Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Page 25
MLÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 25 DV Tilvera lífiö Sængurföt fyrir Hótel Esju saumuð af kappi: ur. Strax fyrstu nóttina birtist hin látna eiginkona honum. Kelvin bregður. Vísindamaðurin hefur þó yfirhöndina í þetta skiptið en verð- ur að láta undan mannlegum til- finningum þegar Rhea birtist aftur. Frá því augnabliki fer Soder- bergh yfir í rómantíkina á lágum og dularfullum nótum. Ljóst er að endumýjun á kynnum þeirra er ekki að gerast með eðlilegum hætti. Kelly vill endurheimta for- tíðina en Rhea gerir sér grein fyr- ir að hún er ekki eins og hún á að vera. Til hliðar eru svo hin tvö sem eru búin að upplifa meira af þeirri dularfullu veröld sem Solar- is er. George Clooney hefur sýnt sínar bestu hliðar undir stjóm Stevens Soderberghs (Out of Sight) og hann bregst ekki leikstjóra sínum í Solaris - ber myndina uppi með næmum skilingi á persónunni sem hann leikur. Hann fær verðugan mótleik frá Natasha McElhone, sem Soderbergh lætur vera að miklu leyti í nærmynd til að láta okkur fá tilfinningu fyrir að feg- urð hennar er annars heims. Jer- emy Davies, sem leikur Snow, annan vísindamanninn um borð, dregur leikinn á lægra plan. Handahreyfingar hans og málfar er þreytandi til lengdar. Það voru margir sem höfðu fyr- ir fram vantrú á þessu stórvirki Soderberghs, enda Tarkovsky í miklu uppáhaldi hjá fiölmörgum kvikmyndaáhugamönnum. Soder- bergh hefur hingað til farið eigin leiðir og gerir það enn og hans Sol- aris, sem er rúmum klukkutíma styttri, er sjálfstætt verk sem sóm- ir sér vel við hlið Solaris sem And- rei Tarkovsky gerði 1972. Leikstjórn og kvikmyndataka: Steven Soderbergh. Handrit: Steven Soderbergh, eftir skáldsögu Stanislaw Lem. Tónlist: Cliff Martinez. Aóalleikarar: George Cloo- ney, Natasha McElhone, Jeremy Davies og Viola Davis. Ef Andrei Tarkovsky hafði 2001: A Space Odyssey til hliðsjónar þegar hann gerði Solaris, þá hefur Steven Soderbergh það einnig þeg- ar hann endurgerir Solaris. Það er ekki þar með sagt að 2001... og úgáfa Soderberghs af Solaris eigi mikið sameiginlegt hugmynda- og' efnislega séð heldur er það and- rúmsloftið sem skapað er í Solaris sem gerir það að verkum að hug- urinn leitar ósjálfrátt heldur til meistaraverks Stanleys Kubricks en til Solaris Tarkovskys. Solaris hefúr hæga atburðarás, öfugt við framtíðarmyndir sem Hollywood hefur verið að dæla á markaðinn á undanförnum árum, og Soderbergh gerir heldur ekki mikið í að láta tæknibrellur halda framtíðarsýninni svo þar með verður Solaris raunsæ í öllu sínu óraunsæi. Aðferð Soderbergs heppnast fullkomlega og þær fáu persónur sem kynntar eru til leiks skipta okkur miklu máli. Um leið er dulúðin mikil og við erum aldrei viss um hver er hver og hvað er hvað. Soderbergh hefur ör- ugglega gert sér grein fyrir því að til að fá einfalda og hæga atburðrás til að ganga upp í framtíðarveröld, þar sem allt á að vera öðruvísi og fúllkomnara, þá hafa dulúðin og hið ókannaða þurft að skapa spennuna og það tekst honum. George Clooney leikur vísinda- manninn Chris Kelvin. Hann er einfari sem hefur ekki verið mönn- um sinnandi síðan hann missti eig- inkonu sína, Rheu. Þegar neyðar- kall kemur frá vini hans um borð í geimstöðinni Promethus, sem er að rannsaka Solaris, fiarlæga plánetu, svarar hann kailinu og í næsta atriði er hann kominn að geimstöðinni. Soderbergh fer fram hjá brottforinni og öllum þeim tæknibrellum sem slíku fylgja. Clooney fer beint úr íbúð sinni í geimfarið og er kominn um borð í hina fiarlægu geimstöð á innan við mínútu frá því neyðarkallið barst. Um borð eru aðeins tveir vís- indamenn eftirlifandi. Þegar Kel- vin spyr hvað hafi gerst segjast þau ekki getað svarað honum. Hann verði að komast að því sjáif- Handan lífs og dauöa George Clooney og Natasha McElhone um borö í geimstööinni Promethus. Forstööukonan Guörún Ásta Kristjánsdóttir straujar koddaverin og strekkir á saumunum áöur en lekiö er búiö til. Fuglinn minn heitir Fótógen Leikfélag NFSU sýnir verkið „Fuglinn heitir Fótógen" sem varð til upp úr spunavinnu leikhópsins sem hér stígur á fialirnar í húsi Leikfélags Selfoss. Leikhópurinn samanstendur af nemendum úr FSU. Sýningin hefst kl. 20. Snúður og Snælda í Glæsibæ Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir „Forsetinn kemur í heim- sókn“, gamanleik með söngvum í Ásgarði, Glæsibæ, kl. 14. Miðar seldir við innganginn. Eyfi á Stokkseyri Eyjólfur Kristjánsson heldur tónleika á Stokkseyri klukkan 21. Dávaldur í Smáralind Þekktur kanadískur dávaldur, Paul Royters, heimsækir Smára- lind í kvöld. Kappinn hefur ferð- ast með sýninguna í meira en 30 ár þannig að þetta hlýtur að verða forvitnilegt. Paul Lydon tónleikar Paul Lydon spilar á píanó og syngur friunsamin lög í Norræna húsinu kl. 21. Kira Kira sér um plötuspilarann á eftir. Lengi hef- ur Paul komið fram með raf- magnsgítar og hann hefur gefið út diska undir nöfnunum Sann- dreymi og Blek Ink en þetta er í fyrsta sinn sem hann spilar á pí- anó á tónleikum Biogagnryni 7,5 km af sængurfataefni Saumastofa Öryrkjabandalagsins er með stórt verkefni þessa dagana. Það er sængurfatasaumur í nýbygg-. ingu Hótel Esju. Efnið í rúmfatnað- inn er nýkomið til landsins og tím- inn er naumur því fyrstu næturgest- ir eru væntanlegir á laugardag. „Við fengum strangana sl. föstudag en þurfum að skila 204 koddaverum á morgun, fimmtudag og 100 lökum í viðbót við þau 315 sem við höfum þegar lokið við,“ segir Guðrún Ásta Kristjánsdóttir, yfirmaður sauma- stofunnar. Hún kveðst hafa verið orðin langeyg eftir líninu þar sem skilafrestur rúmfatanna hafi verið að renna út. Endanlegar ákvarðanir um frágang þeirra hafi heldur ekki verið teknar fyrr en á þriðjudaginn í þessari viku. Breytt um sniö Alls var þaö um eitt tonn af sæng- urfataefni, 3.7 kílómetrar að lengd, sem kom inn á gólf saumastofunnar sl. föstudag. Það er bara helmingur- inn. Koddaverin fyrir Hótel Esju eiga að verða 3.200 talsins, sængur- verin 800 og lökin 520. Hluti kodda- veranna er með leki sem gerir saumaskap og frágang tafsamari en ella og lökin eru svokölluð pokalök sem koma til með að verða strekkt yfir dýnumar. Því eru homin rúnn- uð og ekki upp á einfaldasta máta. „Upphaflega var okkur sagt að að- eins 200 koddaveranna ættu að vera með leki en nú var verið að breyta Tvær hressar Björney Sigurlaugsdóttir og Gyöa Siggeirsdóttir verkstjóri hagræöa líninu. þeirri tölu í 800,“ segir Guðrún. Hún telur mun meiri kröfur gerðar til ís- lensks iðnaðar en innfluttra vara. „Allt á að vera tilbúið í gær sem unnið er hér heima og menn gera breytingar á hönnun fram á síöustu stundu. Það virðist allt vera leyfi- legt í þeim efnum,“ segir hún. Verða að fá að fermast Um tíu manns vinna á sauma- stofu Öryrkjabandalagsins fyrir há- degi og sex eftir hádegi. Guðrún seg- ir starfsfólkið vera duglegt en mis- jafnlega í stakk búið að vinna undir álagi, eins og gefi að skilja. Verkefh- in em margskonar sem tf-mmw* Smárabíó - Solaris ★ ★★ Rómantik á æðra plari Hitmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. að berast og úti við dyr er sýnishom af því sem saumað hefur verið. Ber þar mest á vinnufatnaði hvers kon- ar, kokkabúningmn, læknasloppum, skyrtum, tvöfoldum svuntum og samfestingum. „Við reyndum að vikja öllu til hliðar fyrir þetta stóra verkefni núna nema fermingarkyrtl- um sem við erum að sauma því blessuð bömin verða að fá að ferm- Fermingarkyrtill veröur til Guöný Inga Sigfúsdóttir hefur unniö á saumastofunni í nær tíu ár og oft- ast á sömu véiinni. segir ast, hvemig sem allt veltist,1 Guðrún. Ljóst er að rúmfataverkefhið mun endast saumastofunni fram á sumar og Guðrún kveðst ánægð með það þótt óþægilegt sé að lenda í tíma- þröng á fyrsta sprettinum. -Gun. Hyndasögur Rrnar Þór Halldórsson, 160994 Sonja RÚn Kiernan, 220597 Jóhann P. jlarðarson, 110591 flxel Ivar ívarsson, 080394 Sigurjón Örn Magnússon, 090197 JÓna Katrín Eyjólfsdóttir, 181195 Friðrik RÚnar flsgeirsson, 140695 fluður Ósk Sigurþórsdóttir, 290895 Braga Stefaný Mileris, 010391 Kjartan Geir Karlsson, 100394 Krakkaklijbbur DV óskar vinningshöfum til hamingju. Krakkaklúbbur DV óskar vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar vinsamlegast nólgist vinningana í þjónustuver DV, Skaftahlfð 24, fyrir 26. apríl. Vinningar til vinningshafa úti ó landi verða sendir. Kveðja. TÍgpi og Kittý klúbbur' riY^í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.