Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003
Utlönd
11
DV
w
kr^i^k^kr
Atburðarásin í gær
00:05 Talið að Bush muni i dag fara
fram á 75 milljarða dollara viðbótar-
fjárveitingu til þess að standa undir
stríðsrekstrinum í írak.
00:31 Stuðningur Breta við stríðið í
írak mælist 54% í skoðanakönnun
breska blaðsins Guardian. Um 30%
voru andvígir stríðinu.
00:53 Pentagon staðfestir að menn-
irnir sem sýndir voru í íraska sjón-
varpinu í gær séu flugmenn Apache-
þyrlunnar sem skotin var niður.
02:30 Colin Powell segir að árangur
hernaðaraðgerðanna sé athyglisverð-
ur og þeim muni ljúka farsællega áð-
ur en langt um liður.
03:35 Bandarískur embættismaður í
Pentagon segir að landárásin á
Bagdad sé ekki hafrn og kunni að
dragast um einhverja daga þar sem
væntanlegir sandstormar gætu tafið
liðsflutninga.
03:42 Fréttir berast af leynilegum
upplýsingum sem segja að íröskum
hersveitum, sem ætlað er að verja
Bagdad, verði leyft að nota efnavopn
gegn herjum bandamanna ef allt ann-
að bregðist við varnir borgarinnar.
04.55 Breskir landgönguliðar taka
sér stöðu við landamæri írans.
05:05 Fréttir berast af miklum
sprengingum suður af Bagdad meðan
herir bandamanna sækja fram.
05:25 Aukinn sandstormur suður af
Bagdad byrgir sýn og hægir á að-
gerðum.
06:20 Mikill fjöldi bandarískra her-
manna á ferð gegnum borgina Nasiri-
ya þrátt fyrir að hún sé ekki enn á
fullu valdi bandamanna.
06:35 Alvarlegt ástand í borginni
Basra og staðan endurmetin til þess
að hægt verði að koma íbúunum til
hjálpar.
07:30 Suður-kóreska þingið frestar
atkvæðagreiðslu um það hvort þar-
lendir hermenn verði sendir til íraks
en þó ekki til þátttöku í átökum.
07:40 Staðfest að breskur hermaður
hafi fallið í átökum í nágrenni A1 Zu-
bayr í suðurhlúta Iraks.
08:25 Bandarísk hersveit fer yfir
ánna Efrat við borgina Nasiriya eftir
að hafa mætt harðri mótspymu.
08:45 írösk stjómvöld segjast hafa
dreift matvælabirgðum tU sex mán-
aða um allt land en ásaka banda-
menn um að hafa stöðvað birgða-
sendingar sem greitt hafi verið fyrir
samkvæmt samningnum um mat fýr-
ir olíu.
10:00 Taha Yassin Ramadan, varafor-
seti íraks, gagnrýnir arabaþjóðir fyr-
ir að sjá bandamönnum fyrir olíu.
10:10 Háttsettur breskur herforingi
segir að höfnin í Umm Qasr sé nú ör-
ugg og opin og að von sé á fyrsta
hjálparfarminum innan tveggja sólar-
hringa.
10:50 Mohammed Saeed Sahaf, upp-
lýsingamálaráðherra Iraks, neitar
því að rússnesk fyrirtæki hafi selt
Irökum vopn.
10:50 Sahaf segir að íraskar hersveit-
ir hafi drepið nokkra liðsmenn
bandamanna á fenjasvæðunum ná-
lægt Nasiriya.
10:55 Sahaf staðfestir að sextán írak-
ar hafi fallið og 95 særst í átökum
síðasta sólarhringinn.
11:25 Lík þrjátíu íraka fundin í veg-
kanti norður af borginni Nasiriya.
12:25 Tony Blair segir að banda-
menn muni ekki bregðast írösku
þjóðinni en aðgerðirnar muni taka
tima.
12:35 Saddam sendir héraðsstjórum
sínum skilaboð í sjónvarpi þar sem
hann hvetur þá til þess að herða að-
gerðir gegn innrásarliðinu.
12:40 Richard Mayers, formaður
bandaríska herforingjaráðsins, segist
óttast að hörðustu bardagar stríðsins
séu á næstu grösum.
12:55 Loftárásum haldið áfram á suð-
urhluta Bagdad á meðan blindandi
sandstormur blæs um borgina.
13:19 Richard Mayers segir að sand-
stormamir muni tefja sóknina til
Bagdad.
13:20 Talsmaður Bandaríkjahers seg-
ir að allt að 500 íraskir hermenn hafi
fallið í átökunum síðustu tvo daga.
13:39 Stöðugur straumur íraskra lið-
hlaupa til Kúrda-svæðanna í Norður-
írak.
13:51 Bandaríski flotinn lýsir hættu-
ástandi vegna ótta við sjálfsmorðs-
árásir íraka á hraðbátum.
13:52 Kúveisk stjórnvöld tilkynna að
íraskt flugskeyti hafi verið skotið
niður yflr Kúveit.
14:14 Talsmaður Bandaríkjahers seg-
ir að aðgerðum verði haldið áfram
þrátt fyrir óhagstætt veður og að ailt
að 1400 loftárásarferðir hafi verið
áætlaðar gegn íraska lýðveldisverðin-
um í gær.
14:33 Talsmaður Bandaríkjahers seg-
ir að „hryðjuverkasveitir" séu ábyrg-
ar fýrir andspyrnunni í Basra.
15:08 Clare Short, ráðherra þróunar-
mála í Bretlandi, segir að ákveðið
hafi verið að auka fjárveitingu til
hjálparstafs í írak um 30 milljónir
punda.
15:13 Prins Saud al-Faisal, utanríkis-
ráðherra Sádi-Arabíu, leggur til frið-
aráætlun til þess að binda enda á
stríðið í Irak en fær engin viðbrögð
frá Bandaríkjamönnum.
15:33 Bush Bandaríkjaforseti stað-
festir að hann hafl farið fram á allt
að 75 milljarða dollara aukafjárveit-
ingu í þinginu vegna stríðsins.
15:58 Bandaríski herinn staðfestir að
bandarísk herþota hafi fyrir mistök
skotið á bandarískan eldflaugapall í
nágrenni Najaf.
16:30 Breskur fréttamaður tilkynnir
að hann hafl fundið vopn og búninga
til varnar efnavopnum á sjúkrahúsi í
Nasiriya. Tilkynnt að ráðist hafi ver-
ið á breska hermenn sem gættu
sjúkrahússins á eftir.
17:18 Talsmaður breska hersins seg-
ir að svo virðist sem einhvers konar
uppreisn gegn íröskum stjómvöldum
liggi í loftinu í Basra og að íraskir
hermenn hafi skotið á óbreytta borg-
ara sem mótmæltu stjóm Saddams.
18:34 Donald Rumsfeld segir að her-
fórin verði sífellt hættulegri.
19:30 Mohammed Saeed Sahaf, upp-
lýsingamálaráðherra íraks, neitar
því að uppreisn sé í aðsigi í Basra.
19:44 Tilkynnt að neyðarfundur
verði haldinn i Öryggisráði SÞ í dag
til þess að ræða stríðið í írak.
19:46 Talsmaður byltingarráðs síta-
múslíma í írak, sem aðsetur hefur í
íran, segir auknar líkur á því að síta-
múslímar, helstu andstæðingar Sadd-
ams í írak, geri uppreisn í Basra.
20:20 Endurteknar loftárásir á
Bagdad.
21:00 Breski herinn staðfestir að
tveir breskir hermenn hafi farist
þegar breskur skriðdreki skaut fyrir
mistök á annan breskan skriðdreka.
21:00 Talsmaður bandaríska hersins
segir að allt að 300 íraskir hermenn
hafi fallið í bardögum í nágrenni
borgarinnar Najaf, suður af Bagdad.
‘SíiSUfÁTÆM
ÞJALFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR
Enn finnast þeir sem einfaldlega nenna ekki að leggja stund á
líkamsþjálfun og segja sem svo að miklu auðveldara sé að draga
heldur meira úr neyslunni en að leggja á sig það mikla líkamlega
erfiði sem fylgir reglubundinni líkamsþjálfun. Þeir benda jafnvel
á þá staðreynd að fyrir hvert hálft kíló af fitu sem tapast þarf
að ganga eða hlaupa í það minnsta 55 km. Þetta þykir þeim
sem vilja losna við aukakílóin í einum grænum hvelli ekki mjög
spennandi kostur!
Þeir sem svona hugsa ættu eindregið að endurskoða afstöðu
sína. Enda liggur Ijóst fyrir að einstaklingar sem temja sér lífsstíl,
þar sem lögð er stund á reglubundna þjálfun, eru líklegri til að
viðhalda þyngdartapi en þeir sem ákveða að þjálfa ekki. Ein
mikilvægasta ástæða þess er sú að fólk sem æfir reglubundið
fellur síður í gamla slæma neyslumunstrið. Önnur ástæða er að
þegar einstaklingurinn er kominn í „kjörþyngd" hefur hann möguleika á að bæta við vöðvamassann
sem leiðir til aukningar á brennslu (en vöðvavefur brennir meiru en fituvefur). Þessu til viðbótar
má benda á að reglubundin „langvarandi" þolþjálfun leiðirtil hækkunar á grunnorkuþörfinni
og jafnframt til þess að líkaminn verði smám saman færari um að nýta sér fitu til orkugjafar.
MATSEÐILL DAGSINS
Dagur 39 Morgunverður: Hunangscheerios 3 dl
Dreitill 2,5 dl
Epli 1 stk.
Hádegisverður: Fiskisúpa (s.s. Toro) 3 dl
Brauð 1 sneið
Létt viðbit 1 tsk.
Kotasæla 2 msk.
Paprika 1/4 stk.
Miðdegisverður: Eplabaka 100 g = 1 snc
Rjómi, þeyttur 1 msk.
Undanrenna 1 glas
Kvöldverður: Koli, steiktur 150 g
Kartöflur, soðnar 3 „eggstórar
Salat, blandað 100 g +
ídýfa úr 10% sýrðum rjóma 2 msk.
Kvöldhressing: Apríkósur, niðursoðnar 4 helmingar
HReyfinc |ö3
Hvað varðar skaðsemi offitu er Ijóst að máli skiptir hvar viðbótarfitan sest á líkamann.
Fita sem safnast saman í kringum líffæri í kviðarholinu er hættulegri fyrir heilsuna en
sú fita sem safnast á öðrum stöðum líkamans og eykur líkur á ótímabærum dauðsföllum.
Niðurstöður margra rannsókna hafa leitt í Ijós náin tengsl á milli aukinnar kviðfitu og
ýmissa kvilla eins og mikils magns kólesteróls í blóði, háþrýstings, hjartaáfalls, heilablóðsfalls,
sumra tegunda krabbameina og fullorðins sykursýki. Slík tengsl hafa ekki fundist ef
mikla umframfitu er að finna á lærum og rassi. Því má segja sem svo að um „góðkynja"
offitu sé að ræða ef kílóin safnast saman á rass og lærum. Þess má geta að karlmenn
safna yfirleitt mest af sinni umframfitu á kvið sem og konur eftir tíðahvörf. Og þrátt fyrir
að heildarlíkamsfitumagn kynjanna kunni að mælast það sama bera karlar meira af sinni
fitu á kviði miðað við konur hvort heldur þær hafi gengið í gegnum tíðahvörf eða ekki.
Sumum kann að þykja athyglisvert að fólk með mikla kviðfitu er líklegra tii að reykja
meira og drekka meira áfengi en meðaltalið segir til um. Sá sem reykir vegur ef til vill
minna en sá sem reykir ekki en þrátt fyrir það er kviðfita reykingarmannsins meiri og
hafa vísindamenn leitt að því líkum að reykingar sem slíkar kunni að hafa áhrif á
fitudreifingu. Ástæðan fyrir því að kviðfita er hættumeiri annarri fitu tengist hraðari
efnaskiptum ífitufrumum kviðarins miðað við efnaskipti sem fram fara ífitufrumum eins
og þeim sem eru á rass og lærum. Þannig fer sú fita sem kemur úr fitufrumum kviðarins
beinustu leið til lifrarinnar í stað þess að fara út í hina almennu hringrás blóðsins eins
og önnur fita gerir og getur þar með aukið framleiðslu á LDL-fituprótíni („leiðinlegu"
kólesteróli) sem er það fituprótín sem hvað mest veldur
hjartasjúkdómum. Þegar fitumagn blóðsins hækkar kemur að því að
taugakerfið framleiðir of mikið af hormónum og boðefnum sem hafa
örvandi áhrif á hjartslátt og blóðþrýstingur stígur upp á við. Þetta eykur
þar með líkur á hjartasjúkdómum og háþrýstingi. Niðurbrot fitu hefur
áhrif á hæfni lifrarinnar til að fjarlægja insúlin úr blóðinu. Afleiðingin
verður of hátt magn sykurs (glúkósa) og insúlíns í blóði og líkur á
fullorðins sykursýki aukast.
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur