Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003
Fréttir
DV
Hundaeigandi ósáttur viö umönnun í einangrunarstööinni í Hrísey:
Deilt um ástand hunda
DVA1YND GVA
Halla Ingibergsdóttlr og dóttlr hennar, Lára, með púðulhundana tvo, Fldo
og Lulu.
Sjálfstæöisf lokkurinn:
Notar gamalt
slagorð Alberts
Ásgeir Hannes Eiríksson, fv.
þingmaöur og pylsusali, hefur
sent Kjartani Gunnarssyni, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins, erindi þar sem hann varar
forystu flokksins „kurteislega við
því“, eins og segir í bréfinu, að
nota slagoröið Afram ísland.
Landsfundur flokksins hefst á
morgun og þetta er sem kunnugt
er slagorðið.
í bréfi sínu óskar Ásgeir eftir
því að miðstjóm Sjálfstæðis-
flokksins endurskoði notkun slag-
orðsins..svo komist verði hjá
frekari málalengingum og vænt-
anlegri málsókn,“ eins og orðrétt
segir.
I forsetakosningunum 1980 var
Ásgeir Hannes meðal útgefenda á
blaði og bók sem báru yfirskrift-
ina Áfram ísland. Þar var sigur-
sæll knattspyrnuferill forseta-
frambjóðandans Alberts Guð-
mundssonar rifjaður upp. Félag
meö þessu sama nafni var stofn-
aö þetta ár en það var toppurinn
á ísjaka Hulduhers Alberts sem
árið 1987 stofnaði Borgaraflokk-
inn.
í áðurnefndum forsetakosn-
ingum notaði Albert
Guðmundsson m.a. þetta slagorð,
Áfram ísland, sem skilaði honum
þriðja sæti í baráttu fjögurra
forsetaefna á þeirri tíð. -sbs
„Við héldum að hundamir væm í
öruggum höndum og vorum að sjálf-
sögðu tilbúin að borga fyrir þaö. En
við urðum miður okkar þegar viö
fengum þá úr einangruninni,“ segir
Halla Ingibergsdóttir um tvo púðul-
hunda, sem hún er nýbúin að fá úr
einangrunarstöðinni í Hrísey.
Haila og fjölskylda eru nýflutt til
landsins frá Danmörku eftir níu ára
dvöl þar. Þau tóku með sér tvo hunda
heim, rúmlega ársgamlan rakka og
sjö mánaða tík, bæði ættbókarfærð.
Hundamir fóru í skyldubundna ein-
angrun i Hrísey í átta vikur. Þau
komu úr henni á mánudaginn fyrir
rúmri viku og tóku eigendumir á
móti þeim á flugvellinum..
„Okkur dauðbrá þegar við sáum
þau, einkanlega hundinn. Þau voru
bæði í prýðisstandi þegar við skild-
um við þau,“ sagði Halla. „En þama
vora þau komin, hundurinn grind-
horaður, veikur, lystarlaus og
hóstaði mikið. Hann virtist ekki
neitt, neitt viö hliðina á tíkinni, sem
þó var einnig of horað, en í lagi að
öðru leyti.“
Halla kvaðst hafa farið með hund-
inn til dýralæknis. Þar hefði verið úr-
skurðað að hann væri meö mikla
eymabólgu, roða í hálsi og liði af
næringarskorti. Hann hefði fengið
bæði penisillin, vítamín, eymadropa
og hóstasaft. Síðan hefði hann verið
settur á fitandi fæði, honum væri gef-
ið að éta fjóram sinnum á dag og far-
ið með hann í hæfilega göngutúra.
Halla sagði að hann væri að braggast
en þyrfti þó að vera undir eftirliti
dýralæknis.
„Fyrir þetta greiddum við tæplega
300 þúsund krónur. Mér finnst við
ekki hafa fengið þá þjónustu sem við
töldum okkur vera að borga fyrir.“
Stefán Bjömsson, umsjónarmaður
einangrunarstöðvarinnar í Hrísey,
sagði að skýrslur fyrir hundana
sýndu að karldýrið hefði verið 4 kíló
við komu á stöðina og 4,1 kfló við út-
skrift. Tíkin hefði verið 4,1 við kom-
una en 4,9 kg við brottfór. Vigtun væri
nákvæm þar sem ekki mætti skeika
100 grömmum í þyngdarmælingu svo
smávaxinna dýra þegar um lyfjagjöf
væri að ræða. í skýrslu dýralæknis
stæði að almennt ástand væri mjög
gott en karlhundurinn mætti þó vera
í betri holdum.
„Vitaskuld getum við gert mistök
eins og aðrir," sagði Stefán. „En þaö
er óréttlátt að ætla okkur sök sem við
eigum ekki. Maður spyr sig hvers
vegna eigandinn hafi ekki haft sam-
band við mig fyrr en fimm dögum eft-
ir að hundarnir komu heim. Ég var
hér með um 170 dýr á síðasta ári og
fékk ekki eina einustu kvörtun. Það
segir sína sögu.“ -JSS
Ríkisstjórnin og Öryrkjabandalagiö:
Allt að tvöföld hækkun grunnlífeyris ungra öryrkja
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, og Garðar
Sverrisson, formaður Öryrkja-
bandalags íslands, gerðu í gær
samkomulag um hækkun grunn-
lífeyris öryrkja frá 1. janúar 2004.
Með því er sérstaklega verið að
koma til móts við þá sem verða ör-
yrkjar snemma á lífsleiöinni en
gert er ráð fyrir allt að tvöfaldri
hækkun grunnlífeyris til þeirra
sem yngstir verða öryrkjar. Sam-
komulagið var meöal annars gert í
tilefni af Evrópuári fatlaðra og
samkvæmt því verður skipaður
starfshópur sem mun gera endan-
legar tillögur að breytingum á al-
mannatryggingalögum og tillögur
sem eiga að auka möguleika ör-
yrkja til atvinnuþátttöku. Sam-
komulagið felur einnig í sér að
þeir sem verða öryrkjar síðar á
lífsleiðinni fái hækkun á núver-
andi grunnlífeyri með hliösjón af
aldri þannig að þeir sem veröa ör-
yrkjar 67 ára gamlir fái grunnlíf-
eyri sem nemi sömu upphæð og
DV-MYND ÞÓK
Blaöamannafundur í gær
Jón Kristjánsson og Garöar Sverrisson sögöu mikilvægan árangur hafa
náöst í baráttu öryrkja.
ellilífeyrir frá Tryggingastofnun
ríkisins. Kostnaðurinn við þessa
hækkun mun nema rúmum ein-
um milljarði króna á ársgrund-
velli.
Jón Kristjánsson sagði að þessi
stefnumörkun hefði verið lengi á
döfinni og að mikið fagnaöarefni
væri að samkomulag hefði náðst
við Öryrkjabandalagið. Hann tók
fram að óvissutímar væru fram
undan vegna kosninga í vor en að
fyrir lægi skýr stefna stjómvalda
og Öryrkjabandalagsins.
Garðar Sverrisson sagði að þetta
væri stór dagur í réttindabaráttu
Öryrkjabandalagsins. Hann sagði að
hingað til hefði sama kerfi átt við
um öryrkja og ellilífeyrisþega en að
með þessu samkomulagi hefði verið
höggvið á hnútinn og ætti trygg-
ingaráðherra mikinn heiður skilinn
fyrir það. Með þessari uppstokkun
hefði verði fundin besta, skil-
virkasta og hagkvæmasta leiðin til
að koma tfl móts við öryrkja.
-EKÁ
DVA1YND MAGNÚS
Jólarjúpurnar
Rjúpurnar hafa hangiö vikum saman
í vetrarhitanum eystra og veröa
varla boröaöar úr þessu.
Jólarjúpurnar
óétnar
Fyrir síðustu jól var mikill
rjúpnaskortur og setti það jólahald-
ið víða í hættu enda eru margir
fastheldnir á jólamatinn. Hver ein-
asta rjúpa sem borin var til byggða
var étin og talað var um svarta-
markaðsverð á fuglinum þegar ljóst
var að færri fengu en vildu. En
þessi mynd austan af Seyðisfirði
sýnir að ekki hafa allir áhuga á
rjúpnaáti, því þessar kippur, með
eins og tug fugla, hafa hangið utan
á húsi þar í bæ um fjölmargra
vikna skeið. Kæstar rjúpur þykja
varla mannamatur, hvað þá
maðkétnar. Ekki hefur heilbrigðis-
eftirlit bæjarins skipt sér af þessu
enn sem komið er. -MS
—
Bætur vegna
ólögmætrar
uppsagnar
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt Akureyrarbæ tfl að
greiða manni 1,3 milljónir í bætur
vegna ólögmætrar brottvikningar
úr starfi hjá Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra á Norðurlandi eystra.
Málsatvik voru þau að maðurinn
var ráðinn tímabundið tfl starfa
hjá stofnuninni árið 1994. Árið 1996
yfirtók Akureyrarbær ákveöin
verkefni frá ríkinu er vörðuðu mál-
efni fatlaðra. í maí 1998 var starfs-
manninum veitt skrifleg áminning
af forstöðumanni sambýlisins
vegna ámælisverðar hegðunar í
starfi og í júlí sama ár var honum
síöan afhent riftunarbréf þar sem
um alvarlegt brot í starfi hefði ver-
ið að ræða sem hefði getað reynst
hættuleg skjólstæðingum sambýlis-
ins og umhverfi þeirra.
í niðurstöðum héraðsdóms segir
að maðurinn hefði áfram verið rík-
isstarfsmaður þrátt fyrir samning
ríkisins við Akureyrarbæ og að
bærinn hefði vikið honum úr starfi
hjá íslenska ríkinu án þess að hafa
til þess heimild. Með því hefði ver-
ið komið í veg fyrir með saknæm-
um og ólögmætum hætti að maður-
inn gæti stundað starf sitt og notið
launa fyrir. -f.ká
Stuttar fréttir
Spá aukinni bílasölu
Spáð er stóraukinni bílasölu á
þessu og næsta ári. Þetta kom
frarn á aðalfundi Bílagreinasam-
bandsins um helgina. Spáð er að
9.000 bílar seljist í ár og um 16.000
seljist árið 2005. Mbl. greindi frá
Nýtt fangelsi
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
tillögu dómsmálaráöherra að lok-
uöu forvali um byggingu fangels-
ins á höfuðborgarsvæðinu. Gert er
ráð fyrir að það hýsi 60 fanga, m.a.
þá sem dúsa í gæsluvarðhaldi.
Mbl. greindi frá.
Sjálfstæðisflokkur stærstur
Sjálfstæðisflokkur nýtur stuðn-
ings 41,5% kjósenda og Samfylk-
ingin 34,2% skv. könnun IBM-við-
skiptaráðgjafar. Könnunin var
gerð fyrir Stöð 2. Framsókn fær
10,2% fylgi, VG 8,2% og Frjáls-
lyndir 4,8%.
Hitaveita fær bætur
Ríkissjóður mun, skv. Mbl.,
greiða Hitaveitu Rangæinga 90
millj. kr. í bætur vegna Suður-
landsskjálftanna 2000. Þetta er
gert þar sem bótareglur hvorki
Viðlagatryggingar né annarra
náðu til þess tjóns sem veitan varð
fyrir.
ÍAV við Kárahnjúka
Líkur eru á að íslenskir aðal-
verktakar semji við ítalska verk-
takafyrirtækið Impregilo um
fyrsta stóra verkið á svæðinu viö
Kárahnjúka sem er gerð hjá-
rennslisganga fyrir Jökulsá á Dal.
Nýsir lægstur
Nýsir átti hagstæðasta tilboð í
rekstur heilsugæslustöðvar í Sala-
hverfi í Kópavogi sem tekur til
starfa í sumar. Tilboð Nýsis er um
130 millj. kr. undir áætlun heil-
brigðisráðuneytisins. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra
kveðst ánægður með málið, segir
Mbl.
Haldið til haga
í frétt DV í gær af gjaldþroti ís-
landsfugls á Dalvík og yfirtöku
nokkurra fyrirtækja nyrðra á
þrotabúinu birtist mynd af húsum
Isfugls í Mosfellsbæ. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
-sbs