Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 19
19 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 DV Tilvera lí f iö E F T I R V I N N' U T ónleikar ■ÓDerutónleikar í Seltiarnarneskirkiu Kl. 20 veröa tónleikar í Seltjarnar- neskirkju kl. 20. Þar munu koma fram ungir óperusöngvarar og flytja perlur úr þekktum óperum. Eru það Inga Stef- ánsdóttir, Vala Guönadóttir, Rósalind Gísladóttir, Alex Asworth og Gunnar Kristmannsson ásamt Ólafi Vigni Albertssyni píanóleikara. Miöaverö er 1200 krónur. ■Baráttufundur__________gegn Kárahniúkavirkiun Kl. 20.30 verður baráttufundur í Borg- arlelkhúsinu gegn Kárahnjúkavirkjun. Meðal þeirra sem koma fram eru: Sigur Rós, Diddú og Hilmar Örn. Frítt inn og allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Fyrirlestrar ■Málstofa um stöðu smáríkia í Evrópusambandinu í tengslum viö kennslu á námskeiöinu stjórnskipunarréttur og ágrip þjóöar- réttar í lagadeild Háskóla íslands veröur haldin málstofa um stöðu smárlkja I Evrópusambandinu. Málshefjendur veröa Stefán Már Stefánsson prófessor viö lagadeild HÍ og Baldur Þórhallsson dósent I stjórnmálafræði viö félags- vlsindadeild HÍ. Fundarstjóri er Björg Thorarensen, prófessorvið lagadeild Hl. Málstofan veröur haldin I hátlðarsal HÍI aöalbyggingu skólans kl. 12.15-13.30. Málstofan er öllum opin sem áhuga hafa á efninu. ■Eftir flóðið í tilefni af þvl aö jólabókaflóöiö er nýrunniö hjá stendur Félag Islenskra fræöa fyrir fundi I Sögufélagshúsinu, Fischersundl 3, kl. 20.30. Þar verður horft yfir flóöasvæöið og hugaö aö bókunum sem eftir liggja. Framsögu- maöur veröur Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræöingur og gagnrýnandi. Aö erindi Jóns Yngva loknu veröa almennar umræöur. Fundurinn er öllum opinn. Uppákomur ■Ungt félk mótmælir Kára- hniúkavirkiun Hópur unglinga, sem er á móti Kárahnjúkavirkjun, ætlar aö efna til mótmæla viö Alþingishúsið I dag kl. 14.30 þar sem hópurinn mun flytja gjörning. Krossgáta Lárétt: 1 góö, 4 hluti, 7 karlfugl, 8 greinarmunur, 10 ákefð, 12 lagleg, 13 veröld, 14 beitu, 15 vesöl, 16 hjálp, 18 borðar, 21 þekkta, 22 menn, 23 kvabba. Lóðrétt: 1 hæðar, 2 hlass, 3 formælandi, 4 lögbrjótar, 5 eyri, 6 spil, 9 dranga, 11 nísku, 16 vatnagróður, 17 kúga, 19 fataefni, 20 sefa. Lausn neöst á síöunni. Umsjón: Sævar Bjarnason Það virðist ýmislegt benda til að Anatolij Karpov sé aö komast í gott skáklegt form aftur. Um daginn sigr- aði hann Kasparov í fyrsta sinn á æv- inni í einvígi og svo er hann farinn að fóma liði meira en áður. Það verð- ur auðvitað enginn heimsmeistari í skák án þess að kunna vel skil á öll- um þáttum skákarinnar. I Wijk aan Zee hefur Karpov byrjað ágætlega og er til alls vís. Hann er farinn að taka upp á því, líkt og Petrosjan, fyrir- rennari hans, að fóma skiptamun í tíma og ótima og sá skilningur er far- inn að skila sér. Að vísu er Krasen- kow frekar mistækur pólskur skák- maður en hér verðum við vitni að því þegar Karpov mátar hann! Hvítt: Mikael Krasenkow (2633) Svart: Anatolij Karpov (2688) Drottningar-indversk vörn. Wijk aan Zee (1), 11.01.2003 1. Rf3 Rf6 2. d4 e6 3. c4 b6 4. Rc3 Bb7 5. a3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Dc2 Rxc3 8. bxc3 Rd7 9. e4 c5 10. Bf4 Be7 11. d5 exd5 12. exd5 0-0 13. Hdl He8 14. Be2 c4 15. 0-0 Bxa3 16. Bxc4 Df6 17. Rg5 RfB 18. g3 h6 19. Re4 Df5 20. f3 Rg6 21. Bc7 Hac8 22. Bb5 Hxc7 23. Bxe8 Bxd5 24. Rf6+ Dxf6 25. Hxd5 Hxc3 26. De4 Bc5+ 27. Kg2 He3 28. Da4 He2+ 29. Khl (Stöðumyndin) 29. -Hel 0-1 œiEm •eoj oz ‘nej 61 ‘mjo u ‘Ajs 91 ‘nijujs 11 ‘papi 6 ‘eij 9 ‘jij s ‘uuemejojq ‘jngemsjei e ‘rqæ z ‘sse 1 pjajeq •egnu ez ‘jbjA zz ‘euunsj \z ‘jnje 8i ‘gojs 91 ‘ume si ‘su3e f\ ‘mteq ei ‘jæs zi ‘esjo oi ‘U3S 8 ‘ujeij L Jojq f JæSe 1 :jjajjn DV-MYND: GVA Rott í sundi Vinkonur ræöast viö í sundlaug Vesturbæjar meöan sundgarpur geysist framhjá. Pagfari Fjölbreytileiki og fordómar Ekki þarf að fara í grafgötur um að fjöldi útlendinga hér á landi hefur orðið til að auðga íslenskt samfélag, gera það fjölbreyttara og vonandi skemmtilegra. Engum dettur í hug að segja að búseta fólks frá framandi löndum hér sé annað en gott mál. Hins vegar eru út- lendingar og talsmenn þeirra á varðbergi. Sé tilgreint í frétt- um að um nýbúa sé að ræða þykir slíkt vitnisburður um fordóma. Umfjöllun um breytni þessa fólks og hvernig það plumar sig er undir smásjá. Sé frá því greint í fréttum að eitt- hvað fari miður er það talið vitna um kynþáttafordóma fjöl- miðlamanna. Þessi viðkvæmni er barnaleg. En talandi um fjölbreytni sem fólk erlendis frá hefur skapað þá erum við stundum að sækja vatnið yfir lækinn. Á íslandi verður í vaxandi mæli vart þeirrar tilhneigingar að fela skuli þá sem fara ekki troðnar slóðir, rétt eins og Eva gerði með óhreinu börnin forð- um. Skoðanir utan hins við- tekna eru gjarnan afgreiddar sem rövl. Ærslafullir krakkar fá ekki að njóta sín og jafnvel ekki hin framúrskarandi, held- ur gerð að viðfangsefni vanda- málafræðinga. Pappirsnagarar fá af stjórnmálamönnum vald til þess að setja reglur til að fella allt í sama mótið og út- rýma ýmsum siðum og svo framvegis. Ekki gerir þetta litaraft samfélagsins fjölbreytt- ara. Hér er þörf á ærlegri hugar- farsbreytingu. Viðfangsefnið er stórt - spurning um að sjálft þjóðareðlið breytist. Goðgá er að ætla að um framansagt geti allir oröið sammála, með því glatast fjölbreytileiki sem er mikilvægur. Umburðarlyndi er hins vegar annar hlutur og spurning um mannasiði. 1 ■8 ki ‘55 13 VIÐSKIPTA SKÓLINN VHLRITUN HRAÐRITUN BÓKHALD VIÐSK SKÓ YEL HRAÐ BÓK ANDRÉS ÖND ATVINNU- MIPLUN :aet«lðna- öalan TIL LEIGU Sýndu gott fordæmi, Jafet, og smakkaðu sjálfur -fyrst! Ég get ekki einu sinnl fengið Margeir til að smakka hafragrautinn, Jenný. I Slæmt fordæml *S!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.