Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Page 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl2003
Klassískt efni, segir Gunnar Helgason leikstjóri
Söngleikir
GREASE-MOLAR: (uppruna-
legri útgáfu á söngleikurinn
Grease sér stað í Rydell High
menntaskólanum skömmu
eftir 1950 og er eftir Warren
Casey og Jim Jacobs. Danny
Zuko er foringin í töffara-
gengi sem kallar sigT'Birds,
stelpuklíka í skólanum kallar
sig Pink Ladies en stúlkurnar í
klíkunni eru langt frá því að
vera dömur. Danny og Sandy
kynntust í sumarleyfi og hitt-
ast aftur í skólanum um
haustið. Sandy finnst Danny
ekki vera sami maðurinn og
fellur illa inn í stelpuklíkuna
sem gerir óspart grín af sak-
leysi hennar. Hún ákveður að
breyta til og áður en varir er
hún orðin svalasta p(an í skól-
anum og slær alla út af lag-
inu. Kvikmynd sem gerð var
eftir söngleiknum var frum-
sýnd árið 1978 með þau John
Travolta og Oliviu Newton-
Johns í aðalhlutverkum og
sló öll aðsóknarmet.Tekjur af
henni voru þrjú hundruð og
fjörutíu milljón dollararfyrsta
árið sem var met fyrir söng-
leik og stendur það enn.
Grease
i nyjum Duningi
„Grease er klassískt efni og því í
raun óþarfi að spyrja þessarar
spurningar," segir Gunnar Helga-
son, leikstjóri nýrrar uppfærslu á
söngleiknum, þegar hann er spurð-
ur hvers vegna ákveðið hafi verið
að setja hann upp aftur. „Það kom
upp hugmynd um að fá Birgittu
Haukdal og Jón Jósep Snæbjörns-
son, söngvara í hljómsveitinni í
svörtum fötum, til að leika í söng-
leik og þau voru til í það. Grease
varð fljótlega fyrir valinu enda
klassískt og gott verk sem flestir
hafa gaman af.“
Ég held að það verði
mjög gaman fyrir fólk
að koma á sýninguna
og sjá andlit sem það
þekkir ekki.
Gunnar segir að söngleikurinn sé
svo vinsæll víða erlendis að í mörg-
um borgum sé hann alltaf í gangi.
„Ég sá til dæmis erlenda uppfærslu
í vetur sem var frumsýnd 1993 og
hún gengur og gengur."
Ný framsetning
Að sögn Gunnars var ljóst frá
upphafi að um nýja framsetningu á
efninu væri að ræða. „Það kom
aldrei til greina að gera þetta eins
og síðast. Sagan og tónlistin er sú
sama en allt annað er breytt. Eins
og við gerum þetta þá gerist sagan á
Islandi árið 2003.“
Gunnar segir að flutningur sög-
unnar í tíma og rúm kalli á breyt-
ingar á nánast ölhí. „Útsetningar á
lögunum eru öðruvísi, búningarn-
ir, sminkið og leikmyndin. Við urð-
um líka að fá nýja gerð af bfl og
heimfæra söguna að íslenskum að-
stæðum með því að taka út allt
þetta ameríska og gera það ís-
lenskt." Gunnar segir að þrátt fyrir
að ýmis ljón hafi verið á veginum
hafi undirbúningur gengið vel og
gaman að vinna að uppfærslunni.
„Við fengum strax bestu menn í
verkið, Gísla Rúnar Jónsson stað-
færir og ég fékk stundum að kíkja
yfir öxlina á honum og fylgjast með
og það var bæði fræðandi og
skemmtilegt. Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson sér um tónlistina og
hljómsveitin er frábær, Vignir í Ira-
fári, Haffi í Síðan skein sól, Kjartan
Valdimarsson og Guðni bassaleik-
ari."
Nýandlit
„Fyrir utan Birgittu og Jónsa, sem
leika aðalhlutverkin, eru sextán
aðrir á sviðinu. Það hefur til dæmis
enginn af dönsurunum tekið þátt í
atvinnumannasýningu áður."
Gunnar segir að hann hafi leitað til
ungs fólks sem stundar samkvæm-
isdansa og til ungra leikara þegar
hann valdi í hlutverkin. „Enda
krefst verkið þess." Hann segir
einnig að í hópi leikara séu til
dæmis ein leikkona sem útskrifað-
ist í vor, þrjár sem kláruðu í fyrra og
tveir strákar sem eru enn i Leiklist-
arskólanum.
Grease varð fljótlega
fyrir valinu enda klass-
ískt og gott verk sem
flestir hafa gaman af.
„Ég held að það verði mjög gam-
an fyrir fólk að koma á sýninguna
og sjá andlit sem það þekkir ekki og
enn þá skemmtilegra að sjá þau
brillera eins og allir eru að gera.“
Gunnar segir að Guðrún Lárus-
dóttir og Helga Rósa Hannam hafi
í sviðsljósinu: Sigrún Birna, María Þórðar, Margrét Eir, Birgitta Haukdal, Brynja Valdís Gísladóttir, Sigrún Ýr Magnúsdóttir og Tinna
Hrafnsdóttir. DV-myndir ÞÖK
m
Strákagengiö: Guðjón P. Karlsson, Sveinn Þór Geirsson, Jón
Jósep Snæbjörnsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jóhannes HaukUr
Jóhannesson.
StelpukKkan: Birgitta Haukdal, Sigrún Birna Blomsterberg, Mar-
ía Þórðardóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Margrét Eir Hjartar-
dóttir.
hannað búningana fyrir sýninguna
en þær eru báðar nýútskrifaðar úr
tfskuhönnunardeild Listaháskóla
Islands. „Þær komu inn í dæmið
mjög seint og hafa unnið þrekvirki
síðustu fjórar vikurnar. Brúðakjóla-
leiga Dóru veitti okkur líka mjög
góðan styrk í fataúttekt sem bjarg-
aði tveimur stærstu atriðunum lyr-
ir okkur."
Þegar Gunnar er spurður hvort
allt sé tilbúið fyrir frumsýningu
annað kvöld hlær hann og segir:
„Nei ekki enn en það verður það."
-Kiþ
*
Þýddi textann upp á nýtt: Gísli Rúnar Jónsson segist telja að dæmið hafi gengið ágætlega upp með því að hafa hreppa-
flutninga á verkinu í tíma og rúmi og finna íslenskar hliðstæður Á myndinni með Gísla er sonur hans, Róbert Ólíver Gísla-
son..
Hreppaflutningar
í tíma og rúmi
Það var Gísli Rúnar Jónsson
sem vann textann fyrir nýja upp-
færslu Borgarleikhússins á söng-
leiknum Grease. Að hans sögn
gekk verkið furðulega vel þrátt
fýrir að vera snúið. „Ég hef oft
staðfært verk áður eða haft á
þeim landflutninga en þetta var
bæði flutningur í tíma og rúmi og
það var snúið. Grease er fiftís
mústkal og fyrst eftir að mér var
boðið verkið fannst mér hug-
myndin mjög skrítin en ég var
fljótur á átta mig á því að þetta er
hægt. Persónulega finnst mér
dæmið hafa gengið ágætlega upp
með því að hafa hreppaflutninga
á verkinu í tfma og rúmi og finna
íslenskar hliðstæður."
Aðspurður segir Gísli að textinn
sé endurþýddur til að passa við
samtímann. „Allt laust mál og
bundið er algjörlega þýtt upp á
nýtt og því í raun um frumflutn-
ing að ræða."
-Kip
í