Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2003, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003
I>V
9
Fréttir
Hálf-ekkillinn
syrgir horfinn
persónuleika
- segir Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur
Sorg á efri árum er umræðuefni
málþings í Bústaöakirkju á morgun,
fimmtudag, kl. 16-19. Það er ætlað al-
menningi. Meðal þeirra sem þar
leggja til eftii er Berglind Magnús-
dóttir sálfræðingur. Erindi hennar
heitir „Hálf-ekkjur. Hálf-ekklar.“ DV
hitti hana á vinnustað sínum í vik-
unni og spurði hana hvað hún ætti
við.
„í þessari umræðu er átt við maka
þeirra sem eru með heilabilunarsjúk-
dóma, til dæmis alzheimer. Þetta fólk
er að missa maka sinn hægt og hægt
og fer í gegnum sorgarferli en gerir
sér ekki alltaf grein fyrir því sjálft.
Það upplifir frekar reiði sem er oft
fylgifiskur sorgarinnar. Þegar fólk
missir makann í gröfina þá veit það
að slæma líðan sína má rekja til þess.
Það er einfaldlega lika að syrgja þeg-
ar makinn fiarlægist það smátt og
smátt og slíkar tilfinningar eru full-
komlega eðlilegar," segir hún.
Fær ekki næga samúð
Berglind starfar hjá Sálfræðiþjón-
ustu LSH, öldrunarsviði - nánar til-
tekið á Landakoti. Þar fær hún til sín
aðstandendur þeirra sem þjást af
heilabilun, bæði í einkaviðtöl og
stuðningshópa sem hún hefúr skipu-
lagt ásamt félagsráðgjafa. „Fólk kem-
ur til okkar í 6-7 skipti. Þar ræðum
við álagsþætti sem oft hijá það, dep-
urð, kvíða, einmanaleika, pirring,
reiði og sektarkennd, plús langvar-
andi þreytu. Þetta er fyrirbyggjandi
starf því ef við getum hjálpað að-
standandanum náum við oft að fresta
því að sjúklingurinn fari inn á stofn-
un og að makinn verði hreinlega
sjálfur sjúklingur,“ segir Berglind.
Hún segir skilning á líðan þessa fólks
ekki nægan í samfélaginu. Það fái
ekki þá samúð sem það eigi skilið og
þarfnist. Margir hugsi „Hva, þetta er
bara eðlilegt. Maðurinn er orðinn
fullorðinn og hún mundi hvort sem
er missa hann fljótlega."
Húmorínn farínn
Berglind segir sorgina oft mesta
hjá makanum á fyrri stigum sjúk-
DV-MYND SIG. JOKULL
Sálfræðingurinn
„Ef viö getum hjálpað aöstandandanum náum viö oft aö fresta því aö sjúklingurinn fari inn á stofnun og aö makinn
veröi hreinlega sjálfur sjúklingur, “ segir Berglind.
dómsins og lýsir því nánar. „Per-
sónuleiki sjúklingsins breytist. Mak-
inn er að missa þessa nánd sem hann
hefur búið við, innileika og blíðu.
Hann þarf þess í stað að sinna frum-
þörfum sjúklings, eins og klósettferð-
um, og gæta þess að hann fari sér
ekki að voða. Þetta er mikið álag -
annars vegar að upplifa allar tilfinn-
ingamar sem fylgja sorginni og lika
að standa í umönnun, kynnast þess-
um nýja einstaklingi og takast á við
nýja hegðun hans. Hugsum okkur
hjónin Jón og Gunnu. Jón var ljúfur
og þolinmóður og mikið snyrtimenni
en er nú pirraður og uppstökkur og
sinnulaus um útlitið. Húmorinn er
farinn. Fræðimaðurinn lítur ekki í
bók. Um leið og verið er að syrgja
þennan horftia persónuleika þaif að
aðlagast þeim nýja og mæta áður
óþekktum einkennum."
Efast um eigín dómgreind
„Þessi missir er allt öðruvísi en
dauðinn," segir Berglind og heldur
áfram: „Hann er ekki viðurkennd-
ur af því makinn er til staðar og ut-
anaðkomandi afneita oft einkenn-
unum. „Hva, hann talaði nú við
mig í símann í gær og var svo
hress,“ segir það. Þá fer makinn að
efast um eigin dómgreind og hugsa:
Það er líklega bara ég sem' er að
verða eitthvað skrýtinn. Hann er i
sorgarástandi og honum hættir
mjög til aö einangrast. Tilgangur-
inn með stuðningshópunum er sá
að fólk deili reynslunni og læri að
takast á við vandann. Finni að það
sé skilningur fyrir líðan þess. En
við erum ekki bara að draga upp
sorgina heldur líka að hjálpa fólki
að sjá hluti sem það getur átt sam-
eiginlega með makanum, þrátt fyr-
ir allt.
Það eru einir 130 einstaklingar
sem hafa farið í gegnum stuðnings-
hópa hjá okkur og sumir halda
áfram að hittast. Þannig berum við
ábyrgð á einhverri kaffidrykkju á
Hótel Borg og erum afskaplega
ánægð með það.“
-Gun.
Lækningamiðill í herferð á íslandi í óþökk landlæknis:
Haltip sagöir ganga, dauf-
ir heyna og blindir fá sýn
Sigurður
Guðmundsson.
Gunnar
Þorsteinsson.
Svokallaður
I lækningamiðill,
Charles Ndifon, var
með stórsamkomu í
Austurbæ í gær-
kvöld á vegum
Krossins og er þetta
í þriðja sinn sem
I hann er með „lækn-
ingaherferð" hér á
landi eins og það er
kallað í auglýsingu
í fiölmiðlum. Þar er
sagt í fyrirsögn með
[upphrópunum:
Haltir ganga! -
Daufir heyra! -
Blindir fá sýn!
| Haldnar verða sex
samkomur í Aust-
urbæ og fiórar
morgunsamkomur í Krossinum. í
febrúar gagnrýndi landlæknir harð-
lega samkomuhald þessa manns og
kallaði þær lýðskrum. Engin lög hér
á landi banna þó slíkt samkomu-
hald.
í febrúar var Charles Ndifon með
samkomur í Vetrargarðinum í
Smáralind og fullyrt er að þar hafi
fiöldi manns læknast. Þá er einnig
sagt í heilsíðuauglýsingu í Morgun-
blaðinu á mánudag að staðfestar
hafi verið margar lækningar miðils-
ins annars staðar á Norðurlöndum.
íslendingar virðast trúa staðfastlega
á kraftaverkamátt miðla á borð við
Charles Ndifon ef marka má aðsókn
að samkomum hans.
Lýðskrum af verstu tegund
Sigurður Guðmundsson land-
læknir sendi Gunnari Þorsteins-
syni, forstöðumanni Krossins,
Högna Valssyni, forstöðumanni
Vegarins, og Verði Leví Trausta-
syni, forstöðumanni Fíladelfíu, bréf
þann 6. febrúar vegna Charles Ndi-
fon. Þar er þaö harðlega átalið að
lofað sé lækningu á ýmsum mjög al-
varlegum sjúkdómum á borð við
krabbamein og alnæmi, svo að
dæmi séu nefnd. Til embættisins
hafi einnig borist ábendingar um að
sjúklingar hafi hætt töku nauðsyn-
legra lyfia eftir þessar samkomur og
hlotið af því heilsutjón. - „Öll loforð
eða heit um að unnt sé að lækna
sjúkdóma á borð við þá sem að ofan
voru nefndir á samkomum af þessu
tagi er einfaldlega lýðskrum af
verstu tegund. Þeir sem fyrir slíkum
falsloforðum standa hljóta því að
bera nokkra siðferðilega ábyrgð
gagnvart fólki í neyð vegna alvar-
legra sjúkdóma," sagði landlæknir
m.a. í bréfinu.
Guðfræði landlæknis er
vitlaus
Gunnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður í Krossinum, segir töluvert
af læknisfræðilega staðfestum lækn-
ingum Charles Ndifon fyrirliggjandi
í löndunum í kringum okkur. Hér
hafi fólk vitnað um slíkt en ekki
hafi reynst unnt að fylgja því eftir
til að fá það staðfest. Eigi að síður er
slíkt fullyrt í auglýsingunni. Slíkar
staðfestingar liggi þó fyrir um fiölda
atvika í Danmörku og annars staðar
á Norðurlöndunum.
- Hvað með gagnrýni landlæknis?
„Landlæknir er mikill sómamað-
ur og hans læknisfræði ágæt en
hans guðfræði er vitlaus."
- Fer það ekki alveg saman?
„Nei, og ég held að það sé eðli-
legra fyrir hann að haída sig við
læknisfræðina og láta okkur um
hitt.“
- Þið gefið þá ekki mikiö fyrir
þessa gagnrýni?
„Þessar yfirlýsingar landlæknis
um það að Guð lækni ekki menn eru
bara fáránlegar. Það er öll kristin
kirkja á íslandi hlessa á þessari yf-
irlýsingu og það er alveg sama hvar
í flokki menn standa."
- Hefur landlæknir farið fram á
að þið leggið fram læknisfræðilegar
sannanir?
„Hann hefur ekki farið fram á það
en hann getur fengið þær ef hann
vill. Ef hann nennir að kynna sér
málið þá get ég lagt á borðið haug af
staðfestum lækningum og krafta-
verkum," segir Gunnar Þorsteins-
son.
Samkvæmt upplýsingum frá
Charles Ndifon og Gunnar Þorsteinsson í Austurbæ í gærkvöld
Lækningamiöillinn er sagöur í herferö hér á landi til aö lækna íslendinga af
margs konar alvarlegum kvillum sem læknavísindin ráöa lítt eöa ekki viö.
Landlæknisembættinu í gær hafa
ekki verið lagðar fram neinar sann-
anir um kraftaverkalækningar
Charles Ndifon þrátt fyrir að eftir
því væri leitað.
-HKr.
■
AÐEINS
í DAG:
' i,’ I
McHamborgari/
McOstborgari
Listaverð:
159/179,- kr.
I
LYST
8888
Kringlan