hæð þeirra frá botni verði 2-3 metr- ar og breidd 20-30 metrar. Dýpi er 8-9 metrar þar sem áin er dýpst og verða steinarnir sem fara í hindrun- ina í ána um tonn á þyngd. Reynir segir að litlar breytingar hafi orðið við ósinn í vetur nema að hann er núna opinn í beina stefnu út frá Jökulsánni. Hugsanlegt er að þetta mikla vatnsrennsli og góð veðrátta sem verið hefur í vetur hafi þar einhver áhrif. Ekki hafa verið gerðar mælingar á landbroti austur með ströndinni frá ósnum síðan í haust en það verður gert á næstunni segir Reynir, en ljóst er að bilið milli sjávar og raflínu hefur styst. Vegagerðin fylgist vel með alvar- legri þróun mála við Jökulsá og hef- ur fengið Siglingarmálastofnun rík- isins til liðs við sig til að kanna hvað hægt verði að gera til að stöðva landbrot og tryggja öryggi þjóðvegar og brúar. -JI Langir biðlistar Um 1100 manns höfðu beðið leng- ur en í þrjá mánuði eftir augnað- gerðum á Landspítalanum um ára- mót. Biðlistarnir eru langir og er það m.a. rakiö til launadeilu sérfræðinga fyrir ferliverk en samningum þar að lútandi var sagt upp fyrir ári. Fjórðungur vill aðild að ESB Umsókn um aðild að ESB nýtur ekki mikils stuðnings samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Ef allt úrtakið er skoðað þá eru 25,5% hlynnt aðild, 44,5% andvíg, 27,3% óákveðin og 2,7% neituðu að svara. E-töfluverö í lágmarki Götuverð á e-töfl- um er afar lágt um þessar mundir sam- kvæmt _ upplýsing- um SÁÁ. Þrátt fyrir lágt verð kveðst lög- reglan í Reykjavík ekki verða mikið vör við eitrið á göt- um borgarinnar. Ástæðan kann að vera fólgin í hert- um viðurlögum við innflutningi og umræðu um skaðsemi eiturlyfj- anna. RÚV greindi frá. Fákeppni veldur háu verði Jóhannes M. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri lækninga á Landspít- alanum, segir það staðreynd að lyf sem spítalinn kaupir hérlendis séu dýrari en á öðrum Norðurlöndum. mbl.is greinir frá þessu í dag. Jó- hannes segir skýringar á háu verði geta verið að finna í fákeppni - mörg lyfjafyrirtæki hafi sameinast og mörg lyf sömu tegundar séu kom- in á eina hendi. Verði formaður Tillaga þess efnis að Alfreð Þorsteinsson verður formaður borg- arráðs var lögð fram í borgarráði í gær. í til- lögunni er gert ráð fyr- ir að Alfreð gegni for- mennsku fram á mitt næsta ár en þá taki Árni Þór Sigurðs- son við - það komi svo í hlut Samfylk- ingar að manna stól formanns síðasta ár kjörtímabilsins. Tillagan verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar á morgun. -aþ Veruleg fjölgun varð á nauðung- arsölum hjá Sýslumanninum í Reykjavík á síðasta ári þar sem fast- eignir eða bifreiðar eru seldar nauð- ungarsölu. Þær voru þá samtals 1.189 talsins. Nauðungarsölum fjölg- aöi um 13% á milli ára og varð held- ur meiri aukning í fjölda nauðung- arsölu á fasteignum. Þær fóru úr 243 í 304 sem er 25% aukning. Nauð- ungarsölur bifreiða voru 885 talsins, samanborið við 807 árið 2001, en það er tæplega 10% aukning milli ára. “Það er engin einhlít skýring á þessu,“ sagði Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala, um hugsanlega skýringu á 25% aukn- ingu í nauðungarsölu á fasteignum. „íbúðalánakerfið er mjög gott, þannig að ég tel ekki því um að kenna. Það hefur aldrei verið betra. Það sést til dæmis á 90% lánunum sem voru afgreidd í miklum mæli í fyrra og verða jafnvel afgreidd í enn ríkari mæli í ár. Þaö hafa aldrei verið minni vanskil í íbúðalána- sjóði heldur en nú af því að greiðslubyrðin af þessum lánum er viðráðanleg. Ég tel að þarna sé fremur um að kenna öðrum lánum með þyngri Horft yfir Reykjavík Nauðungarsölur í borginni fóru úr 243 í so4 á síöasta ári. greiðslubyrði sem verða illviðráð- anleg ef eitthvað ber út af, svo og öðrum fjárfestingum fólks sem fall- iö hafa í verði.“ Á siðasta ári komu alls fram 23.290 fjárnámsbeiðnir hjá Sýslu- manninum i Reykjavík sem er um 3,6% aukning frá árinu 2001. Fjár- námsbeiðnir hafa ekki verið fleiri hjá embættinu síðan árið 1996 en þá voru þær liðlega 24 þúsund. Fjámámsbeiðnum hjá Sýslu- manninum í Reykjavík fjölgaði hins vegar verulega milli áranna 2000 og 2001, eða um rúm 34%. Árið 2001 voru fjárnámsbeiðnir hjá embætt- inu 22.472 talsins á móti 16.720 árið áður. -JSS/vb Nóntindur lýkur verki sínu við Jökulsá á Breiðamerkursandi: Biliö milli sjávar og raflínu hefur enn styst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.