Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2003, Qupperneq 32
3 FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum alian sólarhringinn. sefur 550 55 55 SIMIIMIM SEM ALDREI Bandamenn undirbúa nú komu skipa með hjálpargögn til hafnarinnar í Umm Qasr en óttast er að hún sé varin íröskum sprengjum. Hér sést breskur hermaður gæta að hugsanlegum óvinum. ERLENDAR FRÉTTIR BLS. 10, 11, 12 OG 13 Lóan stundvís íslendingar uppfylla samninga eftir hálfa öld: „Ég taldi níu lóur við Sílavík, sem er héma inni í bænum, í fyrradag," sagði Björn G. Amar- son, safnvörður í Hornafirði, i morgun. Hann segir að lóan sé stundvís, i fyrra kom hún líka 24. mars og lika vorið 2000 samkvæmt samantekt Stefáns Áka Ragnars- sonar sjávarlíffræðings. „Við heyrðum í lóuhópi i íjarska i gær nálægt Miðskeri en það var erfitt að átta sig á hvar þær héldu sig,“ sagði Bjöm. Hann segir að upp úr helginni fari lóan að koma í hóp- um til landsins. Samkvæmt samantekt Stefáns sáust fyrstu lóurnar 1998 í Kópa- voginum þann 26. mars, vorið 1999 í Kvískerjum í Öræfum, árið 2000 sáust 10 fuglar í Sílavík í Horna- firði þann 29. mars og árið 2001 í Norðurkoti í Sandgerði þann íjórt- ánda, en þar talið að hafi verið vet- ursetufugl og fyrsti farfuglinn hafi í raun komið 24. mars. -JBP Genfarsamningurinn þýddur í f yrsta sinn Verið er að þýða Genfarsamning- inn frá 1949, sem fjallar einkum um mannréttindi óbreyttra borgara og striðsfanga i hemaði, en samningur- inn hefur aldrei verið til i heild sinni i íslenskri þýðingu þótt hann kveði beinlínis á um að aðildarríki hans tryggi að hann sé til á viðkomandi tungumáli. Rauði krossinn hefur hins vegar gefið út handbók um hann þar sem vitnað er í helstu ákvæði hans. Þýðingin er samstarfs- verkefhi Rauða krossins og utanrík- isráðuneytisins. Þórir Guðmundsson, upplýsinga- fulltrúi Rauða krossins, segist von- ast til að þýðingin komi út á næstu vikum. Samningurinn er mjög ítarlegur, ekki síst um réttindi stríðsfanga. Þórir segir þó að ekki sé tiltekið i honum hvort birta megi ljósmyndir af stríðsfongum en slíkar myndbirt- ingar hafa verið umdeildar undan- farið. Meginreglan sé að ekki megi niðurlægja stríðsfanga; meta verði hverju sinni hvort myndimar feli í sér niðurlægingu. Rauði krossinn hefur farið fram á að fá að heimsækja striðsfanga í írak og segir Þórir Guðmundsson ekkert óvenjulegt við að það taki nokkra daga að fá það fram. Hann getur þess einnig að daginn áður en stríðið gegn írak hófst komu rúmlega átta hundruð íraskir stríðs- fangar heim frá íran, fimmtán árum eftir að stríði landanna lauk, en Rauði krossinn hefur haft milligöngu um-að tugþúsundir úr því stríði komust heim til sín -ÓTG FrÍtT/^óTbS7i6-17 Ragnar Aðalsteinsson: Fækkun forlaga stophættuleg „Það er þekkt staðreynd að þeg- ar bókaforlögum fækkar þrengjast möguleikar rithöfunda til að fá bækur útgefnar," segir Ragnar Að- alsteinsson hrl. Hann er lögmaður Rithöfundasambands íslands sem efndi til félagsfundar í gærkvöldi. Þar lýsti Ragnar áhyggjum sínum af þeirri samþjöppun í bókaútgáfu sem orðið hefur síðustu ár. „í hverju forlagi er við lýði ákveðin útgáfupólítk sem kemur ekkert flokksstjómmálum við held- ur snýr þetta meðal annars að bók- menntastefnum,“ segir Ragnar. Segir hann að stjómendur stærstu forlaga landsins séu með mikil völd að þessu leyti. Sé þeim nauð- synlegt að halda vöku sinni og gera sér grein fyrir ábyrgð sinni. „Sú fækkun bókaforlaga sem orðið hefur er mikil umbreyting frá því sem áður var. Því væntir maður þess líka að stofnuð verði í þeim eyðum sem myndast á markaðnum fyrirtæki sem hafa snerpu og við- bragðsflýti," segir Ragnar. -sbs Margir kílómetrar af sængurfataefni Það er handagangur i öskjunni á Saumastofu Öryrkjabandalagsins þessa dagana, en þar er verið að sauma allan sængurfatnað í stærsta hótel á íslandi, Hótel Esju, en fyrstu gestimir koma um helg- ina. „Við fengum strangana sl. föstudag en þurfum að skila 204 koddaverum á morgun, fimmtudag og 100 lökum í viðbót við þau 315 sem við höfum þegar lokið við,“ segir Guðrún Ásta Kristjánsdóttir, yfirmaður saumastofunnar. Alls var það um tonn af sængurfataefni, 3,7 kílómetrar að lengd, sem kom inn á gólf saumastofunnar sl. föstu- dag. Það er bara helmingurinn. Koddaverin fyrir Hótel Esju eiga að verða 3.200 talsins, sængurverin 800 og lökin 520. TILVERA BLS. 25 Ertu á leið til útlanda? Afnemum 24,5% vsk. við kaup á gleraugum gegn framvísun á farseðli Gleraugnax .Kringl' 588-9988 SnUOjCH unm Sjálfvírk slökkvitæki fyrir sjónvörp Sími 517-2121 Auðbrekku 2 • Kópavogi Innflutningur og saia • www.hblondat.com ■ - " . - r - ■ J. NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ 4 i i i i i i i 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.