Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2003, Síða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003
Menning_________________________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Siija Aöaisteinsdóttir silja@dv.is
Unnendur listdans fjöl-
menntu á afmœlissýningu ís-
lenska dansflokksins þann 8.
maí og áttu yndislega kvöld-
stund í Borgarleikhúsinu.
Sátu áhorfendur ýmist tárvot-
ir eða skellihlæjandi undir
upprifjunum dansaranna á
hápunktum sýninga frá und-
anförnum árum, allt frá broti
úr Afstand eftir Ed Wubbe frá
1986 og hinni ofurvinsœlu Ég
vil dansa við þig (1987) til
Through Nana’s Eyes eftir
Itzik Galili sem frumsýnt var í
ársbyrjun 2002. Tekið skal
fram undir eins að tvær sýn-
ingar verða í viðbót, 15. og 18.
maí.
Um kroppinn fóru hlýjar kenndir
og straumar við að horfa á og
minnast. Ekki síst vöktu brotin úr
La Cabina eftir snillinginn Jochen
Ulrich unaðstilfinningar. Á þeirri
tímamótasýningu árið 1997 var
ljóst að nýir tímar voru runnir upp
hjá íslenska dansflokknum og ekk-
ert yrði aftur samt. Dirfskan og
glæsileikinn létu í sameiningu loft-
ið titra í áhorfendasal Borgarleik-
hússins, enda hafði þá verið tekin
endanleg ákvörðun um að láta
flokkinn einbeita sér að nútíma-
dansi.
Skráð á myndbönd
í brotunum úr La Cabina á af-
mælissýningunni var ljóst að ekk-
ert hafði gleymst á sex árum, og því
er freistandi að byrja á að spyrja
Katrínu Hall, listrænan stjórnanda
íslenska dansflokksins, hvernig
dansar geymist.
DV-MYND GVA
Katrín Hall, listrænn stjórnandi ís-
lenska dansflokksins
Þaö er ekki sjálfgefiö aö fá aö
sýna verk eftir þessa þungaviktar-
danshöfunda sem hingaö hafa
komiö, jafnvel sérsamda dansa.
Þaö segir mikið um flokkinn.
ur eftirtekt erlendis að hér, í
þessu litla og fámenna samfélagi,
skuli vera dansflokkur, rekinn af
slíkum metnaði. íslenski dans-
flokkurinn hefur náð að setja
mark sitt svolítið á evrópska
dansheiminn, náð nokkurri fót-
festu þar og fengið að vinna með
frábærum danshöfundum. Það er
ekki sjáifgefið að fá að sýna verk
eftir þessa þungaviktardanshöf-
unda sem hingað hafa komið,
jafnvel sérsamda dansa. Það seg-
ir mikið um flokkinn. Og dansar-
arnir okkar eiga auðvelt með að
fá vinnu erlendis - sem er nauð-
synlegt fyrir þá. Það er gott að
þeir hleypi heimdraganum og
komi reynslunni ríkari til baka.
Líka er gaman fyrir áhorfendur
að sjá nýja og nýja dansara. Það
þarf að vera hreyfing þegar
flokkurinn er svona lítill."
Stutt en æðislegt
Það sem nú er á döfinni og
mun breyta ásýnd íslenska dans-
flokksins til muna á næsta ári er
samkomulag milli Listdansskóla
íslands og íslenska dansflokks-
ins. Þá verða nemendur á síðasta
ári í Listdansskólanum í starfs-
námi hjá Dansflokknum.
„Þetta verða átta eða tíu nem-
endur sem þá munu starfa með
okkur,“ segir Katrín. „Mig
dreymdi um einhvers konar sam-
starf frá upphafi en það tekur
Mikilvægt aö njóta andartaksins
- af því ævi dansarans er svo stutt. En danslistin er löng
„Áður fyrr voru klassísku verkin skrifuð nið-
ur eins og nótur,“ svarar hún. „Þá voru sporin
stööluð og einfalt að skrá þau. En á okkar
tæknitímum notum við myndbönd. Öll verk
eru geymd á myndböndum, tekin í heild á eina
vél. Þegar vel árar og við eigum fyrir því þá
tökum við líka nærmyndir og vinnum inn í
heildina, það er meira gaman að horfa á unnið
myndband og skemmtilegra að senda slíkt efni
til kynningar erlendis.“
Þegar flokkurinn varð 25 ára fékk hann að
gjöf frá Þjóðleikhúsinu hluta myndbandasafns-
ins sem þar var til frá því að Dansflokkurinn
var þar til húsa. Sem kunnugt er tluttist hann
ekki upp í Borgarleikhúsið fyrr en 1997. Elstu
verk flokksins eru þó ekki í þessu safni. Helsta
von um heimild um eldri verk á myndböndum
gæti verið hjá sjónvarpinu.
Ekki bara óskiljaniegheit
- Hvernig fannst þér að sitja úti í sal á afmæl-
ishátíðinni?
Katrín hugsar sig um stutta stund og segir
svo: „Ég skemmti mér bara mjög vel, þó er í
rauninni erfiðara að sitja úti í sal eftir allan
þennan undirbúning en vera þátttakandi á
sviðinu, því þar geturðu þó gert eitthvað! En
mér leið vel af því ég fann fyrir hlýju í kring-
um mig og að fólk skemmti sér mjög vel. Við
renndum nokkuð blint í sjóinn með þessa sýn-
ingu; það er erfitt að setja saman svona brot og
ná einhverri heildarmynd, einhverri hrynjandi
- halda uppi dampi í klukkutíma með svona
stuttum brotum."
- Finnst þér sýningin gefa rétta mynd af for-
tíðinni?
„Nei, það gerir hún auðvitað ekki, enda
kannski ekki beint tilgangurinn. Við urðum að
stikla á stóru og slepptum þannig mörgum eft-
irminnilegum verkum. Ég valdi hluti sem mér
fannst henta flokknum núna og auðvitað eru
ákveðnar forsendur á bak við val hvers þessara
brota. Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu Ing-
ólfsdóttur er til dæmis það verk sem við höfum
ferðast mest með, Af mönnum er afar fallegt
verðlaunaverk Hlífar Svavarsdóttur sem eldist
reglulega vel - það varð að hafa í huga líka. Af-
stand eftir Ed Wubbe er meira barn síns tíma
en sterkt verk þó og eitt þeirra verka sem hlaut
Menningarverðlaun DV á sínum tíma - í eina
skiptið sem Dansflokkurinn hefur fengið þau!
Líka var vel við hæfi að hafa brot úr Ég dansa
við þig - vinsælustu sýningu íslenska dans-
flokksins frá upphafi. Fólk fær algert nostalg-
íukast við að heyra Egil Ólafsson og Jóhönnu
Linnet syngja undir þeim brotum. Svo sá ég að
ég gat nýtt mér brot úr verkinu mínu, NPK, til
að koma afmælisræðu kvöldsins að. Ræðuna
samdi Árni Ibsen sem nú vinnur að stórri bók
um sögu listdans á íslandi. Hugmynd mín var
að koma að í stuttum og skemmtilegum texta
við undirleik Skárren ekkert brotum úr sögu
íslenska dansflokksins og nöfnum margra
þeirra sem lagt hafa dansflokknum lið í þessi
þrjátíu ár.“
- Mörg brotin á sýningunni ganga annað
hvort út á húmor eða erótík. Var þaö meðvitaö?
„Fólk kann vel að meta kímni í dansi,“ segir
Katrín, „en það er satt að segja erfitt aö koma
dansi þannig á framfæri að fólk skelli upp úr
eins og gert var undir sófaatriðinu úr Through
Nana’s Eyes. Mér finnst ómetanlegt að geta
sýnt fólki að dans er ekki bara drama og óskilj-
anlegheit!"
Þröngur stakkur
Katrín Hall hefur verið listrænn stjórnandi
Dansflokksins síðan 1996 og er nú að ljúka sínu
sjöunda ári. Hafa von-
irnar ræst?
„Að hluta til, en
margt hefur gengið
treglegar en ég vonað-
ist til. Svona er þetta
bara! Allt tekur sinn
tíma og við verðum
að vera þolinmóð,
hafa ákveðin mark-
mið til að stefna að og
gefast ekki upp á leið-
inni að þeim. Margt
hefur áunnist þó að
sorglegt sé að dönsur-
um skuli ekki hafa
fjölgaö. Stundum
finnst manni að þessi
tala sé óbreytanleg!
Okkur er sniðinn
þröngur fjárhags-
stakkur og við reyn-
um að halda okkur
innan hans. En við
erum um leið þakklát
því að yfirleitt skuli
vera skilningur hjá
stjórnvöldum á því að
halda úti dansflokki
af þessu tagi. Það vek-
tíma að þróa svona hugmyndir og samvinnu.
En þetta verður gaman og gott fyrir þetta unga
fólk að sjá að það er framtíð í þessu starfi sem
það hefur valið sér.“
- Saknarðu dansins sjálf?
„Nei, ég geri það ekki,“ segir Katrín ákveðin.
„Dansinn er búinn kafli í lífi mínu. Ég fór beint
frá því að vera atvinnudansari í þetta stjórnun-
arstarf - reyndar dansaði ég áfram erlendis
fyrsta árið mitt hjá íslenska dansflokknum -
þannig að ég hafði aldrei tíma til að velta mér
upp úr því að núna væri ég hætt að dansa! Ég
sakna þess ekki, enda fæ ég útrás fyrir sköpun-
arþörf mína með því að stjóma flokknum og
semja dansa sjálf, sem ég geri í auknum mæli.
Ég var einmitt að tala um þetta við yngsta
meðlim Dansflokksins, Steve Lorenz, um dag-
inn,“ heldur hún áfram. „Hann hefur svo mikl-
ar áhyggjur af framtíðinni. Það er alveg eðlilegt
af því að dansaraævin er svo stutt. En ég var að
reyna að hvetja hann til að lifa í núinu, það er
svo mikilvægt fyrir dansara að njóta andartaks-
ins. Það er svo stutt - en líka æðislegt.“
Úr Frosta eftlr Láru Stefánsdóttur á afmælissýnlngunni
Tímamót uröu 1997 þegar ákveöiö var aö láta flokkinn einþeita sér aö nútíma-
dansi.
ABBA í Laugardalshöll
Það er galin eftirspum eftir
miðum á tvenna ABBA-tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Laugardalshöll um
helgina og fer hún ekki eftir
aldri. Tónleikagestir verða frá
tíu ára til tiræðs! West End
International í London er sam-
starfsaðili SÍ á þessum tónleik-
um og mun Martin Yates stýra
hljómsveitinni og fjöldi söngv-
ara frá West End syngja með.
Auk þess leikur rythmasveit
með Sinfóníunni á tónleikun-
um, skipuð Jóni Ólafssyni,
Gunnlaugi Briem, Guðmundi
Péturssyni, Roland Hartwell og
Richard Kom.
Tónleikarnir eru kl. 19.30 á
fostudagskvöldið og kl. 17 á
laugardag. Bíðið ekki með að
panta miöa! Nú er líka hægt að
stytta sér leið og kaupa tón-
leikamiða á netinu á slóðinni
sinfonia.is.
Heim og stutt
Heimilda- og stuttmyndahá-
tíð í Reykjavík / Reykjavik
Shorts&Docs framlengist að
hluta til morguns. Allt um föð-
ur minn verður sýnd í kvöld
kl. 22 og á morgun kl. 20. Star-
kiss, hollensk mynd um líf
stúlkna sem seldar eru í
sirkus, verður sýnd í dag kl. 18
og á morgun kl. 22. ísraelska
myndin Hryðjuverkamaðurinn
minn verður sýnd í kvöld kl.
20 og á morgun kl. 18 ásamt
myndinni um Ruthie &
Connie. Loks verður hin marg-
verðlaunaða heimildarmynd
Allens saknað eftir Þjóðverjann
Christian Bauer sýnd í dag kl.
18 og á morgun kl. 20.
Stafir og steinhljóö
Tryggvi G.
Nordahl hefur
sent frá sér ljóða-
bókina Stafir og
steinhljóð sem
hann tileinkar
foreldrum sínum.
Þetta er allstór
og efnismikil ljóðabók og mörg
ljóðin löng.
Ljóð Tryggva eru ort á nokk-
uð hátíðlegu máli eins og hæfir
efni þeirra sem iðulega er
heimspekilegt. Til dæmis yrkir
hann ljóðaflokkinn „Hugmynd
orðanna“ þar sem orðin eru
persónugerð, en þó sem hópur,
massi. Tilvistarspurningar
sækja á hann eins og í þessu
kvæði sem heitir „Hin orsaka-
lausa orsök“:
Orsök og afleiöing
er afleiöing þess
sem ekki veröur skynjað
sem ekki sést.
Hvar er hinn fasti punktur?
Hvar hœttir hreyfingin?
Hvaö er á bak viö tómiö?
Hvaö er á bak við mig?
Hann yrkir um Reykjavík,
„höfuðborg í Hvergilandi", um
Sarajevo og jafnvel tilbrigði við
eddukvæði. Áleitnust verða þó
erótísku kvæðin í bókinni,
óður Tryggva til kvenna og
kynlífs sem stundum minnir á
ástarljóð Gamla testamentisins,
einkum „Hinn þriðji dagur“.
Tryggvi hefur raunar lagt
stund á trúarbragðafræði við
Háskólann í Kaupmannahöfn.
Það er útgáfan Nýtt kyn í
Kaupmannahöfh sem gefur
bókina út og hún er til sölu í
bókabúðum Máls og menning-
ar og Bóksölu stúdenta.