Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Side 9
FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003
x>v
Fréttir
9
;
I
um nánast aldrei á
Egilsstaöi nema eiga
erindi. Það er full-
langt að fara til að
skreppa og fá sér
kaffisopa eða bjór-
kollu," segir Guð-
mundur.
Ætla aö rulla IAV-
mönnum upp!
En greinilegt er að
andinn er góður og
enginn lætur sér leið-
ast, Fyrir utan búðir
þeirra Arnarfells-
manna standa nokkr-
ir vélsleðar sem bíða
þess að eigendumir
gefi sér tíma til að
þeysa á þeim upp um
fjöll og firnindi - auk
þess sem bæta mætti
í snjóinn.
í öðmm búðum em
vistarverur íslenskra
aðalverktaka. Þrátt
fyrir nálægðina er
ekki mikill samgang-
ur milli þessara
tveggja hópa. Án efa tímaleysi
sem ræður því. En strákamir hjá
Amarfelli ætla þó að skora á hina
við tækifæri í snjókrosskeppni og
þykjast ansi vel settir þar sem nýr
maður, sjálfur íslandsmeistarinn I
snjókrossi frá því í fyrra, Ámi Þór
Bjarnason frá Egilsstöðum, bætt-
ist nýlega í hópinn.
Islandsmeistarinn
Árni Þór, íslandsmeistari í snjókrossi, situr hér meö
hönd undir kinn, efiaust að hugsa um væntanlega
keppni í vélsleöaakstri viö liö
íslenskra aöalverktaka.
Og það vantar ekki að strákarn-
ir séu ánægðir nieð það aö fá hann
í keppnisliðið, enda vantar þá
ekki sjálfstraustið og þeir stefna
að því að „rúlla þeim IAV mönn-
um upp,“ en sjálfur íslandsmeist-
arinn brosir út í annað og er hóg-
værðin uppmáluð þegar félagamir
kotrosknu mæla þessi orð. -HEB
Sprengingin undirbúin
Dagieg störf viö Kárahnjúka. Hér er veriö aö undirbúa sprengingu; dínamít og
kjarni sett ofan í hoiurnar.
Landsvirkjun:
Mikill ahugi á að kvikmynda
Kárahnjúkaverkefnið
í byrjun þessa árs auglýsti
Landsvirkjun eftir aðilum til að
gera kvikmynd um Kárahnjúka-
verkefhið. Álls bámst 32 umsókn-
ir. Fjölmargar voru afar vandaðar
og valið erfitt. Því miður reyndist
nauðsynlegt að hafna mörgum
hæfum umsækjendum. Nefhd
skipuð Þorsteini Hilmarssyni upp-
lýsingafulltrúa, Áma Benedikts-
syni verkfræðingi og Ásgeiri Egg-
ertssyni fjölmiðlafræðingi hefur á
undanfómum tveimur vikum far-
ið yfir umsóknimar. Nefndin
valdi sjö aðila til að gera nánari
grein fyrir hugmyndum sinum.
Þeir vom Samver - Athygli; Seyl-
an - Kandela; Spark; Vatnaskil, en
að því standa Köggull, Orðspor,
Gagarín, Smit og Mjölnir - Loft-
myndir; Plús-film; Pegasus og
Saga film. -GG
ÞJALFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR
Próf sem mjög oft er notað til að ákvarða þyngd einstaklinga mælir svokallað líkamsþyngdar-
gildi (LÞG). Með því að taka þetta próf geta flestir séð hvort þeir teljast vera í eðlilegri
þyngd eða ekki (sjá töflu). Hafa verður í huga að hér er um tölfræðilegt próf að ræða
og því geta komið upp frávik af ýmsum toga.
1. frávikadæmi: Vaxtarræktarjötuninn Styrmir er 1,80 m og vegur 100 kg. Samkvæmt
líkamsþyngdargildi (LÞG) mælist hann vera á mörkum ofþyngdar og offitu (LÞG = 30,9
- sjá töflu). Augljóslega þjáist Styrmir ekki af offitu enda fituhlutfall vaxtarræktarmanna
mjög lágt.
2. frávikadæmi: Sveinn telst samkvæmt LÞG-mælingu vera í kjörþyngd en samt sem
áður er hann kominn með „myndarlega" ístru. Hafa ber í huga að menn geta verið mjög
vöðvarýrir og beinasmáir og þó að fitumagn í líkama mælist hátt kann heildarþyngdin
að vera það lág að þeir mælist (samkvæmt líkamsþyngdargildi) vera í kjörþyngd.
Ef einhver er ekki sáttur við þá útkomu sem fengist hefur með því að taka
líkamsþyngdargildisprófið er möguleiki að gangast undir önnur próf, eins og “fellingarpóf“
en slíkt próf er auðvelt í framkvæmd og gefur góðar vísbendingar um heildarfitumagn
og segir einnig þokkalega til um dreifingu fitu í líkama.
Að lokum má geta þess að fitumagn í líkama karlmanna sem teljast í kjörþyngd er
yfirleitt á bilinu 10 til 25% en kvenmanna 18 til 32%. Að sjálfsögðu eru frávik þarna á og
svo tekið sé dæmi um íþróttafólk þá er algengt að eðlilegt fituhlutfall karla sé 5 til 10%
en kvenna 15 til 20%.
Tafla
Likamsþyngdargildi (LÞG) er fundið með því að margfalda likamshæð í metrum með sjálfri sér og deila
útkomunni í likamsþyngd = Þyngd (kg). Sjá eftirfarandi dæmi:
hæð (m)2
1. dæmi: Pétur er 1,80 m og 80 kg: 80 kg/ (1,80 m X 1,80 m) = 80 kg/ 3,24 m = 24,7 (kjörþyngd)
2. dæmi: Halia er 1,70 m og 110 kg: 110 kg/(1,70 m X 1,70 m) = 110 kg/ 2,89 m = 38,1 (offjta)
3. dæmi: Kristín er 1,70 m og 53 kg: 53 kg/ (1,70 m X 1,70 m) = 53 kg/ 2,89 m = 17,3 (undir kjörþyngd)
4. dæmi: Þorkell er 1,80 m og 150 kg: 150 kg/ (1,80 m X 1,80 m) = 150 kg/ 3,24 m = 46,3 (offita)
5. dæmi: Hæð mín er___m og þyngd mín er _
-kg:
_kg/ (_____m X m) ■
kg/
MATSEÐILL DAGSINS
Dagur 23
Morgunverður:
AB-mjólk
Banani
3 dl
1 stk
Hádegisverður: Kornstöng m/eggjum 1 stk.
MiðdegisverðurrTebolla 1 stk.
Kvöldverður:
Fiskur, bakaður
Hrísgrjón, soðin
Ostur, 26% feitur
Sojasósa
Salat, blandað
Ostasósa
Kvöldhressing: Appelsína
150 g
2 dl
15 g
1/2 tsk.
100 g +
1 msk.
1 stk.
Ljóst er að hlutfall þeirra sem ná að viðhalda þyngdartapi til lengri tíma er lágt. Það
er því mikilvægt að þeir sem þurfa að losa sig við aukakíló geri sér vel grein fyrir öllum
staðreyndum þannig að ekki verði farið af stað með óraunhæf markmið.
Markmiðssetningu þarf í reynd að laga að hverjum og einum því augljóslega eru menn
misjafnlega í stakk búnir til að takast á við offituvandann.
Dæmi: Dóri, sem er um 15 kg of þungur og á auðvelt með hreyfingu, á mun auðveldara
með að losa sig við öll aukakílóin en Gaui sem telst vera um 50 kg of þungur og á
orðið erfitt með að hreyfa sig og þarf kannski þar að auki að berjast gegn fleiri
fitufrumum.
í stað þess að sjá einhverja þyngdartölu í blámóðu-hillingum ætti viðkomandi að setja
sér hófleg markmið, eins og það að losa sig við um 5%~15% heildarþyngdar sinnar
og vinna síðan í að verja þyngdartapið.
Dæmi: Pétur er 100 kg (hæð hans er 1,70 m) og hann setur sér það
markmið að komast niður í 85 kg og þegar þangað er komið einsetur
hann sér að viðhalda þyngdartapinu með „góðu" mataræði og
reglubundinni hreyfingu. Ef Pétur aftur á móti finnur að hann á nokkuð
auðvelt með að létta sig enn frekar getur hann sett sér annað markmið
og svo koll af kolli. En það að verja þyngdartapið á að vera og verður
að vera þungamiðja hverrar markmiðssetningar.
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur
HReynnc
frítt * 3 daga HReyfínG
Ef þú hefur ekki æft í Hreyfingu áður en langar til að prófa bjóðum við þér
að koma og æfa frítt í þrjá daga til reynslu gegn framvísun þessa miða.
Hringdu í síma 568-9915 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. Gildir tu 1. apríi 2003