Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003
13
DV
Fréttir
Táknmál sylgjunnar
Sylgia Siguröar Helga er handskorin úr hreindýrahorni af færasta útskuröar-
meistara Sama. Syigjan er dýrasti hluti búningsins. Siguröur er ættaöur frá
Tana, þar sem er mesta laxveiöiá í heimi. Laxinn í sylgjunni krækir saman
skoltum. Stjörnurnar eru til skrauts en merkin til hliöar, sólin og hreindýriö,
eru afsteypur af 6000 ára hellaristum.
Bandaríkin og Bretland:
Dýrgripur
Þessi hnífur er útskorinn úr hreindýrabeini - dýrgripur sem
kostar tugi þúsunda.
Dómharka og refsigleði
sliga fangelsin
sem valdið hefur álíka deilum og
gerðist hér á landi. Upp komu
vandamál og deilur milli manna
í greininni. Sama er að segja um
nýtingu fiskimiðanna. Við fiski-
auðugasta fjörð Noregs, Porsan-
ger, sem nær frá íshafinu djúpt
inn í Finnmörku, búa mest Sam-
ar og þeir vilja að aðeins íbúar
við fjörðinn njóti þeirra auðæfa
sem hann býður upp á. Samar
vilja að hefð ríki um not á lands-
ins gæðum en gegn því er mikil
mótstaða. Þarna endurtekur sig
þjóðlendumálið sem íslendingar
kljást við nú um stundir. Meðal
mála sem Samar hafa unnið að er
að fá inngöngu í Norðurlandaráð
en það hefur ekki gengið fram til
þessa. Á þjóðþingum Sama eru
frá 21 þingmanni upp í 39 í Nor-
egi. Þingmenn eru kjörnir til
fjögurra ára og koma saman
nokkrum sinnum á ári nokkra
daga í senn.
margir þeirra eru nánast „ís-
lenskir“ í útliti. Samar viíja
gjarnan starfa sem sérstök þjóð
meðal annarra Norðurlandabúa í
Norðurlandaráði. Það gera
Grænlendingar, Færeyringar,
Álandseyingar og íslendingar.
„Það er engu líkara en okkur
Sama vanti eyju til að búa á til
að verða gjaldgengir í Norður-
landaráði," segir John Gustavs-
son að lokuhi og hlær létt við.
Önnur skilyrði uppfylla þeir: eig-
in menningu, eigin tungumál og
eigin sameiginlegu sögu. Eyju
vantar. -JBP
Eyju vantar!
En hvaðan koma Samarnir?
Gustavsson segir að uppruni
Sama sé í mongólskum héruðum
Asíu en mikil blóðblöndun hefur
átt sér stað í aldanna rás. Samar
eru því með fjölbreytt útlit og
Sameining
Þetta merki sem Samar bera margir
er tákn um löndin fjögur - eina þjóö í
fjórum löndum.
Refsigleði eykst víða um lönd
og sums staðar fjölgar fangelsis-
dómum og þeir verða þyngri þótt
glæpatíðni aukist ekki og afbrot-
um fari jafnvel fækkandi. Banda-
ríkin eiga margfalt heimsmet í
dómhörku og er svo komið að 4
til 5 af hundraði þjóðarinnar sitja
inni, bíða eftir að fangelsispláss
losni eða eru á skilorði. Bretar
eru nýorðnir Evrópumeistarar í
refsidómum en íslendingar eru
neðarlega á listanum og hvergi
nærri hálfdrættingar á við aðrar
Norðurlandaþjóðir á þessu sviði.
En það stendur að öllum líkind-
um til bóta þvi öflugir þrýstihóp-
ar og ístöðulitlir stjórnmálamenn
heimta harðari refsingar fyrir til-
tekin afbrot.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um eru um 8.750.000 manns í
fangelsum í öllum heiminum. Hér
eru aðeins taldir dæmdir refsi-
fangar og þeir ekki með sem tekn-
ir eru úr umferð um stundarsak-
ir, svo sem brennivínsberserkir
og krakkar sem komið hafa sér í
einhver vandræði. Nær helming-
ur refsifanga heimsins, þeir sem
inni sitja, eru þegnar voldugra
stóvelda. í Bandaríkjunum af-
plána 1.960.000 manns glæpi sína í
yfirfullum fangelsum. í Kína sitja
1.400.000 manns inni og í Rúss-
landi eru 900.000 manns í fangelsi.
Þegar kemur að höfðatöluregl-
unni eru Bandaríkin framar öll-
um öðrum þjóðum hvað varðar
afplánun refsinga. Af hverjum 100
þúsund ríkisborgm"um risaveldis-
ins sitja 700 manns inni, dæmdir
af dómstólum réttarkefisins.
Bresku Evrópumeistaramir
búra 139 af hverjum 100 þúsund-
um af þegnum hennar hátignar
inni og fer hörðum fangelsisdóm-
um þar fjölgandi, sem víðar. í
Frakklandi er hlutfallið 85 refsi-
fangar af hverjum 100 þúsund
Frökkum og á Spáni sitja 126
manns inni af hverjum 100 þús-
und íbúum landsins.
Oddur Ólafsson
biaöamaöur
Fangelsi í New York-nki
Bandaríkjamenn eiga margfalt heimsmet í dómhörku og er svo komið aö um
5% þjðöarinnar sitja inni, bíöa eftir fangelsisplássi eöa eru á skiloröi.
Fyrirmyndarþjóð eða slóðar
íslensk fangelsi rúma alls 137
fanga. 126 pláss eru fyrir þá sem
afplána dóma og 11 til viðbótar
eru fýrir þá sem hafa verður í
einangrun.
Hér á landi sitja 35 til 37 refsi-
fangar inni af hverjum 100 þús-
und íbúum. Annars staðar á
Norðurlöndum er talan margfalt
hærri en meðaltalið; þar eru 160
til 170 fangar miðað við hverja
100 þúsund íbúa.
íslensk fangelsi eru ekki alltaf
fullnýtt og oft er fangafjöldinn á
milli 90 og 100 manns sem inni
situr. Þegar þetta var skrifað
voru innisitjandi refsifangar 124.
Með mátulegri ónákvæmni má
segja að 300 manns séu árlega
dæmdir til refsivistar óskilorðs-
bundið. En skilorðsbundnir dóm-
ar eru nokkru fleiri, eða um 350
til 400.
Þess má og geta að engir
biðlistar eru til að fá vistun inni í
tugthúsum hér á landi.
Einkarekin og yfirfull
Sé tekið mið af höfðatöluregl-
unni og gerður samanburður á
fjölda refsifanga í Bandaríkjunum
og á íslandi, þar sem íbúafjöldinn
er einn á móti þúsund, ættu nær
2.000 íslendingar að gista fanga-
klefa hins opinbera miðað við
réttarfarið á heimaslóðum risa-
veldisins, þar sem nærri 200 pró-
sent fleiri en nú njóta umhyggju
réttarkerfisins.
Ef svona reiknikúnstum er
haldið áfram má geta þess að 4 til
5 af hundraði íslendinga eru á
milli 14 og 15 þúsund manns og
ætti sá fjöldi samkvæmt amerísku
fomúlunni að vera dæmdir refsi-
fangar.
Bandarísk fangelsi eru fræg að
endemum fyrir hömlulítið ofbeldi
sem þrífst innan veggja þeirra.
Erfitt reynist að stemma stigu við
þeim ódæmum eða hafa einhvem
hemil á takmarkalausri refsigleði
löggjafa ríkjanna og fjölgun
langra fangelsisdóma.
Fjöldi fangelsa er rekinn af
einkaaðilum og standa hlutabréf-
in í fangelsisfyrirtækjum nokkuð
hátt. Sem geta má nærri er reynt
að hagræða í rekstri fangelsanna
eins og kostur er á. Þá eru hags-
munir og réttindi fanganna ekki
alltaf hafðir í huga og harkan í
viðskiptum þeirra á milli vex að
sama skapi. í sumum ríkjum, svo
sem í Kalifomíu þar sem fólk er
dæmt í allt að 25 ára fangelsi fyr-
ir smáglæpi, taka fangelsin ekki
við öllum þeim fjölda sem dóm-
stólamir úrskurða að taka eigi úr
umferð. Fara vandamál fang-
elsanna ört vaxandi og sjá fæstir
fyrir endann á þeim ósköpum öll-
um.
Á árunum 1990 til 1998 fjölgaði
dómum fýrir alvarlega glæpi í
BNA um 12 af hundraði en síðar-
nefnda árið voru kveðnir upp
nær milljón dómar fyrir alvarlega
glæpi. Hörðum dómum fjölgar
meira en handtökum fyrir það
sem vestra er skilgreint sem al-
varlegir glæpir. Það ár voru voru
68 af hundraði ákærðra dæmdir
til fangelsisvistar.
Vegna þess að fangelsin rúma
ekki alla þá sem dæmdir eru í
Bandaríkjunum eru margir látnir
lausir gegn skilorði til að rýma
fyrir nýdæmdum. Um 31 af
hundraði þeirra fremja ný afbrot
á skilorðstímabilinu og fá enn
lengri dóma fyrir vikið.
Skortur á vistrými
Breska fjármálaráðuneytið
stendur nú frammi fyrir þeim
vanda að útvega framlög til fang-
elsismála til að stækka gömul
fangelsi og byggja ný. í nýút-
kominni skýrslu dómsmáiaráðu-
neytisins kemur í ljós, eins og
fyrr er sagt, að nýtt Evrópumet í
innilokun fanga er slegiö. Þar
Litla-Hraun
íslendingar eru neöarlega á
listanum yfir refsiglaöar þjóöir en
Bretar eru nýorönir Evrópumeistarar
í refsidómum.
sitja nú rúmlega 73 þúsund
manns í fangelsum. Aukningin er
hraðstíg því að árið 1991 voru
breskir refsifangar ekki nema 42
þúsund talsins.
Þá voru 45 af hundraði ákærðra
dæmdir til fangelsisvistar en 2001
var hlutfallið komið upp í 64 af
hundraði. Á sama tíma lengdust
fangelsisdómar um fimm mánuði
að meðaltali og sé enn haldið sig
við tölfræðina er meðalfangelsis-
dómur í Bretlandi nú fimm ár og
tveir mánuðir.
Fjölgun fangaklefa er eina ráðið
til að réttvísin nái fram að ganga
því fleiri og harðari dómar kalla
á aukið fé til málaflokksins.
Þótt ekki séu tiltækar tölur um
refsidóma í fleiri ríkjum en hér
eru nefnd er ljóst að íslendingar
standa sig afskaplega vel eða illa,
eftir því hvemig á er litið, í upp-
kvaðningu og fullnustu refsidóma.
Kannski eru menn löghlýðnari
hér á landi en annas staðar
og/eða að hegningarlöggjöfin er
mildari en gerist og gengur í
margnefndum viðmiðimarríkjum.
Hvort það er eftirsóknarvert að
elta fyrirmyndarríkin hvað varð-
ar hegningarlög og stranga dóma
kann að vera varasamt. Að
minnsta kosti eru breskir blaða-
menn lítt hrifnir þegar þeir skýra
frá að dómstólar þar í landi eru
orðnir refsiglaðari en nokkurt
annað Evrópuríki og hafa slegið
út dómstóla og fangelsisyfirvöld í
ríkjum eins og Líbíu og Malasíu.
(Heimildir: The Guardian,
Fangelsisrmlastofnun og Tölfrœöi-
stofnun dómsmálaráöuneytis BNA)