Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2003, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003
I>V
Fréttir
Húsleit í söluturninum Draumnum viö Rauöarárstíg:
Fundu
Samkvæmt heimildum DV
fannst haglabyssa viö húsleitina í
söluturninum Draumnum viö
Rauðarárstíg í fyrradag og er
byssan nú í haldi lögreglunnar.
Eins og fram kom í DV í gær fund-
ust fíkniefni í söluturninum,
smyglað áfengi og tóbak. Þrír
menn voru handteknir í tengslum
við málið en tveimur þeirra hefur
verið sleppt að yfirheyrslu lok-
inni. Einn maður er enn i haldi
lögreglunnar.
DV hefur öruggar heimildir fyr-
ir því að fíkniefnadeild lögregl-
unnar hafi haldið áfram leit að
fíkniefnum víðar en í söluturnin-
um þar sem grunur leikur á að
um meira magn efna sé að ræða.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar er málið enn á frumstigi og
vildi hún ekki gefa frekari upplýs-
ingar um magn smyglvarningsins
né fíkniefnanna sem fundust við
húsleitina.
Starfsmenn Tollstjórans í
Reykjavík gerðu húsleit í fyrradag
þar sem eigandi söluturnsins hafði
legið undir grun í þó nokkum
tíma um að hafa selt ólöglega inn-
fluttar sígarettur og áfengi í versl-
uninni. Við leitina fannst nokkurt
magn af smyglvamingi en einnig
fundust fíkniefni og var fíkniefna-
deildin því samstundis kölluð á
vettvang. -EKÁ
haglabyssu
DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL
Lögreglumenn kanna það sem fannst við húsleitina.
Verslunin Draumurinn er m.a. þekkt fyrir viöskipti viö drykkjufólk:
Smyglvarningup gerður upptækui*
Þrír menn voru handteknir í
söluturninum Draumnum við
Rauðarárstíg á mánudag. Starfs-
menn Tollstjórans í Reykjavík
hafði lengi grunað aö þar væri
boðið upp á ólöglega innflutt
áfengi og tóbak og því var látið til
skarar skríða. Við húsleit fannst
talsvert af smyglvamingi, auk eit-
urlyfja, og var fíkniefhalögreglu
gert viðvart um það. Söluturninn
hefur lengi verið þekktur fyrir að
vera eins konar athvarf drykkju-
manna og hafa nágrannar oft
kvartað undan ónæði vegna við-
skiptavina staðarins.
Einn viðmælenda DV, sem
starfar í grennd við staðinn og
þekkir vel til þessa menningar-
kima, sagði að þangað færi heimil-
islaust fólk sem ætti við drykkju-
vandamál að stríða, m.a. til að ná
sér í áfengi.
„Maður sér þetta fólk, oft á bil-
inu 5-10 manns, safnast fyrir utan
Hlemm snemma á morgnana og
bíða eftir því að fá að komast
þangað inn í hlýjuna. Þar heldur
Lokaö vegna breytinga
Þrír menn voru handteknir í söluturninum Draumnum á mánudaginn var, eftir aö
smyglaö áfengi og tóbak fannst þar innandyra ásamt einhverju magni eiturlyfja.
Verslunin var lokuö í gær en á huröinni stóö aö þaö væri vegna breytinga.
það sig uns þessi ákveðna verslun til þess að ná sér í spritt eða kar-
er opnuð og þangað fer það síðan dimommudropa. Svo sér maður
það blanda þetta héma á bekkjun-
um fyrir utan og hella þessu svo í
sig.“
Viðmælandinn segir upplifanir
sem þessar daglegt brauð en bætir
því jafnframt við aö ónæöi af við-
skipavinum staðarins sé ekki eins
mikið og margir telja þó óhjá-
kvæmilega setji stöðug nærvera
þeirra ákveðinn svip á hverfið.
„Þetta er meira eða minna alveg
meinlaust fólk sem hefur bara lent
illa út af brautinni. Ég hef aldrei
orðið vitni að því að það hafi reynt
að skaða neinn eða vera með eitt-
hvert vesen nema þá bara sín á
milli. Maður verður stundum var
við betl en annars lætur það aðra
eiga sig og er bara út af fyrir sig.“
Verslunin Draumurinn var lok-
uð í gær vegna málsins en eigend-
ur voru þá í óðaönn að taka til eft-
ir húsleit lögreglu og heimsókn
heilbrigðiseftirlitsins. í gluggan-
um stóð að verslunin væri lokuð
vegna breytinga en ekki er vitað
hvenær eða hvort verslunin verð-
ur opnuð á ný. -áb
Storkurinn Styrmir:
Vaknaði til lífsins
við að heyra raddir
Davíðs og Halldórs
Ástandið á storkinum Styrmi bar
á góma á síðasta fundi ríkisstjómar-
innar í gær, Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra lýsti ástandi fugls-
ins fyrir samráðherrum sínum, þá
höfðu borist fréttir af örum og góð-
um bata, en daginn áður hafði þurft
að halda fuglinum uppi þar eð hann
mátti ekki liggja of lengi í einu og
var líf hans þá að fjara út.
Siv Friðleifsdóttir sagði í gær að
Tómas Guðjónsson, forstöðumaður
Fjölskyldu- og húsdýragarðsins,
hefði sagt sér skemmtilega sögu um
það þegar Styrmir braggaðist
skyndilega og öllum að óvörum.
Verið var að reyna að fóðra fuglinn.
Kvöldfréttir útvarpsins hljómuðu og
raddir foringjanna Halldórs Ás-
grímssonar og Davíðs Oddssonar,
sem sögðu að búið væri að ná sam-
an um stefnuyfirlýsinguna. Við
þetta tók að lifna yfir fuglinum og
það hratt. Reisti Styrmir höfuð,
skrönglast á fætur og hóf þegar
ormaveiðar. Undir nótt hóf hann
svo músaveiðar og Ijóst að Styrmir
hafði storkað mönnum.
Siv Friðleifsdóttir sagði í gær að
unnið væri að þvi að koma storkin-
um á erlenda grund þar sem hann
gæti samlagast öðrum storkum.
-JBP
Hækkarí
Kleifapvatni
„Yfirborð Kleifarvatns er að
hækka,“ sagði Guðmundur Sigur-
jónsson, umsjónarmaður fólkvangs-
ins í Krýsuvík, þegar DV ræddi við
hann í gær
Hann sagði að skerið, sem væri
út af Indíánanum, væri horfið sem
þýddi aila vega hálfs metra hækk-
un. Þá væru hverimir austan megin
við vatnið nær komnir í kaf. Jarð-
skjáiftamir í júní árið 2000 hefðu
opnað sprungur í botni vatnsins. Þá
hefði vatnsborðið lækkað um meira
en fjóra metra. Setið í botni þess
hefði síðan lokað sprungunum aftur
smám saman. Nú væri grunnvatnið
að renna í það. -JSS
Stuttar fréttir
Mikil bílasala
Meira en 50% .fleiri nýir fólks-
bílar seldust á fyrstu 4 mánuðum
ársins en á sama tíma í fyrra.
RÚV greindi frá.
Áburðarflug hefst
Áburðarflug Landgræðslunnar
hófst í gær með dreifingu á
Reykjanesi. í sumar verður dreift
um 110 tonnum af áburði og 8
tonnum af fræi. Mbl. greindi frá.
Friðbert formaður
Friðbert Traustason hefur ver-
ið kosinn formaður Landssam-
taka lífeýrissjóða.
Konur veikari
Konur eru veikari þegar þær
koma til áfengismeðferðar, hafa
meiri fráhvarfseinkenni og eru
mun lengur að jafna sig en karl-'
ar, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem gerð var á sjúk-
lingum sem leituðu áfengismeð-
ferðar á árunum 2000-2001. Mbl.
greindi frá.
Rennibraut lokað
Sundlaugarrennibrautinni í
Laugardalslaug var lokað á
sunnudagskvöld í kjölfar óhapps
sem varð þar þegar drengur
meiddi sig á fótum í brautinni
Höfnin dýpkuð
Dýpkunarframkvæmdir við
Miðbakka í Reykjavíkurhöfn
hófust í gær. Höfnin er jafnan
dýpkuð áður en fyrstu skemmti-
ferðaskipin koma til Reykjavík-
ur en von er á því fyrsta 28. maí.
Mbl. greindi frá.
Vilja eiga hitaveituna
Sveitarstjórn Dalabyggöar
ákvað á fundi í gærkvöld að fela
sveitarstjóra og byggðarráði að
kanna möguleika á endurfjár-
mögnun heitaveitu Dalabyggðar
svo hún geti áfram verið í eigu
heimamanna.
Námsfúsir
Meira en 6 af hverjum 10
verslunarmönnum hafa verið í
námi eða tekið námskeið á síð-
astliðnum tveimur árum sam-
kvæmt Gallup fyrir Starfs-
menntasjóð verslunar- og skrif-
stofufólks.
Loftbrú Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkti
tillögu um að Reykjavíkurborg
leggi fram 2,5 milljónir krónur
árlega næstu þrjú ár til sjóðsins
Reykjavíkur Loftbrúar sem er
ætlað að styrkja tónlistarmenn.
-hlh