Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003
Fréttir
DV
Tilraunir til aö leysa fjárhagsvanda RSÍ og menntakerfisins
BGMR WÍIUDEILU8JÓÐ8
8ELDAR FYRR SKULDUM
Staða vinnudeilusjóðs Rafiðnað-
arsambands íslands (RSÍ) er afar
erfið eftir að helstu eignir hans voru
seldar samkvæmt upplýsingum DV
á 129 milljónir króna. Allt virðist
þetta hafa runnið til skólakerfis raf-
iðnaðarmanna sem leitt hefur til
þess að búiö er að veðsetja allar
eignir RSÍ, þar með talin sumarhús
um land alit. Þá er eitt afsprengi
skólakerfisins, RTV menntastofnun,
í gjaldþrotaskiptum þar sem kröfur
í búið eru 855 milljónir króna.
Björgunartilraunir
Rafiðnaðarsamband íslands er
landssamband stéttarfélaga rafiön-
aðarmanna sem hafa um 4.000 fé-
lagsmenn. Eignir vinnudeilusjóðs
RSÍ fólust að mestu í hlutabréfum
hans í EFA (Eignarhaldsfélagi Al-
þýðubankans) sem voru seld á síð-
asta ári. Virðist sem þessum fjár-
munum félagsins hafi verið ráðstaf-
að til að fjármagna mjög slæma
stöðu í skólakerfi rafiðnaðarmanna.
Til að lagfæra bókhaldslega stöðu
RSÍ vegna hrikalegra skulda fyrir
síðasta ár var farin sú leið að búa til
sérstakan sjóð sem dagsettur er fyr-
ir áramót og kallaður „Menntasjóð-
ur“. Sá sjóður yfirtók allan skulda-
pakkann vegna skólakerfis rafiðnað-
armanna og því verður væntanlega
hægt að sýna rekstur RSÍ fyrir síö-
asta ár í ágætu standi á pappírun-
um. Miðstjórnarmaður í RSI, sem
DV hefur rætt ítarlega við vegna
þesa máls, talar um blekkingar og
feluleik i þessu sambandi. Hann seg-
ir sjóðinn hafa verið stofnaðan núna
fyrir áramótin til að sýna að reikn-
ingarnir væru í lagi. Það hafi verið
gert til að bjarga andlitinu og ekkert
annað.
Kúvending
í skýrslu miðstjómar Rafiðnaðar-
sambands íslands um starfsemina
árið 2001, sem lögð var fyrir sam-
bandsstjórnarfund 19. apríl 2002,
kemur hins vegar fram að staða
verkfallssjóðs hafi verið mjög sterk
og þar segir m.a.:
„Undanfarin ár hefur lítið verið
um verkfallsátök og verkfallssjóður
er þess vegna orðinn mjög öflugur.
Á þeim forsendum ákvað síðasta
þing (2001, - innskot blaðamanns) að
10% félagsgjaldsins fari timabundið
til orlofshúsakerfisins í nokkur ár
vegna mikillar uppbyggingar og
14% í verkfallssjóð í stað 24% áður.“
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur RSÍ, endurtekur þessa „sterku
stöðu“ í bréfi sem hann sendi út á
Netið í gær eftir að DV óskaði eftir
viðbrögðum hans. Þar segir hann að
bókfærðar eignir vinnudeilusjóðs-
ins séu vel á annað hundrað millj-
óna króna.
Vinnudeilusjóður mun hafa verið
mjög stöndugur og m.a. átt hlutabréf
og húseign sem tryggingu fyrir
Helgi Jónsson, varaformaður
RSÍ og formaður Rafvirkjafélags
Norðurlands, staðfesti í samtali
við DV í gærmorgun að eignir
vinnudeilusjóðs RSÍ, þ.e. hlutabréf
í Eignarhaldsfélagi Alþýðubank-
ans, hefðu verið seldar.
„Ég get staðfest það að þetta var
selt.“
- Hver er þá staða vinnudeilu-
sjóðsins í dag?
„Ég bara veit það ekki,“ sagði
varaformaður RSÍ.
Grétar Þorsteinsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, segir fjár-
hagsvanda Rafiðnaöarsambands-
ins og menntakerfis þess ekki hafa
komið til kasta ASÍ, en ASÍ er
samnefnari flestra verkalýðsfé-
Annar hluti
sinni stöðu. Húseignin mun þó hafa
verið tekin út á sínum tíma sam-
kvæmt heimild DV og stofnaður nýr
sjóður, fasteignasjóður. Það var gert
samkvæmt sömu heimildum á þeim
forseridum að fasteignasjóðurinn
var ekki aðfararhæfur. Því væri
ekki hægt að gera kröfur á þann
sjóð ef til verkfalls kæmi.
Ásakanir á skólastjórann
Forystumenn RSÍ, ekki síst for-
maðurinn Guðmundur Gunnarsson,
hafa kennt Jóni Áma Rúnarssyni um
offjárfestingar og bruðl. Er nú m.a. í
gangi dómsmál vegna kæru á hendur
Jóni Áma vegna meintra fjársvika.
Heimildarmaður DV segir hins vegar
að Jón hafi ekki getað braðlað með
fjármuni RSÍ án samráðs og með vit-
neskju stjómarmanna. Hann bendir
einnig á að Jón Ámi og Guðmundur
hafi verið persónulegir vinir í fjölda-
mörg ár. Margar ákvarðanir um upp-
laga í landinu og þar með RSÍ.
„Við höfum auðvitað haft vit-
neskju um þessa erfiðleika og það
sem þarna gerðist að einhverju
leyti. Það hefur þó ekkert verið á
okkar borði, enda held ég að þeir
hafl verið að vinna úr þessu af
skynsemi sjálfir. Vonandi gengur
það upp hjá þeim. Mín tilfinning
er sú að þeir hafi brugðist strax
við þegar þetta kom upp. Og þær
fréttir sem ég hef haft af því eru að
þeir hafi verið að puða í þessu allar
götur síðan við að reyna að rétta
kúrsinn til að bjarga málunum."
- Hvaö með vinnudeilusjóð RSÍ
sem eignir voru seldar úr í fyrra?
„Það eru að vísu hlutir sem ég
þekki ekkert til,“ sagði Grétar
byggingu skólakerfisins hafi þeir tek-
ið saman og í góðri trú. Uppbygging
á tölvusviði var á fullri ferð og mikil
trú á þaö dæmi. Síðan hrynur „tölvu-
bransinn" og nú sé Jóni Áma kennt
um hvemig komið er. Með ásökun-
um á hendur honum sé verið að
reyna að fela hvað raunveralega
gerðist.
Stór lán frá Lífiön
Árið 2002 fékk RSÍ mikla fjármuni
að láni hjá Lífiðn sem notaðir vora í
skólakerfi RSÍ. Sem tryggingu fyrir
þessum lánum var íjöldi eigna veð-
settur, svo sem orlofshús og fleira.
Á fundi framkvæmdastjómar RSÍ
16. janúar 2002 kemur fram að Rúnar
Bachmann, gjaldkeri RSÍ og skóla-
nefhdarmaður í Rafiðnaðarskólan-
um, taldi þörf á 100 milljóna króna
láni til að koma menntakerfinu í eðli-
legt horf. Var lagt til að lánið yrði til
30 ára með veði í eignum RSÍ, en
greiddist með 10% innkomu í endur-
menntunarsjóðina. Lifeyrissjóðurinn
Lífiðn var stofnaður 1. september
1996 með sameiningu þriggja lifeyris-
Þorsteinsson og ítrekaði að þessi
mál hefðu ekki komið formlega
inn á borð ASÍ.
Guðmundur Gunnarsson, for-
sjóða. Þessir sjóðir vora Lifeyrissjóð-
ur matreiðslumanna, framreiðslu-
manna og rafiðnaðarmanna. Lífiðn
hóf starfsemi 1. janúar 1997. Þar á bæ
telja menn sig hafa fullnægjand
tryggingar gagnvart lánum sjóðsins
við RSÍ og menntakerfi þess.
Líka peningar frá Eflingu
DV hefur einnig upplýsingar um
að fleiri sjóðir og verkalýðsfélög hafi
lagt fram fjármagn til uppbyggingar
skólakerfis RSÍ. Þannig mun Efling
t.d. hafa sett 15 milljónir króna í
menntakerfið. Fór það til kaupa á
hlut í Menntaheimi ehf., fyrirtæki
sem stofhað var af RTV-Menntastofh-
un ehf. Var samið um að Efling eign-
aðist 25% í Menntaheimi á móti 75%
hlut RTV. Hugsunin var sú að með
þessu væri Efling í raun að kaupa af-
slátt af námskeiðum upp á nærri
6.000 krónur, en kostaði til þess sem
næmi rúmum 1.000 krónum á hvem
félagsmann. Efling stéttarfélag var
stofnað í desember 1998 og tók til
starfa um áramótin 1999. Félagið
varð til við sameiningu Dagsbrúnar
maður RSÍ, vildi ekki tjá sig um
málið við DV eftir að honum hafði
veriö gerð ítarlega grein fyrir
innihaldi fréttarinnar. -HKr.
Get staöfest þetta
- segir varaformaöur Rafiönaöarsambandsins
Rafiönaöarskólinn
Skeifan llb þar sem Rafiönaðarskólinn er til húsa á annarri og þriðju hæð.
RTV-Menntastofnun var til húsa í næstu byggingu, Skeifunni lla