Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25.JÚNÍ2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: úrn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is.- Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94,sími:462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. EFNI BLAÐSINS Hóta brottrekstri hers - innlendar fréttir bls. 4 Kettir hverfa sporlaust - innlendar fréttir bls.4 91% launahækkun - innlendar fréttir bls. 6 Leikkona stefnir LR - innlendar fréttir bls. 6 Hverjir annast börnin - innlendar fréttir bls. 10-11 Sumarblíða í myndum -Tilvera bls. 16-17 Guðjón er umdeildur - DV-Sport bls. 38-39 Aston Villa vill ekki Jóhannes Karl - DV Sport bls. 36 DV Bingó Það er komið bingó á N-röðina. Nú spilum við því G-röðina og önnur talan er 57. Þeir sem fá bingó, eru vinsamlega beðnir að láta vita í síma 550 5000 innan þriggja daga. Ef fleiri en einn fá bingó er dregið úr nöfnum þeirra. í vinning er ferð fyrir tvo með Iceland Express til London eða Kaupmannahafnar. Samhliða einstökum röðum er allt spjaldið spilað. Verðlaun fyr- ir allsherjarbingó er vikuferð til Portúgals með Terra Nova Sól. Sagði upp tveimur konum UPPSAGNIR: Baejarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi í gærkvöld að segja upp tveimur konum í stjórn- unarstöðum hjá bænum frá 1. júli. Meirihluti bæjarstjórn- ar samþykkti að segja upp Hafdísi Hafliðadóttur skipu- lagsstjóra og Svölu Jónsdótt- ur jafnréttisráðgjafa. Þær voru ráðnar til starfa af bæj- arstjórn 1998, í tíð fyrrverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Bæjar- fulltrúar Sjálfstæðisflokks bókuðu andstöðu sina við uppsagnirnar og í umræðu um tillögurnar benti einn bæjarfulltrúi flokksins á mis- ræmi milli orða og gerða Samfylkingar sem gæfi sig út fyrir að vinna að jafnrétti. Beint flug til Narsarssuaq TAKA HÖNDUM SAMAN: Jón Karl Ólafsson, framkvæmda- stjóri hjá Flugfélagi (slands, og Magni Arne, forstjóri Atlantic Airways. DV-myndGVA SAMGÖNGUR: Flugfélag (s- lands og færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefja beint flug til frá Reykjavík til Nars- arssuaq á Grænlandi í dag, en flug þangað hefur legið niðri í tvö ár. Nýlegt samkomulag milli íslensku ríkisstjórnarinnar og grænlensku heimastjórnar- innar um fjárframlag vegna flugsins gerir það mögulegt. Flogið verður tvisvar í viku frá miðjum júní fram til loka ágúst með þotu frá Atlantic Airways. Flugið er jafnframt tengt flugi til Færeyja og er því hægt að fljúga beint milli Grænlands og Færeyja með viðkomu í Reykjavík. Lægsta fargjald til Grænlands aðra leið er 15.415 krónur samkvæmt nýrri verðskrá. i Borgarfirði seljast fyrir firnaháar upphæðir: Kaupsýslumenn kaupa jarðir fyrir tugi milljóna Jarðir með veiðiréttindum eru eftirsóttar og seljast dýrt, til dæmis við Langá á Mýrum í Borgarfirði. Verðið mun halda áfram að hækka að mati kunn- ugra Jarðir sem liggja að Langá í Borg- arfirði hafa verið að seljast á himin- háu verði að undanförnu. Veiðirétt- indi eru farin að hækka verð ein- stakra jarða upp úr öllu valdi og kaupverðið er í hæstu hæðum. Jörðin Langárfoss var nýlega seld og fór á milli 80 og 90 milíjónir króna. Seljandi var Sveinn Aðalsteinsson, viðskiptafræðingur í Reykjavík. Kaupandi jarðarinnar var hlutafé- lagið Langárfoss ehf. Að því standa skv. heimildum DV Jóhannes Krist- insson, flugstjóri hjá Cargolux í Lúx- emborg, og Pálmi Haraldsson, kenndur við Banana hf. Veiðiréttindi eru farin að hækka verð ein- stakra jarða upp úr öllu valdi og kaupverðið er í hæstu hæðum. Hvítsstaðir á háu verði Borgarbyggð seldi í síðasta mán- uði jarðirnar Hvítsstaði og Árbæ sem er ofanvert við Hvítá vestan- verða. Sveitarfélagið átti jörðina að hálfu á móti Skógrækt ríksins, en hún er með öllu húsalaus. Kaup- verðið var 27,5 milljónir króna. Samkvæmt heimildum blaðsins eru kaupendurnir þjóðkunnir kaupsýslumenn í Reykjavík. „Verðið á Hvítsstöðum fór fram úr okkar björtustu vonum. Við fengum fyrir jörðina mun hærra verð en við höfðum gert ráð fyrir í fjárhagsáædun okkar fyrir þetta ár. Þessa fjármuni hyggjumst við síðan nota í hinar ýmsu fjárfestingar sem við þurfum að fara í hér á vegum sveitarfélagsins," sagði Páll Snævar Brynjarsson, bæjarstjóri í Borgar- byggð. Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðla- maður, sem í áraraðir hefur verið með veiðiútgerð við Langá, segist telja verðið fyrir Hvítsstaðina vera mjög sanngjamt. Miðað við þróun undanfarinna ára megi augljóslega áætla að innan fárra ára verði þetta „talið algjört tombóluverð,“ eins og Ingvi komst að orði. Fleiri jarðir falar Hvítsstöðum og Árbæ fylgdu fjórar einingar veiðiréttar í Langá en Langárfossi hins vegar 27. Þannig skýrist hinn mikli verðmun- ur á jörðunum að nokkm leyti. Ýmsar fleiri jarðir em í eigu sveitar- félagsins og verða þær seldar ef við- unandi tilboð fæst, að sögn bæjar- stjórans. Þeirra á meðal er jörðin Grenjar sem liggur að Langá, en hana á sveitarfélagið að hálfu á móti erfingjum Odds heitins Ólafs- sonar, alþingismanns og yfirlæknis á Reykjalundi. Einnig má hér nefna Urriðaá og Smiðjuhól á Mýmm. Þær jarðir em samliggjandi og em nú í eigu Capi- tal ehf, en það félag keypti jarðirnar fyrir fyrir fáum missemm. Umrætt hlutafélag er í eigu Magnúsar Gunnarssonar kaupsýslumanns, áður formanns VSI og síðast for- manns bankaráðs Búnaðarbanka fslands. í samræmi við þróun Magnús Leopoldsson fasteigna- sali, sem í áraraðir hefur fengist við sölu bújarða, segir að þetta háa verð sem fékkst fyrir jarðirnar á Langárbökkum sé í samræmi við þróun á þessum markaði. Jarðir með veiðiréttindum fari á háu verði og þá ekki síst þær sem séu á sunn- an- og vestanverðu landinu. Al- mennt sé þó eftirspurn eftir slíkum so r~s ó M o Hvítsstaðir OLahgárfoss jörðum ekki bundin við ákveðin landsvæði. „Ég tel líklegt að þessi þróun haldi áfram og lönd sem liggja að laxveiðiám haldi áfram að hækka í verði. Slíkt er þó að mínu mati bundið við hvernig aflabrögð verða og þau hafa verið treg síðustu sum- ur,“ segir Magnús Leopoldsson. sigbogi@dv.is INGVI HRAFN: Hvítsstaðir á algjöru tombóluverði. MAGNUS: Aflabrögð stjórna verðinu. PÁLL SNÆVAR: Verðið fram úr okkar björtustu vonum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.