Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 25.JÚNÍ2003 TULVERA 35 Lífið.e- vmnu Bláa kirkjan í kvöld verða tónleikar í Bláu Kirkj- unni á Seyðisfirði kl. 20.30 Auður Hafsteinsdóttir, fiðla; Bryn- dís Halla Gylfadóttir, selló og Stein- unn Birna Ragnarsdóttir, píanó leika létta dúetta og tríó. Ásamt tn'ói eftir Haydn sem ljúkar með mjög vinsæl „ungverskt rondó", sem er létt og skemmtilegt munu verða á dag- skránni tangóar eftir Argentínska tónskáldið Astor Piazzolla. Einnig verður vinsæl tónlist eftir Gluck, Beethoven og Bach og lag eftir John Williams úr kvikmyndinni Schindler’s List, og spönsk tónlist eftir Granados og Cassadó. Handan tímans ftalski kórinn Liberia Cantoria Pisani undir stjóm Filippo Furlan ásamt slagverksleikaranum Luca Nardon er í heimsókn hér á landi og heldur kórinn tvenna tónleika. Kór- inn hefur tekið þátt í ýmsum kóra- mótum og keppnum í Evrópu og unnið til verðlauna fyrir flutning sinn. Kórinn hefur fyrst og fremst fengist við flutning á eldri tónlist frá miðöldum og endurreisnartímanum en einnig verið virkur í flutningi 20.aldar verka og pantað verk frá ítölskum samtímatónskáldum. Efh- isskrá kórsins á Islandi samanstend- ur eingöngu af tónlist frá 20.öld og samtímanum. Yfirskrift tónleikanna er Handan ti'mans þar sem fléttað er saman kórtónlist og slagverksspuna. Fyrri tónleikamir verða f Skálholti í kvöld (frítt) en síðari tónleikarnir í Listasafni Reykjavíkur í Hafharhúsi föstudaginn 27. júní (kr.1000) og hefjast þeir báðir kl. 20:00. Hvað er ósnortin náttúra Bandarískur umhverfissagnfræð- ingur, Harriet Ritvo mun halda fyrir- lestur í Norræna Húsinu í Reykjavík í dag. Harriet Ritvo starfar sem pró- fessor við MIT og hefur í rannsókn- um sínum sérstaklega fjallað um hugmyndafræðilegan grundvöll náttúruverndar. I fyrirlestri sínum mun Ritvo fjalla um hvað sé ósnortin náttúra og hvort mannvirki og at- hafnir mannsins séu raunvemleg náttúmspjöll eða einfaldlega breyt- ing á náttúm sem óháð aðgerðum og mannvirkjum manna tekur sífelld- um breytingum. Fyrirlesturinn er í Norræna húsinu og hefst kl. 12.00 LÖGGAN: Kurt Russel leikur Elton Perry af miklum krafti. Löq og ólög í L/ mmrmmMnm Sif Gunnarsdóttir sif@dv.is Ef það er eitt sem ég hef lært af öll- um löggumyndunum sem ég hef séð þá er það að löggan í Los Angeles er sú spilltasta og versta á byggðu bóli. Kvikmyndin Dark Blue er af sama ættbálki og löggumyndirnar L.A. Confidential og Training Day sem er ekki nema von því að handritshöf- undurinn Ayer er sá sami og skrifaði Training Day en handritið að Dark Blue skrifar hann eftir bók James Efl- roys sem skrifaði L.A. Confidential. Mennimir hafa augljóslega spilltar löggur á heilanum. I Dark Blue leikur Kurt Russel lögguna Eldon Perry. Hann er harður í hom að taka og trúir á það eitt að koma glæpamönnum fyrir kattarnef og finnst skipta litlu máli hvaða að- ferðir em notaðar. Perry hefur fengið nýjan félaga, Bobby Keough (Speed- man), sem er ekki alveg búinn að fatta að lögin em það sem lögreglan gerir - ekki það sem hún fer eftir. Þegar myndin hefst er aganefnd að rannsaka þá vegna skotbardaga þar sem þeir drápu mann, nákvæmlega á sama tíma og bandaríska þjóðin beið í ofvæni eftir úrskurði kviðdóms um mál lögreglumannanna fjögurra sem börðu Rodney King í Los Angel- es árið 1992. Yfirmaður Perrys, Jack Van Meter (Gleeson), er gjörspilltur og fégráðugur lögreglustjóri sem læt- ur sér ekkert fýrir brjósti brenna en sem betur fer leynist einn góður maður í lögregluliði englaborgarinn- ar, aðstoðarlögreglustjórinn Arthur Holland (Rhames), og hann ætlar sér að taka til í lögreglunni hvað sem það kostar. Styrkur Dark Blue er sem sagt ekki plottið, því það er margnýtt, en margt gerir hana þó vel þess virði að sjá hana. Handritið er þétt og ágengt (þótt endirinn hefði mátt vera minna melódramatískur) og græðir á þvf að stilla sögunni upp við sögu- legan atburð. Eftir að myndbandið með Rodney King er sýnt í upphafi myndar kemur ekkert sem slæmu löggurnar gera manni fyrir sjónir sem ótrúlegt eða of langt gengið. Myndin endar sama dag og kvið- dómurinn úrskurðaði lögregluþjón- ana saklausa og Los Angeles logaði Það sem lyftir Dark Blue yfir meðallagið er frábær leikur Kurts Russels í að- alhlutverkinu. Perry er siðspilltur rasisti sem heldur að hann sé hetja. Hann er aldrei alvondur enda er hann verri lögga en maður. af óreiðum, Sú umgjörð hentar loka- atriðinu einkar vel. Leikstjórinn, Ron Shelton, hefur hingað til helst gert rómantískar íþróttamyndir eins og Bull Durham og Tin Cup en tekst prýðilega að skapa hráa og ofbeldisfulla stemn- ingu. Kvikmyndatakan er að venju grófkornuð, hraðldippt og hoppandi - (öðruvísi eru myndir ekki gerðar núna) sem hentar einkum götusen- unum vel. Það sem lyftir Dark Blue yfir með- allagið er frábær leikur Kurts Russels í aðalhlutverkinu. Perry er siðspilltur rasisti sem heldur að hann sé hetja. Hann er aldrei alvondur, enda er hann verri lögga en maður - ef hann Sambíóin/Háskólabíó DarkBlue ★★★ væri t.d. kokkur væru slæmu hliðar hans ekki jafn hættulegar. Russel er kaldhæðinn, reiður og að lokum uppgefinn og tómur þegar hann átt- ar sig á hver eða réttara sagt hvað hann er orðinn. Russel hefur sjaldan eða aldrei verið betri og af hverju í ósköpunum fær hann ekki fleiri bita- stæð hlutverk? Scott Speedman er ágætur í hlutverki félagans unga sem þjáist enn af samviskubiti yfir að ljúga og svíkja í skjóli vinnunnar en verður ósköp litlaus samanborið með Russel og sama má segja um flesta aðra nema írska karakterleik- arann Brendan Gleeson sem leikur lögreglustjórann gerspillta með glæsibrag. Dark Blue er ekki frábær mynd en afþreying af betra taginu á einu af rigningarkvöldunum sem Veðurstof- an var að lofa okkur. Leikstjóri: Ron Shelton. Handrit David Ayer, byggt á skáldsögu eftir James Ell- roy Kvikmyndataka: Barry Peterson. Að- alleikarar: Kurt Russell, Scott Speedman, Ving Rhames, Brendan Gleeson, Mich- ael Michele og Lolita Davidovich. HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. OLD SCHOOL: Sýnd kl. 6 og 8. NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS 587 8900 Ágúst Bogason skrifar um fjölmiðla Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 ára. -fi im unouR Sýnd kl.8og 10. Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára. KRINGLAN ■ iMill ||iii ALFABAKKI loggutryíhr með hinum svala Kurt Russel. Þessi frabæra grinmynd er frá fram- leiðandanum Jerry Bruckheimer sem hefur gert smellina Arma- geddon, Pearl Harbor, The Rock og Conair. Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20. B.i. 16 ára. BRINGING DOWN THE HOUZE Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.15. Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.15. Bú.l2ára. Sýnd kl. 5.50,8 og mtSLPOWBSfMMS. Sýnd kl. 6,8 og 10. THE MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. KANGAROO JACK: Sýnd kl.4,6,8og 10. BRINGING DOWNTHE HOUZE Sýnd kl.5.50 og 8. SKÓGARLÍF: Sýnd m.Isl.tali kl.4. JOHNNY ENGLISH: Sýnd kl.3.45. THE MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 10.10. B.i.12ára. Jim, Doug og femínistarnir Þann 19. júní fögnuðu konur um allt land því að hátt í 90 ár voru lið- in frá því að þær fengu kosninga- rétt. Þennan dag notuðu femínistar og aðrir jafnréttissinnar til þess að vekja athygli á jafnréttisbaráttu kynjanna og voru þær mjög áber- andi í fjölmiðlum þennan dag sem og dagana á undan. Þegar ég hafði nýlokið við að horfa á umræðuþátt í sjónvarpinu þar sem fyrrnefnd mál voru til um- ræðu skipti ég yfir á Skjá einn. Þar var hins vegar eitthvað allt annað í gangi. Heimilisfaðirinn Jim í þátt- unum According to Jim var þama mættur og á eftir honum birtist Doug sem er aðalpersónan í þátt- unum The King of Queens. Bæði Jim og Doug em amerískir milli- stéttarheimilisfeður sem em ham- ingjusamlega giftir, rétt eins og Raymond í þáttunum Everybody Loves Raymond sem einnig em sýndir á Skjánum. Eiginkonur þre- menninganna eiga það allar sam- eiginlegt að vera bráðmyndarlegar, elda alftaf matinn, þrífa og sjá alfar- ið um uppeldi barnanna. Mennirn- ir þeirra em aftur á móti ekki eins myndarlegir og þeir gera nákvæm- lega ekkert á heimilinu annað en að horfa á sjónvarp og vera til vand- ræða. Sem dæmi vakti áðunefndur Doug konuna sína kl. 5 um morgun þar sem hann þurfti að mæta snemma í vinnuna og vantaði ein- hvern til að strauja skyrtu af sér. Konan hans varð vissulega pirmð en lét það samt yfir sig ganga eins og alltaf. - Mjög viðeigandi boð- skapur á degi jafnréttis. STJÖRNUGJÖF DV ★ ★★★ Nói albínói Respiro ★★★ Identity ★★★ X-Men 2 ★★★ They ★★i Agent Cody Banks ★ ★i Johnny English ★★i Tricky Life ★ ★i Anger Management ★★ 2 Fast 2 Furious ★★ Kangaroo Jack ★★ Matrix Reloaded ★★ Bringing Down the House Tkir How to Lose a Guy in 10 Days ★★ Old School ★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.