Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 15 4- Skoskur lax geislavirkur Forysta al-Qaeda í molum LAXELDI: Rannsóknir sýna að leifaraf geislavirkum úrgangi er að finna í skoskum eldislaxi sem seldur er í matvöruversl- unum. Umhverfisverndarsam- tökin Greenpeace, sem ósk- uðu eftir rannsókninni, segja að mengunina megi rekja til losunar geislavirks úrgangs frá Sellafield kjarnorkuendur- vinnslustöðinni í Englandi sem (slendingar, Norðmenn og (rar hafa í mörg ár þrýst á að verði lokað. Geislavirka efnið teknitín-99 fannst í bæði ferskum og reyktum eldislaxi sem keyptur var í stórmörkuðum. Að sögn heilbrigðisyfirvalda var magn- ið vel innan leyfilegra marka og því engin ástæða fyrir neytendur til að óttast. HRYÐJUVERK: George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að tekist hefði að uppræta for- ystu al-Qaeda, hryðjuverksam- taka Osama bin Ladens, en það gæti tekið mörg ár að ganga milli bols og höfuðs á almennum liðsmönnum sam- takanna. Franski fræðimaðurinn Roland Jacquard, sem er sérfræðingur í alþjóðlegum hryðjuverkum, sagði að al-Qaeda réði hugs- anlega yfir um átta hundruð mönnum sem væru reiðubún- ir að ráðast á bæði efnahags- leg skotmörk og ferðamenn. Jacquard, sem er ráðgjafi Sameinuðu þjóðanna í þess- um efnum, sagði að SÞ myndu senda frá sér skýrslu í næstu viku þar sem fram kæmi að bin Laden hefði sent þriðju kynslóð al-Qaeda liða frá Afganistan áður en Banda- ríkjamenn steyptu stjórn tali- bana í nóvember 2001. Jacquard sagði í viðtali við franska sjónvarpsstöð að það væri orðið mjög erfitt fýrir leyniþjónustur að fylgjast með ferðum þessara manna sem hann sagði stórhættulega. Á VERÐI: Bretar urðu í gær fyrir mesta mannfall í (rak síðan þeir hófu þátttöku í inrásinni í landið í lok mars og einnig voru árásirnar (gær þær mannskæðustu sem innrásarherir bandamanna hafa orðið fyrir í átökum á einum degi síðan stríðinu lauk þann 1. maí sl. verið gerð innan landamæra Sýr- lands. Rumsfeld sagði á blaðamanna- fundi í gær að vissulega yrðu þeir látnir lausir og væru viðræður í gangi við sýrlensk stjórnvöld. Hann vildi þó lítið segja um það hvort árásin hefði verið gerð inn- an landamæra Sýrlands og bætti við að oft væru landamæri óljós. Prakkarínn í afmæli Vilhjálms príns: Harmar fjaðrafokið Boðflennan í 21 árs afmæli Vil- hjálms Karlssonar Bretaprins harmar mjög allt fjaðrafokið sem uppákoma hans í Windsorkastala á laugardags- kvöld olli meðal bæði breskra stjórnmálamanna og yfir- manna öryggismála. „Ég gekk of langt og þetta mun ekki endurtaka sig,“ sagði grínist- inn Aaron Barschak í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC. Barschak tókst að komast fram hjá öllum öryggisvörðum inn í Windsorkastala og upp á svið þar sem Vilhjálmur prins var að flytja ávarp. Hann var ekki handsamaður fyrr en hann fór fram á bar að fá sér eitthvað til að svala þorstanum. Barschak sagðist hafa gripið til þessa ráðs til að auglýsa atriði sitt á Edinborgarhátíðinni í sumar. Hann sagðist vera konungssinni og að hann harmaði afleiðingarnar. „Ég vil fara heim. Eg er orðinn ÓVÆNT UPPÁKOMA: Vilhjálmur prins á Englandi fékk óvæntan og óboðinn gest í 21 árs afmælisveisluna sína í Windsorkastala um síðustu helgi. Hvorki prinsi né öðrum ráðamönnum Bretlands var skemmt. Gestirnir kunnu þó vel að meta spaugarann óboðna. hundleiður á þessu öllu saman, ég vil ekki sjá þetta meir,“ sagði spaugarinn Aaron Barschak. Hefur þú séð þennan bíl? Þessum silfurlita VWPolo með skmr. YG-330 varstolið afbílasölu í Kópavogi. Efþú hefur upplýsingar um bílinn hafðu þá vinsamlega samband við lögregluna í Kópavogi. s. 560 3050 eða 640 3713. Spaugarinn Ali handtekinn Samkvæmt fréttum breska blaðsins Daily Mirror handtóku bandaríksir hermenn Mo- hammed Saeed al-Sahaf, fyrr- um upplýsingamálaráðherra Iraks, við vegatálma f einu úthverfa Bagdad í fyrrakvöld. Al-Sahaf er betur þekkur sem „spaugarinn Ali“ vegna fram- göngu hans sem helsti tals- maður fyrrum ógnarstjórnar Saddams f upphafi strfðs, en þá kom hann oft fram í skraudegum sjónvarpsútsend- ingum þar sem hann laug til um stöðu stríðsins. „Við erum að sigra," sagði hann þegar hersveitir Banda- ríkjamanna hófu innrásina í Bagdad og hvatti landa sína til dáða gegn vonlausum óvin- inum. SPAUGARINN: Al-Sahaf, helsti tals- maður ógnarstjórnar Saddams. Tafið var að al-Sahaf, sem var ekki á lista Bandaríkjamanna yfir eftirlýsta stuðningsmenn Saddams, hefði framið sjálfs- morð eftir fall Saddams en hann mun samkvæmt frétt Daily Mirror hafa farið huldu höfði í íbúð í úthverfi Bagdad ásamt fjölskyldu sinni. Sigurstjarnan AFMÆLISTILBOÐ! 50% AFSLATTUR! Hver einasti hlutur í búðinni á 50% afslætti fimmtudag ogfóstudag. Ótrúlegt úrval Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin. Sigurstjarnan í bláu húsi við Fákafen, sími 588 4545.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.