Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 TILVERA 23 Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5813 -550 5810 Bono margoft hótað lífláti HÓTUNARBRÉF: Öll öryggisgæsla f kringum írska popparann Bono, for- söngvara rokksveitarinnar U2, hefur verið hert til muna vegna ítrekaðra morðhótana að undanförnu. Bono hefur fengið hvorki meira né minna en 24 bréf, sem öll voru póstlögð í London, frá einhverjum sem mislíkar barátta popparans fyr- ir bættum kjörum fátæklinga í þriðja heiminum. Sem kunnugt er hefur Bono meðal annars lengi barist fyrir því að skuldir ríkja í Afr- íku verði gefnar eftir svo að þau geti komið betur undir sig fótun- um. Bréfritarinn vill að Bono gefi skít í útlendingana og snúi sér frekar að því að koma eigin fólki til hjálpar. „Ef þessu heldur áfram kemur þú til með að enda í kistu," segir í einu hótunarbréfinu. Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. 3uzuki Baleno Wagon, bsk. Skr. 12/01, ek. 26 þús. Verð kr. 1390 þús. Kirkjuvörðurinn: „Starfið er fræðandi og síðan fær maður líka svolítinn lærdóm í tungumálum," segir Rakel Gísladóttir með altaristöfluna í baksýn. Á vaktinni í gömlu torfkirkjunni á Víðimýri í Skagafirði: Virðing íyrir gömlum kirkjum V(öimýrarkirkja: Stílhrein og fögur, byggð árið 1834. Gamla kirkjan á Víðimýri í Skagafirði er 169 ára. Kirkju- vörðurinn Rakel Gísladóttir er aðeins tæplega tvítug. Hvort heldur er hér innanlands eða úti í heimi þá eru kirkjur alltaf sterkt aðdráttarafl ferðamanna. Þannig eru íslensku sveitakirkjurn- ar alltaf h'eillandi, til að mynda torf- kirkjurnar sem þó eru orðnar fáar uppistandandi. Kirkjan á Víðimýri í Skagafirði þykir næsta einstæð í sinni röð en hún var byggð árið 1834. Læri þýskuna „Að standa vaktina hér í kirkj- unni er líklega skemmtilegasta starf sem ég hef sinnt til þessa. Ekki síst er starfíð fræðandi og síðan fær maður líka svolítinn lærdóm í tungumálum. Lærir þessi einföld- ustu orð í þýskunni, en stærstur hluti þeirra ferðamanna sem hing- að koma eru af erlendu bergi brotnir," segir Rakel Gísladóttir, nítján ára, úr Vamahlíð. Þetta er hennar fyrsta sumar í þessu starfí þar sem hún stendur vaktina jöfnum höndum á Víðimýri og í byggðasafninu í Glaumbæ. Á síðarnefnda staðnum leiðsegir hún ferðamönnum í íslenskum peysu- fötum eins og var sunnudaga- klæðnaður íslenskra kvenna á fyrri tíð. Á Víðimýri er hún hins vegar gjarnan í flíspeysunni, Stílhreinn minjagripur Margt hefur um kirkjuna á Víði- mýri verið ritað. í bókinni Hundrað ár í Þjóðminjasafni sem Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður og síðar forseti íslands, skráði segir hann að kirkjan sé „... einn stílhreinasti og fegursti minjagripur íslenzkrar byggingalistar sem til er“, eins og hann kemst að orði. Altaristaflan f kirkjunni er frá ár- inu 1727 og sýnir heilaga kvöldmál- tíð. Kirkjan var mjög hrörleg orðin þegar hún var aldargömul. Varð að ráði að ríkissjóður keypti kirkjuna og var hún gerð upp. „Maður ber að sjálfsögðu virð- ingu fyrir gömlum munum og þá ekki síst kirkjum," segir Rakel Gísla- dóttir. Hún segir ekki annað en góða anda vera á sveimi í gömlu torfkirkjunni á Víðimýri. Hins vegar segi sér reyndara fólk í minjavörsl- unni í Glaumbæ að sitthvað sé á sveimi í gamla torfbænum þar; nokkuð sem almennt sé auðveld- ara að skynja en sjá. -sbs Elton John Efnalitlir aðdáendur fengu frítt Nokkur hundruð aðdáendur skallapopparans Eltons Johns fengu óvænt frítt inn á tónleika hans á Cotroceni-leikvanginum í Búkarest um síðustu helgi, þá fyrstu sem hann heldur þar í landi. Aðstandendur tónleikanna tóku þessa ákvörðun eftir að ljóst var að aðeins nokkur hundruð miðar höfðu selst af þeim fimmtán þúsund sem í boði voru og frekar en að bjóða goðinu upp á hálftóman leikvang var þeim hundruðum aðdáenda sem safnast höfu saman fyrir utan leikvanginn hleypt frítt inn við mikinn fögnuð en fólkið hafi ekki haft efni á því að kaupa sér miða með kostuðu frá fjórtán hundruð til tíu þúsund krónur. Yfirskrift tónleikanna var „Tónlistarviðburður ársins í Rúmeníu“ en Elton, sem kom til Búkarest tveimur tímum fyrir tónleikana, þótti standa vel fyrir sínu eins og venjulega, en hann er mjög vinsæll í Rúmeníu, ekki síst vegna stuðnings hans við bar- áttuna gegn alnæmi f landinu. Elton hélt beint til Búdapest í Ungverjalandi strax eftir tónleik- ana í Búkarest en þar biðu hans fimmtu tónleikarnir á yfir- standandi tónleikaferð um Evrópu. Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk Skr. 8/99, ek. 39 þús. Verð kr. 990 þús. Suzuki Liana, bsk. Skr. 2/02, ek. 10 þús. Verð kr. 1380 þús. Suzuki Grand Vítara 2,0, bsk. Skr. 6/01, ek. 73 þús. Verð kr. 1791 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk. Skr. 6/00, ek. 54 þús. Verð kr. 1160 þús. MMC Space Star, bsk. Skr. 5/00, ek. 54 þús. Verð kr. 990 þús. Subaru Legacy GL Wagon, bsk. Skr. 7/99, ek 64 þús. Verð kr. 1390 þús. Subaru Forester 2,0 AX, ssk. Skr. 3/98, ek. 89 þús. Verð kr. 1180 þús. Honda HRV, bsk. Skr. 2/02, ek. 31 þús. Verð kr. 1690 þús. Sjáöu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---////------------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100 *r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.