Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Blaðsíða 6
6
MIÐVTKUDAGUR 26. MARS 2003
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno GLX, 4 d.,
bsk., skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Baleno Wagon,
ssk., skr. 10/99, ek. 46 þús.
Verð kr. 1170 þús.
Suzuki Jimny JLX
bsk., skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0,
bsk., skr. 6/01, ek. 67 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Toyota Touring Terra 4x4,
skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1250 þús.
Subaru Forester 2,0,
ssk., skr. 3/98, ek. 89 þús.
Verð kr. 1250 þús.
Peugeot 406, 3 d. 2,0,
ssk., skr. 11/98, ek. 72 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Land Rover Freelander
bsk., skr. 6/99, ek. 58 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Ford Focus Trend 1,6,
bsk., skr. 3/99, ek. 49 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////-------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Fréttir
DV
Velkomin!
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
býöur nýja bæjarbúa velkomna.
Sex fjölskyldur frá fyrrum Júgóslavíu komu til Akureyrar í gær:
Fá íslenskukennslu og
aðstoð við atvinnuleit
24 flóttamenn frá fyrrum lýð-
veldum Júgóslavíu lentu á Akur-
eyrarflugvelli upp úr klukkan 2 í
gær. Kristján Þór Júlíusson, bæj-
arstjóri, tók ásamt starfsmönnum
Rauða krossins á Akureyri á móti
fólkinu en því næst var ekið til
móttökuathafnar og kaffisamsætis
í húsnæði Rauða krossins við
Viðjulund. Um er að ræða 6 fjöl-
skyldur, 11 böm og 13 fulloröna.
Á næstu dögum verða fólkinu
afhentar íbúðir til notkunar og
fram á sumar verður því kynnt ís-
lenskt samfélag og það fær einnig
kennslu í íslensku sem Mennta-
smiðjan á Akureyri mun sjá um.
Þannig verður fólkið betur undir-
búið við að takast á við lífið hér á
framandi slóðum.
Næsta haust munu börnin hefja
hefðbundið nám við skóla á Akur-
eyri og fullorðna fólkið halda
Mikil umskipti
Þaö er ólíku saman aö jafna aöstæöum flóttafólksins í hrjáöum héruöum
gömlu Júgóslavíu og nýjum vistarverum á Akureyri. Til íslands hafa komiö
218 flóttamenn frá gömlu Júgóslavíu á síðustu sjö árum.
áfram í námi hjá Menntasmiðj-
unni, auk þess sem það verður að-
stoðað við atvinnuleit á Akureyri.
Til íslands hafa komið 218 flótta-
menn frá gömlu Júgóslavíu síðan
1996, að meðtöldum þeim sem nú
eru að koma. Áður höfðu komið
hingað til lands alls 204 frá Ung-
verjalandi, Júgóslavíu, Víetnam
og Póllandi. Rauði krossinn hefur
frá upphafi haft umsjón með
komu flóttafólks hingað, eða frá
1956 þegar stjómvöld buðu fyrst
hópi frá Ungverjalandi.
Þórir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins, segir
að ekki megi blanda þessum töl-
um saman við hælisleitendur sem
hingað koma þar sem þetta fólk
hefur hlotið stöðu flóttamanna og
er boðið hingað af stjómvöldum.
-ÆD
Jón Aðalsteinn Baldvinsson næsti vígslubiskup á Hólum:
VIII breytta og skil-
virkari starfshætti
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, hefur skip-
að Jón Aðalstein Baldvinsson,
sendiráðsprest í London sl. 20
ár, vígslubiskup á Hólum.
Jón Aðalsteinn hefur undan-
fariö verið hérlendis í námsleyfi.
Fjórir sóttu upphaflega um emb-
ættið og fengu Jón Baldvin og
Kristján Valur Ingólfsson flest
atkvæði, Jón Aðalsteinn 18 en
Kristján Valur 28, og var því
kosið á milli þeirra. Atkvæði
féllu þá jöfn, 30 á hvorn. Þá kom
til kasta kirkjumálaráðherra
sem nú hefur ákveðið að Jón Að-
alsteinn verði næsti vígslubisk-
up á Hólum í stækkuðu umdæmi
því Vestfírðir bætast við emb-
ættið. Vígsla fer fram sunnudag-
inn 22. júní nk.
Jón Áðalsteinn segir að þetta
komi sér allt þægilega á óvart í
ljósi niðurstaðna fyrri atkvæða-
greiðslna. Hann hafi ekki verið
með neina skipulagða atkvæða-
greiðslu en einhvem veginn hafi
það farið svo að þeir sem kusu pró-
fastana Döllu Þórðardóttur í Mikla-
bæ eða Guðna Þór Ólafsson á Mel-
stað hafa snúist á sveif með sér.
„Ég er Norðlendingur, frá
Rangá í Köldukinn í Suður-Þing-
DVWYND GVA
Nýr vígslubiskup
Jón Aöalsteinn Baldvinsson tekur
viö embætti vígslubiskups í
Hólastifti 22. júní nk. Hann er
kominn af miklu söngfólki frá Rangá
í Köldukinn í Suöur-Þingeyjarsýslu.
Jón er stúdent frá MA 1968 og á aö
baki prófgráöur í ökukennslu og
sálgæslu fyrir utan guöfræöipróf sitt
sem hann tók 1974. Hann hefur
lengst afþjónað í Lundúnum.
eyjarsýslu, og hef alltaf haldið
mínu lögheimili á íslandi síðan
ég var prestur á Staðarfelli.
Það eru engar breytingar nú
þegar fyrirhugaðar en auðvitað
verða einhverjar breytingar meö
nýjum mönnum.
Ég sagði það þegar ég var að
kynna mig að ég hefði áhuga á
að breyta starfsháttum að því
leyti að gera starf kirkjunnar
skilvirkara, t.d. í þá veru að
menn ynnu meira saman, ekki
bara prestar heldur allir starfs-
menn kirkjunnar. Það er hægt
að virkja hæfileika presta á
fleiri vegu, ekki síst vil ég virkja
sérhæfileika þeirra sem yfir
slíku búa.
Einyrkjabúskapurinn getur
verið svolítið erfiður og í raun
ekki í takt við tímann. í Skaga-
firði eru t.d. 5 prestar en einn
þeirra sinnir langflestum íbúun-
um. Meira samstarf kemur þeim
öllum vel, að geta unnið skil-
virkt starf í þéttbýlinu án þess
að það komi niöur á starfi þeirra
í dreifbýlinu,“ segir Jón Aðal-
steinn Baldvinsson, væntanleg-
ur vígslubiskup á Hólum í
Hjaltadal. -GG
1
Táknmál í skólum
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
íslands, heimsóti nemendur í Rima-
skóla í gær og afhenti þeim fyrstu ein-
tökin afbókinni Upp meö hendur,
kennslubók í íslensku táknmáli.
Grunnskólarnir:
flllip upp
með hendur
Öll sjö ára börn í grunnskólum
landsins munu á næstunni fá aö
gjöf bókina Upp með hendur sem
er kennslubók í táknmáli. Það er
Félag heymarlausra í samstarfi
viö Símann, Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og Námsgagna-
stofnun sem gefur út bókina. Vig-
dís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti, færði nemendum í Rima-
skóla fyrstu eintökin af bókinni í
gær. í tengslum við hana verða
kennarar hvattir til að kynna
nemendum sínum íslenska tákn-
málið. Hægt er að nálgast
kennsluleiðbeiningar við bókina á
www.namsgagnastofn-
un.is/taknmal/index.htm.