Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ 2003
ÚTGÁFUFÉLA& Útgáfufélagið DVehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐAIRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjðm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngar:
auglysingar@dv.is. - Drelflng:
dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Cltgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðscnt efni
blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. DV greiðir ekki
viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir
myndbirtingar af þeim.
EFNI BLAÐSINS
5.300 án atvinnu
- frétt bls. 4
Hersetið land og
löglaust
- Heimsljós bls. 10
Miklu meiri umferð
- úttekt bls. 12-1S
Stærsta vörumiðstöð
landsins
- frétt bls. 16
Um framtíð
Ríkisútvarpsins
- kjallari bls. 17
Árni of dýr
- DV-Sport bls. 18
Að dansa tangó
-Tilvera bls. 44-45
DV Bingó
% Það er komið
\ bíngó á O-röðina
M i og því spilum við
V / nú allt spjaldið.
- ._Athugið að sam-
hliða einstökum röð-
um hefur allt spjaldið verið spil-
að þannig að tölurnar sem
dregnar hafa verið í bingóleik
DV til þessa gilda á allt spjaldið.
Fimmta talan sem kemur upp á
allt spjaldið er 6.
Þeir sem fá bingó láti vita (síma
550 5000 innan þriggja daga. Ef
fleiri en einn fá bingó er dregið
úr nöfnum þeirra. Verðlaun fyrir
bingó á allt spjaldið eru afar
glæsileg, vikuferð til Portúgals
með Terra Nova Sól.
Vill lýðheilsustöð á Akureyri
HEILSUGÆSLA; Stjórn Eyþings -
sambands sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum - hefur sent
frá sér ályktun þar sem áréttuð er
fyrri afstaða um að lýðheilsustöð
verði á Akureyri. Heilbrigðisráð-
herra hefur sett Jóhannes Pálma-
son í starf forstjóra lýðheilsu-
stöðvar tímabundið í þrjá mán-
uði, eða þar til Guðjón Magnús-
son, skipaður forstjóri, tekur til
starfa. Óljóst er hins vegar hvort
hann kemurtil starfa þá. (ályktun
Eyþings er skorað á ráðherra að
auglýsa stöðuna aftur, taka þá af
skarið og tiltaka að stofnunin
verði á Akureyri eins og ráðherra
hafi sagt að stefnt sé að. Með því
geti ráðherra bundið enda á þá
óvissu sem einkennt hefur stofn-
un og staðsetningu stofnunar-
innar.
Neyðartalstöðvar í skálum FÍ
ÖRYGGI: Slysavarnafélagið
Landsbjörg og Ferðafélag (s-
lands munu hefja uppsetningu á
neyðartalstöðvum í skálum
Ferðafélagsins á naestu dögum.
Settar verða upp 10 neyðartal-
stöðvar í skálum Ferðafélagsins.
Að sögn Jóns Hermannssonar,
formanns fjarskiptaráðs björgun-
arsveitanna er með þessu verið
að auka öryggi ferðafólks svo
það geti látið vita af ferðum sín-
um ef það lendir í vandræðum.
Dæmi eru um tilfelli þar sem
björgunarsveitir hafa leitað að
ferðafólki sem komist hefur í
skála Ferðafélagsins en ekki haft
meðferðis nein fjarskiptatæki og
því ekki getað látið vita af sér. Ef
fólkið hefði átt möguleika á að
láta vita um ferðir sínar og að
engrar aðstoðar væri þörf.
Uppsagnir hjá áltæknifyrirtækinu Altech JHM:
Reynt að endurskipu-
leggja reksturinn
Fyrirtækið ALTECH JHM hf. á
nú í viðræðum við Lands-
banka íslands vegna fjárhags-
legrar endurskipulagningar
félagsins og skuldbreytingar
skammtímalána. Öllum starfs-
mönnum fyrirtækisins, 17 að
tölu, var sagt upp 31. maí, en
gert er ráð fyrir að endurráða
þá flesta og jafnvel bæta við
starfsfólki.
Félagið hefur þróað og smíðað
yfir 30 mismunandi vélar og selt til
22 álvera um heim allan. Altech
JHM er í viðræðum við flestöll álver
í heiminum um sölu á tækjum sín-
um og hefur útistandandi yfir 200
tilboð til 40 álvera í ýmsar vélar sín-
ar. Stóru skautsmiðjuverkefni, sem
félagið fékk í Ástralíu um seinustu
áramót upp á 2,7 milljarða króna,
hefur verið frestað til haustsins
vegna seinkunar á byggingu álvers-
ins þar í landi og orsakaði það m.a.
fjárstreymisvandamál. Þá hafa
skuldir safnast upp vegna þróunar-
verkefna en eigið fé hefur verið of
lítið til að fjármagna hraðan vöxt
undanfarin ár.
Verkefnastaða
félagsins hefur að sögn
aldrei verið betri.
í tilkynningu frá félaginu, sem er
í eigu Jóns Hjaltalíns Magnússonar,
kemur fram að fyrirtækið hafi ekki
getað greitt laun starfsmanna að
fullu fyrir maí og júní en stefnt sé
að því að ljúka þeim greiðslum í
ENDURSKIPULAGNING: Öllum starfsmönnum Altech hefur verið sagt upp og er það liður í
nauðsynlegri endurskipulagningu félagsins. Jón Hjaltalín Magnússon er eigandi
fyrirtaekisins sem hefur þróað og smíðar vélar fyrir álver.
næstu viku. Þar kemur einnig fram
að framkvæmdastjóri félagsins,
Þráinn Valur Hreggviðsson, sem
hóf störf í nóv. sl., lét af störfum 1.
júlí sl. í fullu samráði við stjórn fé-
lagsins og eru honum færðar þakk-
ir fyrir góð störf í þágu þess.
Stóru skautsmiðjuverk-
efni, sem félagið fékk í
Ástralíu um seinustu
áramót upp á 2,7 millj-
arða króna, hefur verið
frestað til haustsins.
Verkefnastaða félagsins hefur að
sögn aldrei verið betri. Verið er m.a.
að undirbúa smíði tækja vegna
samninga við fjögur álver, samtals
að upphæð um 300 milljónir króna,
og er verið að ljúka nokkrum öðr-
um stórum verkefnum. Þá er verið
er að ganga frá samningum við ís-
lensk véla- og rafmagnsverkstæði
vegna þessara útflutningsverkefna
að upphæð yfir 100 milljónir króna
í næstu viku. Félagið á í viðræðum
við innlenda og erlenda fjárfesta
um þátttöku í hlutafjárútboði til að
fjármagna vöxt félagsins. Vonast er
til að því verði lokið innan skamms,
en IBM ráðgjafarþjónusta í Reykja-
vík hefur aðstoðað félagið við þetta
hlutafjárútboð.
Þá má geta þess að Altech tekur
þátt í athugun Atlantsáls á bygg-
ingu álvers á Húsavík, en það verk-
efni er alfarið fjármagnað af erlend-
um stórfyrirtækjum og er rekið sem
alveg sjálfstætt verkefni og óháð
starfsemi Altech. hkr@dv.is
Stjórnendur Eddu ánægðir með bóksölu sumarsins:
Tíu á toppnum
Bóksala hefur verið mikil í
sumar og hjá Eddu - útgáfu
eru menn ánægðir, en tíu mest
seldu bækurnar í júní eru allar
frá forlögum fyrirtækisins.
„Sumarið kemur sífellt sterkara
inn í bóksölu. Þetta þökkum við öfl-
ugu útgáfustarfi og vönduðum
bókum en einnig mjög virku mark-
aðsstarfi okkar," sagði Hrannar B.
Arnarsson markaðsstjóri Eddunn-
ar, í samtali við DV. Hann segir
bækurnar sem seljast svo vel í sum-
ar vera einkum af tvennum toga -
annars vegar fagurbókmenntir og
afþreying og hins vegar ferða-
mannabækur.
Aukin sala á bókum í síðarnefnda
flokknum hefur raunar verið að
aukast í sama takti og ferðamanna-
straumur hingað til lands. í því
BÓKSALINN. „Sumarið kemur sífellt
sterkara inn í bóksölu," segir Hrannar B.
Arnarsson sem hér sést með nokkrar af
metsölubókum sumarsins. DV-mynd: E.ÚI.
sambandi nefnir Hrannar meðal
annars ljósmyndabók Sigurgeirs
Sigurjónssonar, Lost in Iceland, „...
sem hefur verið að seljast í bflförm-
um síðustu sumur," eins og hann
kemst að orði. Sama gildi um korta-
útgáfu Máls og menningar. Þá megi
vænta góðrar sölu á bókinni Ekið
um óbyggðir sem er bók um helstu
leiðir og náttúruvætti á hálendinu.
Sú bók kom út nú um helgina.
Á metsölulista júnímánaðar eru
fjórar af skáldsögum Arnalds Ind-
riðasonar. „Bækur hans hafa selst í
tugum þúsunda eintaka síðustu ár.
Hvað varðar söluna á þeim bókum
hygg ég að fólk sé bæði að sækjast
eftir afþreyingu en einnig þeim fé-
lagslega undirtón og þjóðfélags-
hugsun sem er í bókum Arnalds,"
segir Hrannar. Hann segir stjórn-
endur Eddu vera afskaplega
ánægða með þessa góðu bóksölu
að undanförnu - og því bjartsýna
gagnvart komandi tíð. -sigbogi@dv.is
METSÖLUBÆKUR í JÚNI
I.Röddln
Arnaldur Indriðason.
Útg.Vaka-Helgafell
2.Synlrduftslns
Arnaldur Indriðason.
Útg. Vaka-Helgafell
3. Engill í Vesturbænum
Kristín Steinsdóttir.
Útg.Vaka-Helgafell
4. Mýrin
Arnaldur Indriðason.
Útg.Vaka-Helgafell
5. Um vfðeml Snæfells
Guðmundur Páll Ólafsson.
Útg. Mál og menning
6. Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson. Útg. Forlagið
7. -8. Af hverju er himinninn blár?
Ritstj.: Jón G. Þorsteinsson
og Þorsteinn Vilhjálmsson.
Útg. Heimskringla - Háskólaforlag
Máls og menningar
7.-8. Grafaiþögn
Arnaldur Indriðason.
Útg.Vaka-Helgafell
9. Reisubók Guðrfðar Sfmonardóttur
Steinunn Jóhannesdóttir.
Útg. Mál og menning
10. Kortabók 1300.000
Útg. Mál og menning
(SamantektFélagsvisindastofnunar)