Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Krafa sækjandans í Hafnarstrætismálinu á hendur tveimur árásarmönnum:
Þeir bera jafna ábyrgð
á dauða mannsins
- læknir segist ekki geta dæmt um hvor veitti þeim látna hina banvænu áverka
Ragnheiður Harðardóttir sak-
sóknari sagði fyrir framan þrjá
dómara í gær í óvenju þéttskipuð-
um dómsal að afleiðingar svokall-
aðs Hafnarstrætismáls séu að ungur
maður i blóma lífsins sé fallinn frá.
Tveir menn, sem setið hafa í gæslu-
varðhaldi frá 26. maí og eru ákærð-
ir fyrir stórfellda líkamsárás sem
leiddi til dauða unga mannsins dag-
inn áður, hafi hvorugur axlað þá
ábyrgð sem þeim beri gagnvart hátt-
semi sinni. Báðir dragi úr eigin
þætti við árásina og að hafa orðið
valdir að dauða mannsins. Og ekki
nóg með það - heldur reyni þeir að
koma sök á hinn látna. Hann hafi
verið upphafsmaður hins lang-
dregna ofbeldis.
Ragnheiður krafðist þess í sókn-
arræðu sinni að hinn fjölskipaði
héraðsdómur meti það svo að báðir
mennimir eigi sök á dauða Magnús-
ar Freys Sveinbjömssonar, 22 ára,
hinn örlagarika maímorgun. Þetta
byggir hún ekki síst á því að skurð-
læknirinn Aron Björnsson, sem
annaðist Magnús eftir að hann kom
inn á Landspítalann, segist alls ekki
geta slegið neinu fóstu um það hvor
ákærðu það var sem veitti hinum
látna höfuð- og heilaáverka sem
leiddu hann til dauða rúmri viku
síðar. Engu að síður færði sækjand-
inn rök fyrir því hvers vegna hún
telur að dómurinn eigi að dæma
báða mennina ábyrga fyrir dauða
Magnúsar heitins.
msmm
Óttar Sveinsson blaöamaður
Náðarhöggið
Sækjandinn lýsti framburði vitna
sem segja annan árásarmanninn
hafa veist að fómarlambinu og veitt
því m.a. hnéspörk og skallað það
auk annarra högga. Maðurinn hafi
gengið á eftir Magnúsi sem hafi
hörfað. Árásarmaðurinn hafi slegið
hann, náð taki á honum og Magnús,
sem hafi átt undir högg að sækja,
hafi beðist vægðar. En ákærði hafi
haldið áfram með spörkum og sagst
ætla að brjóta höfuðkúpuna í hon-
um. Eitt vitni hafi borið að svo mik-
iff hafi atgangurinn verið að það
hafi orðið fyrir bfóðsfettum meðan
þetta gerðist. Árásarmaðurinn hafi
ekki hætt fyrr en hann hafi verið
dreginn ofan af Magnúsi heitnum
en þá hafi hann hvatt aðra tif að
halda áfram að berja hann.
Þegar Ragnheiður lýsti þætti hins
unga mannsins sem er ákærður
sagði hún að hann hefði tekið tif-
hfaup í átt að Magnúsi þegar fyrr-
DVWNDIR HARI
Segíst talsmaður herferðar gegn ofbeldi
Á bak viö bók í fylgd fangavaröa kom hann, hlýddi á framburö læknis og
ræöu saksóknara. Sækjandinn segir hann hafa staöiö aö ofsafengnu, hrotta-
fengnu og langdregnu ofbeldi meö einbeittum brotavilja.
fyrrnefndi maðurinn hefði verið
upphafsmaður ofsafenginnaog lang-
dreginna átaka, sem hann hætti
ekki sjálfviljugur, þrátt fyrir beiðni
fómarfambsins um vægð. Auk þess
hefði hann hvatt féfaga sinn tif að
sparka i Magnús. Hér hafi í senn
verið um hrottafengið og hættulegt
ofbefdi að ræða.
Á sér vart hliðstæðu
Sækjandinn sagði að annar
mannanna, sá sem er ákærður fyrir
hnéspörk, hnefahögg og að hafa
skaffað Magnús, sé einnig ákærður
fyrir tvær aðrar hrottafegar fikams-
árásir í mánuðinum áður en Hafn-
arstrætisárásin átti sér stað.
„Þetta á sér vart hfiðstæðu ..."
sagði Ragnheiður og vísaði tif hinn-
ar íslensku réttarfarssögu. Hún
sagði að maðurinn hafi þá vísast
verið að feita sér að vandræðum
með féfögum sínum enda hefði hann
skaffað tvo menn á mismunandi
tíma en sömu nótt við sama stað.
Þetta hafi verið algjörlega tifefnis-
lausar fíkamsárásir.
„Ofsafengin, fangdregin og brota-
viljinn einbeittur," sagði sækjand-
inn um þátt mannsins í Hafnar-
strætisárásinni. Hér er um að ræða
unga manninn sem forseti ísfands
vísaði tif í áramótaávarpi sínu en
forsetinn sagði hann í bréfi tif sín
hafa hvatt tif herferðar gegn ofbeldi.
Dómur gengur væntanfega innan
þriggja vikna.
Ofsafengið og iangdregið
Sækjandinn visaði eftir þetta tif
orða Arons skurðfæknis sem sagði
að ekki væri hægt að segja hvort
eitt eða ffeiri högg hefðu feitt tif
dauða Magnúsar. Með hliðsjón af
þessu sé því rökrétt að dómurinn
dæmi báða mennina ábyrga fyrir
dauða hans með hfiðsjón af framan-
greindri atburðarás og fýsingum
vitna og fyrirfiggjandi myndbandi
lögregfu.
Læknir bíður eftir að fara í vitnastúku
ÞegarAron Björnsson, skurðlæknir á Landspítalanum, svaraöi spurningum dóm-
ara, sækjanda og verjenda, sagöi hann ekki hægt að fullyröa hvor hinna ákæröu
heföi veitt hinum látna, 22 ára manni, áverka sem leiddu hann til dauöa. Sækj-
andinn sagöi aö í Ijósi þess bæru ákæröu báöir ábyrgö á dauöa hans.
nefndi maðurinn var búinn að
ganga fengi í skrokk á honum.
Magnús hafi snúið baki í hann eða
til hfiðar. „Magnús er að standa
bfóðugur og vankaður á fætur,“
sagði Ragnheiður og var að vísa tii
framburðar vitna um það þegar síð-
arnefndi árásarmaðurinn tók tif-
hlaup og sparkaði ofanvert í líkama
hans - í andlit, háls eða brjóst, sam-
kvæmt vitnum. Fómarfambið féll
eftir þetta máttlaust í götuna og
vitni heyrðu brothljóð þegar höfuð-
ið nam við jörðu. Lýsingar sækjand-
ans hljómuðu í takt við það þegar
verið er að veita einhverjum náðar-
höggið.
Eftir þetta hreyfði Magnús sig
ekki.
Ragnheiður sagði langlíklegast að
höfuðkúpubrot sem hann hlaut
hefði verið afleiðing af umræddu
sparki.
Árásarmennimir beri sameigin-
lega áhyrgð.
Sækjandinn lagði síðan út frá því
að ef umrætt spark verður metið
hin endanlega og banvæna árás þá
verði aldrei fram hjá því horft að
98 kærðir fyrir árásir á lögreglu árið 2001:
Ofbeldi gegn laganna vörðum fer minnkandi
- í fimmtíu tilvikum urðu lögreglumenn fyrir meiðslum
Ofbeldismálum gegn lögreglu
hefur fækkað nokkuð en árið 2001
vom mál af því tagi 81 talsins -
alls voru 98 kærðir, 82 karlar og 16
konur. Þetta kemur fram í nýrri
úttekt embættis ríkislögreglu-
stjóra. í málaskrá lögreglu eru
fyrrgreind mál flokkuð sem brot
gegn valdstjórninni og getur há-
marksrefsing numið allt að átta
ára fangelsi.
í flestum málanna má rekja upp-
haflð til þess að fyrirmælum lög-
reglu var ekki hlýtt, eða í 60% til-
vikanna. Fyrirvaralausar árásir á
lögreglumenn vom í 20% tilvika,
tæplega 10% þegar lögregla var
hindruð i starfi, hótanir voru í 6%
tilvika og annað í 4% tilvika.
Lögreglumenn meiddust í fimm-
tíu tilvikum; sextán fengu hnefa-
högg, ellefu voru bitnir og níu
hlutu spörk. Átta lögreglumenn
slösuðust í átökum við handtekna
menn, þrír voru skallaðir og þrír
meiddust þegar vopnum var beitt.
í úttekt ríkislögreglustjórans
eru tekin dæmi af ofbeldi gegn lög-
reglu. í einu dæmanna segir frá
lögreglumönnum sem voru sendir
að skóla vegna rúðubrota. Ung-
lingsdrengir voru grunaðir um
verknaðinn. Lögreglumenn fundu
drengina og urðu átök við hand-
töku þeirra. „Þegar lögreglumaður
var með einn drengjanna í tökum
og var að færa hann í handjárn
kom 15 ára piltur og sparkaði í
andlit lögreglumannsins. Piltur-
inn komst undan á hlaupum en
borgarar hlupu á eftir honum og
sáu til hans þar sem hann hoppaði
Lögreglumenn að störfum
/ fimmtíu tilvikum slösuöust lög-
reglumenn í starfí áriö 2001.
niður af háum bakka og fótbrotn-
aði við það. Pilturinn var fluttur á
slysadeild vegna áverkanna. Sama
var með lögreglumanninn en hann
hlaut heilahristing og yfirborðs-
áverka á enni. Gleraugu hans
brotnuðu og föt rifnuðu. Pilturinn
var dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi en fullnustu refsingar var
frestað," segir í úttekt ríkislög-
reglustjóra.
Annað dæmi er gefið af lög-
reglumönnum sem stöðvuðu öku-
mann vegna gruns um ölvun við
akstur. „Kona sem var farþegi í
bifreiðinni hlýddi ekki fyrirmæl-
um lögreglu um að koma út. Hún
réðst síðan á lögreglumann og beit
hann í handlegg. Lögreglumaður-
inn fékk mar. Konan var dæmd til
að greiða 60.000 krónur í sekt til
ríkissjóðs og að greiða verjanda
sínum 80.000 krónur í málsvarnar-
laun,“ segir í úttektinni. -aþ
DVJvlYND HAFÐÍS ERLA BOGADÓTTIR
Loksins snjór!
Eftir einmuna tíö, hlýindi og snjó-
leysi um landið allt kom aö því. Þaö
fór aö kólna og snjóa. Þaö var erfitt
aö fá litlu stúlkurnar inn úr snjón-
um, enda mikiö að gera viö snjó-
karlageröina, loksins þegar snjórinn
lét sjá sig á Egilsstööum. DV hitti
telpurnar þegar verkinu var aö Ijúka
og eölilega voru þær stoltar af
afreki sínu, fyrsta snjókarli vetrar-
ins. 8 stiga frost var á Héraöi í
morgun svo karlinn ætti aö standa
næstu daga! Víöa snjóaöi á landinu
í morgun, jafnt vestra, nyröra sem
eystra, og var jafnvel slydda á
Suðurnesjum.
Gripinn með þýfi
Ungur maður var gripinn með
þýfi í bíl sínum um eittleytið í nótt.
Maðurinn ók sem leið lá eftir Vest-
urlandsvegi þegar lögregla stöðvaði
hann. Við eftirgrennslan urðu lög-
reglumenn þess varir að ýmis
tækjabúnaður var í bifreiðinni.
Kom i ljós að þar voru skjávarpar
og önnur tæki sem stolið hafði ver-
ið úr Tækniháskóla íslands
skömmu áður.
Að sögn lögreglu hefur Tæknihá-
skólinn endurheimt tækjabúnað
sinn en ungi maðurinn var færður i
fangageymslur þar sem hann gisti í
nótt. Hann verður yfirheyrður í
dag. -aþ
Hundur veldur
árekstri
Árekstur varð á Kringlumýrar-
braut, á móts við Nesti, um tíuleyt-
ið í gærkvöld. Tildrög slyssins
voru þau að hundur hljóp yfir
brautina og sveigði ökumaður
skyndilega frá til að keyra ekki á
skepnuna. Við það fékk hann bif-
reið aftan á sig. Ökumennirnir
sluppu báðir ómeiddir úr árekstr-
inum og héldu heimleiðis. Hundur-
inn elti hins vegar annan öku-
manninn alla leið að heimOi hans
í Kópavogi. Haft var samband við
lögreglu sem sótti hundinn og kom
fyrir í hundageymslu. Að sögn lög-
reglunnar hefur eigandi gefið sig
fram - hann sagði hundinn hafa
sloppið út snemma í gærkvöld. -
Hvolsvöllur:
Annast allar lög-
reglusektir
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli mun
eftirleiðis annast útprentun og út-
sendingar allra lögreglusekta á
landinu. Þetta er í samræmi við
ákvörðun alþingis.
Frá því nýtt sektarkerfi lögregl-
unnar var tekið í notkun þann 1.
janúar 1998 sá ríkislögreglustjórinn
um að prenta út greiðsluseðla, ítrek-
anir vegna sektarboða og sektar-
gerða sem og viðvarana vegna um-
ferðarpunkta fyrir öll lögregluemb-
ætti landsins.
Fjöldi sekta hefur farið vaxandi
með hverju ári og á nýliðnu ári
varð enn fjölgun, sé miðað við
bráðabirgðatölur úr sektarkerfmu.
Á árinu 2002 voru samkvæmt bráða-
birgðatölum sendir út 38.299
greiðsluseðlar vegna sekta fyrir um-
feröarlagabrot og 11.604 ítrekanir
vegna greiðsluseðla sem ekki voru
greiddir innan 30 daga frá dagsetn-
ingu seðilsins.
Rikislögreglustjórinn mun eftir
sem áður hafa umsjón með sektar-
kerfinu á landsvísu. -aþ