Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2003, Blaðsíða 19
19 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 x>v Dagur Á síðustu árum hafa nýir húsbændur í Ný- listasafninu unnið firnagott starf við úttektir á lífsstarfi nokkurra áhrifamikilla einstak- linga sem allir hafa lifað lifmu á skjön við svokaliaða góða siði, um leið og þeir hafa ögrað íslensku menningarsamfélagi með hátt- erni sínu og sköpunarverkum. Þeir einstak- lingar sem hér um ræðir, Megas, Róska og nú síðast Dagur Sigurðarson, voru - og eru - þekktir fyrir ríkulegar eðlisgáfur, róttækar skoðanir, erfiða baráttu við ýmis ávanabind- andi efni og bullandi fjölhæfni. Megas er magnaður textahöfundur og músíkant, auk þess sem hann á að baki myndlistamám, Róska var myndlistarmaður, ljósmyndari og kvikmyndaleikstjóri, og Dagur orti og málaði myndir, auk þess sem hann var „performer" af Guðs náð. Myndlist________________ Að vísu hafa sýningarnar i Nýló komið eðl- isþáttum, viðhorfum og list þessara lista- manna misjafnlega vel til skila. Best heppnuð var tvímælalaust sýningin á ævistarfi Rósku, enda er þar e.t.v. úr mestu að moða fyrir aug- að. En þegar upp er staðið er helsti ávinning- urinn af þessum sýningum bækurnar, eða „útvíkkaðar sýningarskrárnar", sem þeir Hjálmar Sveinsson og Geir Svansson hafa tek- ið saman um hvern og einn, ailt í senn skemmtilegar aflestrar, upplýsandi og vel hannaðar. Margradda bók þeirra félaga um Dag er þar engin undantekning. Litríkar og hispurslausar En það besta sem hægt er að segja um sjálfa sýninguna á ævistarfi Dags sem sett hefur verið upp í Nýló er að hún er dáldið eins og „sólskinsfíflið" sjálft á ögurstundum, óskipu- leg, hrá og stuttaraleg. Að sönnu þurfa textar Dags ekki sérstaka umönnun eða viðhafnar- umgjarðir, þeir eru jú aðgengilegir á bókum og plakötum, en það hefði verið akkur í því að fá skipulegri samantekt og upphengingu á því myndefni sem hann lét eftir sig. Þeir eru tii sem hugnast ekki að fjallað sé sérstaklega um myndir Dags, það sé að „búta manninn niður“, svo vitnað sé í einn af nán- ustu vinum hans. Út af fyrir sig má taka und- ir það að þær eru að sumu leyti náskyldar ljóðunum, eru ámóta frásagnarlegar, litríkar og hispurslausar. Samt er engu líkara en rit- list og myndlist Dags spretti ekki af sömu rót- um. í ljóðum hans örlar víða á áhrifum frá ex- pressjónískum skáldskap Célans (merkilegt hve mörg íslensk skáld lásu „Totenfuge" á sjötta áratugnum), súrrealisma rómönsku skáldanna, Neruda, Vallejo og fleiri, og yfír- lýsingagleði „beaf‘-skáldanna amerísku. En ef marka má það úrval mynda sem hér er uppi- hangandi, beindist myndlistaráhugi Dags nær einvörðungu að þýsku og austurrísku frum- expressjónistunum, umfram allt að Emil Nolde. Þá er það fyrst og fremst frumstæð munúðin í verkum Noldes sem heillar Dag fremur en trúarlegt algleymið sem stundum gegnsýrir þau. Þó er erótískt innlegg í anda Egons Schiele að finna á einum stað á sýning- unni. Og grafík Kathe Kollwitz er án efa kveikjan að nokkrum af ádeilumyndum Dags. Kannski var gamli þýski expressjónisminn einfaldlega opinskáasta myndlist sem Dagur þekkti. Kjarnorkuvá og kalt stríð Það kemur fram í bók þeirra Hjálmars og Geirs að hann hafði ímugust á afstraktlist Septembermanna, taldi hana vera fóður fyrir innvígðar sálir. Ekki hugnaðist honum heldur myndlist andstæðinganna, SÚM-ara, a.m.k. ekki meðan þeir döðruðu við Popplist, sem var í hans huga næsti bær við auglýsinga- framleiðslu. Átrúnaðargoði SÚM-ara, Dieter Rot, sendi hann skens í blaði og nefndi hann „Drit-Erót“, sennilega vegna þess að í viðtali í Birtingi hafði hann áréttað sjálfstæði, þ.e. hlutleysi, listarinnar. Mig minnir að það hafi verið eitthvert „beat“-skáldið sem breytti slag- orði módernista: „Art should not mean but be“ í „Art should be mean“. Dagur hefði ugg- laust tekið undir þetta. Listsögulega séð er sennilega einna mestur fengur í tréristunum sem Dagur gerði á árun- um 1961-63. Þótt þær séu að ýmsu leyti við- vaningslegar, enda listamaðurinn sjálflærður og ekki tiltakanlega vandvirkur, þá eru þær samt markverður vitnisburður um viðhorf ís- lenskra myndlistarmanna til atómsprengj- unnar á þessum umbrotatíma. Ef ekki kæmu til þessar myndir, og e.t.v. 2-3 grafíkmyndir eftir Braga Ásgeirsson, mætti halda að ís- lenskir myndlistarmenn hefðu upp til hópa verið áhugalausir um kjarnorkuvána og kalda stríðið. Áðalsteinn Ingólfsson Sýningin Hlutabréf í sólarlaginu stendurtil 7. apríl. Ný- listasafnið er opiö miðv. - sun. kl. 14-18. Einar Már Jónsson les umsagnir franskra blaöa um Hafiö: Aðalatriðið fer fram hjá þeim Kvikmyndin Hafið eftir Baltasar Kormák sem var frum- sýnd í París á miðvikudaginn var undir heitinu The Sea hefur feng- ið misjafna dóma í frönskum blöðum en þó yfirleitt nokkuð góða. Margir gagnrýnendur bera myndina saman við dönsku kvik- myndina Festen eða Veisluna og þeir sem eru neikvæðir sjá alls ekkert annað: „Aðalvandamál The Sea er að vera óþarft tilbrigði við mynd sem sló í gegn, Festen eftir Thomas Vinterberg. ísland í staðinn fyrir Danmörku, fyrir utan það eru öll atriðin til stað- ar,“ sagði til dæmis gagnrýnandi Le Monde. Ekki vita gagnrýnendur að upprunalega leikverkið eftir Ólaf Hauk Símonarson er um áratug eldra en Festen, en flestir gagn- rýnendur sjá þó mikilvægan mun á verkunum tveimur: „Baltasar Kormákur tekur á efninu með miklu og kaldranalegu háði sem lyfir myndinni upp,“ þetta verður jafnvel gagnrýnandi Le Monde að viðurkenna. Menn leggja einnig áherslu á hvað kvikmyndatakan sé góð. Fransmenn skilja myndina á sinn hátt. í augum margra er að- alpersónan sú sem leikin er af Hilmi Snæ Guðnasyni, Ágúst, og finnst þá gagnrýnendum myndin fjalla um ferð hans og franskrar kærustu hans frá París til íslands og dvöl þeirra þar. Sumir líta svo á að franska kærastan sé eina vonarglæta myndarinnar. Yfirleitt er eins og raunveru- legt efni myndarinnar hafi fariö fram hjá þeim. Einar Már Jónsson, París Gunnar Eyjólfsson í Hafinu Frakkar átta sig ekki á um hvaö Hafíö snýst. ___________________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is Louisa í Hafnarborg í Hafnarborg, Menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, stendur nú yfir sýningin „Úr vinnustofu Louisu Matthiasdóttur" þar sem getur að líta áður ósýnd verk listakonunnar Lou- isu Matthíasdóttur. Eins og yfirskrift- in ber með sér koma málverkin og vatnslitamyndirnar á sýningunni úr vinnustofu listakonunnar á 16. stræti í New York þar sem fjölskyldan bjó lengst af og einnig vinnustofu hennar hér heima í Reykjavík. Louisa fæddist 1917. Hún var við nám í Kaupmannahöfn og París og lét ung að sér kveða í hópi framúrstefnu- manna íslenskrar myndlistar. Hún flutti til New York árið 1942 þar sem hún starfaði og bjó þar til hún lést árið 2000. Oft dvaldi hún þó hér heima um tíma, og bæði hér og fjarri íslandi málaði hún einstök málverk sem endurspegla huga hennar til landsins og náttúru þess. Verkin á sýningunni nú eru einmitt af þeim toga. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 14. apríl. Gyöjuljóö og -sögur Tryggvi Líndal, þjóðfélagsfræðingur og skáld, gaf nýlega út sjöundu bók sína. Gyðjuljóð og -sögur, sem tileinkuð er minningu goðsagna- skáldsins Roberts Graves. Þar birtir hann nokkur frum- samin ljóð, meðal annars „Til bekkjar- systur“: Þegar ég varö nógu stór til aó skynja fullkominn hring gekkst þú inní hann og ég varö sem ölvaður; og seinna sem kúgaöur. Og svo liöu þrúgandi árin og viö aftur uppi ein dansandi húladans á skólamótum: Viö vefjum hvort annað húlahringjum unglingsáranna ófullkomnu og pössum uppá hvort annað; viökvœmar rœtur bernskunnar. Nokkru fleiri ljóð eru þýdd, þar á meðal „Úr formála Kantaraborgar- sagna“ eftir Chauser og ljóö eftir Cummings, Emily Dickinson, Dylan Thomas, Shakespeare og T.S. Eliot. Loks eru þrjár frumsamdar smásögur. Bókaútgáfan Valtýr gefur út. Efnahagssamvinna í sögulegu samhengi ICELAND AND Út er komin hjá Al- menna bókafélaginu bókin Iceland and European Development eftir Einar Benedikts- son, fyrrum sendi- herra. Þar er fjallað um þróun í samvinnu rikja í Evrópu sem hófst á dögum Marshall-aðstoðarinnar. Rakin eru fyrstu skrefin til viöskipta- samvinnu í Evrópu á sjötta áratugn- um og lýst aðdragandanum að aðild ís- lands að EFTA og þeim fríverslunar- samningi við Efnahagsbandalag Evr- ópu sem þeirri aðild fylgdi. ítarlega er fjallað um gerð EES-samningsins og um samstarfið við Evrópusambandið á síðustu árum. Sömuleiðis er gerð grein fyrir hagþróuninni á íslandi og í viðskipataumhverfi okkar sem og sam- starfinu í varnar- og öryggismálum. Bókin bætir úr þörf á upplýsinga- efni um þessi mál fyrir erlenda lesend- ur en á einnig erindi til íslenskra áhugamanna um Evrópumál, sem og til námsfólks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.