Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003
Sport
DV
Hvernig stillir Atli Eövaldsson upp íslenska landsliöinu gegn Skotum á laugardaginn:
Nýtt varnaraf brigöi
- Atli gæti, með tilkomu Guöna Bergssonar, kosið að spila með fimm manna vörn í fyrsta sinn
ísland á styrkleikalista FIFA:
Upp og niður
heimslistann
íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu skipar nú 60. sætið,
ásamt Skotum, á Heimslista FIFA
sem gefmn er út mánaðarlega og
kemur næst úr 26. mars næstkom-
andi. íslenska liðið hækkaði sig
um eitt sæti frá því á lista janúar-
mánaðar en þá fór íslenska liðið i
fyrsta sinn í fjögur ár niður fyrir
60. sæti en íslenska liðið var síð-
ast í 61. sæti í febrúar 1999.
íslenska landsliðið átti sín
blómaár á listanum undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar á árunum
1998 til 1999 en liðið hækkaði þá
um 45 sæti á tveimur og hálfu ári
og íslenska liðið var í 43. sæti þeg-
ar Guðjón lét af störfum í desem-
ber 1999. Undir stjórn Atla hefur
liðið því lækkað sig um 17 sæti á
listanum á þremur árum.
Guöni Bergsson er nú kominn í
landsliðið á nýjan leik en þess má
geta að þegar Guðni lék sinn síð-
asta landsleik, i 2-4 tapi gegn ír-
um 6. september 1997, var ís-
lenska liðið í 88. sæti sem er
lægsta staða liðsins á listanum frá
upphafi.
Hérfyrir neöan má sjá sögu ís-
lenska liðsins á heimslistanum
hjá FIFA síðustu sex ár. -ÓÓJ
1997
Hæst ...........62, sæti (febrúar)
Lægst.............88. sæti (ágúst)
Upp listann...........3 mánuðir
Niður listann ........6 mánuðir
Lokasæti .... 72. sæti (-12 frá 1996)
1998
Hæst .........59. sæti (nóvember)
Lægst ............78. sæti (mars)
Upp listann...........6 mánuöir
Niður listann ........4 mánuðir
Lokasæti .... 64. sæti (+8 frá 1997)
1999
Hæst..........43. sæti (desember)
Lægst ..........61. sæti (febrúar)
Upp listann...........6 mánuðir
Niður listann ........4 mánuðir
Lokasæti .... 43. sæti (+21 frá 1998)
2000
Hæst ...........42. sæti (febrúar)
Lægst..............56. sæti (júlí)
Upp listann...........3 mánuðir
Niður Ustann ........7 mánuðir
Lokasæti.....50. sæti (-7 frá 1999)
2001
Hæst.............52. sæti (margir)
Lægst.............57. sæti (apríl)
Upp llstann...........5 mánuðir
Niður listann ........5 mánuðir
Lokasæti......52. sæti (-2 frá 2000)
2002
Hæst.............52. sæti (janúar)
Lægst.........58. sæti (desember)
Upp listann..........1 mánuöur
Niöur Ustann .........6 mánuðir
íslenska landsliðið í knattspymu
mun á laugardaginn, undir stjórn
Atla Eðvaldssonar, leika gegn Skot-
um í undankeppni EM, einn mikil-
vægasta leik sem íslenskt landslið
hefur spilað - leik sem ræður því
hvemig framhaldið í riðlinum verð-
ur. Með sigri eða jafntefli á liðið enn
möguleika á því að ná öðm sætinu,
sem gefur sæti í umspili um þátt-
tökurétt á EM í Portúgal á næsta ári
en tap þýðir að eina keppikefli liðs-
ins verður væntanlega að halda
þriðja sætinu frá Litháum og Færey-
ingum.
íslenska landsliðið beið skipbrot á
Laugardalsvelli 12. október á síðasta
ári þegar liðið tapaði fyrir Skotum,
2-0, og spurning hvað Atli getur gert
til að koma í veg fyrir önnur eins úr-
slit á Hampden Park á laugardaginn.
íslenska liðið hefur leikið tvo lands-
leiki síðan þá, gegn Litháum og Eist-
um, en þeir leikir veittu fá svör varð-
andi undirbúning liðsins fyrir leik-
inn á laugardaginn.
Fáir dagar til undirbúnings
Atli hefur ekki marga daga til
undirbúnings fyrir leikinn. Hann
hefur þrjá daga á meðan Berti Vogts
og hans menn í skoska landsliðinu
hafa dvalið saman síðan á laugar-
dagskvöldið. Hann þarf því að hafa
hraðar hendur í að gera lið sitt klárt
fyrir leikinn og því óvíst hversu
miklar breytingar hann þorir að fara
út i.
Vandamál Atla eru af stærri gerð-
inni því að honum hefur ekki enn
tekist að finna rétta liðið - hvorki
vamar- né sóknarlega - og það verð-
ur að teljast harla ólíklegt að krafta-
verkin gerist á þremur dögum í
Glasgow.
Það liggur þó ljóst fyrir að Ámi
Gautur Arason er orðinn heill af
meiðslum sínum og mun standa í
markinu gegn Skotum. Þar með er
einum höfuðverknum færra fyrir
Atla varðcmdi valið á liðinu en þó
ber að hafa í huga að Ámi Gautur
hefur verið lengi frá og er ekki í mik-
illi leikæfingu. Hann er samt sem áð-
ur frábær markvörður, með mikla
reynslu í mikilvægum leikjum eins
og þessum eftir dvöl sína hjá Rosen-
borg, og það er gott fyrir landsliðið
að hann skuli vera heill.
í skotgrafirnar
Mér þykir líklegast að Atli muni
Þegar öllu er á
botninn hvolft
þá stendur Atli
frammi fyrir þvi
vandamáli að
hann er enn á
byrjunarreit
enda þótt leikur-
inn gegn Skotum
sé þriðji leikur
liðsins í und-
ankeppni EM.
koma til með að leggjast í skotgraf-
imar, það er verjast aftarlega og
freista þess að sækja „hratt“ líkt og
forveri hans, Guðjón Þórðarson,
gerði ævinlega með ágætum árangri.
Úr því verður yfirleitt ekki áferðar-
faUeg knattspyrna en tilgangurinn
helgar meðalið og árangur telur
meira en nokkrar sendingar manna
á milli, hælspyrnur og hápressa.
Atli kaus að draga Guðna Bergs-
son á flot á ný eftir sex ára útlegð og
það eitt segir mér að ákveðnar breyt-
ingar gætu verið í vændum. Sú fjög-
urra manna varnarlína sem Atli
stillti upp gegn Ungverjum, Skotum
og Litháum síðasta haust gaf allt of
mörg færi á sér og Atli hyggst vænt-
anlega þétta vörnina. Guðni Bergs-
son hefur marga kosti sem varnar-
maður en mér segir svo hugur að
Atli muni láta hann spila sem aftasta
vamarmann í fimm manna vörn.
Þar er Guðni upp á sitt besta. Hann
les leikinn vel, er enn fljótur og get-
ur stjómað vörninni, nokkuð sem
hefur sárlega vantað síðan Eyjólfur
Sverrisson hætti að spila með lands-
liðinu. Styrkur Guðna liggur ekki í
að dekka menn heldur að hreinsa
upp bak við aðra og því er hann frá-
bær sem laus maður fyrir aftan mið-
verðina.
Eftir að útséð var um þátttöku
Hermanns Hreiðarssonar í leiknum
er nokkuð ljóst að Amar Þór Viðars-