Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003
Fréttir
Gamalreyndir fjölmiölamenn taka BBC og Sky fram yfir CNN:
Stríð stóru stöðvanna
Bílastyrkir fatlaöra:
Kjörin skert
hvap sem
borið ep niðup
Þorfinnur
Ómarsson.
Jón Hákon
Magnússon.
„Enginn er full-
kominn og það er
ekki nokkur lifandi
leið að fá heiilega
mynd af þessu stríði
hjá neinum einum
fjölmiðli. Af þessum
sjónvarpsstöðvum
fmnst mér þó BBC
takast að halda
einna víöustu sjón-
arhomi af atburðun-
um, sem er út af fyr-
ir sig athyglisvert,
þar sem þetta er rík-
isfjölmiðill annars
aðalárásaraðilans.
CNN og Sky eru á
fullu í kranafrétta-
mennsku. MSNBC-
kapalstööin sýnir
okkur síðan amer-
ískan vinkil til
heimanota, sem er í
eðli sinu ekkert
ósvipaður araba-
vinldinum hjá Al-
Jazeera," segir Hall-
grímur Thorsteins-
son á Útvarp Sögu
þegar DV leitaði
álits nokkurra gamalreyndra fjöl-
miðlamanna á frammistöðu stóru
sjónvarpsstöðvanna í umíjöllun um
stríöið í írak.
Hallgrímur
Thorstelnsson.
Beinar útsendingar frá stríösátök-
um er nokkuð sem nútímamaðurinn
hefur vanist en fúllyrða má aö nú gef-
ist almenningi kostur á að horfa á
fjórða eða fimmta stríöið úr hæginda-
stólnum. Að venju eru deildar mein-
ingar um hvaða sjónvarpsstöð stendur
sig best, gefúr heildstæðustu myndina
af gangi mála. Ekki aðeins í frásögn-
um af stríðinu heldur með grafiskri
framsetningu og myndskýringum,
viðtölum viö sérfræðinga og fleiru.
Þeir sem fylgst hafa með átökun-
um i írak í sjónvarpi undanfama
daga verða þess hins vegar fljótt var-
ir að ef ekki er mikið að gerast vilja
frásagnir fréttamanna á staðnum
teygjast á langinn, fjalla meira og
minna um ekki neitt. T.d. hafa verið
sýnd ógnarlöng myndskeið af B52
sprengjuflugvél sem bíður flugtaks
frá flugvelli í Englandi meðan þulur-
iim lætur dæluna ganga. Það getur
reynt á þolinmæði áhorfenda við
slíkar aðstæður. „Áhorfandinn getur
staöið sig í þeirri undarlegu siðferði-
legu stöðu að kalla á fjörlegri at-
burðarás, meiri átök,“ sagði í leiðara
eins bresku dagblaðanna í vikunni. í
sama leiðara voru lesendur reyndar
hvattir til að lesa heldur dagblööin en
horfa á sjónvarp, umfjöllun þeirra
væri allajafnan yfirvegaðri. En það
er önnur saga.
BBC og Sky betri
Jón Hákon Magnússon, fram-
kvæmdastjóri KOM, er gamalreynd-
ur fjölmiðlamaður.
„Eg hef horft mest á Sky og BBC og
svo hlusta ég mikið á BBC World
Service í útvarpinu á 90,9. Með því að
horfa daglega á tvær stöðvar og
hlusta á eina þá tel ég mig hafa nokk-
uð góða mynd af gangi mála. Hins
vegar er þetta hræöilega ruglingslegt
þegar maður sér myndir frá atburð-
um og þegar klippt er á menn hér,
þar og alls staðar. Ég skipti reyndar
á milli stöðva en mér finnst hinar
tvær fyrmefndu betri en CNN. Þaö
versta við íslensku stöðvamar er aö
þær era alltaf að segja hlutina eftir á,
því sem gerðist í gær,“ sagði Jón Há-
kon við DV.
Jón Hákon segir að sér finnist
fréttamenn Sky vera afar lunknir að
ná viðtölum við fólk og betri en
bandarísku stöðvamar. „Þá verður
umfjöllunin dýpri og einhvem veg-
inn öðravísi. Hvort þaö er þessi evr-
ópska nálgun á hlutunum sem heillar
mann veit ég ekki en hjá CNN era
menn yfirborðskenndari."
Jón Hákon segir að sér hafi óneit-
anlega þótt mikilfenglegt aö sjá
fyrstu árásimar á Bagdad í beinni út-
sendingu síðastliðinn fóstudag. „En
það var um leið hrollvekjandi því í
eðli sínu era stríðsfréttir aldrei ann-
að en vondar fréttir."
Áróðursstríð
Þorfinnur Ómarsson dagskrár-
gerðarmaður segir mikilvægt að hafa
í huga hverjir eiga í hlut þegar horft
er á umfjöllun um stríðið í sjónvarp-
inu. „Það væri heppilegra ef til væri
stór sjónvarpsstöð sem væri utan
Bandaríkjanna og Bretlands, helstu
stríðsaðilanna í írak. Þær stöövar
sem við sjáum era mjög uppteknar af
sínu fólki og jafnvel ákveönum mál-
stað. Það er varla hægt að gagnrýna
það í sjálfu sér en ef meta á stöðvam-
ar horfi ég mest á BBC, fmnst þeir
áreiðanlegri."
Þorfinnur tekur undir að miklar
framfarir hafi orðið í framsetningu
fréttanna en hjá CNN væri andrúms-
loftið svipað því sem rikt hefði á stöö-
inni síðustu mánuöi.
„Þaö hefur verið niðurtalning að
stríði hjá CNN og umfjöllunin litast
töluvert af þjóðemishyggju. Fram-
setning, öll stef og tónlist kyndir und-
ir þessa tilfmningu. Það er gott að fá
sem ítarlegastar upplýsingar en þeim
verður maður að taka með fyrirvara
um hvaðan þær koma. Því þetta er
mun meira áróðursstríð heldur en í
Flóabardaga."
-hlh
Fisksalar áhyggjufullir:
Unga fólkið fær sér
hamborgara og kók
„Ég bara skil þetta ekki, ég held að
ungt fólk í dag nenni ekki að borða
fisk. Það fer miklu frekar á Kentucky
Fried hérna viö hliðina á mér til að fá
sér hamborgara og kók,“ segir Magn-
ús Sigurðsson, eigandi fiskbúðarinnar
Hafrúnar í Skipholtinu, spurður um
litla fiskneyslu ungs fólks í dag.
Manneldisráð birti í fyrradag nið-
urstöður könnunar á mataræði íslend-
inga og kom meðal annars ffarn að
fiskneysla landans hefði stórminnkaö
á síðustu tíu árum. Mikil fiskneysla
hefur verið eitt megineinkenni á
mataræði íslendinga fram til þessa en
er nú litlu meiri en gerist og gengur í
flestum nágrannalöndunum sam-
kvæmt könnuninni.
Magnús segir að nánast ekkert sé
um að ungt fólk komi og kaupi fisk
hjá sér, hans viðskiptavinir séu ein-
göngu fúllorðið fólk. „í dag er mun
meira úrval af fiski en nokkra sinni
fyrr og fiskur er alls ekki mikið dýr-
ari nú en áður. Ef til vill er skýringin
sú að mæðumar hafa ekki lengur
tíma til að kenna bömunum sínum að
matreiða fisk.“ -EKÁ
Magnús Sigurðsson í Hafrúnu
Er hissa á lítilli fisneyslu ungs fóiks i dag.
DV-MYND ÞÖK
„Sama virðist
hvar borið er nið-
ur; hvarvetna
hefur ríkisstjórn-
in skert kjör ör-
yrkja og þeirra
sem ekki lifa á
öðru en bótunum.
Bílastyrkimir
eru skýrt dæmi
um það,“ segir
Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingar, í samtali
við DV.
í nýjum pistli á heimasíðu
sinni segir hún að ríkisstjómin
hafi fækkað og skert stórlega
biffeiðastyrki í gegnum Trygg-
ingastofnun ríkisins til handa
öryrkjum. Kjör vegna bifreiða-
lána hafi versnað og stuðningur
vegna hreyfihömlunar sömuleið-
is.
Ásta segir í pistli sínum að
þegar ríkisstjóm Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks hafi tekið við
völdum 1995 hafi bifreiðakaupa-
styrkirnir verið 650 ár hvert.
Ári síðar hafi þeim verið fækk-
að um nær helming. Árið 1999
hafi þeim verið fjölgað um 50
..en enn vantaði verulega á að
styrkimir væra jafiimargir og
þegar ríkisstjómin tók við í
upphafi kjörtímabilsins. Þrátt
fyrir að ríkisstjómin hafi haft
heilt kjörtímabil til viðbótar í
bullandi góðæri hefur styrkjun-
um ekki fjölgað nema um 20 á
ári,“ segir Ásta í pistli sínum.
Þá bendir hún á að vextir af bif-
reiðakaupalánunum hafa hækk-
að úr 1% í 12,2% og styst um
eitt ár. -sbs
Góð heilsa
landsmanna
Samkvæmt upplýsingum frá
heimilislæknum hefur heilsufar
landsmanna verið meö besta
móti í vetur. Læknar, sem sam-
band var haft við í morgun,
segja að umgangspestir hafi
verið óvenjufáar í vetur og al-
mennt heilsufar með því allra
besta sem gerist. Viðmælendur
blaðsins vildu ekkert fullyrða
um ástæðuna fyrir hreysti
landsmanna en benda á að tíð-
arfarið í vetur hafi verið gott og
að án efa hjálpi það til. Spuröir
segjast læknar ekki kvarta yfir
góðri heilsu landsmanna, það sé
að vísu minna að gera við að
sinna sjúkdómum sem tengjast
umgangspestum en verkefnin
séu engu að síður óþrjótandi og
þeir hafi því nóg að gera. -aþ
Á föstudaginn kemur út nýtt
lulahlað á vegum DV sem dreift verður
m.a. á allar bílasölur, bflaumboð og bensín-
stöðvar og mun liggja þar frammi frítt. Að auki mun
það fylgja Helgarblaði DV tU áskrifenda.
Auglýsingar þurfa að hafa borist fyrir klukkan 18 á fimmtudag.
Upplýsingar veitir auglýsingadeUd í síma 550-5000.