Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Page 12
12 Útlönd FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 DV Sorg í Alsír Ung kona bregst viö fregnum af flug- slysinu í sunnanveröu Alsír í gær. Rúmlega eitt hundraö (órust í Sahara í gær Alsírsk farþegaþota fórst skömmu eftir flugtak nærri bæn- um Tamanrasset, langt inni í Sa- haraeyðimörkinni, í gær og með henni 103 menn, farþegar og áhöfn. Einn farþega komst lifs af en hann er alvarlega slasaður. Noureddine Zerhouni, innan- ríkisráðherra Alsírs, sagði að eld- ur hefði komið upp í einum hreyfli þotunnar í flugtaki. Flugslysið í gær er hið versta í Alsír frá því að landið hlaut sjáif- stæöi frá Frökkum 1962. Flugvél- in, sem var af gerðinni Boeing 737, var á leiö til Algeirsborgar. Bretar eru mesta nammiþjóð Evrópu Bretland er stærsti markaður- inn fyrir sælgæti í Evrópu og átu Bretar nammi fyrir um 260 millj- arða króna í fyrra, að því er fram kemur í viðamikilli könnun. Danir eru þó duglegri við sæl- gætisátið, miðað við hina frægu höfðatölu, og borðaði hver og einn nammi fyrir 4000-kall árið 2001. UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum veröur háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Básbryggja 33,0101, Reykjavík, þingl. eig. Auður Róberta Gunnarsdóttir og Jón Sveinsson, gerðarbeiðendur Greiðslumiðlun hf., Landsbanki ís- lands hf., aðalstöðvar, og Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 10.00.________________ Naustabryggja 38, 010101, Reykjavík, þingl. eig. Þb. Byggðaverks ehf., b.t. Ragnars H. Hall hrl., gerðarbeiðendur Björn H. Jóhannesson, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Tækniþjónusta Sig- urðar Þorleifssonar ehf., þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 11.30._______ Orrahólar 7, 010102, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Guðbjörnsdóttir, gerðar- beiðendur Hólabrekkuskóli, íbúða- lánasjóður, íslandsbanki hf., útibú 526, Orrahólar 7, húsfélag, Tal hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 15.00. Seljabraut 22, 0401, Reykjavík, þingl. eig. Ármann Gestsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 14.00. Stíflusel 6, 050302, Reykjavík, þingl. eig. Anna Rósa Þorfinnsdóttir, gerðar- beiðandi Leikskólar Reykjavíkur, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 13.30. Stórhöfði 15, 0001, Reykjavík, þingl. eig. Fataefni ehf., gerðarbeiðendur Eimskipafélag íslands hf., Penninn hf., STEF, samb. tónskálda/eig. flutnr. og Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudag- inn 11. mars 2003 kl. 10.30. Tangarhöfði 2, 020101 og 020201, Reykjavík, þingl. eig. Bflabúð Rabba ehf., gerðarbeiðendur íslandsbanki hf., útibú 526, íslandsbanki hf., ís- landssími hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 11.00. Unufell 31, 0401, Reykjavík, þingl. eig. Einar Viðar Gunnlaugsson og Sig- ríður Þóra Magnúsdóttir, gerðarbeið- andi Unufell 25-35, húsfélag, þriðju- daginn 11. mars 2003 kl. 15.30. Æsufell 6, 030306, Reykjavík, þingl. eig. Örn Eyfjörð Arnarson, gerðar- beiðandi Landsbanki fslands hf., aðal- stöðvar, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 16.00.__________________________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK, Munum fara fram á atkvæða- greiðslu í Öryggisráðinu - sagöi Bush Bandaríkjaforseti á blaöamannafundi í gærkvöld George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu fara fram á atkvæðagreiðslu um nýja ályktun í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna um íraks-málið burt séð frá því hvort stuðningur væri við tillöguna eða ekki. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Bush boðaði til í Washington í gærkvöld og sagði hann tíma til kom- inn að fulltrúar í Öryggisráðinu legðu spUin á borðið og opinberuðu afstöðu sína tU íraks-málsins. Blaðamannafundurinn var sá fyrsti almennUegi sem Bush boðar tU síðan í nóvember í fyrra og ástæðan eflaust sú að blása tU sóknar fyrir fund Ör- yggisráðsins í dag þar sem Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlits SÞ, mun flytja nýja skýrslu um stöðu vopnaeft- irlitsins í írak. Bush sakaði íraka um áframhald- andi blekkingaleik varðandi vopnaeft- irlitið og sagði það óásættanlega áhættu að neita því að beita hervaldi. Bush Bandaríkjaforseti. Hann nefndi þó engar nýjar ástæður sem réttlættu nýja ályktun í Öryggis- ráðinu sem heimUaði hemaðaraðger- ir og því ólíklegt að ræða hans breyti miklu um afstöðu þeirra sem mælt hafa gegn henni. Bush sagði fráleitt að vopnaeftirlit- ið þyrfti meiri tíma eða meiri mann- afla við vopnaleitina, aUt sem þeir þyrftu væri skUyrðislaus samvinna íraka. Aðspurður um tímasetningu fyrir- hugaðra hemaðaraðgerða sagði Bush að enn hefði engin ákvörðun verið tekin um það. „Við erum enn þá með hugann viö diplómatísku leiðina og munum fyrst láta reyna á hana,“ sagði Bush. Fyrir fundinn hafði Bush símasam- band við Pútín Rússlandsforseta og sagði talsmaður Pútins að þeir hefðu rætt hugsanlegar leiðir tU að ná sátt- um í málinu og ákveðið að halda við- ræðum áfram. Á meðan spennan eykst vinna Bret- ar enn þá að því að ná sáttum með breyttu orðalagi nýrrar ályktunar tU að koma tU móts við andstæðinga hennar og sagði Jack Straw utanríkis- ráöherra það vel ásættanlegt að gefa írökum lokafrest. „Það yrðu þó aðeins dagar en ekki mánuöir," sagði Straw. REUTERSMYND Hundatískusýnlng í Moskvu Tíkin Lúdmíia sýnir hér nýjustu hundatískuna á hundatískusýningu sem haldin var í einu spilavíti Moskvu-borgar í gær. Khalid Sheikh Mohammed borubrattur viö handtökuna: Spáði að ráðist yrði á bandaríska hermenn við Persaflóann Hryðjuverkamaðurinn Khalid Sheikh Mohammed spáði því þeg- ar hann var handtekinn í Pakist- an um síðustu helgi að liðsmenn al-Qaeda myndu innan tíðar ráð- ast til atlögu gegn bandarískum hermönnum sem komnir eru til Persaflóaríkjanna vegna fyrirhug- aðs stríðs gegn írak. Mohammed, sem talinn er vera einn helsti skipuleggjandi árás- anna á New York og Washington 11. september 2001, sagði þeim sem tóku hann í bólinu á laugar- dagsmorgun að „aðeins banda- rískir heiðingjar myndu fagna þessu“, að því er fram kemur í bandaríska dagblaðinu Was- hington Post i dag. Bandarísk stjórnvöld hafa kall- Osama bin Laden Bandaríkjamenn hafa hert mjög leit- ina aö hryöjuverkaforingjanum sem talinn er vera í Pakistan. að handtöku Mohammeds mikil- vægan áfanga í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Gögn sem fundust við handtök- una benda til að Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda, sé enn á lífi og að þeir Mohammed hafi ný- lega verið í sambandi. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, sagði í morgun að svo virtist sem bin Laden væri á lífi en þó ekki í Pakistan. Bandarískar og pakistanskar hersveitir hafa hert mjög leitina að bin Laden sem gekk Banda- ríkjamönnum úr greipum árið 2001. Hann er talinn fara huldu höfði í fjallahéruðunum í norð- vestanverðu Pakistan, nálægt landamærunum að Afganistan. BK KaHsberg skrilar ívanov Anfinn Kalls- berg, lögmaður Færeyja, hefur skrifað ígor ívanov, utanríkis- ráðherra Rúss- lands, bréf þar sem hann óskar eftir því að Rúss- ar veiti Færeying- um aðgang að skjalasöfnum sín- um. Sagnfræðingurinn Bent Jen- sen rannsakar þýðingu Færeyja fyrir Varsjárbandalagið í kalda stríðinu. Utivinnandi mæður í Bretlandi eyða allt að tveimur þriðju hlut- um launa sinna í barnagæslu, að því er fram kemur í rannsókn sem var gerð opinber í morgvrn. Carla kvartar sáran Carla Del Ponte, aðalsaksókn- ari stríðsglæpadómstóls SÞ, sak- aði yfirvöld í Serbíu og Svart- fjallalandi í gær um skort á póli- tískum viija til að framselja grun- aða menn til dómstólsins í Haag. Vilja breytta byggðastefnu Bresk stjómvöld hvöttu í gær til endurskoðunar á byggðastefhu ESB þar sem Bretar vilja draga sem mest úr útgjöldum vegna stækkunar sambandsins og til að tryggja að fátæk héruð heima fari ekki halloka. Kratar sækja í sig veðríð Danskir jafhað- armenn, undir forystu Mogens Lykketofts, hafa aukið fylgi sitt meðal kjósenda, eftir flóttann frá þeim vegna inn- anbúðarátaka í fyrra. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun fengju krat- ar 29 prósent atkvæöa ef kosið væri nú. Gengið í skrokk á tabbana Ráðist var á bandaríska talí- banann John Walker Lindh þegar hann var að búa sig undir kvöld- bænir í fangelsi í Kalifomíu þar sem hann afplánar tuttugu ára vist fyrir að hafa gengið í lið með talíbönum í Afganistan. Castro heíur í hótunum Fidel Castro Kúbuleiðtogi hót- aði í gær að loka skrifstofu banda- ríska sendifull- trúans í höfuð- borginni Havana þar sem hún væri gróðrarstía fyrir andstæðinga stjómvalda. Castro réðst á banda- riska erindreka fyrir að styðja andófsmenn. Jemenar vilja grunaða Jemensk stjórnvöld hafa farið fram á það við Sádi-Araba að þeir framselji þrjá menn sem grunaðir eru um aðild að sprengjutilræði við franska olíu- skipið Limburg undan ströndum Jemens í fyrrahaust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.