Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2003, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 29 Maier með á ný Austurrlski skíðakappinn Hermann Maier tók í gær þátt í sínu fyrsta móti í heimsbikamum í 22 mánuöi þegar hann keppti í stórsvigi í Adelboden í Sviss. Maier komst ekki áfram eftir fyrri ferð- ina þar sem hann var ekki meðal þrjá- tíu efstu en hann hafði ekki miklar áhyggjur af því. „Ég er ánægður með að komast heill niður,“ sagði Maier. -ósk t Staffan Johansson, landsliðsþjálfari í golfi, hefur að undförnu snúið sér meira að ungum og upprennandi kylfingum á íslandi og segir að leggja þurfi mesta rækt við líkamlega og tæknilega þáttinn hjá ungum kylfingum. DV-mynd Teitur Meiri gaumur gefinn aö líkamsþjálfun ungra íslenskra kylfinga en áður: Getur skipt sköpum - segir Staffan Johansson um mikilvægi góðs líkamlegs atgervis kylfinga Svíinn StaSan Johansson hefur verið landsliösþjálfari íslenska golflandsliðsins síðan í ársbyrjun 2000. Johansson er enginn aukvisi í faginu, einn af virtustu þjálfurum Svía og þjálfari Pierre Fulke sem lék með Evrópuliðinu í síðustu Ryder-keppni. Það má því segja að hann hafi verið hvalreki á íjörur ís- lenskra kylfmga enda sagði Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfsambands íslands, í samtali við DV-Sport í gær að mikil ánægja væri með störf hans þótt tímaskort- ur kæmi í veg fyrir að hann gæti sinnt starfinu eins vel og allir vildu. Blaðamaður DV-Sports ræddi við Staffan fyrr í vikunni um unglinga- starf landsliðsins á íslandi þegar Svíinn geðþekki stoppaði á landinu í þrjá daga og var með æfmgbúðir I Sporthúsinu og Reiðhöllinni fyrir fimmtiu manna hóp sem er að mestu leyti skipaður kylíingum 21 árs og yngri. Golfíþróttin er að breytast Hvað er að gerast í unglingaþjálf- un á íslandi? „Við einbeitum okkur að nokkrum atriðum varðandi þjálfun unglinganna. Við ætlum að byrja fyrr á að byggja upp likamlegt at- gervi þeirra heldur en gert hefur verið til þessa því að golfiþróttin er að verða meiri íþrótt heldur en hún hefur verið þar sem meiri kröfur verða gerðar til líkamlega þáttarins. Það er mjög mikilvægt að vera vel á sig kominn líkamlega í golfinu því að það getur skipt sköpum þegar mikið er um ferðalög, æfmgar og erfið mót. Við höfum sett upp æf- ingaáætlun varðandi líkamlega þáttinn í samráði við Gauta Grét- arsson sjúkraþjálfara sem krakk- amir fara eftir en auk þess leggjum við mikla áherslu á að þau hafi grunnatriðin á hreinu og lögum þau ef þess gerist þörf,“ sagði Staffan Jo- hansson, landsliðsþjálfari í golfl, í samtali við DV-Sport. Mestar framfarir 14-18 ára „Því miður hafa margir krakkar farið á mis við kennslu í klúbbun- um þó að allir klúbbar séu em með þjálfara á sínum snærum. Það mál horfir þó til mikils batnaðar því að margir klúbbar eru komnir með góða þjálfara og ég legg mikla áherslu á að vinna náið með þeim þannig að þeir geti kennt ungum krökkum grundvallaratriði golfsins eins snemma og nokkur kostur er. Því fyrr sem krakkar ná tökum á íþróttinni því betra. Eitt af vanda- málunum sem við höfum þurft að glima við hér á íslandi er að kylfmgar eru oft komnir yfir tvítugt þegar þeir verða góðir, sem er of seint að mínu mati. Krakkar læra mest á aldrinum 14—18 ára og þá nær fólk mestum framforum ef rétt er staðið að málum. Það er þvl mik- ilvægt að fylgja þessum aldurshópi þétt eftir og viö ætlum að einbeita okkur að honum núna. Það hefur komið fyrir að kynslóðabil hafi myndast í golfínu á íslandi, eins og reyndar öðrum íþróttum, en með þessum áherslum ætlum við að reyna að minnka það eins mikið og hægt er. Ég mun fara með 50 manna æfmgahóp til Orlando í lok mánað- arins þar sem dvalið verður í viku við toppaðstæður en stærstur hluti hópsins er ungir krakkar, framtíð- arkylfingar íslands." Minni vinna meö þeim eldri „Ég hef minnkað mikið vinnuna með eldri kylfmgunum til að geta einbeitt mér að þeim yngri. Ég vildi deila reynslu minni með eldri kylfingunum þegar ég kom hingað. Sumir þeirra ætluðu sér að verða atvinnumenn og ég gat sagt þeim hitt og þetta um skipulag, einbeit- ingu og það sem við kemur keppni á mótum en það er mjög erfitt að breyta stíl leikmanns sem er kom- inn yfir tvítugt og oft og tíðum er það ekki erfiðisins virði. Það er því meiri þörf fyrir mig hjá þeim yngri sem geta bætt sig endalaust, bæði tæknilega sem kylfmgar og líkam- lega en ég stjóma að sjálfsögðu landsliðinu og hugsa enn um mína leikmenn þrátt fyrir að ég hafi að- eins slakað á taumunum.“ Margir efnilegir kylfingar „Það er mikið af efnilegum kylfmgum að koma upp á íslandi og sumir þeirra geta orðið mjög góðir. Allir þessir krakkar sem ég er að vinna með eru ótrúlega áhugasamir og duglegir. ísland er hins vegar lít- ið land og það vantar sérstaklega fleiri stelpur. Þær detta hraðar út heldur en strákamir og vonandi tekst okkur að halda fleiri stelpum lengur í golfinu heldur en hefur ver- ið hingað til. Ef þetta er borið sam- an við önnur lönd þá eru miklu fleiri kylfingar þar til að vinna með. Ég get samt ekki kvartað því að þeir krakkar sem ég hef unniö með hér á íslandi em tilbúnir að leggja ótrú- lega mikið á sig til að ná árangri. Ef ég á að nefna nokkra þá er Magnús Lárusson efni í frábæran kylfing eins og hann hefur reyndar þegar sýnt. Snorri Páll Ólafsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golf- klúbbi Reykjavíkur em mjög hæfi- leikaríkir kylfingar sem þarf að hugsa vel um og rækta. Ég treysti klúbbunum mjög vel fyrir því að hugsa um þessa stráka því að það er mikil vinna að passa upp á að þess- ir hæfileikar glatist ekki og að þeir bæti sig jafnt og þétt. Hjá stelpunum er ég mjög hrifinn af stúlkunum fyrir norðan, þeim Sunnu Sævarsdóttur og Maríu Ósk Jónsdóttur úr Golfklúbbi Akureyr- ar og Ömu Rún Oddsdóttur úr Golf- klúbbi Húsavíkur. Þær geta allar orðið mjög góðar." -ósk Úrslit 1 nótt: Washington-Toronto ........75-84 Jordan 22, Hughes 12 (9 frák.), Hay- wood 10 - Peterson 21, J. Williams 14 (20 frák.), Alston 13 (11 stoös.), D. Brown 13. New York-Chicago...........98-86 Houston 26, Thomas 24 (13 frák.), Sprewell 16 - Rose 23 (8 frák.), Marshall 22 (14 frák.), Crawford 15 Miami-Detroit .............88-85 C. Butler 22 (8 frák.), R. Butler 16, EUis 12 - HamUton 24, Robinson 18, BiUups 18 Milwaukee-Atlanta .........97-88 CasseU 21, AUen 21, Thomas 13 - Rahim 23 (10 frák.), Terry 22 (6 stoðs.), Ratliff 14 (9 frák.) San Antonio-Phoenix . . . 108-100 Duncan 38 (16 frák., 9 stoð.), Parker 15, Smith 11, Robinson 11 (14 frák.) - Marbury 29 (8 frák., 7 stoð.), Stoude mire 24 (15 frák.), Marion 23 (9 frák.) Norski knattspyrnumaðurinn Eirik Bakke, sem leikur með enska úrvalsdeUdinni Leeds, var hirtur af lögreglunni í Leeds aðfaranótt þriðju- dags, grunaður um að hafa ekið bU undir áhrifum áfengis. Bakke fékk að dúsa í geymslu lögreglunnar í gœr en talsmaður enska liðsins vUdi ekkert láta hafa eftir sér þegar enskir fjöl- miðlar forvitnuðust um máliö. Austurriski skiðamaðurinn Hans Knauss bar sigur úr býtum á heims- bikarmóti í stórsvigi í Adelboden í Sviss í gær. Knauss var 9/100 úr sek- úndu á undan heimamanninum Michael Von Grúnigen. Þriðji varð Norðmaðurinn KjetU Andre Aamodt en tveir efstu mennirnir í heimsbUc- amum samanlagt, Bandaríkjamaður- inn Bode MUler og Austurríkismað- urinn Stefan Eberharter, keyrðu báð- ir út úr brautinni í síðari umferðinni. íslandsvinurinn Ian Rush hefur tekiö að sér að þjálfa framherja Liver- pool á næstu mánuðum. Rush var mikUl markahrókur sem leikmaður og hann hefur fuUa trú á því að hann geti hjálpað framherjum á borö við EmUe Heskey og E1 Hadji Diouf að finna markiö að nýju. „Ég hlakka mikið tU að taka þetta verkefni að mér. Ég hef menntað mig sem þjálfari og hef trú á aö reynsla mín muni hjálpa þessum ungu fram- herjum. Ef þeir taka einhverjum framfórum og hjálpa liöinu í leiðinni verð ég mjög hamingjusamur," sagði Rush. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.