Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2003, Blaðsíða 24
> 40
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
■."MEMMm
85 ára_________________________
Jónína Sigurbergsdóttir,
•' Hrafnistu, Kleppsvegi, Reykjavík.
80 ára_________________________
Egill Jóhannesson,
Ásabraut 8, Keflavík.
Unnur Sveinsdóttir,
Dalalandi 14, Reykjavík.
Vlastimil P. Neubauer,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
70 ára_________________________
Karl Hallbertsson,
Hjarðarholti 2, Akranesi.
Kristín Hulda Óskarsdóttir,
Mánatúni 6, Reykjavík.
Stefán Kristjánsson,
Ásgarði 73, Reykjavík.
60 ____________________________
Jóhanna Jóakimsdóttir,
Sæbólsbraut 38, Kópavogi.
50 ára_________________________
Atli Alexandersson,
Engihlíö 4, Ólafsvík.
Auóur Lóa Magnúsdóttir,
Sandbakka 7, Höfn.
Gunnar Magnússon,
Sléttahrauni 22, Hafnarfirði.
Helgi Þorgils Friöjónsson,
Rekagranda 8, Reykjavík.
Magnús Helgi Guömundsson,
Garðbraut 23, Garöi.
_ Soffia Stefanía Egilsdóttir,
Hverafold 146, Reykjavík.
Valbjörn 0. Þorsteinsson,
Teigi, Eyjafjarðarsveit.
40 ára_________________________
Einar Ágúst Gíslason,
Eskihlíð 7, Sauðárkróki.
Einar Blrgir Hauksson,
Smárarima 24, Reykjavík.
Ester Davíösdóttir,
Suöurhvammi 17, Hafnarfirði.
Kristbjörn Hjalti Tómasson,
Miðstræti 16, Vestmannaeyjum.
7 Kristín Guöný Ottósdóttir,
Hábergi 36, Reykjavík.
Stefanía Ægisdóttir,
Þrúövangi 2, Hafnarfirði.
Thonglek Utsa,
Brúnavegi 1, Reykjavík.
Guörún Egilsdóttir, Hæðargarði 35,
Reykjavík, andaöist á líknardeild
Landspítalans, Landakoti, þriðjud. 4.3.
Sveinbjörn Þór Kristmundsson,
Krummahólum 2, Reykjavík, lést
mánud. 3.3.
Þórdis Smith (Wlium), fædd á
Vopnafirði (Fagradal), lést I London
miðvikud. 19.2. Útför hennar fór fram
fimmtud. 6.3.
Siguröur Friðrik Slgurösson varð
bráðkvaddur á heimili sínu í Gautaborg
mánud. 3.3. sl. Minningarathöfn fer
fram í Skárskirkju í Gautaborg mánud.
10.3. kl. 18.00. Jarðarförin veröur
auglýst síöar.
.mrnmrmm
Jaröarför Halldórs Guömundssonar
pípulagningameistara, Þangbakka 8
(áður Akurgerði 8), Reykjavík, fer fram
frá Bústaðakirkju föstud. 7.3. kl. 13.30.
Jóhanna Friðrlksdóttir, Kirkjuvegi 11,
Keflavtk, verður jarösungin frá
Keflavíkurkirkju föstud. 7.3. kl. 14.00.
Elin Elíasdóttir frá Melstaö, Höföagrund
11, Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju föstud. 7.3. kl. 10.30.
Guðrún Ágústsdóttir frá Baldurshaga,
Vestmannaeyjum, Dalbraut 20,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju
föstud. 7.3. kl. 13.30.
Ragnar Guðmundsson, Dalbraut 21,
áöur Bogahlíð 10, veröurjarðsunginn frá
Háteigskirkju föstud. 7.3. kl. 13.30.
Kristján Sigurðsson, Háholti 18,
Akranesi, veröur jarðsunginn frá
Akraneskirkju föstud. 7.3. kl. 14.00.
Elisabet Þórhallsdóttir veröur jarðsungin
frá Útskálakirkju, Garöi, föstud. 7.3. kl.
14.00.
Logl Ásgeirsson verður jarösunginn frá
Fossvogskapejlu föstud. 7.3. kl. 13.30.
Margrét Elín Ólafsdóttlr, Túngötu 51,
Eyrarbakka, veröur jarðsungin frá
Eyrarbakkakirkju laugard. 8.3. kl.
14.00.
Guöfinna T. Guönadóttir frá
Brautartungu, Lundarreykjadal,
hjúkrunarheimilinu Ási, Hverageröi,
veröur jarðsungin frá Lundarkirkju,
Lundarreykjadal, laugard. 8.3. kl.
14.00.
FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003
I>V
Sextugur
Jakob Líndal Kristinsson
dósent í eiturefnafræði við læknadeild HÍ
Jakob Líndal Kristinsson, dósent
í eiturefnafræði við Læknadeild HÍ,
Hjarðarhaga 24, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Jakob fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Laugarneshverfmu. Auk
þess var hann í sveit á Lækjaraóti í
Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu öll
sumur til 15 ára aldurs hjá móður-
bróður sinum, Sigurði J. Líndal og
fjölskyldu hans.
Jakob lauk stúdentsprófi frá MR
1963, stundaði nám i lyfjafræði við
HÍ og Danmarks farmaceutiske
Hojskole 1964-69, lauk kandídats-
prófi i lyfjafræði frá Danmarks far-
maceutiske Hojskole 1969, öðlaðist
starfsleyfi sem lyfjafræðingur á ís-
landi sama ár og hlaut sérfræðivið-
urkenningu í eiturefnafræði 1982.
Jakob dvaldi skamma hríð við
nám á Farmakologisk Institut í
Kaupmannahöfn 1973, á Retsmedi-
cinsk Institut í Árósum 1977, á
Bispebjerg Hospital í Kaupmanna-
höfn 1977, Huddinge Universitets
Sjukhus, Instit. för Klin. Kemi &
Klin 1988, sótti námskeið í forritun
á vegum Tölvuskólans í Reykjavík
1981, námskeið um gagnagrunna á
vegum Reiknistofnunar HÍ 1983,
tölvunámskeið á vegum Endur-
menntunarstofunar HÍ 1986 og í
kennslutækni 1994, um klinískar og
faraldsfræðilegar rannsóknir 1998,
námskeið á vegum NorFa: Tox-
icokinetics 1995, á vegum Giftin-
formationssentralen í Ósló í
klínískri eiturfræði 1996, auk þess
sem hann hefur sótt námskeið á
vegum Lytjafræðingafélags íslands.
Jakob var lyfjafræðingur í Holts
Apóteki í Reykjavík 1969-72, var
ráðinn í tvær hlutastöður í Rann-
sóknastofu í lyfjafræði og lyíjafræði
lyfsala við Hí frá ársbyrjun 1972-76,
hefur unnið í fullu starfi í Rann-
sóknastofu í lyfjafræði frá 1976, er
deildarstjóri réttarefnafræðideildar
Rannsóknastofunnar frá 1974, átti
sæti í Eiturefnanefnd frá ársbyrjun
1989 þar til hún var lögð niður 1992
og er ráðgjafl Eitrunarmiðstöðvar á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi í
Fossvogi frá 1995.
Jakob var stundakennari í verk-
legri lyfjagerðarfræði við HÍ
1970-75, í efnagreiningartækni
1972-77 og eiturefnafræði 1976, að-
júnkt í eiturefnafræði frá ársbyrjun
1977-85, settur lektor í eiturefna-
fræði 1985, skipaður lektor 1986,
skipaður dósent í eiturefnafræði
1989 og í ársbyrjun 1992, dósent í eit-
urefnafræði í fullu starfi frá árs-
byrjun 2000 og hefur jöfnum hönd-
um stundað kennslu í eiturefna-
fræði, lyfjafræði og lyfjagreiningar-
tækni.
Jakob átti þátt í námskeiðum I
eiturefnafræði og réttarlæknisfræði
á vegum Endurmenntunamefndar
HÍ 1991 og 1997, átti þátt í námskeiði
í eiturefnafræði fyrir nemendur í
raunvísindadeild HÍ 1991, hefur
kennt eiturefnafræði á fjölmörgum
námskeiðum fyrir garðyrkjumenn
og meindýraeyða sem haldin hafa
verið á vegum Hollustuvemdar rík-
isins og Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins og kennt lyfjafræði við
Tækniskóla íslands frá 2000.
Jakob átti sæti í kennslunefnd
læknadeildar 1980-82, sem fuUtrúi
kennara á 3. ári, og átti sæti í dóm-
nefnd til þess að meta hæfni um-
sækjenda um prófessorsembætti í
lyfjagerðarfræði 1985.
Jakob sat I fræðslunefnd Lyfja-
fræðingafélgas íslands 1970-71, í
stjórn félagsins 1971-73, í ritstjóm
Tímarits um lyfjafræði 1974-76 og
ritstjóri þess 1976-80 og 1986-88, var
fulltrúi LFÍ á þingum BHM 1973-86,
og á norrænum
fundum lyfja-
fræðinga (Nor-
disk Farmaceut
Union) 1972,
1977, 1978, 1979,
1982, 1986 og
1987, sat i stjórn
Lyfjafræðafélags
íslands 1987-98
og situr í stjóm
Líftölfræðifélags-
ins (Icelandic
Biometric Soci-
ety) frá 1988.
Raxmsóknir
Jakobs hafa
einkum verið á sviði eiturefnafræði
(réttarefhafræöi). Niðurstöður
þeirra hafa birst í fagtímaritum, ís-
lenskum og erlendum, eða verið
kynntar með erindum á ýmsum ráð-
stefnum.
Fjölskylda
Jakob kvæntist 10.10. 1964 Krist-
ínu Gísladóttur, f. 21.5. 1944, versl-
unarmanni í Reykjavík. Foreldrar
hennar: Gísli Tómas Guðmundsson,
f. 22.3.1915, d. 30.11.1991, póstmaður
í Reykjavík, og k.h., Kristín Sigþóra
Bjömsdóttir, f. 1.3. 1919, kennari í
Reykjavík.
Böm Jakobs og Kristínar eru
Kristín Mjöll Jakobsdóttir, f. 30.8.
1965, fagottleikari, búsett í Reykja-
vík og á hún eina dóttur; Snorri
Jakobsson, f. 30.9. 1976, hagfræðing-
ur í Reykjavík, en unnusta hans er
Sigríður Björk Ævarsdóttir, f. 13.8.
1977, og eiga þau eina dóttur; Mar-
grét Rún Jakobsdóttir, f. 15.9. 1984,
nemi í MR.
Systkini Jakobs eru Halldóra
Kristinsdóttir, f. 18.10.1946, kennari
i Mosfellsbæ; Gísli Kristinsson, f.
26.11.1950, arkitekt á Akureyri; Jón-
ína Vala Kristinsdóttir, f. 12.8. 1952,
kennari við KHI.
Foreldrar Jakobs eru Kristinn
Finnbjöm Gíslason, f. 19.6. 1917,
kennari í Reykjavík og k.h. Margrét
Jakobsdóttir Líndal, f. 29.5. 1920,
kennari i Reykjavik.
Ætt
Föðursystkini: Hjálmar Gíslason,
f. 22.12. 1918, fulltrúi í Reykjavík, og
Sigurós Gísladóttir, f. 29.10.1929, bú-
sett í Kópavogi.
Kristinn Finnbjöm er sonur
Gísla Rósinbergs Bjamasonar,
kennara á Hesteyri við
ísafjarðardjúp, og Sigfúsínu
Halldóru Benediktsdóttur.
Móðurbræður: Sigurður J. Lín-
dal, f. 29.11. 1915, d. 1991, bóndi og
hreppstjóri á Lækjamóti í Víðidal,
V-Hún., og Baldur Líndal, f. 17.8.
1918, d. 17.6. 1997, efnaverkfræðing-
ur, bús. í Kópavogi.
Margrét er dóttir Jakobs
Hanssonar Líndal, b. að Lækjamóti
í Víðidal, og Jónínu Sigurðardóttur
Lindal húsmæðrakennara.
Jakob og Kristín taka á móti vin-
um og vandamönnum á afmælisdag-
inn að Skipholti 70, 2. hæð, kl.
20.00-23.00.
Fimmtug
Anna Kristme Magnusdóttir
dagskrárgeröarmaöur í Reykjavík
Anna Kristine Magnúsdóttir,
skírð Mikulcáková, blaðamaður
og dagskrárgerðarmaður, Ránar-
götu 29, Reykjavík, er fimmtug í
dag.
Starfsferill
Anna Kristine fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp við Smáragöt-
una auk þess sem hún dvaldist við
Straumfjarðará á Snæfellsnesi.
Hún var í ísaksskóla, Æfmgadeild
Kennaraskóla íslands og Haga-
skóla, stundaði nám við VÍ og
lauk þaðan verslunarprófi 1971.
Anna Kristine starfaði hjá Eim-
skipafélagi íslands 1969-73, fyrst
við farþegadeild en síðan við bók-
hald. Hún stundaði blaðamennsku
frá 1977, var blaðamaður við Vik-
una, hjá Frjálsu framtaki, við
helgarblað DV, Helgarpóstinn og
Pressuna. Hún ritstýrði tímarit-
unum Búið betur ogGróður og
Garðar, sá um útgáfu Fréttablaðs
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar í nokkur ár, sér nú um
tímaritið Umhyggju og hefur
skrifað greinar og viðtöl í flest
tímarit landsins.
Þá var hún læknaritari á Landa-
kotsspítala í hálfu starfi á árunum
1981-86 og síðar nokkuð við afleys-
ingar.
Anna Kristine hefur starfað við
Ijósvakamiðla frá 1991. Hún starf-
aði við Dægurmálaútvarp Rásar 2
1991-96, hefúr verið með eigin út-
varpsþátt, Milli mjalta og messu,
frá 1996, fyrst á Rás 2 en á Bylgj-
unni frá 1999, og var umsjónar-
maður föstudagsviðtals í íslandi í
dag um 7 mánaða skeið 1999.
Anna Kristine hefur verið farar-
stjóri til Prag nokkrum sinnum
frá 1995. Hún stóð fyrir góðgerðar-
tónleikunum Neyðarhjálp úr
norðri, 1997 og 2002, til aðstoðar
fórnarlömbum flóða í Tékklandi
og annast nú fyrirlestrahald um
Tékkland hjá Mími - símenntun.
Anna Kristine sendi frá sér við-
talsbækumar Litróf lífsins, 2001
og 2002.
Fjölskylda
Dóttir Önnu Kristine er Elísabet
Elín Úlfsdóttir, f. 13.3.1975, starfs-
maöur hjá Norðurljósum, en faðir
hennar er Ulf H. Bergmann, f. 27.8.
1953, þjónustustjóri hjá SÍF.
Alsystur Önnu Kristine eru Ing-
unn, f. 23.9. 1955, verslunarstjóri í
Tékk-Kristal í Kringlunni; Elísa-
bet, f. 28.12.1958, snyrti- og fótaað-
gerðafræðingur í Reykjavík.
Hálfsystkini Önnu Kristine,
samfeðra, eru Björg, f. 1.8. 1966;
Magnús Jaroslav, f. 21.4.1969; Dag-
mar, f. 25.5. 1970.
Foreldrar Önnu Kristine:
Miroslav R. Mikulkák (Magnús
Rafn Magnússon) f. 10.9. 1927, d.
23.2. 1998, íslenskur ríkisborgari
frá 1958, framkvæmdastjóri, og El-
ín Kristjánsdóttir, f. 30.12. 1931,
fyrrv. deildarritari við Landakots-
spítala.
Ætt
Föðurætt önnu Kristine er frá
Mæri í Tékkóslóvakíu. Miroslav
var sonur Josef Miklucák og
önnu Mikulcáková.
Elín er systir Árna aðalræðis-
manns, foður
Hans Kristjáns
framkvæmda-
stjóra. Elín er
dóttir Kristjáns,
framkvæmda-
stjóra hjá SÍF,
Einarssonar, b. i
Stakkadal, Sig-
freðssonar. Móð-
ir Kristjáns var
Elín Ólafsdóttir.
Móðir Elínar
var Ingunn, syst-
ir Önnu, móður
Árna Pálssonar
sóknarprests,
föður Þórólfs
borgarstjóra.
Önnur systir
Ingunnar var
Kristín, amma
Hjálmars Árna-
sonar alþm. og
Hjálmars W. Hannessonar sendi-
herra. Bróðir Ingunnar er Guð-
mundur, faðir myndlistarmann-
anna Sigurðar og Kristjáns. Ing-
unn var dóttir Áma, prófasts á
Stóra-Hrauni, hvers ævisögu Þór-
bergur Þórðarson skráði, Þórarins-
sonar, á Eyrarbakka, bróður Guð-
mundar dúllara. Þórarinn var son-
ur Áma, b. á Klasbarða, Jónssonar
og Jómnnar, systur Tómasar Fjöln-
ismanns, afa Tómasar, afa Ragn-
hildar Helgadóttur, fyrrv. ráðherra.
Jórunn var dóttir Sæmundar, b. í
Eyvindarholti, Ögmundssonar, pr. á
Krossi, bróður Böðvars, afa Þuríð-
ar, langömmu Vigdísar Finnboga-
dóttur og Önnu, móður Matthíasar
Johannessens skálds, fóður Haralds
ríkislögreglustjóra. Ögmundur var
sonur Presta-Högna Sigurðssonar.
Móðir Sæmundar var Salvör Sig-
urðardóttir, systir Jóns, afa Jóns
forseta. Móðir Áma prófasts var
Ingunn, systir Helga, afa Ásmundar
Guðmundssonar biskups. Ingunn
var dóttir Magnúsar, alþm. i Syðra-
Langholti, Andréssonar og Katrínar
Eiríksdóttur, ættfóður Reykjaættar,
Vigfússonar. Móðir Önnu Ámadótt-
ur var Anna Elísabet Sigurðardótt-
ir, hreppstjóra í Syðra-Skógamesi,
Kristjánssonar og Guðríðar Magn-
úsdóttur.
Anna Kristine biður þá sem hafa
hugsað sér að gleðja hana með
kveðjum í formi símskeyta að láta
UMHYGGJU - felag til stuðnings
langveikum bömum, Laugavegi 7,
njóta þess.