Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 DV Fréttir John Gustavsson, rithöfundur og blaðamaður, berst fyrir réttindum Samaþjóðarinnar Vantar eviu til aö búa á Samar eru sérstök þjóð sem býr í fjórum norðlægum löndum - í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi, samtals 70 til 100 þús- und manns. í þrem fyrst töldu löndunum halda Samar sín eigin þjóðþing þar sem málefni samísku þjóðarinnar eru rædd - og Samaráðið fer með sameigin- leg málefni Sama í öllum löndun- um. Samar hafa mikla sérstöðu í þessum löndum og menning og uppruni þeirra eru yfirleitt virt í norrænu löndunum; þó ekki af öllum. Áður fyrr þótti það ekki ýkja fínt að vera Lappi, en það nafn hefur verið að leggjast af og er talið niðurlægjandi. Það hefur sömu merkingu og nafnorðið leppalúði á íslensku: maður í stagbættum fötum. Eftir eru þó Lappland og torfærubíllinn frá Volvo sem þeir kalla Lapplander. Samís, félag Samavina á íslandi, var stofnað nýverið. Gustavsson segir Sama afar ánægða með ís- lenska vinafélagið sem hefur vax- ið ótrúlega. í félaginu eru strax 150 manns sem styðja vel við bak- ið á Sömum. Hagen á móti Sömum Hér var á ferðinni í síðustu viku samískur rithöfundur og blaðamaður, John Gustavsson frá Noregi, ásamt eiginkonu sinni, Berit, sem er búningahönnuður. John Gustavsson fyllti samkomu- sal Norræna hússins þegar hann hélt þar fyrirlestur um Sama og baráttu þeirra. Staðreynd er að Samar skera sig talsvert úr í þeim löndum þar sem þeir búa. Það hefur ekki verið vinsælt af öllum, til dæmis ekki af voldug- um þingmönnum eins og Carl I. Hagen, sem er formaður Fram- faraflokksins sem er á móti minnihlutahópum af öllu tagi. Hann heimtar eina þjóð í einu landi og að Samar samsami sig öðrum Norðmönnum og viii þing- hald þeirra feigt. Gustavsson fjallaði í erindi sínu um samíska rithöfundinn, ljóðskáldið, söngvarann og mynd- listarmanninn Nils-Aslak Val- keapaa, sem fékk bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir nokkrum árum, en hann dó fyrir tveim árum. Hann hefði orðið sextugur 23. mars síðastliðinn og af því tilefni var hans minnst. Verða ekki ríkir Samaþjóð á norðurhjara barð- ist hetjulega fyrir tilveru sinni fyrr á öldum og gerir enn. Saga Sama er ekkert ólík baráttusögu íslendinga. í nútímanum dreifast Samar víðar en fyrr, afla sér menntunar og setjast að víða. John Gustavsson segir í viðtali við DV að Samar hasli sér völl í ýmsu - ekki þó í bisness, og Sam- ar verða ekki ríkir. Þeir vilja frekar stunda ýmsa þjónustu, meðal annars í heilbrigðismálum, kennslu og grúski og fræðastörf- um. „Börnum Sama var hér áður fyrr ekki leyft að læra samísku í skóla, en þetta hefur breyst og hefur verið leyft frá 1967,“ segir John Gustavsson. í dag eru rekn- ir skólar sem eru aðeins fyrir Sama, meðal annars deild í há- skólanum í Tromsö. Síðustu ára- tugi hafa Samar eignast sinn sameiginlega þjóðhátíðardag, 6. febrúar, þjóðfána, þjóðsöng og fleira sem hnýtir þjóðina saman. Börn í fjölskyldum Sama læra tungumálið af munni foreldranna en ritmálið er afar ungt, rúmlega aldargamalt. Biblían var fyrsta bókin sem gefin var út á samísku ÐV-MYNDIR GVA Litrfkir Samar Þeir báru af í Norræna húsinu á dögunum, Samarnir John Gustavsson, til vinstri, og Sigurður Helgi Guöjónsson lögmaður, formaður Húseigendafélagsins og formaður Samís. Hann er einn fárra íslenskra Sama. Búningar þeirra félaga eru litríkir. en í dag er mikið gefið út af alls kyns efni. Samar tala fjórar meg- in-mállýskur eftir búsetu og skilja hverjir aðra álíka og íslend- ingar Norðmenn. Hreindýrakvóti - kunnug- legt vandamál Samar rækta í dag sínar hrein- dýrahjarðir og eru oft sveitamenn með búskap af ýmsu tagi. En þeir hafa líka dreift sér víða um lönd og hafa farið í háskólanám. Bú- skapurinn er kannski ekkert ósvipaður því sem þekktist á ís- landi forðum og margir hinir eldri stunda útræði. Samískir sjó- bændur hafa líka byggt kúlulaga hús úr torfi og grjóti - sömu efn- um og íslendingar notuðu fram á síðustu öld. Vandamál Sama sem sjálfstæðs þjóðflokks eru mörg og eru rædd á þjóðþingum þeirra í löndunum þremur. Þarna eru á ferðinni vandamál sem við ættum að þekkja á íslandi. Aukinn véla- kostur varð til þess að hreindýra- rækt jókst verulega og sama var að segja um kostnað hreindýra- bænda sem þeir réðu lítt við. Sett var á kvótakerfi á hreindýrum Skrautleg sylgja Sylgia Johns Gustavssons - fallegt og dýrt skraut sem fer búningi hans vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.