Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 Tilvera I>V 'j- i> Buffy aö syngja sitt sídasta? Framleiðendur framhaldsþáttanna um vampírubanann Buffy, sem á frummálinu heitir Buffy the Vampire Slayer, eru að hugsa um að slá þátt- inn af eftir dvínandi vinsældir að und- anförnu. Að sögn eins talsmanns CBS- sjónvarpsstöðvarinnar eru litlar líkur taldar á því að farið verði út í gerð áttundu seríunnar. Það er leikkonan Sarah Michelle Gellar sem farið hefur með aðalhlut- verkið i þáttunum. Hún er gift Scoo- by-Doo-stjörnunni Freddie Prinze Jr. þar sem hún er einnig meðal aðalleik- ara. Að sögn talsmanns framleiðenda er enn þá verið að skoða málið og mun Gellar vera tObúinn í tuskið ef haldið verður áfram. „Það er einnig mögulegt að breytingar verði gerðar á þáttunum og þá verði frekar spilað inn á aðra karaktera í þáttunum," sagði talsmaðurinn. Ungfrú Dynamite ólétt Samkvæmt fréttum bresku press- unnar er ungffú Dynamite, hin tilfinn- inganæma söngkona rappgrúppunnar R&B, ólétt að sína fyrsta bami og komin fjóra mánuði á leið. Að sögn vina er hún yfir sig spennt og það mun faðirinn einnig en hann er bæði kærasti og lífvörður ungfrúar- innar og heitir Dwayne Seaforth. Þau kynntust i veislu fyrir rúmu ári og hafa síöan ekki mátt hvort af öðru sjá. Ungfrúin sem heitir réttu nafni Niomi McLean-Daley hafði haldið ólettunni leyndri þar til um helgina en þó sagt fjölskyldu sinni og nánustu vinum tíðindin. Niomi, sem er 21 árs, hefur verið að gera það gott á framabrautinni að undanfomu og vann til dæmis bæði til Mercury-tónlistarverðlaunanna og þriggja MOBO-verðlauna á síðasta ári. Kiefer í hlut- verki alvöruhetju Hollywood- hetjan og Lost Boys-stjaman, Kiefer Suther- land, brá sér í hlutverk alvöru- hetjunnar á dögunum, þegar hann gómaði alvöruþjóf á heimili vina í kvik- myndaborginni. Kiefer, sem að undanfómu hefur slegið í gegn á lögregluþáttunum „24“, var nætur- gestur hjá umræddum vinum sínum og vaknaði upp við það um miðja nótt að innbrotsþjófúr var að láta greipar sópa í stássstofúnni. Hann læddist aftan að manninum, sem þegar tók til fótanna út um svaladymar og út í bakgarðinn. Þar náði Kiefer honum og hélt honum með hálstaki þar til lögreglan kom á staðinn. Sýningin Flying/Dying í Gerðarsafni: Hélt ég væri að deyja - segir Bjargey Olafsdóttir sem sýnir myndbrot úr umferðarslysi Best aö taka þetta upp! Bjargey útskrifaðist úr Mynd- listaskólanum 1996, eftir hefðbundið nám og skellti sér beint til Finn- lands í masterinn. „Þá fór ég að fók- usera á ljósmyndir og kvikmynda- gerð. Þannig að menntunin mín er gott bland í poka og ég vinn í alla mögulega miðla,“ segir hún. Innt nánar eftir slysinu sem hún lenti í úti í Finnlandi segir hún strætó hafa keyrt í veg fyrir hana og vini hennar á hraðbraut rétt utan við Helsinki. Bíllinn valt og bensín- ið flóði. „Þetta var eldgamall Saab með engin belti og við vorum þrjú af fimm sem slösuöumst. Ég áttaði mig á því þegar ég var dregin út úr flakinu að ég hélt á 8 mm kvik- myndavélinni svo mín fyrsta hugs- un var: Það er best að taka þetta upp! svo ég náði þama vettvangs- myndum áður en mér var skutlað upp í sjúkrabílinn." Bjargey rifjar upp að sem ung- lingur hafi hún haft uppáhald á slysamyndinni Weekend eftir Godd- DVWND E.ÓL. Ustakonan J mastersnáminu fór ég að fókusera á Ijósmyndir og kvikmyndagerö. Þannig að menntunin mín ergott bland í poka og ég vinn í alla mögulega miöla, “ segir Bjargey Ólafsdóttir. ard sem fjallar um fólk á ferðalagi. Að lenda í slíku slysi sjálf segir hún hins vegar óskemmtilega reynslu. „Þetta var hræðilegt. Ég hélt að ég væri að deyja og var farin aö sjá myndir úr ævi minni líða hægt hjá eins og gerist víst þegar dauðinn er að hvelfast yfir.“ Bleikrósóttur barnadraugur Spurð hvort henni hafi þá ekki þótt erfitt að setja slysið upp á sýn- ingunni svarar hún: „Nei, það er svo langt um liðið að ég er farin að sjá það út um baksýnisspegilinn og svo fannst mér það passa við efnið sem fyrir var.“ Þar á hún við mynd- ir af bleikrósóttum bamadraug sem er að koma út út heimagrafreit uppi í sveit og er að spranga um í ís- lenskri sumarnótt og stórar myndir af henni og litlum frænda hennar liggjandi eins og dauðum. „Við erum í leiknum „Hver deyr flott- ast?“ segir hún og bætir við: „Ég tek myndimar af okkur á myndavél með gikksnúru og hún sést, þannig að það er eins og dautt fólk sé að mynda sjálft sig. Þegar þessi stemn- ing var komin ákvað ég að blanda slysinu inn í.“ Blóðpollur á gólfi sýningarsalarins magnar enn þá dauðastemningu sem Bjargey talar um. Hann er úr limdúk þannig að fólk getur lagst í hann og þóst liggja í blóði sínu - án þess að óhreinkast. Hún segir nokkra hafa prófað það þegar sýningin var opnuð. „Krakk- amir voru að minnsta kosti mjög ánægðir með pollinn," segir hún. Bfógagnrýni Smárabíó/Regnboginn - The Transporter ★ ★ Með hnefa og fætur að vopni Flutningamaðurinn Frank Martin (Jason Statham) er ekki í venjulegum póstflutningum. Hann er flutninga- maður fyrir þá sem hafa kosið að lifa utan við lög og reglur. Martin hefur náð miklum árangri í starfl sínu með því að fylgja eftir þremur reglum sem hann hefur sett sér: Aldrei að breyta gerðum samningi: Engin nöfn: Aldrei að kíkja eftir því hvað er í pakkanum. Meö þetta að leiðarljósi sjáum við hann í löngu byrjunaratriði þar sem hann ekur á BMW 730 með tugi lög- reglubíla á hælunum. Auðvitað hefur hann betur og skilur eftir í valnum lögreglubílana meira og minna ónýta. Þetta atriði lofar ekki góðu, er allt of langt og klisjukennt og minnir okkur á að Luc Besson, sem er einn fram- leiðanda myndarinnar og handritshöf- undur, gerði slíkt hið sama í Taxi- myndunum tveimur sem hann fram- leiddi einnig. Sem betur fer er þetta aðeins byij- unin. Það sem á eftir kemur er betra en engu að síður jafn innantómt. Gæfumuninn gerir breski leikarinn Jason Statham sem fer með miklum látum í gegnum myndina, slær frá sér út og suður með löppum og höndum og hittir ávallt einhvern óvininn. Um Einn gegn mörgum Jason Statham í hlutverki flutningamannsins sem er mikill reglumaöur Fríðindi og heiður Næsta verkefni Bjargeyjar er ný- stárleg sýning í Múnchen í mars. Þar kveðst hún ætla að búa til eitt- hvað músíktengt. „Við erum nokkr- ir ungir listamenn frá hinum og þessum löndum sem vorum valdir til að breyta listasafninu í hvað sem við vildum. Við hittumst núna á reglulegum fundum til að plotta.“ Þetta hljómar sannarlega spenn- andi. í lokin er Bjargey spurð hvort henni gangi vel að lifa á listinni. „Ja, mér tekst að framfleyta mér á henni og svo fylgja henni fríðindi og heiður." -Gun. leið bítur ekkert á hann hvort sem það eru sérfræðingar í karate eða ein- hverri álíka slagsmálaíþrótt eða skot- ið er á hann með sprengjuvörpum. Statham er einn breskra leikara sem Guy Ritchie kom á framfæri í Lock, Stock and Two Smoking Barrels. Hann er talsvert breyttur Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. líkamlega síðan þá, hefur stundað ræktina vel og kemur vel út sem harður töffari og er greinlega tilbú- inn í slaginn viö Vin Diesel og fleiri töffara um aðdáun almennings. Statham verður samt ekki langlifur í hlutverkum á borð við það sem hann leikur í The Transporter. Við vitum enn ekki hvort hann hefur einhveija leikhæfileika. í þessari mynd þarf hann ekki á slíku að halda. Það kemur ekki á óvart að leik- stjórinn, Corey Yuen, hafi fengið sinn frama í Hong Kong hasar- myndum, hann á að baki um þrjátíu slíkar. Myndin ber það með sér að vera gerö af mátulegu kæruleysi gagnvart viðfangsefninu. Leikarar taka hlutina ekki alvarlega, setja upp svip sem við á í hvert skipti og hreyta út úr sér þeim örfáu orðum sem þeim er boðið upp á. Áhorfend- ur fá þessi skilaboð og það er kost- ur myndarinnar að ekki er verið að klína raunsæi upp á þá heldur er gammurinn látin geisa eins hratt og hann kemst. Leikstjórl: Cory Yuen. Handrit: Luc Bes- son og Robert Mark Kamen. Kvikmynda- taka: Pierre Morel. Tónlist: Stanley Clar- ke. Aöalleikarar: Jason Statham, Qi Shu, Matt Schulze, Francois Berland og Ric Young. Bjargey Ólafsdóttir er ein þriggja myndlistarmanna sem sýna verk sín í Gerðarsafni um þessar mund- ir. Sýning hennar heitir Flying/Dy- ing og þemað er dauðinn. Meðal þess sem þar ber fyrir augu er myndbrot úr slysi sem hún sjálf lenti í úti í Finnlandi og hjó nærri lífi hennar. Bjargey er fædd í Reykjavík og ólst upp í nágrenni Gerðarsafns í Kópavogi. Síðustu ár hefur hún verið á ferð og flugi, bæði vegna náms og starfs. Hún var í mastersnámi í myndlist úti í Finnlandi en kveðst hafa farið sem skiptinemi til Svíþjóðar, Bret- lands og Spánar. Eftir námið dvaldi hún i Stokkhólmi og Frakklandi, „þvældist" til Bandaríkjanna, eins og hún orðar það sjálf og var í Þýskalandi sl. haust. Nú er hún ný- flutt til íslands og sest að í eigin íbúð í Vesturbænum í Reykjavík. „Hér ætla ég að eiga samastað næstu mánuði og fljúga út þegar ég þarf. Ég er búin að fá nóg af því að búa í ferðatöskum," segir hún, ákveðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.