Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 DV Fréttir Deila Baugsveldisins og Jóns Geralds Sullenbergers: Hörð átök um milljón dollara skemmtibát - dómari í Flórída ógilti kyrrsetningu og Gaumur hyggst nú stefna Jóni Bernard S. Shapiro, dómari í Dade-sýslu í Flórída í Bandaríkj- unum, ógilti á mánudag kyrrsetn- ingaraðgerð Gaums ehf. á skemmtibátnum Thee Viking sem er í eigu New Viking, félags Jóns Geralds Sullenbergers. Samkvæmt heimildum DV var dómari greini- lega mjög reiður í garð Gaums- manna fyrir að sýna dómnum van- virðu þar sem þeir hafi ekki getað fært rök fyrir sínu máli. Var þessari niðurstöðu dómar- ans mótmælt af sækjanda og bent á að stjórnarformaður Gaums, Jó- hannes Jónsson, hafi ferðast langa leið frá íslandi en ekki fengið tæki- færi til að standa fyrir máli sínu. Gaumur hafi heldur ekki fengið tækifæri til að leggja fram sönnun- argögn í málinu. Þá hafi Gaumur greitt meira en 465.000 dollara vegna kaupa og viðhalds á bátnum. Var farið fram á framhaldsmál- flutning sama dag eða daginn eftir. Hörður Kristjánsson blaðamaður Fréttaljós Brást dómari ókvæða við og ít- rekaði niðurstöðu sína með því að handskrifa inn á hana að umleitun Gaumsmanna til að halda mál- flutningi áfram væri neitað. Helgi Jóhannesson, lögfræðing- ur Gaums, sagði i samtali við DV í gærmorgun að í framhaldi af frá- vísun dómara á kyrrsetningar- kröfu Gaums yrði Jóni Gerald, eig- anda Nordica og New Viking, nú stefnt til greiðslu á meintu láni Gaums upp á ríflega 37 milljónir króna á núverandi gengi. Deilt um uppruna peninga Tildrög málsins eru deilur Jóns Geralds Sullenbergers, eiganda Hinn umdelldi Thee Viking - 62 feta af bátur Sunseeker Manhattan-gerö Báturinn er á Miami Beach í Flórída og afárgerð 1999. Hann er verölagður á 1.195.000 dollara. Jón Ásgeir Jón Gerald Jóhannes Jóhannesson. Sullenberger. Jónsson. bandarísku heild- verslunarinnar Nor- dica Inc., og Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, þáverandi stjórnarformans Baugs Group, og Tryggva Jónssonar forstjóra og annarra forsvarsmanna fé- lagsins, en upp úr nánum viðskiptum þeirra slitnaði á síðastliðnu sumri. Jón Gerald kærði Baugs- menn til Rannsóknarlögreglu rík- isins m.a. vegna viðskipta í tengslum við kaup á umræddum skemmtibáti og sakaði þá um meint fjármálamisferli. Baugs- menn leggja hins vegar mikla áherslu á að hvorki Baugur né Bónus eigi aðild að þessu máli heldur eignarhaldsfélagið Gaum- ur hf., en Gaumur, sem var í 90% eigu stofnenda Bónuss, sameinað- ist Baugi hf. í október 1998. Jón Gerald Sullenberger framvísaði hins vegar reikningum frá Nor- dica sem stílaðir voru á Bónus. Neita tengslum Baugs Jón Ásgeir sagði í samtali við DV á síðasta ári að Baugur Group hf. tengdist á engan hátt skemmti- bátnum Thee Viking. Hann sé í eigu félags Jóns Geralds, New Vik- ing. Fjárfestingarfélagið Gaumur hafi lánaði Jóni Gerald 38 milljón- ir króna vegna kaupa á þessum báti, en félagið hafi ekki fengið af- sal fyrir hlut í New Viking eins og ráðgert var, né fengið fullnægjandi tryggingar fyrir láninu þótt eftir þessu hafi ítrekað verið leitað. Sagði Jón Ásgeir að skuld Jóns Geralds við Gaum væri skráð í bókhaldi félagsins. Thee Viking Lögfræðingur Gaums sagðist í samtali við DV í gærmorgun hafa farið fram á kyrrsetningu á bátn- um til að tryggja lán Gaums til New Viking. Allir reikningar sem tengjast bátnum eru sagðir greiddir út af bankareikningi Gaums. Umræddur skemmtibátur, sem er 62 fet á lengd, af gerðinni Sun- seeker Manhattan, er verðlagður á bátasölu í Bandaríkjunum á 1.195.000 dollara, eða um 90 millj- ónir íslenskra króna, en á honum mun hvíla veð upp á 600 þúsund dollara. Fullyrt er af lögfraeðingi Gaums að Jón Gerald hafi boðist til að ljúka málinu með því að selja bátinn og greiða upp áhvílandi veð, en sjálfur hygðist hann halda eftir hluta söluverðs- ins. Jón Sullenberger staðfesti þetta i samtali við DV í gær. Hann seg- ist hafa boðist til að ljúka þessu máli með sölu á bátnum í maí og aftur 30. desember. Hann segist hafa boðist til að leggja þá fjár- muni inn á geymslureikning hjá dómara á meðan hlutlaus aðili yrði fenginn til að meta stöðuna. Því hafi Baugsmenn alfarið neitað og talið sig eiga tilkall til bátsins og þeir hafi farið fram á frest til að sýna fram á það fyrir rétti. Fallist hafi verið á að veita slikan frest til 13. janúar. Þeir hafi hins vegar ekki getað rökstutt sitt mál frammi fyrir dómara. R-listinn klofinn í afstöðu til byggingar Kárahnjúkavirkjunar: Abyrgð borgarinnar verður samþykkt í borgarstjórn DV-MYND E.ÓL Mótmæli viö Ráöhúsiö Borgarfulltrúar fóru ekki varhluta af mótmælaröddum framan við Ráöhús Reykjavíkur í gærdag en mótmælendur mega sín lítils gegn sannfæringu borgarstjóra, framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Á fundi borgarráðs í gær lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þar sem segir að farið hafi verið yfir gögn sem lögð hafi verið fram vegna ábyrgðar Reykja- víkurborgar á lántökum Lands- virkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar og þeir muni styðja málið þegar það kemur fyrir borgarstjórn á morgun. í kjölfarið lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri yfir því að hún myndi einnig styðja málið. Þar með er ljóst að samningar við Alcoa um álver í Reyöarfirði munu ekki stranda á samþykki eigenda Landsvirkjunar fyrir nauðsynlegum lántökum. Þrír borgarfulltrúar R-lista eru andvígir málinu en þrír fylgjandi. Dagur B. Eggertsson ætlar að sitja hjá og óvíst er um afstöðu Steinunnar V. Óskarsdóttur. Ámi Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjómar, R-lista, og Ólafur F. Magnússon, F-lista, standa saman að tillögu um að borgin taki ekki þátt í verkefninu. í greinargerð þeirra segir að Kárahnjúkavirkjun feli í sér umhverfisröskun á tæplega 3.000 ferkílómetra svæði, eða alls 3% landsins. Uppistöðulón hennar, stíflur, skurðir, veitur og námur skeri í sundur stærsta ósnortna víð- erni Evrópu og skerði það um 1.000 ferkílómetra. Merkar jarðsögulegar minjar fari undir vatn og hætta verði á uppblæstri og gróðureyð- ingu á hálendi Austurlands. í drögum að rammaáætlun um nýtingu vatnsorku og jarðvarma var komist að þeirri niðurstöðu að Kárahnjúkavirkjun væri einna sísti kosturinn vegna óafturkræfra um- hverfisspjalla. Þeir Árni Þór og Ólafur F. telja náttúruspjöll af völd- um virkjúnarinnar svo mikil að hún standist ekki þær kröfur sem gera verði til framkvæmdar af þessu tagi og því geti Reykjavíkur- borg ekki gengist í ábyrgð fyrir fjár- mögnun hennar. Enn fremur komi ekki til greina að skuldsetja borgina umfram heildareignir með þátttöku í Kárahnjúkavirkjun. Ætlast sé til að Reykvíkingar gangist i tvöfalda ábyrgð vegna virkjunarinnar, ann- ars vegar sem eigendur í Lands- virkjun og hins vegar með hludeild í ábyrgð ríkisins. Hið pólitíska frumkvæði í málinu liggi hjá ríkis- valdinu, sem eigi að þeirra mati að axla alla ábyrgð á Kárahnjúkavirkj- un. -GG REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 16.19 15.43 Sólarupprás á morgun 10.53 10.58 Síðdegisflóö 16.51 21.24 Árdegisflóð á morgun 05.13 09.46 Kólnar í veðri Norðaustan 8-13 m/s. Dálítil snjókoma eða slydda, en stöku él sunnan- og vestanlands. Austan 15- 20 m/s í nótt og snjókoma, en slydda sunnanlands. Frost 0 til 10 stig meö kvöldinu kaldast í innsveitum norðaustanlands. Snjókoma eða slydda Norðaustan 18-23 m/s á Vestfjörðum en annars hægari austlæg átt og áfram snjókoma eða slydda. Frost 0-10 stig, hlýjast syðst. Fostudagur Laugardagur Sunnudagur Vindun Vindur: Vindur: 10-18 "V* 10-15 "V* 9-16 "V* NA 10-18 m/s A10-15 m/s Austlæg átt, st» og él, en hægari sunnan- og sunnantil og sunnanlands. vestanlands og snjókoma eöa Skýjaö og dálrtil snjókoma slydda, en yflrleitt þurrt. eöa slydda, en heldur hægari Frost 0 til annars hægari og úrkomulítlö 10 stig, hlýjast og stöku él. Lítiö noröantll. Frost vlö eltt hlýnandi 0 til 7 stlg. suöurströndlna. veöur. Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsaveður Fárviðri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 AKUREYRI BERGSSTAÐIR B0LUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK KIRKJUBÆJARKL. RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI BERGEN HELSINKI KAUPMANNAHÖFN ÓSLÓ STOKKHÓLMUR ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR ALGARVE AMSTERDAM BARCELONA BERLÍN CHICAGO DUBLIN HALIFAX HAMBORG FRANKFURT JAN MAYEN L0ND0N LÚXEMBORG MALL0RCA MONTREAL NARSSARSSUAQ NEW YORK 0RLAND0 PARÍS VÍN WASHINGTON WINNIPEG snjókoma úrkoma I grennd snjóél snjókoma slydda skýjaö úrkoma í grennd skýjaö skýjaö rigning snjókoma alskýjað hálfskýjað rigning heiðskírt alskýjað heiðskírt heiöskírt hálfskýjaö léttskýjaö alskýjað skýjað skafrenningur skýjað alskýjað léttskýjaö léttskýjaö alskýjað alskýjað heiöskírt skýjað léttskýjað alskýjað heiðskírt -13 7 -11 7 4 -11 9 1 2 -21 -0 -3 8 2 5 -3 -24

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.