Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2003, Qupperneq 6
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Daewoo Lanos SX bsk.
Skr. 10/98, ek. 78 þús.
Verð kr. 590 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 990 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk.
Skr. 11/96, ek. 67 þús.
Verð kr. 450 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 74 þús
Verð kr. 1290 þús.
Suzuki Sidekick JX, 5 d., bsk.
Skr. 9/96, ek. 88 þús.
Verð kr. 780 þús.
Hyundai Accent GLS, bsk.
Skr. 7/98, ek. 45 þús.
Verð kr. 550 þús.
Hyundai Accent 1,5, bsk.
Skr. 12/99, ek. 27 þús.
Verð kr. 690 þús.
Hyundai Accent 1,5, bsk.
Skr. 9/98, ek. 67 þús.
Verð kr. 490 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---✓///■■■.
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003
Fréttir jy\r
Enginn veriö handtekinn enn vegna innherjaviðskipta meö hlutabréf í JP Nordiska:
Fimm hinna grunuðu
eru islendingar
Efnahagsbrotadeild sænsku lög-
reglunnar geröi í gærmorgun hús-
leit í fimm löndum, í Svíþjóö,
Englandi, Lúxemborg, Þýskalandi
og á íslandi. Sex einstaklingar eru
grunaðir um að hafa notfært sér
trúnaðarupplýsingar sem þeir eru
taldir hafa búið yfir um kaup
Kaupþings banka hf. á hlutabréf-
um í J.P. Nordiska í Svíþjóð á síð-
astliðnu ári til þess að kaupa
hlutabréf sjálfir eða í nafni félaga
sem þeir tengjast.
Fimm af sexmenningunum ís-
lenskir
Erindi barst Ríkislögreglustjóra
um aðstoð á grundvelli laga og al-
þjóðlegra samninga um gagn-
kvæma réttaraðstoð í desember
2002 til gagnaöflunar sem fer nú
fram samtímis í löndunum fimm.
Ekkert brot er þó til rannsóknar á
íslandi og þeir sem til rannsóknar
eru búa hvorki né starfa á íslandi.
Rannsókn málsins beinist ekki að
Kaupþingi banka hf. eða að við-
skiptum með hlutabréf í Kaup-
þingi. Samkvæmt Alf Johansson,
saksóknara hjá sænsku efnahags-
brotadeildinni, er einn hinna
grunuðu sænskur en hinir munu
allir vera íslendingar. Johansson
segir jafnframt að hagnaður ein-
staklinganna hafi numið um fimm
milljónum sænskra króna, um 45
milljónir íslenskra króna.
Húsleit hjá Bakkavör
Gropu í London
Húsleit var svo gerð í gær í höf-
uðstöðvum Bakkavarar Group í
London og á heimUi forstjóra fyr-
irtækisins, Lýðs Guðmundssonar.
Bakkavör Group er stór hluthafi í
Meiði sem er jafnframt stærsti
hluthafinn í Kaupþingi Búnaðar-
banka en Bakkavör Group hefur
þó aldrei verslað með hlutabréf í
JP Nordiska. Það hefur félagið
Bakkabræður hins vegar gert en
það er sameignarfélag þeirra
Engin innherjaviðskipti
Ágúst Guðmundsson sagði I gær-
kvöld að viðskiptin gætu á engan
hátt flokkast undir innherjaviöskipti.
Hann sagði gengishagnað af þess-
um hlutabréfakaupum vera nærri
einni miljón sænskra króna.
bræðra Lýðs og Ágústs Guð-
mundssonar, stjómarformanns
Bakkavarar. Ágúst lét hafa það
eftir sér í fjölmiðlum í gærkvöld
að umrædd kaup hafi hins vegar
verið gerð eftir að fyrir lá að
Kaupþing myndi eignast 40% hlut
í JP Nordiska en þeim sem eignast
yfir 40% í sænskum fyrirtækjum á
hlutabréfamarkaði ber skylda til
að gera yfirtökutUboð í öll hluta-
bréf. Viðskiptin geti því á engan
hátt flokkast undir innherjavið-
skipti. Einnig kom fram í máli
hans að gengishagnaður af þess-
um hlutabréfakaupum sé nærri
einni miljón sænskra króna eða
rúmlega 9 miljónum íslenskra.
Kaupþing mun sýna fullan
samstarfsvilja
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings, sagði í samtali
við DV i gær að lögreglan hefði
komið á starfsstöð Kaupþings á ís-
landi um áttaleytið í gærmorgun
til aö afla gagna. Hún hefði haft
heimild fyrir húsleit en aldrei
hefði til þess komið að lögreglan
þyrfti að nýta sér hana þar sem
Kaupþing hefði sýnt fullan sam-
starfsvilja. Hann sagði lögregluna
hafa aflað þeirra gagna sem Kaup-
þing væri með um J.P. Nordiska
en sagðist ekki hafa heimild til að
upplýsa neitt um hina grunuðu
menn né heldur um hversu háar
fjárhæðir um væri að ræða.
Spurður um framhaldið sagði
Hreiðar að niðurstöðu rannsókn-
arinnar yrði beðið og sagði hann
að Kaupþing myndi vera Ríkislög-
reglustjóra innan handar af
fremsta megni vegna gagnaöflun-
ar embættisins í þágu sænskra yf-
irvalda. -EKÁ/-áb
Tvær forsíður í gær
Prentun á þriðjudagsblaði DV var stöðvuð í gærmorgun svo koma mætti frétt
afrannsókn á meintum innherjaviðskiptum til lesenda. Hluti upplagsins er
því með annarri forsíðu en lagt var upp með þegar vinnslu blaösins lauk á
hefðbundnum tíma um hálftíuleytiö.
Innherjamálið vakti snör viðbrögð á ritstjórn DV:
Tvær forsíður
Snör handtök voru höfð á rit-
stjóm DV þegar fréttir bárust um
það á ellefta tímanum í gærmorg-
un að efnahagsbrotadeild sænsku
lögreglunnar hefði efnt til húsleit-
ar í fimm löndum vegna gruns um
ólögmæt innherjaviðskipti í
tengslum við yfirtöku Kaupþings
á sænska bankanum JP Nordiska.
Akveðið var að skipta um forsíðu
þrátt fyrir að prentun þriðjudags-
blaðsins væri hafin. Hringt var í
prentsmiðju Morgunblaðsins þar
sem prentun blaðsins var stöðvuð.
Frétt um málið var skrifuð í
snatri og ný forsíða send til prent-
smiðjunnar sem hélt áfram að
prenta DV - en með nýrri forsíðu.
Símamálið:
Fjórði maður-
inn í varðhald
Héraösdómur Reykjavíkur úrskurð-
aði í gærmorgun fjórða manninn sem
tengist umfangsmiklum fjársvikum hjá
Landssímanum í gæsluvarðhald til 2.
júní. Maðurinn, Ragnar Orri Bene-
diktsson, er 25 ára gamall og frændi
bræðranna Sveinbjöms og Kristjáns
Ra Kristjánssonar sem vora ásamt
Áma Þór Vigfússyni settir í gæslu-
varðhald á fóstudag vegna sama máls,
Sveinbjöm í tvær vikur en Ámi Þór
og Kristján í 10 daga hvor. Þremenn-
ingamir era granaðir um stórfelldan
íjárdrátt hjá Landssímanum og er upp-
hæðin taiín nema um 150 milljónum
króna á tímabilinu 1999 til 2000. Ekki
er vitað hvemig Ragnar tengist mál-
inu en samkvæmt heimildum blaðsins
var langur og ítarlegur rökstuðningur
fyrir kröfú efnahagsbrotadeildar Ríkis-
lögreglusfjóra um gæsluvarðhald
byggður á nokkuð öðrum forsendum
en þegar krafist var gæsluvarðhalds
yfir hinum mönnunum þremur.
Ragnar er rekstrarstjóri kaffihúss-
ins Priksins og eigandi þess ásamt
frænda sínum Sveinbimi. Þeir keyptu
Prikið af fyrirtæki Áma Þórs og Krist-
jáns, Lífstfl, fyrir skömmu. Áður starf-
aði hann á sjónvarpsstöðinni SkjáEin-
um, meðan Ámi Þór og Kristján vora
viðriðnir rekstur hennar.
-fin
Forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína
Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöld. Davíð fóryfir nýsamþykktan stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar. í inngangi að ræðu sinni fjallaði hann stuttlega um nýliðna kosningabaráttu og sagði hana
hafa verið harða. Hann sagði það von síha að menn drægu þann lærdóm af kosningabaráttunni að affarasælast
væri að halda sig við málefnin og takast á um skoðanir og sannfæringu. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfýlkingar,
hlýðir á stefnuræöu forsætisráöherra. Henni til vinstri handar situr Sólveig Pétursdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
og Hjálmar Árnason, Framsóknarflokki, til hægri handar. Katrín er í hópi 18 nýliða sem nú setjast á þing.