Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2003, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003
Tilvera DV
ERU EKKI ALLTflF JOLIN
Einhvers staðar hafði ég lesið
að Gwyneth Paltrow vaeri óhress
með View from the Top og hefði
neitað að ganga fram fyrir skjöldu
og auglýsa myndina. Ég á frekar
bágt með að trúa þessu þar sem
Paltrow er það langbesta við
myndina. Það geislar af henni í
hlutverki alþýðustúlkunnar sem
vill sjá sig um í heiminum, losna
við smáborgarlíflð og óhamingju-
sama æsku og fljúga með farþega
á fyrsta farrými til Parísar. Sjald-
an hefur Paltrow verið glæsilegri
og leikur hennar er einnig góður.
Ætli ástæðan fyrir tregðu hennar
við að auglýsa myndina hafi ekki
frekar verið sú að framleiðendur
settu myndina í geymslu í tæp tvö
ár og slíkt er nánast dauðadómur
þegar kemur loks að dreifíngu.
Það er um margt skiljanlegt að
aðstandendur View from the Top
hafi ekki litist á blikuna. Myndin
er í raun stórgölluð, gamaldags og
illa skrifuð. Og það sem er
kannski dapurlegast er hversu
Mike Myers er steindauður í hlut-
verki kennarans á flugfreyjunám-
skeiðinu. Að Myers skuli vera
ófyndinn segir nokkuð um gæði
handritsins.
Það er samt Gwyneth Paltrow
sem bjargar mál-
um og hún ásamt
öðrum „flugfreyj-
um“ gerir hall-
ærislega kvik-
mynd skemmti-
lega. Hún leikur
smábæjarstúlk-
una Donnu Jen-
sen sem horfir
upp á móður sína
eignast fjóra eigin-
menn, hvern öðr-
um verri, og er
sjálfri sagt upp af kærastanum
sem hún hafði ætlað að eyða æv-
inni með. Bjargvættur Donnu er
flugfreyjan Sally Weston (Candice
Bergen) sem skrifað hefur bók um
reynslu sína. Donna tekur allt
bókstaflega sem hún segir í bók-
inni og heldur á vit ævintýranna í
háloftunum.
Sagan er ekki merkileg í fram-
haldi frekar en i byrjun. Donna
kynnist öllum hliðum mannlífs-
ins, ást, afbrýðisemi, höfnun og
síðast en ekki síst einmanakennd
sem þeir einir þekkja sem eiga
engan að. Þetta er allt kunnuglegt
og ekkert er það í myndinni sem
kemur á óvart efnislega séð. Pal-
trow rennir sér í gegnum hlut-
Fyrsta starfið
Gwyneth Paltrow og Kelly Preston orönar flugfreyjur hjá
lágfargjaldaflugfélaginu Sierra Airlines.
verkið af miklum þokka og er sér-
staklega eftirtektarvert hvernig
hún nær að gera klisjukenndan
texta ferskan. Candice Bergen er
einnig ágæt í hlutverki fyrirmynd-
arflugfreyjunnar sem sér sjálfa sig
í Donnu. Vonbrigðin eru fyrst og
fremst Mike Myers. Hefði hann
fengið betri texta og fyndnari per-
sónu til að túlka þá hefði View
from the Top getað orðið mun
skemmtilegri kvikmynd.
Leikstjóri: Bruno Barreto. Hand-
rit: Eric Wald. Kvikmyndataka:
Atfonso Beato. Tónlist: Theodore
Shapiro. Aóalleikarar: Gwyneth
Paltrow, Christine Applegate, Mark
Ruffalo, Kelly Preston, Candice
Bergen og Mike Myers.
- segir Auöur Ottesen um sýninguna Sumarhúsiö og garöurinn
Burtfarartónleikar
Dagur Bergsson píanóleikari
heldur burtfarartónleika frá sí-
gildri braut Tónlistarskóla FÍH í
kvöld kl. 20. Ásamt Degi koma
fram fjölmargir tónlistarmenn
aðrir.
Kór og saxófóim
Kirkjukór Háteigskirkju mun
halda tónleika í kvöld kl. 20 í
Háteigskirkju undir stjórn
Douglas A. Brotchie. Kórinn
frumflytur verkið Son of God
eftir breska tónskáldið James
Whitboum en einnig verða flutt
verk eftir Elgar, Mendelssohn
og fleiri. í Son of God leikur
Jóel Pálsson á saxófón.
Nýr kammerkór
Fyrstu tónleikar Kammerkórs
Reykjavíkur verða í Laugarnes-
kirkju í kvöld kl. 20. Á efnis-
skránni em m.a. lög eftir Hjálm-
ar H. Ragnarsson, Hallgrím
Helgason, Hildigunni Rúnarsdótt-
ur og fl. Stjómandi er Sigurður
Bragason píanóleikari, Bjarni
Jónatansson og þverflautuleikari
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Plómup
Nýtt íslenskt leikrit, Plómur,
verður frumsýnt í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20. íslenska sambandið
ehf. stendur að sýningunni.
Leikari er Anna Rósa Sigurðar-
dóttir og leikstjóri Hera Ólafs-
dóttir.
Stórsýningin Sumarhúsið og
garðurinn hefst á morgun kl.
17-19 í og við íþróttahúsið að
Varmá í Mosfellsbæ og stendur
alla helgina. Þar kynna vel yfir
hundrað aðilar vöru sína og þjón-
ustu og viðamikil fræðsludagskrá
er í gangi alla dagana. Þetta er
| annað árið sem svona sýning er
sett upp í Mosfellsbænum. Að
: henni stendur fyrirtækið Rit og
rækt og þar á bak við eru hjónin
Auður Ottesen og Páll Pétursson.
! Þau eru þekkt fyrir útgáfú sína á
tímaritunum Sumarhúsið og Við
i ræktum sem voru sameinuð
haustið 2002 i fjölbreytt tímarit
sem ber nafnið Sumarhúsið og
■ garðurinn.
Nytjajurtir í garöshorni
Þótt framkvæmdastjórinn Auð-
i ur hefði ýmsum hnöppum að
hneppa í gær tókst að króa hana
af og forvitnast um það sem fram
undan er. „Við leggjum undir okk-
ur íþróttahöllina og reisum tvö
stór tjöld, auk þess sem stórt úti-
svæði er nýtt fyrir sýninguna,"
segir hún og heldur áfram. „Þama
eru fyrirtæki, sveitarfélög og ein-
staklingar með kynningarbása og
fjölbreytnin er mikil. í fyrra var
það þannig að sumir gestir komu
dag eftir dag því það var svo
margt sem hægt var að dvelja við
og ekki er úrvalið minna í ár.
Meðal þess sem er nýtt er nytja-
jurtagarður, með öllu tilheyrandi,
vonandi meira að segja íslenskum
hænsnum! Garðyrkjufræðingarn-
ir Hafsteinn Hafliðason og Hannes
Hafsteinsson verða í þessu garðs-
horni, gefa fólki góð ráð og leyfa
því að snerta, horfa og þefa,
þannig að öll skilningarvit verða
þanin! Þarna úti fyrir eru líka
jeppar, tjaldvagnar og fleira sem
tilheyrir útivist því að við stílum
upp á afþreyingu almennt. Svo má
geta þess að veitingarnar eru í
höndum fólks úr Bláskógabyggð
sem býður upp á góðmeti úr
heimahéraöinu."
Reitirnir rugluöust
Auður segir þau Pál hafa stofn-
Regnboginn/Smárabíó - View from the Top ★★
Skýjum ofar
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
B0NUSVIDE0
Þau standa að sýningunni
Hjónin Auöur Ottesen og Páll Pétursson, ásamt starfsfólki sínu.
að fyrirtækið Rit og rækt 1998 og
lýsir tildrögum þess. „Það var
þannig að Páll sem er úr Vík var
þar með útgáfu á tímaritinu Sum-
arhúsið. En ég Hvergerðingurinn,
búsett í Reykjavík, var að vinna í
garðaþjónustu og skógrækt þegar
ég kynntist Páli. Svo rugluöust
reitimir, þess vegna heitir fyrir-
tækið okkar Rit og rækt. Páll er
sérfræðingur í öllu sem viðkemur
tölvum, uppsetningu og slíku en
þar er ég alger rati. Ég er
hinsvegar garðyrkjufræðingur og
smiður og hef innsýn í margt í
sambandi við það, þannig að þetta
small saman. Fyrir utan tímarit-
ið, sem við gefum út, erum með
heimsíðu www.rit.is og fréttabréf
á Netinu. Þar gefum við ýmis ráð
í garðyrkjunni sem tilheyra hverj-
um árstíma."
Fyrirlestur um fornhús
Þegar Auður er spurð hvort hún
og eiginmaðurinn standi í því
stórræði tvö ein að halda þessa
sýningu svarar hún. „Framan af
vorum við aðallega tvö í undir-
búningnum en ráðgjafahópur hef-
ur unnið með okkur frá upphafi
og fundað hálfsmánaðarlega. Svo
höfum við fengið ágæta liðsemd
síðan. Þetta er ekki hægt nema
hafa gott fólk með sér og við erum
heppin með það.“
Sýningin verður opin á föstu-
daginn frá 15 til 21, á laugardag-
inn frá 12 til 19 og á sunnudaginn
frá 12 til 21. Meðal þeirra sem
flytja fyrirlestra eru Guðjón Krist-
insson skrúðgarðyrkjufræðingur
sem talar um fornhús í einu erind-
inu og tréverk og hleðslur í öðru,
Júlíana R. Einarsdóttir blóma-
skreytingakennari sem talar um
náttúrulegar skreytingar í sumar-
bústaðalandinu og Guðríður Helga-
dóttir, garðyrkju- og liffræðingur,
sem ræðir um nýjar tegundir sum-
arblóma, svo fátt eitt sé nefnt.
„Þarna verður gríðarlega vönduð
fræðsludagskrá alla dagana og við
erum líka með sérfræðinga á staðn-
um sem eru tilbúnir að spjalla við
fólk um hin ýmsu málefni," segir
Auður og nefnir m.a. Gunnar Bend-
er sem leiðbeinir um veiði, Val-
gerði, framkvæmdastjóra Norður-
landsskóga, sem svarar spurning-
um um ræktun. En það er Auður
sem á síðasta orðið í þessu spjalli:
„Sýningin er ekki bara fyrir eig-
endur garða og sumarhúsa heldur
líka alla sem láta sig dreyma um
slíka hluti!“ -Gun.
Leigan í þínu hverfi
lífiö
Öll skilningarvlt verða þanin