Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Qupperneq 14
14 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 DV Saddam Hussein íraksforseti segir fjölskyldu sína hluta af írösku stórfjölskyldunni. Saddam neitar að fjöl- skyldan hafið flúið land Saddam Hussein íraksforseti neitaði því í morgun að einhverj- ir úr nánustu fjölskyldu hans hefðu flúið land. Hann sagði að örlög sín og íjölskyldu sinnar væru samofm örlögum írösku þjóðarinnar. „Orörómur um að fjölskylda Saddams Husseins forseta hafi flúið írak er endurtekning lygi sem Pentagon kom á kreik. Nán- asta fjölskylda Saddams Husseins er óaðskiljanlegur hluti írösku stórfjölskyldunnar," sagði í yfir- lýsingu frá forsetaembættinu. Getgátur hafa verið um það í vestrænum fjölmiðlum að eldri kona Saddams og dætur þeirra hefðu farið út landi. Sprengjuverksmiðja fannst innan ísraels ísraelsk stjórnvöld sögðu frá því í morgun að ísraelska leyniþjónust- an, Shin Bet, hefði i gær handtekið þrjá ísraelska araba eftir að sprengjuverksmiðja heföi fundist í ísraelska bænum Jaljulya í ná- grenni Vesturbakkans. Þetta mun fyrsta sprengjuverk- smiðjan sem fmnst innan ísraels og sagði í fréttatilkynningu frá Shin Bet að hinir handteknu væru grunaðir um að vera félagar í íslömsku Jihad-samtökunum og að hafa staðið að skipulagningu hryðjuverkaárása. Samtökin hafa lýst ábyrgð á sjálfsmorðsárásinni í ísraelska hafnarbænum Netanya um helgina þar sem um þrjátíu manns slösuð- ust en að sögn stjómvalda eru þremenningar ekki taldir tengjast henni. UPPBOÐ Eftirtaldir munir veröa boðnir upp við lögregtustöðina á Rauf- arhöfn miövikudaginn 9. apríl 2003 kl. 11.00: Beltavél CAT 225, árg. 1978, vinnuvél Case 580 K, árg. 1990, vinnuvél EH- 055 Case 580 K, árg. 1993, og vökva- hamar Furukama HB5G, árg. 1996. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSÁVÍK UPPBOÐ Eftirtaldar bifreiðir og/eöa öku- tæki veröa boðin upp við lög- reglustööina á Þórshöfn, miö- vikudaginn 9. apríl 2003 kl. _________14:00:________ AD1285 EX-199 FY-502 JX-586 KR- 309 MR-098 NI-271 S141 SZ-564 TA- 146 TN-446 U5084 X3177 YM-883 ZV- 224 ÞD1038 ÞD1475 Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK Að mínnsta kosti sjö ímkar konur og börn skotin til bana - nálguöust bandaríska eftirlitsstöö í bifreið Mikill ótti. Að minnsta kosti sjö ír- askar konur og börn voru skotin til bana við eftirlits- stöð bandaríska hersins ná- lægt bænum Najaf í mið- hluta íraks í gær eftir að ökumaður bifreiðarinnar, sem þau voru farþegar í neitaði að stöðva viö eftir- litsstöðina. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers var skipun gefin um að skjóta á bifreið- ina þar sem hún ók á mikl- um hraða að eftirlitsstöð- inni og skipunum um að stöðva ekki sinnt. Að sögn talsmannsins voru þrettán konur og börn í bifreið- inni þegar að var gáð en auk þeirra sjö sem létust hafi tveir far- þegar særst alvarlega. Peter Pace, háttsettur foringi í bandaríska hemum, sagði í morg- un að aögerðin hefði miðað við að- stæður verið algjörlega réttlætan- leg en á sama tíma stóðu yfir öfl- ugar loftárásir á bækistöðvar íraska hersins í nágrenninu. „Hermennirnir hafa fullan rétt á að verja sig og í þessu tilfelli leit út fyrir að verið væri að ráðast á þá,“ sagði Pace. Bandarískur fréttamaður, sem varð vitni að atburðinum, hafði aðra sögu að segja en talsmenn hersins. Hann sagði að fimmtán manns hefðu verið í bifreiðinni og þar af hefðu tíu látist og tveir særst alvarlega. Hann hélt því einnig fram að hermönnunum hefði láðst að skjóta aðvörunarskotum í tíma og því hefði farið sem fór. Atburðurinn átti sér stað nálægt þeim stað þar sem fjórir bandarískir hermenn létust í sjálfsmorðsárás um helgina og því mun allt eftir- lit hafa verið aukið á svæðinu vegna ótta um fleiri árásir. David Blunkett, innanríkis- ráðherra Bretlands, sagði aðspurður um atvikið að það ætti örugglega ekki eftir að bæta ímynd bandamanna í írak. „Eins og er lítur almenningur frekar á okkur sem þrjóta en væntanlega mun það breytast þegar við höfum frelsað þjóðina,“ sagði Blunkett. Að sögn bandarískra stjórnvalda mjakaðist sóknin í morgun i átt til Bagdad og hefðu fréttir borist af hörðum bardögum við liðsmenn lýðveldisvarðar Saddams Husseins í nágrenni bæjarins Hindiya um áttatíu kílómetra suður af Bagdad. REUTERSMYND Hresst upp á mórallnn Bandarískir landgönguliöar komu saman í morgun úti í írösku eyöimörkinni til aö hlusta á ræöu yfirmanns síns þar sem hann reyndi aö hressa upp á móralinn hjá dátunum. Skiptar skoöanir eru um hvort stríösreksturinn í írak hafi gengiö samkvæmt áætiun. Aö minnsta kosti veita írakar meiri mótspyrnu en búist var viö. Starfsmenn hjálparstofnana komast ekki til starfa í írak Starfsmenn hjálparstofnana sem bíða átekta i Kúveit segja að þeir fái ekki að fara inn í írak til að meta þörf íbúanna fyrir marg- víslegri neyðaraðstoð þar sem þeir hafi ekki fengið tryggingu fyrir öryggi sínu. Hjálparliðar á vegum stofnana Sameinuðu þjóðanna og góögerð- arsamtaka fógnuðu því í gær að breskum hermönnum skyldi hafa tekist að tengja vatnsleiðslu fyrir þyrsta íbúa sunnanverðs íraks. Vatnið er leitt um 20 sentímetra svera leiöslu frá Kúveit. Um ann- að drykkjarhæft vatn er ekki að ræða á þessum slóðum. Hjálparliðamir sögðu þó að það kæmi ekki í staðinn fyrir viðgerð- REUTERSMYND Beölö eftir vatnlnu íraskar konur bíöa eftir aö fá vatn frá breskum hermönnum í Safwan. ir á vatnsveitu og frárennsliskerfi landsins sem hafa orðið illa úti í hernaðinum undanfarna daga. „Þörfin fyrir hreint vatn í sunn- anverðu írak er mjög brýn og vatnsskorturinn er heilsuspillandi fyrir börnin,“ sagði Geoffrey Keele, starfsmaður Barnahjálpar- innar. Ross Mountain, aöstoðarfor- stjóri Neyðarhjálpar SÞ, sagði í Genf í gær að hægt væri að koma í veg fyrir neyðarástand meðal al- mennings í írak ef allir málsaðilar legðust á eitt um að hleypa hjálp- arliðum inn í landið með hjálpar- gögn. Hjálparliðar hafa lýst áhyggjum sínum af því að her- menn sinni störfum þeirra. Stuttar fréttir Kanar og Bretar þrjótarnir David Blunkett, innanrikisráð- herra Bretlands og einn helsti framá- maður Verka- mannaflokksins, sagði í viðtali við BBC sjónvarpið í nótt að litið væri á Breta og Bandaríkjamenn sem þrjótana í írak. Það myndi þó ekki standa lengi. N-Kórea skýtur tlugskeyti Norður-Kóreumenn skutu skammdrægu flugskeyti út í Gulahaf í morgun, að sögn jap- anskra embættismanna. Flugrán á Kúbu Maður vopnaður handsprengj- um rændi flugvél á Kúbu í gær- kvöld og skipaði flugmanninum að fljúga til Bandaríkjanna. Vélin þurfti þó að lenda í Havana vegna eldsneytisskorts. Veiran á tleygiterð Heilbrigðisyfirvöld í Hong Kong kanna nú hvers vegna veira sem veldur banvænu af- brigði lungnabólgu fór eins og eldur í sinu um fjölbýlishús. Veiran breiðist hratt út og tugir nýrra tilfella hafa meðal annars komið upp I Kanada. Stríðið gengur bara vel George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að inn- rásarliðinu í írak hefði miðað vel á þessum fyrstu dögum stríðsins og hann ítrekaði að ætlunin væri að frelsa ibúa íraks undan ára- tugalangri kúgun og áþján af völdum Saddams Husseins. Arabaríki vilja tund hjá SÞ Sendiherrar arabaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum ákváðu í gær að reyna að fá boðað til neyðarfundar Allsherjarþings SÞ í baráttu sinni fyrir þvi að stöðva stríðið í írak þegar í stað. Arnett rekinn og ráðinn Bandaríski sjón- varpsfréttamaður- inn Peter Amett var rekinn frá NBC-sjónvarps- stöðinni fyrir að segja í viðtali við iraska sjónvarpið að stríðið hefði gengið illa. Breska blaðið Daily Mirror, sem er á móti stríðinu, réð hann þá til sín. Viil nánara samband við ESB Sambandsflokkurinn í Færeyj- um ákvað á landsfundi um helg- ina að kanna hvort ekki sé hægt að koma á nánara sambandi við Evrópusambandið en nú er. Leitað á blaðamönnum Ákveðið hefur verið að leita á blaðamönnum sem koma á viku- legan fund með forsætisráðherra Danmerkur í kjölfar þess að and- stæðingar Íraksstríðsins skvettu á hann rauöri málningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.