Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2003, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 DV Ræktun lýðs og lands Samráðsfundur á Reyðarfirði Samráðsfundur Ung- mennafélags Njarðvík- ur var haldinn á Reyð- arfirði um sl. helgi. Á fundinn mættu auk stjómar UMFÍ formenn eða framkvæmdastjór- ar fjölmargra héraðs- sambanda í landinu. Á fundinum var farið yfir starf og verkefni ung- mennafélagshreyfingar- innar. Töluverð um- ræöa varð um skipu- lagsmál, fræðslumál, sem og unglingalands- mót UMFÍ sem haldið verður á ísafirði um verslunarmannahelg- ina. LEIÐTOGA. SKÓLINN Fjallað um fræöslumál Björn B. Jónsson, for- maður UMFÍ, segist vera ánægður með fundinn. Nokkur mál stóðu þó upp úr eins og gengur og fengu meiri tíma í umræðunni „Má þar nefna unglingalandsmótið. Mikill vilji virðist vera innan hreyfingarinnar aö halda þessi mót á hverju ári Hugmyndir um uppbyggingu á nýjum aðalstöðv- um UMFÍ voru reifaðar af einum góðum ungmennafé- laga.“ Fræðslumál fengu mikla og jákvæða um- ræðu á fundinum. Er það ekki aö undra þar sem fleiri og fleiri gera sér grein fyrir að þetta er undirstaða góðs starfs. Vesturhlíð gaf rúmlega 300 þúsund krónur í minngarsjóð um Pálma Gíslason. Oviðunandi Á samráðsfundinum fór mikill tími í umræð- ur um skipulagsmál hreyfingarinnar. Björn segir að ræddir hafi verið kostir og gallar þess að stækka UMFÍ með því aö opna á möguleika að íþrótta- bandalög komi inn „Það eru allir sam- mála því að skoða þennan möguleika með opnum huga og for- dómalaust. Með inn- komu íþróttabandalaganna skap- ast grundvöllur fyrir ungmennafé- lagshreyfinguna að útbreiða stefnu og markmið sín til fleiri ís- lendinga, sem hlýtur að vera markmið okkar.“ Við háboröið Björn Jónsson, formaöur UMFÍ, Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Helga Guöjónsdóttir, varaformaöur UMFÍ, ræöa málin á samráösfundi viö Rögnvald Ingólfsson, formann UÍÓ, og Önnu Mikaelsdóttur, formann HSÞ. Ekiö af stað Fyrir stjórnarfund afhenti 66' norður stjórn og starfsmönnum UMFÍ vinnufatnaö og af því tilefni voru þessar myndir teknar viö unglinga- landsmótsbíl sem Bifreiöar og land- búnaöarvélar styrkja mótiö meö. Björn segir að töluverðar um- ræður hafi verið um lottóskipt- ingu og þær tillögur sem hafa ver- ið í umræðunni. „Inn í þessa um- ræðu komu vangaveltur um breyt- ingu á lottóúthlutun. Samhljómur var hjá öllum að ekki kæmi til greina að ganga að tillögu sem lögð var fram í vetur þar sem tai- að er um 12% jafna skiptingu á lottófé. Það yrði til að skerða hlut héraðssambanda sem væri með öllu óásættanlegt," sagði Bjöm. Hugmyndir kynntar Hjálmur Sigurösson í Ungmennafélaginu Víkverja kynnti hug- myndir sínar um byggingu alþýöuhúss í Laugardalnum undir forystu UMFÍ. Vitringar á skrafi Siguröur Viggóson, stjórnarmaður í UMFÍ, EinarJón, UDN, Kári Gunnlaugsson, Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagi, og Gísli Páll, formaöur HSK, fylgjast meö umræöum. Þakkir Hringur Hreinsson, Ungmennasambandi Eyjafjaröar, þakkaöi góöargjafir frá félögum sínum í Vesturhlíö og HSÞ. Ungmennafélag Njarðvíkur Logi íþnótta- maöup ársins Aöalfundur Ungmennafélags Njarðvíkur var haldinn þriðjudaginn 13. maí síðastliðinn. Fundurinn var hefðbundinn með venjulegum aðal- fundarstörfum þar sem formaður flutti skýrslu stjómar og fór yfir helstu þætti í starfsemi félagsins. Gjaldkeri fór yfir reikninga og gestir tóku til máls. Viðurkenningar voru veittar fyrir vel unnin störf og góða frammistöðu í keppni. Ólafsbikarinn hlaut Hall- dóra Húnbogadóttir. Bikarinn er við- urkenning fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og gefrnn í minningu Ólafs heitins Thordarsens af fjöl- skyldu hans. íþróttamenn hverrar deildar fyrir sig fengu viðurkenningu Tvö á palll Halldóra Húnbogadóttir, sem fékk Ólafsbikarinn, og Kristbjörn Alberts- son formaöur. fyrir frammistöðu sína og íþrótta- maður UMFN 2002 var að þessu sinni Logi Gunnarsson körfuknattleiks- maður. Logi bestur Logi Gunnarsson körfuboltamaður var kjörinn íþróttamaöur ársins hjá félaginu. Stjóm félagsins gaf kost á sér til áframhaldandi setu og var hún ein- róma kjörin. Stjómina skipa: Krist- bjöm Alberts, sem er formaður, Guð- mundur Sigurðsson ritari og Þórunn Friðriksdóttir gjaldkeri. Varamenn em Helgi Rafiisson og Gunnar Öm Guðmundsson og endurskoðandi: Gunnar Þórarinsson. Á fundinum voru kafíiveitingar að vanda. Var það 10. bekkur Njarðvíkurskóla sem sá um þær með miklum myndarbrag. Fundur Þjónustumiöstööva UMFÍ á Akureyri sl. fimmtudag. Lengst til vinstri er Sæmundur Run■ ólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Páll Guö- mundsson kynningarfulltrúi er lengst til hægri. Þeirra i millum eru framkvæmdastjórar hinna ýmsu héraössamtaka ungmennafélaganna. Engilbert Olgeirsson, fram- kvæmdastjóri HSK, segir aö starf þjónustumiöstööva sé enn aö þróast en vissulega sé komin ánægjuleg reynsla. Nú hefur þeim öllum veriö mynduö stjórn. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, segir þaö hlutverk Þjónustu- miöstööva UMFÍ á landsbyggöinni að þjóna sínum svæöum hvaö varöar verk- efni, fræöslumál og kynningarmál og eins aö aö þjónusta ungmennafélög. Karl Jónsson, framkvæmdastjóri HSV, segir aö mestur tími starfsins fyrir vestan fari í undirbúning fyrir unglingalandsmót UMFÍ sem haldiö veröur á ísafiröi um verslunar- mannahelgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.