Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2003, Síða 12
12
______________________MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003
Tilvera dv
Lauk BS-gráöu meö glans innan viö tvítugt:
Á hraðferð í bandaríska skólakerfinu
Tæplega tvítugur íslendingur,
Eyþór Örn Ernstson Berndsen,
vann þaö afrek nýverið að útskrif-
ast með BS (Bachelor of Science)
gráðu í stærðfræði og tölvunar-
fræði frá háskóla í Alabama með
3928 stig af 4000 mögulegum. Það
var næsthæsta einkunn yfir skól-
ann sem 3000 nemendur stunda
nám við og flestir þeirra sem út-
skrifuðust með honum voru fimm
eða sex árum eldri.
Mastersgráða í ár
Eyþór er frá Skagaströnd og
lauk þar sínu skyldunámi með
góðum einkunnum en fór strax að
því loknu til Bandaríkjanna og hóf
nám við University of Alabama í
Huntsville. Þar byrjaði hann á að
ljúka AS-prófi á þremur mánuð-
um sem jafngildir stúdentsprófi
hér heima. Þá tók BS námið við
sem venjulega er tekið á fimm
árum en hann lauk því á þremur
með Honors.
Þessa stundina er Eyþór að
skemmta sér í Karíbahafinu með
nokkrum vinum sínum og félög-
um en þegar því gamni sleppir
ætlar hann að setjast við lærdóm-
inn aftur og útskrifast með MA
gráðu (Master of Science) frá
sama háskóla í haust. Það er
venjulega tekið á tveimur til
þremur árum en Eyþór ætlar að
hespa því af á sjö mánuðum. Hann
er ekki óvanur því að nota sumr-
in til náms því hann hefur stund-
að skólann allt árið frá því hann
kom út. Næsta skrefið verður svo
doktorsnám í tölvunarfræðum og
stærðfræði sem hann áætlar að
ljúka á þremur árum.
Lék sér aö forritun
Faðir Eyþórs er Ernst Bernd-
sen, vélstjóri á Arnari frá Skaga-
strönd. Hann ól drenginn upp,
ásamt konu sinni, Þórunni Rögnu
Óladóttur, en eftir grunnskólann
flutti Eyþór sig vestur um haf til
móður sinnar, Hjördísar Eyþórs-
dóttur, sem er bridsspilari að at-
vinnu og hefur verið í bandaríska
landsliðinu í þeirri grein. Ernst
segir Eyþór hafa verið skipulagð-
an í námi alla tíð og stærðfræðin
hafl legið sérstaklega vel fyrir
honum, reyndar tungumálin líka.
„Það var sama hvað hann lærði,
hann þurfti rétt að kíkja á það og
þá var það komið,“ segir hann.
Emst segir Eyþór líka hafa sýnt
tölvunum mikinn áhuga, allt frá
sjö ára aldri. Hann hafi þó aldrei
verið mjög upptekinn af tölvu-
leikjum heldur hafi hann haft
meira gaman af að nýta sér mögu-
leika ýmiss konar teikniforrita og
svo að búa til forrit sjálfur. Emst
og Þórunn Ragna fóru út til Ala-
bama til að vera við útskrift Ey-
þórs sem fram fór í 30 þúsund
Laugavegi 176 Sími 588 5403
HAMBOnSAEAB, SAML0KCB, KJCKUH0CB,
KACTASTEIK, SintJABIf OFL 0FL,
m oniiiCM k sébstöku smm
SEM SEFim ÞETTA SÉBSTAKA BBASB
.„er enou !f(ct!
DV-MYND ÞORUNN
Dugnaðarstrákur og stoltur faðlr
Eyþór lýkur væntanlega mastersgráöu á þessu ári aöeins tvítugur aö aldri. Faöir hans, Ernst Berndsen vélstjóri, var
viöstaddur er hann hlaut BS-gráöuna nú fyrir skemmstu.
manna iþróttahöll. Eins og nærri
má geta var það hátíðleg stund og
voru þau virkilega stolt af drengn-
um. Þau vonast til að sjá Eyþór af
og til hér á landi næstu árin, þrátt
fyrir annríki við lærdóminn, þar
sem hann hafl nú nýlega fengið
græna kortið í hendur sem geri
honum auðveldara að ferðast milli
heimsálfanna.
Vildi ekki skera sig úr
Ólafur Bernódusson, kennari
við grunnskólann á Skagaströnd,
var umsjónarkennari Eyþórs í tvö
ár og segir hann einstakan og eft-
irminnilegan nemanda. Hann hafi
ekki látið mata sig gagnrýnislaust
á upplýsingum heldur spurt út í
hlutina og verið rökfastur í and-
mælum þegar við átti. „Eyþór var
alla tíð mikill námsmaður og náði
hlutunum strax og hann lagði sig
eftir þeim. Súperkarl í því. Hann
var samt ekkert að stressa sig. Á
tímabili var hann frekar fráhverf-
ur dönskunni en þegar honum var
bent á að hún gæti opnað honum
einhverjar leiðir í framtíðinni þá
gekk hann í það að læra hana og
hafði lítið fyrir því. Samt hafði ég
alltaf á tilhnningunni að hann
gæti meira en hann gerði. Ég bauð
honum sérverkefni í stærðfræð-
inni en hann er svo ofurskynsam-
ur að hann vildi ekki skera sig úr.
Hann hafði sérstaklega gaman af
stærfræðiþrautum en þar er ég
wsm
Smárabfó - Narc
Löggun á
Ekki veit ég hvort Detroit hefur
einhvern tímann verið kosin
ljótasta borg Bandaríkjanna, aUa
vega kemur hún mjög illa út í
þeim kvikmyndum sem ég minn-
ist að hafa séð og gerast í stærstu
bílaborg heimsins. Og ekki bætir
Narc ímyndina. Myndin er tekin í
öngstrætum og fátækrahverfum
borgarinnar sem nóg virðist vera
af. Og þar að auki að vetri til þeg-
ar umhverfið er enn nöturlegra
en ella. Svo er það annað mál að
umhverfið hentar vel efni mynd-
arinnar.
Narc segir frá lögreglumönnum
sem starfa í þessu umhverfi og
eiga orðið erfitt með að skilja á
milli hvað er þeirra eigið líf og líf
þeirra á götunni. Training Day
sýndi á eftirminnilegan hátt
slæmar hliðar á lögreglumönn-
um. Það gerir Narc einnig á
jafneftirminnilegan hátt og enn
skuggalegri.
Aðalpersónurnar eru tveir lög-
reglumenn sem starfa í eiturlyfja-
deild lögreglunnar. Nick Tellis
(Jason Patric) er leystur frá störf-
um þegar hann í ákafa sínum að
negla eiturlyfjasala skýtur
ófríska konu með þeim afleiðing-
um að hún missir fóstur og mun
aldrei geta eignast annað barn.
Tellis var sjálfur orðinn háður
eiturlyfjum þegar atburöurinn
gerist. Eiginkona hans bjargar
honum í þetta skiptið. Ári síðar
er hann fenginn aftur til starfa
ystunöf
Haröjaxlar
Jason Patric og Ray Liotta í hlutverk-
um lögreglumanna sem leita hefnda.
við að upplýsa morð á samstarfs-
manni. Félagi hans í morðrann-
sókninni er Henry Oak (Ray
Liotta), fyrrum samstarfsmaður
hins myrta, sem hefur svarið að
hefna hans. Oak er mikið hörku-
tól sem hefur sett sér eigin reglur
og er af yfirmönnum sínum tal-
inn mjög hæfur en einnig á mörk-
um þess að vera heill á geði.
Tellis og Oak fara miklum ham-
förum í rannsókninni og beita öll-
um brögðum með tilheyrandi of-
beldi sem þeir hafa kynnst í starfi
ekkert sérlega sterkur á svellinu
svo ég spurði hann stundum ráða
sem hvern annan samstarfs-
mann,“ segir hann. Ólafur kveðst
ekki geta þakkað sér velgengni
Eyþórs í æðri skólum erlendis.
„Ég get þó fullyrt að honum hafi
liðið vel í skólanum hér en sjálf-
sagt hefði hann blómstrað alls
staðar,“ segir hann og kveðst hafa
fylgst aðeins með þessum fyrrver-
andi nemanda sínum gegn um
fólkið hans og stundum beðið fyr-
ir kveðjur til hans yfir hafið.' „Ég
er stoltur af honum eins og öllum
mínum nemendum sem gengur
vel. Svona karlar eru auðvitað
ekki á hveiju strái,“ segir hann.
-Gun
★ ★★
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
sínu innan um glæpamenn. Eftir
rannsókn þeirra er vettvangur-
inn yfirleitt eins og blóðugur víg-
völlur. Tellis kemst fijótt að
þeirri niðurstöðu að Oak er ekki
með allt á hreinu um samstarf
hans og þess myrta. Vegna eigin
starfa innan um glæpamenn
kemst hann að því að Oak og sá
myrti voru hættulegar tíma-
sprengjur.
Jason Patric og Ray Liotta eu
geysiöflugir í hlutverkum sínum
og fara létt með að hreyfa við
áhorfendum, sérstaklega er leik-
ur Liotta magnaður. Hann er
ólíkur öllu sem við höfum séð til
hans og staðfestir það sem hefur
verið vitað eftir frammistöðu
hans í Goodfellas að fái hann góð
hlutverk þá skilar hann þeim
með mikilli prýði. Galli myndar-
innar er að annars góður leik-
stjóri, Joe Carnahan, fer fram úr
sjálfum sér í einstaka atriðum og
verður leikstjórn hans stundum
tilgerðarleg, til dæmis þegar
hann í einu atriði notar „split
screen“, sem hefur engan tilgang.
Þessi græðgi hans I að vera
„öðruvísi" veikir að hluta sterka
og áhrifamikla kvikmynd.
Lelkstjóri og handritshöfundur: Joe
Carnahan. Kvlkmyndataka: Alex
Nepomniaschy. Tönllst: Cliff Martinez.
Aðalleikarar: Jason Patric, Ray Liotta,
Krista Bridges, Chi McBride og Busta
Rhymes.