Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 DV Stephen Oake Lögreglumaðurinn Stephen Oake sem stunginn var til bana í aðgerðum lögreglunnar í Manchester í gærkvöld. Lögreglumaður stunginn til bana Breskur lögreglumaður, Stephen Oake, var í gærkvöld stunginn til bana auk þess sem fjórir aðrir særðust þegar sérsveit lögreglunnar réðst inn i hús í Crumpsall-hverfi í norðurhluta Manchester til þess að handtaka mann grunaðan um aðild að eiturefnamálinu sem upp kom í Lundúnum í síðustu viku. Hinn látni, sem var 40 ára þriggja barna faðir, var stunginn þegar lögreglusveitin reyndi að handtaka þrjá menn af norður-afrískum upp- runa sem staddir voru í íbúðinni en þeir munu hafa snúist til vamar með hnífum. Maðurinn hlaut stungu i brjóstið og mun hafa látist á sjúkrahúsi nokkru seinna. Lögreglan náði loks að yfirbuga mennina og eru þeir nú til yfir- heyrslu hjá lögreglunni. Breytt stjórnar- mynstur ESB? Frakkar og Þjóðverjar munu leggja tillögu fyrir ESB i dag sem kveður á um að leiðtogahlutverki sambandsins verði tvískipt, annars vegar verði forstjóri framkvæmda- stjórnar kosinn af Evrópuþinginu og formaður Evrópuráðsins kosinn af ráðinu sjálfu, annað hvort til 5 ára eða helming tímabilsins, þar sem sá hinn sami geti aftur boðið sig fram í stöðuna. Nú er forstjóri framkvæmda- stjómar valinn af meðlimum ESB og það staðfest á þingi en löndin skiptast á um að manna formanns- stólinn á 6 mánaða fresti. Robert Mugabe Mugabe segist ekki á förum Robert Mugabe, forseti Simbabwe, mótmælir því að hann sé að hverfa úr embætti og á leið úr landi eins og fram kom í fréttum fyrr í vikunni. Þetta kom fram í ræðu sem forset- inn hélt í nágrannaríkinu Zambíu, ný- kominn úr tveggja vikna fríi frá Malasíu í gær og sagði Mugabe það fá- ránlegt að hverfa úr embætti svo snemma eftir að hafa verið endurkjör- inn. „Ég er ekki á fórum og mun ekki segja af mér fyrr en umbótunum er lokið,“ sagði Mugabe sem haldið hefur um stjómartaumana í Simbab- we síðan árið 1980. James Kelly ræddi við kínverska embættismenn í morgun: Kína hugsanlegur vettvangur fundar Varautanríkisráðherra Banda- ríkjanna, James Kelly, er nú staddur í Kína þar sem hann ræðir við emb- ættismenn þar í landi vegna kjam- orkudeilunnar í N-Kóreu. Búist var við að Kinverjar myndu þrýsta á Bandaríkjamenn til að funda með N- Kóreu sem allra fyrst eins og yfir- völd þarlendis vilja og Bandaríkja- menn vilja að Kínverjar þrýsti á bandamenn sína í N-Kóreu um að láta af kjarnorkuáætlunum sínum. Kína hefur boöið sig fram í hlut- verk gestgjafa á fundi Kínverja og Bandaríkjamanna og þá ráðgera Rússar að senda sína erindreka til að reyna að greiða úr flækjunni. Kelly hitti í morgun kínverskan kollega sinn, Li Zhaoxing. George W. Bush Bandaríkjafor- seti gaf annars í skyn að ríkisstjóm hans væri reiðubúin að veita N- Kóreumönnum ýmis hlunnindi hætti þeir allri kjarnorkustarfsemi í landinu. Það er því mikil von til Kelly í Kína James Kelly ræöir við fréttamenn á hóteli í Peking í morgun. þess að embættismenn landanna geti hist og rætt málið. „Það kemur ekkert í stað beinna samskiptá," sagði Kelly áður en hann hélt á fund kínverska varautanríkisráðherrans. Bandaríkjaher greindi annars frá því í gær að her N-Kóreu væri að auka eftirlit á hlutlausa svæðinu sem aðskilur Kóreulöndin tvö. Tals- maður hersins sagði þó að ekkert væri að óttast þrátt fyrir aukna starfsemi á svæðinu. Annars virtist sem N-Kórea væri að bæta olíu á eldinn í morgun þeg- ar KCNA-fréttastofan, málgagn stjórnvalda, sagði í frétt að Banda- ríkin, eina landið til að beita kjam- orkuvopnum í stríði, bæri eitt ríkja ábyrgð á útbreiðslu þeirra í heimin- um. Önnur lönd notuðu slík vopn aðeins í varnartilgangi. Einnig var sagt að þar sem Bandaríkjamenn hefðu orðið fyrstir til að þróa og nota vopnið ættu þeir að verða fyrstir til að afvopnast. REUTERS Mótmælt í Indónesíu Hundruð Indónesíubúa mótmæltu í morgun hækkuðu verði á ýmsum vörum og þjónustu, eins og eldsneyti, símasam- skiptum og rafmagni. Þessi mótmælandi reyndi að koma sínum skilaboðum á framfæri með því að brenna dekk og kiæðast ógnvekjandi grímubúningi. Palestínumenn lofa drögum aö nýrri stjórnarskrá Palestínska viðræðunefndin, sem þátt tók í friðarráðstefnunni í Lund- únum í gær í gegnum myndbands- kerfí vegna ferðabanns ísraels- manna, fordæmdi ítrekaðar sjálfs- morðsárásir palestínskra öfgahópa á ísraelska borgara að undanfómu og lofaði um leið markvissum end- urbótum og uppstokkun í palest- ínsku heimastjórninni. Þeir gagnrýndu einnig þær þving- anir sem ísraelar beittu á heima- stjórnarsvæðunum á meðan viðræð- umar fóru fram en auk Palestínu- manna tóku fulltrúar fjóreykisins svokallaða, þ.e.a.s, fulltrúar Rússa, Bandaríkajamanna, Evrópusam- bandsins og Sameinuðu þjóðanna, þátt í viðræðunum sem bresk stjórnvöld boðuðu til. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að viðræð- Jack Straw Jack Straw, utanríkisráðherra Bret- lands, segir að viðræðurnar í Lundúnum um Palestínumálin hafi verið uppbyggilegar. umar hefðu verið uppbyggilegar og að palestínska viðræðunefndin hefði lofað að leggja innan tveggja vikna fram drög að nýrri stjórnar- skrá. Straw sagði að þvinganir ísra- esmanna á heimastjómarsvæðum Palestínumanna hefðu vissulega valdið vandræðum en þær væru þó engin afsökun fyrir því að upp- stokkunin færi ekki fram. Hann harmaði einnig að ísraelsk stjórnvöld hefðu sett ferðabann á palestínsku viðræðunefndina en sagði að myndbandstæknin hefði bjargað málinu og að árangurinn hefði verið viðunandi. Hann hældi palestínsku heima- stjóminni fyrir góðan árangur viö efnahagsuppbyggingu en sagði að hraða þyrfti frekari umbótum í dómskerfinu. Einn særður í átökum Einn særðist vegna skotsára sem hann hlaut í átök- um andstæðinga Hugo Chavez Venesúelaforseta og lögreglu í Caracas í gær. Á sama tíma brennimerkti Chavez andstæðinga sína sem hryðjuverkamenn sem ekki væri hægt að semja við undir nokkrum kringmnstæðum. Verkfallsaðgerðir andstæðinga hans hafa staðið yfir í 6 vikur. Banna aðstoð Bandarísk yfirvöld hafa bannað alla bandaríska aðstoð gagnvart herdeild í kólumbíska flughemum þar sem viðkomandi deild mun hafa reynt að tefja rannsókn á sprengju- tilræði sem varð 17 borgurum að bana. Bandaríkin styðja Kólumbíu- her um 2 milljarða Bandaríkjadala ár hvert. Valdez-olían skemmir enn Enn er að finna litla olíuflekki eftir lekann úr Exxon Valdez við Alaska árið 1989 sem gefa frá sér skaðleg efni út í umhverfið. Vís- indamenn greindu frá þessu á gær. Alls láku 42 milljónir lítra olíu úr skipinu. Tekið á innflutningsvanda Evrópusambandið hefur í hyggju að koma á gagnagrunni fingrafara til að spoma við þeirri þróun að ólöglegir innflytjendur komist inn á svæði ESB. Gagnagrunnurinn á að koma í veg fyrir að sami maðurinn geti sótt tvisvar um pólitískt hæli hjá ESB-ríki. Paul Monash látinn Kvikmyndafram- leiðandinn Paul Monash lést á þriðjudag, 86 ára að aldri. Hann stóð á bak við gerð sögu- frægra mynda eins Butch Cassidy and the Sundance Kid með Robert Redford og Paul Newm- an í aðalhlutverkum. Hann var einnig mikill áhrifamaður í fram- leiðslu skemmtiefnis í bandarísku sjónvarpi. Miltisbrandur á ný? Póstþjónusta Bandaríkjanna til- kynnti í gær að bréf sem líklegt er að innihaldi miltisbrand hafi fund- ist í síunarferli þeirra fyrir nokkru. Teknar eru stikkprufur á þeim pósti sem fara á skrifstofur og heimili háttsettra embættismanna í land- inu. Er þetta sagt vera einangrað til- vik en enginn hefur enn verið hand- tekinn vegna þeirra miltisbrands- bréfa sem send voru eftir 11. sept- ember árið 2001. Áfram líflátið í Texas Fyrsta líflát ársins i Texas átti sér stað á þriðjudag. Þá var líflátinn maður sem var sakfelldur fyrir að myrða aldrað par og dóttur þeirra í vopnuðu ráni fyrir 10 árum. Parísarfundur hefst í dag Leiðtogar stríðandi aðila á Ffla- beinsströnd í Afríku hittast í fyrsta sinn í París í dag á sáttarfundi sínum en undirritað var vopnahlé fyrr í vik- unni. Óttast er að mikil upplausn verði i Vestur-Afriku verði engin lausn fundin á vandanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.