Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 38
38 DVSPORT MIÐVIKURDAGUR 25. JÚNÍ2003 Baldur Sigurðsson, aðalfjárfestir„Bamsley-hópsins", ávíttí Guðjói * Hann hefur verið búsettur í Bret- landi í 14 ár, er framkvæmda- stjóri fjárfestingar- og fjármögn- ungarfyrirtækisins Avalon Fin- ance, sem staðsett er í kringum Cambrigde-svæðið í Bretlandi. Hann heitir Baldur Sigurðsson og er maðurinn sem er megin- valdur fjaðrafoks undanfarna daga varðandi meint yfirtökutil- boð hóps íslenskra fjárfesta á enska knattspyrnufélaginu Barnsley. f opinskáu viðtali við DV-Sport leggur hann spilin á borðið, segir sína hlið um stöðu mála og ræðir ítarlega þátt Guð- jóns Þórðarsonar í öllu ferlinu. „Það er fyrirtækið Avalon Finance, þar sem ég starfa sem framkvæmda- stjóri, sem hefiir verið að vinna í yfir- töku á ensku félagi (töluvert langan tíma og það erum við sem leiðum þennan hóp,“ segir Baldur. Hann seg- ir það vera uppspuna frá rótum að um sé að ræða hóp íslenskra fjárfesta - enginn annar fslendingur sé viðloð- andi málið nema hann sjálfur. „Vitleysan byrjaði þegar Peter Doyle, aðaleigandi Barnsley, fór út með fréttir þess efnis að það séu ís- lenskir fjárfestar hugsanlega að taka við Bamsley gegn Peter Ridsdale. Ég ræddi við Doyle og hann sagði við mig að það hefði ekki litið eins bein- skeytt út hefði hann sagt alþjóðlegur hópur fjárfesta. Því sagði hann ís- lenskir fjárfestar og ég tók því. En þeir aðilar sem ég er að vinna með í þessu eru fyrirtæki frá Hollandi, Þýskalandi og Rússlandi án þess að ég vilji mikið vera að ræða það,“ segir Baldur. Hann svarar hreinskilnislega, að- spurður um þátt Guðjóns Þórðarson- ar í meintri yfirtöku. „Ég get alveg staðfest að Guðjón fór með mér og fleirum til Bamsley á laugardaginn til þess að kanna að- stæður og skoða félagið. Hann var hins vegar ekki aðili að viðræðum um sölu og hann er ekki sá sem leiðir þennan hóp fjárfesta." - Er hann einn afþessum fjárfest- um? „Nei, það er hann ekki. Fyrir utan fyrirtækið sem ég vinn hjá þá em eng- in íslensk tengsl við þetta yfírtökutil- boð á neinn hátt.“ - Verður Guðjón knattspymustjóri „Guðjón var ekki aðili að viðræðum um sölu og hann er ekki sá sem leiðir þennan hóp fjárfesta." liðsins fari svo að þið takið yGr klúbbinn? „Fyrst kaupum við félagið og sfðan ráðum við stjórann. Það er ekki búið að taka neina ákvörðun um hvort hann verði stjórinn. Það em fjárfestar Trúnaðarbrestur Guðjóns og Baldurs: Bar ekki saman Það var skömmu eftir að hafa rætt við blaðamann DV- Sports sem Guðjón Þórðarson sagði öðrum fjölmiðlum frá því að trúnaðarbrestur hefði orðið á milli hans og Baldurs Sigurðssonar. Af samtali DV við Guðjón var greinilegt að honum og Baldri bar ekki saman um aðalatriðin í þess- ► um hugsanlegu kaup á Barns- ley og sagði Guðjón, þvert gegn því sem Baldur hafði sagt við DV-Sport skömmu áður, að hann yrði næsti þjálf- ari liðsins. „Það er raunverulega ekkert að frétta. Þetta mál er á ákveðnum farvegi og skýrist frekar á morgun," sagði Guðjón Þórðarson í gærdag, aðspurður hvort eitthvað hefði breyst í hans málum frá því degin- um áður, en þar staðfesti hann við > breska fjölmiðla að hann yrði næsti stjóri Barnsley, ef hópur fjárfesta sem hann væri viðloðandi, myndi ná völdum. Spurður síðan af DV hvort hann væri sá sem leiddi hópinn svaraði Guðjón: „Leiða og leiða ekki. Ég held að „ þeir séu fullfærir um að ganga * sjálfir. Það þarf ekkert að leiða þá," sagði Guðjón og vildi ekkert segja um hvort hann ætti einhvern fjár- hagslegan þátt í málinu. „Það skiptir engu máli hver er að leggja hvað í þetta. Það sem skiptir máfi er að verið er að búa til hóp manna sem stjórnar þessari yfir- töku og persónuleg útgjöld manna er ekki eitthvað sem rætt verður um,“ segir Guðjón sem staðfesti síðan að hann hefði farið með „Leiða og leiða ekki. Ég held að þeir séu fullfær- ir um að ganga sjálfir. Það þarfekkert að leiða þá." hópnum til Barnsley á laugardag til að skoða aðstæður hjá félaginu. - Er búið að staðfesta við þig að þú verðir næsti stjóri liðsins, fari svo að þessi hópur nái völdum ífé- laginu? „Það eru allar líkur á því að ég verði stjóri hjá Barnsley. Ég verð stjóri Bamsley ef þetta gengur upp.“ - Þú ert í þessum viðræðum á þeim forsendum að gerast stjóri liðsins? Já. Ég ætla mér ekki að taka neina þjálfarastöðu hjá félaginu eða neitt slíkt. Ég vill stjórastarfið og er ekki til umræðu um neitt annað. Það er alveg ljóst," sagði Guðjón og bætti við að um væri að ræða mun betri samning en þegar hann var hjá Stoke. „Þetta yrði miklu betri klúbbur fyrir mig að fara í. Aðstaðan til fót- boltans eru miklu betri og einnig frá fjárhagslegu sjónarmiði séð. Þetta er mun betra en hjá Stoke." - Nú segir Baldur Sigurðsson að þú komir aðeins til greina eins og hver annar en ekkert sé ákveðið að þú verðir framkvæmdastjóri. Hvað segir þú við þvf? „Ég tel bara allar líkur á því að ég fái stjórastarfið. Ég hef ekkert um það að segja í sjálfu sér, meirihlut- inn mun ráða því og það er ekkJ ljóst hver meirihlutinn í þessum hópi verður. En eins og þetta liggur í dag þá em allar líkur á því,“ sagði Guðjón að lokum. Greinilegt var að þessi ummæli frá Baldri komu Guðjóni f opnu skjöldu og vildi hann ekki ræða málin frekar. Hefur orðið trúnaðarbrestur Skömmu eftir þetta samtal kom Guðjón fram í öðrum fjölmiðlum hér heima og lýsti því yfir að trún- aðarbrestur hefði orðið milli hans og Baldurs Sigurðssonar. Sá trún- aðarbrestur fælist í því að Baldur hafi sakað Guðjón um að hafa sagst leiða fjárfestingarhópinn, en Guðjón vildi meina að hann hefði alltaf tekið skýrt fram í fjölmiðlum að hann leiddi hópinn ekki. í ffamhaldi af þvf hafi Baldur og hluthafar sem ákveða hver það verður og það verða engir slíkir fyrr en búið er að kaupa félagið." - Bein ummæli Guðjóns í breskum ijölmiðlum í gær voru þess eðlis að hann yrði næsti stjóri liðsins efhóp- urinn sem hann leiðir myndi taka yfir Bamsley. Var Guðjón að fara með fleipur? „Ég veit ekki nákvæmlega hvað hann sagði en ég er búinn að hafa samband við hann um þessi ummæli og sett út á þau. Ég hef ekki fengið nein viðbrögð við þeim hingað til en það er ljóst að ekkert verður staðfest um hver stjórinn verður fýrr en við eigum klúbbinn. Þú ræður ekki stjóra í einhvem klúbb sem þú átt ekki. Þetta virkar einfaldlega ekki svoleið- is," segir Baldur. Aðspurður hvort Guðjón væri lík- legri en aðrir til að hreppa stjórastól- inn, sagði Baldur að Guðjón kæmi al- veg til greina eins og allir aðrir - ekk- ert meira en svo. „Ég er búinn að hafa sam- band við Guðjón um þessi ummæli og sett út á þau." Get vel unnið með Guðjóni Það er hins vegar engu um það log- ið að Guðjón er kjörinn í starf fram- kvæmdastjóra Bamsley. Hann er á lausu og þ.a.l. þarf ekki að kaupa hann burtu ffá neinu öðm félagi rétt eins og algengt er. Þá er Bamsley án ffamkvæmdastjóra eins og er og því þarf engan að reka, rétt eins og var hlutskipti Gary Megson sem stjórnaði liði Stoke áður en íslenski fjárfesting- arhópurinn náði völdum í félaginu. Þannig lítur þetta mjög vel út af beggja hálfu. Engan þarf að reka, eng- an launapakka þarf að greiða til frá- farandi stjóra né engar bætur. Nú hefur oft verið haft á orði að erfítt sé að vinna með Guðjóni. Hef- urðu engar áhyggjur af að svo verði raunin hjá ykkur tveimur? breytt áherslum sínum og sagt að hann væri ekki væntanlegur knattpsyrnustjóri liðsins. Fyrst svo „Ég verð stjóri Barnsley efþetta gengur upp. Ég vill stjórastarfið og er ekki til umræðu um neitt annað." væri hefði hann ekkert meira við Baldur að segja því alltaf hefði leg- ið fyrir að Guðjón yrði fram- kvæmdastjóri liðsins. Guðjón með tromp á hendi Ekki náðist f Guðjón Þórðarson seint í gærkvöld til að fá að vita meira um þennan umtafaða trún- aðarbrest en Guðjón lét hafa eftir sér annars staðar að hann væri ekki búinn að gefa upp á bátinn að ger- ast stjóri Barnsley - hann þekkti ákveðna aðila sem hefðu hugsan- lega áhuga á þessu dæmi og á það ætlaði hann að reyna í dag. Eins og fram kemur á baksíðu DV í dag segir Baldur að enginn trúnaðar- brestur hafi orðið - málin standi óbreytt frá hans sjónarhóli og þessi mál verði að ræða við Guðjón sjálf- an. Ennfremur sé ekki ömggt að hann né neinn annar verði framJcvæmdastjóri liðsins. vignir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.