Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2003, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003 Sport Haukar-KA 33-27 2-0, 4-4, 6-7, 10-9, 11-14, (13-15). 13-16, 19-16, 21-18, 25-19, 26-22, 31-25, 33-27. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Þorkell Magnús- son 8 (9), Halldór Ingólfsson 8/3 (14/5), Robertas Pauzoulis 5 (12), Aron Kristjáns- son 4 (5), Jón Karl Björnsson 3/3 (4/3), Ás- geir Örn Hallgrímsson 2 (7), Andri Stefan 1 (1), Þórir Ólafsson 1 (2), Vignir Svavars- son 1 (2), Aliaksandr Shamkuts (1). Mörk úr hradaupphlaupum: 8 (Þorkell 5, Andri, Aron, Halldór). Vítanýting: Skoraö úr 6 af 8. Fiskud víti: Þorkell 3, Aron 3, Pauzoulis, Ásgeir öm. Varin skot/viti (skot á sig): Bjami Frostason 8 (22/2, hélt, 35%), Birkir ívar Guömundsson 10/1 (23/2, hélt 2, 45%). Brottvisanir: 18 mínútur, Aron rautt 3x2. Dómarar (1-10): Anton Gylfi Páls- son og Hlynur Leifsson (7). Gœói leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 1200. Maöur Þorkell Magnússon, Haukum KA: Mörk/viti (skot/viti): Arnór Atlason 5/2 (13/2), Andrius Stelmokas 4 (7), Jónatan Magnússon 4 (8), Baldvin Þorsteinsson 4/1 (8/2), Einar Logi Friðjónsson 4 (11), Hilmar Stefánsson 3 (5), Þorvaldur Þor- valdsson 2 (2), Ingólfur Axelsson 1 (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Baldvin, Þorvaldur, Stelmokas, Jónatan). Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Fiskuö víti: Stelmokas 3, Einar Logi. Varin skot/viti (skot á sig): Egidijus Petkevicius 11 (36/3, hélt 5, 29%), Hans Hreinsson 5/2 (13/5, 37%). Brottvisanir: 8 mínútur. lilboð á leiðinni frá Dusseldorf Handknattleiks- maðurinn Alex- ander Pettersons, sem leikið hefur með Gróttu/KR sl. ár, stóð sig vel á æfingum hjá þýska liðinu Díisseldorf en þar dvaldi hann i síðustu viku. Von er á tilboði frá þýska liðinu í leikmanninn í dag. Magdeburg gerði áður tii- boð í Pettersons en þegar á reyndi var það ekki nógu gott og ákvað hann í kjölfarið að ganga ekki raðir félagsins. Díisseldorf berst fyrir sæti í úrvalsdeildinni og er þegar farið að líta í kringum sig eftir leik- mönnum fyrir næsta tímabO. -JKS Mileta reyndist of dýn fypir ÍA Ekkert verður af því að Júgóslavinn Momir MOeta leiki með Skagamönn- um í úrvalsdeOd- inni í knattspymu í sumar. Stjóm knattspymudeOd- arinnar átti í við- ræðum við leikmanninn yfir páskana en hann reyndist of dýr og var viðræðum við haxm slitið. MOeta er ekki ókunnugur hér á landi en hann lék með Eyja- mönnum fyrir tveimur árum sið- an. „Hann reyndist of dýr þegar tO kastanna kom en það er ekki æUun okkar að fara út í ævin- týri af neinu tagi. Þaö er ekkert launungarmál að við erum að leita að miðjumanni og munum áfram líta í kringum okkur að leikmanni sem hentar liðinu. Það mun bara koma í ljós hvort sú leit ber árangur," sagði Gunn- ar Sigurðsson, formaður Knatt- spymufélags ÍA, í samtali við DV Halldór Ingólfsson var drjúgur fyrir Haukana eins og fyrri daginn. Hann sést hér reyna skot og andartaki síðar lá boltinn í netinu en ails skoraöi hann átta mörk í leiknum. KA-menn fá tækifæri til aö svara fyrir sig þegar liöin mætast ööru sinni á Akureyri á sunnudag. DV-mynd Hari Undanúrslit í Esso-deild karla í handknattleik: Haukar bypja betur - lögöu KA í fyrsta leiknum aö Ásvöllum í gærkvöld Haukar sigmðu KA í fyrsta eða fyrri leik liðanna í undanúrslitum Esso-deOdarinnar í handknattleik í gærkvöld á ÁsvöUum. Leikurinn var góð skemmtun og það er óhætt aö segja að hann hafi verið kaflaskiptur. Jafnt var á með liðunum framan af fyrri háifleik en Haukamir þó með smá-framkvæði. KA-mönnum tókst að komast yfir í fyrsta sinn, 6-7, þegar hálfleikurinn var rétt tæplega hálfnaður. Liðið hélt síðan áfram á sömu braut og náöi mest þriggja marka forskoti. KA-menn, drifnir áfram af Jónatan Magnússyni, spOuðu frábæra 5-1 vöm í fyrri hálfleik og voru virkUega grimmir, ákveðnir og ferskir. Haukar hikandi í byrjun Haukamir vora hins vegar að spOa líkt og í fyrsta leiknum á móti FTam í átta liða úrslitunum - aUs ekki tUbúnir og litla leikgleði var að sjá hjá þeim. 5-1 vöm liðsins var ekki að virka og sóknarleikurinn var fálmkenndur. Haukamir nýttu hins vegar leikhléið tU fullnustu og það var eins og aUt annað lið væri mætt tO leiks í seinni hálfleik. Vamarleikurinn var færður aftur í hina klassísku 6-0 vöm og þá var Aliaksandr Shamkuts mættur þar tU leiks og fékk það hlutskipti að stöðva Einar Loga Friðjónsson sem var Haukunum erfiður ljár í þúfu í fyrri hálfleik. Shamkuts kann þetta allt og lítið sást tU Einars í síöari hálfieik. KA-menn, sem skoruöu fyrsta mark síðari hálfleiks, fóru að hiksta í sama hlutfalli og vöm Haukanna styrktist og þeir einfaldlega misstu dampinn og Haukamir vora ekki lengi að nýta sér það. Þegar rétt um tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik voru Haukamir búnir að skora sex mörk í röð og níu sóknir norðanmanna í röð farið í vaskinn. Haukarnir héldu síðan uppteknum hætti og léku við hvem sinn fingur og tU að mynda skoruðu þeir tvö mörk gegn tveimur mörkum gestanna, tveimur leikmönnum færri - það segir sitt. Leikmenn KA reyndu hvað þeir gátu og náðu að minnka muninn í þijú mörk, 26-25, þegar fimm mínútur og tuttugu sekúndur vora tO leiksloka en Haukamir gáfu þá einfaldlega aftur í og tryggðu sér örugglega sigurinn. Leikur Haukanna var eins og svart og hvítt - fyrri hálfleikur slakur - sá seinni frábær. Vörnin réö úrslitum Eins og oftast í úrslitakeppninni var það vamarleikurinn sem réð úrslitum - hitt fylgir aOt i kjölfarið. ÞorkeU Magnússon lék best allra á veUinum, ótrúlega traustur og skynsamur leikmaður sem leikur oftast best þegar mest á reynir. Aron Kristjánsson lék vel en var óttalegur klaufi að næla sér í fjögurra mínútna brottvísun í fyrri háUleik sem gerði leik hans allan erfiðari. Robertas Pauzuolis var ógnandi og þeir Bjami Frostason og Birkir ívar Guðmundsson voru traustir í markinu. Hjá KA vora þeir Jónatan Magnússon, Andrius Stelmokas og Baldvin Þorsteinsson ágætir. Einar Logi Friðjónsson var mjög góður i fyrri hálfleik og Amór Atlason átti spretti. Áttum að eiga svariö Jóhannes Bjamason, þjálfari KA, var þungur á brún þegar DV-Sport náði í skottið á honum rétt eftir leik: „Þetta leit vel út hjá okkur eftir fyrri hálfleikinn og það var góð stemning í strákunum. Þegar í seinni hálfleik kom breyttu þeir vörninni eins og við bjuggumst við og vorum búnir að undirbúa okkur fyrir. Einhverra hluta vegna réðum við alls ekki við þessa vöm og það kom hik á menn og ég bara skil ekki af hverju það gerðist - við áttum að eiga svar við þessari vöm en áttum ekki. Við komum hins vegar tilbúnari til leiks á sunnudaginn - bætum leik okkar og vinnum,“ sagði Jóhannes. -SMS Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka: Fóp að kannast víð mína menn Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var, eins og gefur að skilja, öllu léttari á brún en Jó- hannes Bjarnason, þjálfari KA. Viggó hafði þetta að segja í samtali við DV-Sport í leikslok: ,,Við fundum ekki taktinn nægilega vel í fyrri hálfleik og menn voru ekki alveg tilbúnir í slaginn. Við ákváðum hins vegar að breyta ekki vörninni í 6-0 fyrr en í síðari hálfleik og það virkaði svona líka vel. Leikmenn mættu tilbúnir og börðust vel og þeir áttu hrein- lega ekkert svar við þessari vörn okkar. Við sáum fljótlega í seinni hálfleik að hik kom á þá og nýttum okkur það vel. Sókn- arleikurinn varð allt annar og ég fór að kannast við mína menn,“ sagði Viggó. Hann lauk viðtalinu með þessum orðum. „Við mætum grimmir í næsta leik og ætlum okkur að klára þessa rimmu á Akur- eyri,“ sagði Viggó. -SMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.