Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Side 6
6 Fréttir FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003 H>V Ríkissjón- varpið mun ekki veita upp- lýsingar um út- sendingarkostn- að á kosninga- sjónvarpi um gervihnött. Ákveðið hefur Bogl verið að senda Ágústsson. kosningavöku Sjónvarpsins og lokaumræður stjórnmálaflokk- anna út um gervitungl og munu útsendingarnar nást um Norður- Evrópu. í fréttum hefur komið fram að talið er að allt að 20 þúsund manns muni geta notið með þeim hætti kosningasjónvarpsins ef þeir hafa móttökubúnað fyrir gervihnattasendingar. Allmörg skip eru búin slíkum búnaði. Einnig verða lokaumræður stjórnmálaflokka 9. maí sendar út með sama hætti. Sent verður út Samkvæmt upplýsingum DV er líklegt að leigan vegna afnota af gervihnettinum kosti 500 til 600 þúsund krónur til móttöku á sendingum, en sendingar héðan kunna að vera mun dýrari. Allt eins kann Telenor að vera að gefa RÚV sendingar til þess að tryggja frekari viðskipti. Geta má þess að móttaka á einum knattspyrnuleik kostar um 200 þúsund krónur í dag. Rekstrartap Ríkisútvarpsins á liðnu ári nam alls 188 milljónum króna, þar af var tap Hljóðvarps 81 mHljón og Sjónvarpsins 107 miUjónir króna. Árið á undan varð 337 milljóna króna tap á rekstrinum. Heildartap stofnun- arinnar á síðustu tveimur árum nemur því alls 525 milljónum króna. Eigið fé í lok liðins árs var 395 milljónir króna og haldi tap- rekstur áfram verður eigið fé stofnunarinnar uppurið á næsta ári. -GG Vetnisvæðingin hafin: Vetnisstöð opnuö við Vesturlandsveg Tímamót urðu í orkumálum á sumardaginn fyrsta er iðnaðar- ráðherra, Valgerður Sverrisdótt- ir, dældi eldsneyti á vetnisknúna bifreið, þá fyrstu sem ekið er um götur hérlendis knúinni slíkri orku, og jafnframt sú fyrsta í heiminum. Vetnið er framleitt á staðnum með rafgreiningu, en stöðin er sú fyrsta sinnar tegund- ar í heiminum, staðsett við Sel- ectstöðina við Vesturlandsveg í Reykjavík. Opnun stöðvarinnar er hluti svokallaðs ECTORS- strætisvagnaverkefnis, sem Nýorka er í forsvari fyrir, og er verkefnið styrkt af framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins. Verk- eftiinu var hleypt af stokkunum til að kanna kosti vetnis sem vist- væns orkugjafa framtíðarinnar. „Opnun þessar vetnisstöðvar er söguleg stund, og eitt skref i átt til vetnissamfélags hérlendis sem og á heimsvísu.,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra. -GG Opinber stofnun? Forráöamenn RÚV kjósa aó fara leynt meö kostnaö vegna útsendinga á kosningasjónvarpi um gervihnött. um gervitunglið Thor-II sem norska fjarskiptafyrirtækið Tel- enor á. Sendingarnar eru staf- rænar á tíðninni 11.247 Ghz. Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs RÚV, segir að samn- ingurinn nái einnig til Landssím- ans en samningurinn við Telenor sé viðskiptaleyndarmál og því geti hann ekki gefið upp kostnað vegna þessara útsendinga vegna alþingiskosninganna 10. maí nk. Vetniö streymir Valgeröur Sverrisdóttir iönaöarráöherra dælir vetni á fyrsta bílinn hérlendis sem nýtir slíkan orkugjafa. Þar meö hófst vetnisvæöingin hérlendis. DV-MYND HARI Bogi Ágústsson um kosningasjónvarp RÚV um gervihnött: KostnaOur viðskiptaleyndarmál Alþíngiskosningar 10. maí 2003 Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður vegna alþingiskosninga 10. maí nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 30. apríl nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á að kjörskrámar verður einnig að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is. Kjósendur em hvattir til þess að kyxma sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrámar skal beina til borgarráðs, sendist skrifstofu borgarstjómar, Ráðhúsi Reykjavíkur. Borgarstjórinn í Reykjavík Eiðistorg 13-15 Til sölu/leigu Atvinnuhúsnæði á Eiðistorgi 13-15 (áður Rauða Ljónið veitingahús), matshl. 01-0003, 01-0005 og 01-0002, verða til sýnis laugar- daginn 26. apríl og sunnudaginn 27. apríl nk. frá kl. 13-16. Allar nánari upplýsingar gefnar á staðnum. Glæsilegur hópur rithöfunda - sækir Bókmenntahátíð í Reykjavík í september Á þriðja tug rithöfunda frá 17 löndum hefur þegið boð á Bók- menntahátíð í Reykjavík sem haldin verður í Norræna húsinu og Iðnó 7. -13. september næst- komandi. Þetta er sjötta Bók- menntahátíðin en sú fyrsta var haldin 1985. Meginmarkmið hennar er að kynna íslending- um brot af því besta sem býðst í alþjóðlegum bókmenntum nú um stundir og efla um leið kynningu íslenskra bókmennta erlendis. Á hinum glæsilega gestalista eru meðal annarra José Sara- mago sem hlaut Bókmennta- verðlaun Nóbels áriö 1998, Yann Martel sem hlaut Booker-verð- launin í fyrra, breski rithöfund- urinn Hanif Kureishi og vinsæli sænski spennusagnahöfundur- inn Henning Mankell. Aðrir höfundar eru Ingvar Ambjornsen, Boris Akúnin, Murray Bail, Emmanuel Carrére, Andres Ehin, Kristiina Ehin, Per Olov Enquist, David Grossman, Judith Hermann, Bill Holm, Haruki Murakami, Mikael Niemi, Arto Paasilinna, Nicholas Shakespeare, Johanna Sinisalo, Jan Sonnergaard, José Carlos Somoza og Peter Zilahy. Á annan tug íslenskra rithöf- unda tekur þátt í hátíðinni auk nokkurra erlendra forleggjara. Rithöfundum og bókaútgefend- um gefst þar með kostur á að hittast og bera saman bækur sínar jafnframt því sem íslensk- ar bókmenntir og útgáfa verða í brennidepli vikuna sem hátíðin stendur yfir. Bókmenntahátíðin í Reykja- vík er sem fyrr haldin í sam- starfi við Norræna húsið. Hún nýtur styrkja frá Reykjavíkur- borg, Norræna menningarsjóðn- um, menntamálaráðuneytinu og Félagi íslenskra bókaútefenda. Undirbúningsnefnd skipa Einar Kárason, Friðrik Rafnsson, Hall- dór Guðmundsson, Pétur Már Ólafsson, Sigurður Valgeirsson, Thor Vilhjálmsson, Örnólfur Thorsson og fyrir hönd Nor- ræna hússins: Gro Kraft, Andr- ea Jóhannsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir. Nýja Nordica hótelið: Ráðstefnur bókaðar allt til 2007 Hinu nýja Nordica Hotel við Suöurlandsbraut, sem áður hét Hótel Esja, hefur verið mjög vel tekið síðan það var opnað í byrjun apríl og búið að bóka mikinn fjölda ráðstefna langt fram í tímann. Kári Kárason, framkvæmdastjóri Flugleiðahót- ela hf, segir mikinn fjölda af er- lendum ráðstefnum hafa verið bókaðan á hótelinu. „Það byrjar í maí og júní en segja má að stærri ráðstefnur byrji mest í haust. Við erum með bókaðar ráðstefnur allt til ársins 2007.“ Nordica Hotel er stærsta hótel landsins með 248 herbergi og sérhannað fyrir ráðstefnuhald. „Við erum vel bókuð fyrir venjulega ferðamenn í sumar, bæði á Nordica og öðrum Flug- leiðahóteliun og t.d. vel bókað á Hótel Loftleiðir í Reykjavík. All- ir í ferðaþjónustunni óttast þó SARS lungnabólguna og það eykur auðvitað óvissuna. Bók- unarstaðan er engu að síður mjög góð. Ef þetta verður að einhverjum faraldri, þá getur það auðvitað breyst skyndilega." -HKr. Ökumaöur sektaöur: Hunsaði stöðvunar- skyldu með Ijós- lausa kerru Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í tíu þúsund króna sekt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekki virt stöðvunar- skyldu á gatnamótum Suður- landsvegar og Breiðholtsbraut- ar og dregið kerru sem var án ljósabúnaðar. Maðurinn viður- kenndi að hafa dregið kerruna án ljósabúnaðar en kvaðst hins vegar hafa sinnt stöðvunar- skyldunni. Dómarinn taldi þó sannað með framburði vitna að hann hefði ekki virt stöðvunar- skylduna. Auk sektarinnar var maðurinn látinn greiða allan sakarkostnað, þar með taldar 35 þúsund krónur í málsvarnar- laun til verjanda síns. -EKÁ íslenskir kirsuberjatómatar Uppskera er hafin á íslensk- um kirsjuberjatómötum og eru þeir komnir í verslanir um land allt. Mikil söluaukning hefur verið í kirsuberjatómötum að undanfórnu og jókst sala þeirra um 69 prósent á síðasta ári. Kirsuberjatómatar eru sætari á bragðið en venjulegir tómatar og eru vinsælir í salöt og sem meðlæti með hvers konar kjöti og fiski. Tómatarnir eru ræktaðir á garðyrkjustöðinni Brún við Flúðir. Birgir Thorsteinsson garðyrkjubóndi segir uppsker- una góða og að íslenskir kirsu- berjatómatar verði á markaðn- um i allt sumar og fram í lok október. Úrvalið af íslensku grænmeti í verslunum fer vaxandi þessar vikurnar með hækkandi sól. Nú má fá íslenska tómata, agúrkur, græna papriku, rófur og sveppi auk kirsuberjatómatanna. Þá eru íslenskar kartöflur á mark- aði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.