Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2003, Síða 13
13
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003_____________________________________________________
U\r______________________________________________________________________________________________________Innkaup
DV-MYND HARI
Kökugerðarmeistarar hjá Bakaríi Sandholt
Ásgeir Þór Tómasson, t.v., og Ásgeir Sandholt hampa hér verðlaunakökum úr keppninni Kaka ársins 2003. Kaka Ásgeirs Sandholts, t.h., var útnefrjd Kaka
ársins 2003 en kaka Ásgeirs Þórs lenti í þriöja sæti. Þeir nafnar vinna hliö viö hliö í bakaríinu dag hvern og segja samstarfiö frjótt og skemmtilegt. Útkomuna
geta karlar víöa um land sannreynt meö því aö kaupa eina handa elskunni sinni.
Nýtt frá Stjörnusnakki:
Nachos Tex-
Mex maíssnakk
Iðnmark hefur sett nýtt Stjömusnakk
á markað, Nachos Tex-Mex maíssnakk,
sem eingöngu er búið til úr maís og létt-
steikt úr fljótandi jurtaolíu. Snakkið er
kryddað með Nachos-ostakryddi. Iðn-
mark hefur unnið að þessu verkefni í
tvö ár.
Að sögn talsmanna Iðnmarks er þetta
snakk hollara vegna hlutfallslegrar
skiptingu kolvetna, olíu og prótína en í
hverjum 100 g em 6 g af prótíni, 64 g af
kolvetnum og 25 g af fljótandi olíu.
Eftirfarandi uppskriftir má nota
með Stjömu Nachos snakki:
Skyr-salsa með Stjörnu-Nachos:
KEA skyr - hreint
1/2 dós salsasósa
1/2 hvítlaukur
Stjörnu-Nachos í ofni:
200 g Stjörnu Nachos
1 dós salsasósa
jalapeno
rifinn ostur
Takið snakkið og setið á hitaþolinn
disk, setjið salsasósu í litlum skömmt-
um í kring, setjið jalapeno-ávöxtinn inn
á milli og setið rifinn ost og nóg af hon-
um yflr snakkið. Bakið í ofni við 150"C í
15 min.
Ásgeir Sandholt bakar köku ársins þriðja árið í röð:
Perumousse með
léttu lakkrísbragðii
Kökur
„Galdurinn er einfaldlega að
hafa brennandi áhuga á því sem
maður er að gera,“ sagði Ásgeir
Sandholt bakarameistari og
konditor, í samtali við DV en Ás-
geir á köku ársins 2003.
Landssamband bakarameistara
stóð fyrir keppninni Kaka ársins
2003 um liðna helgi meðal félags-
manna sinna og starfsmanna
þeirra. Þetta er þriðja árið sem
keppnin er haldin og skemmst er
frá því að segja að Ásgeir Sandholt
hefur borið sigur úr býtum öll
þrjú árin.
Úrslitin voru kynnt í Hótel- og
matvælaskóla Menntaskólans í
Kópavogi á laugardag. Tólf kökur
bárust til keppninnar 1 ár. For-
manni dómnefndar þótti umtals-
verðar framfarir hafa orðið frá
fyrstu keppninni og stóð dóm-
nefndin því frammi fyrir erflðu
vali.
En úrslit urðu þau að kaka Ás-
geirs Sandholts, Bakaríi Sandholt,
bar sigur úr býtum. í 2. sæti varð
kaka Hafliða Ragnarssonar í Mos-
fellsbakaríi og í 3. sæti kaka Ásgeirs
Þórs Tómassonar, Bakaríi Sandholt.
Sigurkakan hlýtur nafiibótina Kaka
ársins 2003 og verður kynnt og seld
í öllum aðildarbakaríum Landssam-
bands bakarameistara á konudag-
inn, 23. febrúar. Kakan verður
væntanlega á boðstólum í bakarímn
út þetta ár.
Og fyrst talað er um brennandi
áhuga er eðlilegt að geta þess að i
köku Ásgeirs Sandholts er
perumousse og Fisherman’s Friend
brjóstsykur. Af henni er létt lakkrís-
bragð sem hann telur að muni falla
Islendingum vel í geð.
En Ásgeir er ekki einn um vel-
gengni í keppninni. Nafni hans, Ás-
geir Þór Tómasson, átti köku í
þriðja sætinu. Þeir nafnar vinna
hlið við hlið dag hvem og því eðli-
legtað spurt sé um samstarfið.
„Við vinnum náið saman og
skiptumst á hugmyndum alla dag-
inn. Þetta er mjög frjósöm sam-
vinna. Við erum ekki að pukrast
hvor í sínu homi. Hér eru engin
leyndarmál," segir Ásgeir Sandholt
og bætir við að kökur beggja verði
til sölu í Bakaríi Sandholt. -hlh
Ölgerðin Egill Skallagrímsson:
Nýr Egils þorrabjór
Egils þorrabjór er ný bjórtegund
sem sett var í sölu í verslunum ÁTVR
frá og með gærdeginum. Egils þorra-
bjór er bragðmikill lagerbjór sem
minnir á þýskan bjór. Styrkleiki hans
er 5,6%.
Bruggmeistarar Ölgerðarinnar hafa
unnið að þróun bjórsins undanfarin
misseri. Framleiðsla á Egils þorrabjór
tekur um það bil einn mánuð og fylgj-
ast bruggmeistaramir náið með lögun-
inni á öllum stigum framleiöslunnar.
Egils þorrabjór verður til sölu í versl-
unum ÁTVR i um sex vikur. Einnig
mun Ölgerðin selja þorrabjórinn til
veitingastaða og veislusala. -hlh
Þorrabjór
Egils þorrabjór er nýr á markaönum
og veröur til sölu næstu sex vikurn-
ar. Bragömikiit þorrabjór sem margir
taka fagnandi meö þorramatnum.
ÚTSALA ALDARINNAR
AHt aö 7
.990 kr.
Kjólar frá 9.000 kr.
Sissa tíshuhús
Hverfisgötu 52, sími 562 5110.