Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003
DV
Fréttir
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna sem gerð var í gærkvöld:
Santfylting hpanar í Mni
og Fplálslvndlp ná hremir
lyndir að bæta við sig 1,6 pró-
sentustigum, en fylgi Samfylk-
ingar og Vinstri grænna er nán-
ast það sama og í kosningunum.
Niðurstöður könnunarinnar má
sjá í meðfylgjandi töflu og gröf-
um.
Samfylking tapar á höfuö-
borgarsvæðinu
Þegar niðurstöður könnunar-
innar eru greindar eftir kynjum
og búsetu kemur í ljós að Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur eru
sterkari meðal karla en kvenna
sem og Frjálslyndir. Reyndar
sækir Framsókn mest í sig
veðrið meðal karlanna. Sam-
fylking sækir hins vegar meira
fylgi til kvenna. Kynjamunur-
inn er ekki mikill hjá þessum
flokkum en öðru máli gegnir
um Vinstri græna sem sækja
tvövalt meira fylgi til kvenna
en karla. Þessu hefur hins veg-
í SÓKN OG VÖRN
- breyting á fylgi flokka i prósentustigum frá 4. mars. ‘03
Samfylking tapar verulegu
fylgi, mest á höfuðborgarsvæð-
inu, meðan aðrir flokkar bæta
við sig. Frjálslyndir bæta hlut-
fallslega langmestu við sig og
ná 3 mönnum á þing. Sjálfstæð-
isflokkur bætir óverulega við
sig fylgi. Fylgi flokkanna er
annars afar svipað kjörfylginu
fyrir fjórum árum. Núverandi
ríkisstjórn stendur traustum
fótum. Þetta eru helstu niður-
stöður skoðanakönnunar DV
sem gerð var í gærkvöld.
Spurt var: Hvaða lista mund-
ir þú kjósa ef þingkosningar
færu fram núna? Úrtakið var
600 manns, jafnt skipt milli
kynja og hlutfallslega milli höf-
uðborgarsvæðis og landsbyggð-
ar.
Af öllu úrtakinu sögðust 12
prósent mundu styðja Fram-
sóknarflokkinn, 34,2 prósent
Sjálfstæðisflokkinn, 4,5 prósent
Frjálslynda flokkinn, 21,7 pró-
sent Samfylkinguna, 7,5 prósent
Vinstrihreyfinguna grænt fram-
boð og 0,2 prósent aðra lista. 13
prósent reyndust óákveðin og 7
prósent neituðu að svara, sam-
tals 20 prósent sem er mun
lægra hlutfall en í undangengn-
um könnunum blaðsins. Af 600
manns reyndust því 80 prósent
taka afstöðu til flokkanna.
Af þeim sem afstöðu tóku
sögðust 15 prósent mundu kjósa
Framsókn, 42,7 prósent Sjálf-
stæðisflokk, 5,6 prósent Frjáls-
lynda, 27,1 prósent Samfylkingu
og 9,4 prósent Vinstri græna.
Miðað við síðustu könnun DV,
sem gerð var 4. mars, er Sam-
fylking að tapa 7,4 prósentu-
stigum. Framsókn er að bæta
við sig 2,8 prósentustigum,
Sjálfstæðisflokkur 0,4 pró-
sentustigum, Frjálslyndir 2,3
prósentustigum og Vinstri
grænir 1,7 prósentustigum.
Miðað við kosningarnar 1999
eru breytingar á fylgi flokk-
anna ekki miklar eins og sést á
meðfylgjandi töflu. Framsókn
er að tapa 3,4 prósentustigum,
Sjálfstæðisflokkur að bæta við
sig 2 prósentustigum, Frjáls-
NIÐURSTÖÐUR SKOÐANAKANNANA DV
- til samanburöar eru niöurstööur fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga
u,
\ÁV
18/03'99 31/03'03
$ Kosningar 8/5 "W
I------------------------------------------1
-►l
18/03'99 31/03'03 18/03'99 31/03'03 18/03'99 31/03'03 18/03'99 31/03'03
SKIPTING ÞINGSÆTA * Nýr þingmaöur
skv. könnun DV og breytingar miðað við kosningar 1999 Tapaður þingmaður
lill AAAAAAAAAt&t
ar verið öfugt farið í mörgum
könnunum á kjörtímabilinu.
Þegar litið er til búsetu sækja
stjórnarflokkarnir meira fylgi
til höfuðborgarsvæðis en lands-
byggðar, sérstaklega Sjálfstæð-
isflokkurinn. Þannig sögðust
47,2 prósent ibúa höfuðborgar-
svæðisins mundu kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn en 35,4 prósent
þegar aðeins er litið til lands-
byggðarinnar. Frjálslyndir
sækja lungann af fylgi sínu til
landsbyggðarinnar eða 70 pró-
sent. Fleiri styðja Samfylking-
una úti á landi en á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem Samfylking
er að tapa mestu miðað við síð-
ustu könnun eða 13,3 prósentu-
stigum. Vinstri grænir sækja
fylgi sitt frekar til landsbyggð-
arinnar.