Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 18
18 SKOÐUN FIMMTUDACUR 19.JÚNÍ2003
Skoðun
Innsendar greinar ■ Lesendabréf
Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í síma: 550 5035, sent
tölvupóst á netfangiö:gra@dv.is eða sent bréf til.Lesendasíða
DV, Skaftahlíð 24,105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að
senda mynd af sér til birtingar.
Hver réð gjaldkerann?
Olíuborun á landi
Guðjón Guðmundsson skrifar:
(öllum þeim fréttaflaumi sem
spunninn er vegna hins dular-
fulla peningahvarfs hjá Lands-
símanum gegnum hendurað-
algjaldkerans þar á bæ er auð-
vitað mörgum spurningum
enn ósvarað. Og einkennilegt
er að almenningur heyrir í raun
ekki margar áhugaverðar
spurningar bornar upp af fjöl-
miðlamönnum. Ein er t.d. þessi:
Hver réð gjaldkerann til Lands-
símans? Svarið myndi eflaust
vera: Ja, hann var ráðinn gegn-
um ráðningarskrifstofu! Er það
nægilegt svar? Ráðningarskrif-
stofa ræður ekki mann nema í
samráði við þann sem biður
um starfskraftinn. Þá er að
spyrja: Hvaða Landssímamaður
valdi einmitt þennan mann?
Sveinn Jóhannsson hringdi:
Ég hef verið að lesa í DV um
olíusetlög við (sland og jafnvel
á landinu sjálfu. Mikið er búið
að rannsaka og staðfesta að
hér eru setlög til staðar. Hvað
er þá í veginum sem hamlar
því að hafist verði handa um
tilraunaborun? Er ekki akkur
fyrir íslenska ríkið að fá þetta
staðfest að fullu? Olíuborun á
landi væri skynsamleg, og eng
inn getur bannað að leyfa al-
þjóðiegu fyrirtæki að bora
fimm km holu á landi í einka-
eign. Ég skora á einstaklinga
eða fyrirtæki að kaupa rétt
landeiganda þar sem setlög
eru talin vera til þess að láta
bora á það dýpi sem til þarf til
að komast að hinu sanna.
Miklar erlendar skuldir íslands
SKOÐUN GREIN
Björgvin Guðmundsson
viöskiptafræðingur.
Sendinefnd frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum var á ferð hér á
landi fyrir nokkru. Slíkar
heimsóknir eru regluiegar og
er tilgangur þeirra að gera
nokkurs konar úttekt á ís-
lensku efnahagslífi. Umsögn
sendinefndarinnar um
ástandið hér var nokkuð já-
kvæð að þessu sinni.
Alvarlegar athugasemdir
Þó gerði sendinefndin alvarlegar
athugasemdir við miklar erlendar
skui 3ir fslands. Hreinar erlendar
skuldir námu í árslok 2002 80% af
vergri landsframleiðslu. Alls nema
erlendar skuldir þjóðarbúsins
130% af vergri þjóðarframleiðslu í
ársok 2002. Sagði sendinefnd Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins að þetta
væri hæsta hlutfall meðal þróaðra
þjóða.
Ef litið er á þróun erlendra
skulda frá árinu 1995, eða frá því
núverandi stjómarflokkar komust
til valda, kemur eftirfarandi í ljós:
Árið 1995 námu hreinar erlendar
skuldir sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu 50% en í lok ársins 2002
námu þær sem fyrr segir 80%.
Þetta er nokkuð önnur mynd en
fulltrúar stjórnarflokksins drógu
upp af ástandinu í þessum efnum í
kosningabaráttunni. Þá héldu
þessir fulltrúar því fram að þetta
ástand væri mjög gott og hefði
batnað mikið undanfarin ár. En
það er alveg þveröfugt. Árið 1999,
þegar síðasta kjörtímabil hófst,
námu hreinar erlendar skuldir ís-
lands sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu 49%. Þær jukust því á
kjörtímabilinu úr 49% í 80%!
„ Vafamál er hvort það
er í verkahring Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins að
mæla fyrir um hvort ríki
láti hið opinbera eða
einkaaðila annast mik-
ilvæga þjónustu eins og
rekstur heilbrigðiskerf-
is og menntakerfis."
Á meðan hreinar erlendar skuld-
ir íslands em meiri en í nokkm
öðm þróuðu ríki getum við ekki
verið ánægðir með árangurinn í því
efni að lækka skuldirnar.
Mikið vafamál
í áliti sendinefndar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins er fjallað um áform
ríkisstjórnarinnar um hækkun hús-
næðislána og um skattalækkanir.
Varað er við hækkun húsnæðislána
og bent á að hækkun þeirra gæti
valdið hækkun fasteignaverðs. í
sambandi við áform um lækkun
skatta er bent á nauðsyn þess að
lækka ríkisútgjöld áður en skattar
verði lækkaðir. Er sú athugasemd í
samræmi við álit er fram kom í
kosningabaráttunni um að hætt
væri við að framlög til velferðar-
kerfisins yrðu skert ef lækka ætti
skatta.
í áliti sendinefndar Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins er mælt með aukinni
einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu
og menntakerfinu. Er sagt að á
þann hátt mætti ná auknu aðhaldi í
rekstri og sparnaði. Hér er með
öðmm orðum mælt með því, að al-
menningur greiði meira sjálfur fyr-
ir þjónustuna í þessum greinum.
Vafamál er hvort það er f verka-
hring Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að
mæla fyrir um það hvort ríki láti hið
opinbera eða einkaaðila annast
mikilvæga þjónustu eins og rekstur
heilbrigðiskerfis og menntakerfis.
Hér er um mjög viðkvæmt pólitískt
mál að ræða og hlýtur það alfarið
að vera mál viðkomandi ríkis hvaða
leið það velur í þessum efnum.
Valfrelsi
í skólamálum
Jón Benediktsson skrifar:
Nýlega var kynnt skýrsla um
valfrelsi í skólamálum. Þar kem-
ur m.a. fram að í grunnskólum
okkar virðist sem þar séu fremur
hafðir að leiðarljósi hagsmunir
þeirra sem veita þjónustuna í
skólunum en hinna sem eiga að
fá hana. Það dugar lftt fyrir
borgarstjórann að mótmæla
þessu, þar sem t.d. formaður
fræðsluráðs Reykjavíkur hefur
viðurkennt að yfirvöld séu
bundin á klafa kjarasamninga
við starfsmenn grunnskólanna.
Á meðan svo er að allt grunn-
skólakerfið er í raun og sann í
eins konar gíslingu kennara og
annarra starfsmanna í skóla-
kerfinu verður lítið úr því að
koma á raunverulegu valfrelsi í
skólamálum í þessum geira
menntakerfsins. Sjálfstæði
grunnskólanna fer fyrir lítið í
kerfi þar sem engu má breyta
fyrir ofríki „starfsstéttanna".
*
I gfslingu„starfsstéttanna"?
Samkynhneigð - öfuguggaháttur?
Þorsteinn Hákonarson
framkvæmdastjóri skrifar:
Hér áður áttu samkynhneigðir
menn, sem sýnilega voru í hátt lík-
ari konum, afskaplega erfitt upp-
dráttar. Það var þeim erfitt vegna
kynhneigðar sinnar að finna sér
tryggan og gagnvirðandi félaga
með rómantík og sambúðarferli
ekki ólíkt og með hjónum. Menn
sem bjuggu þannig saman urðu
fyrir aðkasti.
Ríkjandi siðun
En þessir menn hafa aldrei kom-
ið alla leið út úr skápnum. Þeir
bjuggu við það að aðrir karlar mis-
notuðu þá með ofbeldi, níði, ofríki
og vændu um öfuguggahátt. Vegna
þess að samkynhneigð var ekki við-
urkennd í samfélaginu voru það
mikiir hagsmunir að ná viðurkenn-
ingu. Þessir „öfúguggar" eru um
margt líkir melludólgum, sem
keyra sjálfsvirðingu kvenna niður í
hagnaðarskyni. Við heyrum ekkert
af því þegar hommar í sambúð
þurfa að verja trúnað og reisn sam-
búðar sinnar fyrir mönnum mikill-
ar fýsnar en engra mannvirðinga. Á
þessu sviði eru öfuguggar eins og
annars staðar.
Auðvitað verður að virða ríkjandi
siðun, hvort heldur um gagnkyn-
hneigð eða samkynhneigð er að
ræða. Ef karl notfærir sér, svo dæmi
sé tekið, greindarlitla konu og
sendir hana til útlanda til að leika
sér að þar þá ræðst ríkjandi siðun
gegn slfku athæfi. En þegar sam-
kynhneigður karl gerir þetta við
greindarlítinn mann segir enginn
neitt. Fólki finnst Þetta vera eitt-
hvert „hommastand" og þá segir
samtfminn ekki bofs.
Þegar svo um er að ræða nfðings-
hátt gagnvart börnum fá samkyn-
hneigðir barnaníðingar aðra um-
„Vegna þess að sam-
kynhneigð var ekki við-
urkennd í samfélaginu
voru það miklir hags-
munir að ná viðurkenn-
ingu."
fjöllun vegna þess að ekki má gagn-
rýna samkynhneigð. En barnaníð-
ingar eru einnar gerðar og samkyn-
hneigðir verða að virða þá ríkjandi
siðun í orði sem á borði.
Hórukassahagfræði
Hagfræði kynlífs er rökstudd
með svipuðum rökum og Milton
Friedman, boðberi frjálsrar
dópsölu, notar: „Hvað myndir þú
gera í dæminu?“ Þannig er það
hagfræði út af fýrir sig, fýrir þá sem
kaupa sér drengi til samlags, að
þeir séu t.d.ekki að nota hættulegar
sprautur, jafnvel með lifrarbólgu-
sýkingu eða öðru verra. - Þá væri
betra að slíkir drengir hefðu frjálst
dóp og fríar sprautur.
Og þegar ekki er um að ræða til-
finningalegt samband milli ein-
staklinga heldur fýsnasvölun er það-
hagfræði kynlífs að hafa frjálst verð
á fýsnasvölun. Þegar farið er svo að
kenna þessa öfúguggahagfræði í
háskólum endar það með auglýs-
ingum og markaðsmennsku eins
og við höfum verið að sjá í fréttum.
Einnig heyrum við af nýjum ósið-
um unglinga á þessu sviði og fólki
sem virðir trúnað og tryggð ofbýð-
ur.
En Þegar farið er að auglýsa ís-
lenska þjóð í ljósi „hórukassahag-
fræði“ er tími til kominn að leggja
niður stöður manna sem að henni
standa og láta fyrirtæki og stofnan-
ir fmna fýrir slíku athæfi.