Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14.JÚLI2003
Öll gögn í dagsljósið
Á slysadeild
SLYS: Fernt var flutt á slysa-
deild eftir harðan árekstur
tveggja bifreiða við Lönguhlíð
og Barmahlíð um tvöleytið í
fyrrinótt. Meiðsli voru ekki talin
alvarleg en bílar skemmdust
nokkuð. Almennt var rólegt hjá
lögreglu um helgina. Víða var
þó nokkur fjöldi fólks, svo sem
á ýmsum sumarhátíðum, en
allt gekk slysalítið fyrir sig.
LÖGSAGA: Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður VG og
nefndarmaður í utanríkismála-
nefnd, segir að auðvitað eigi
það að vera í höndum Islend-
inga að dæma í máli banda-
ríska hermannsins sem ákærð-
ur er í hnífstungumálinu svo-
kallaða. Lögsagan sé íslensk,
ekki síst þegar um svona al-
varlegt mál sé að ræða.
„Hafi þannig verið gengið frá
málum á sínum tíma að eitt-
hvað annað gildi í reynd en
fyrir liggur opinberlega, þarf
það að koma fram í dagsljósið.
I gær var það sterklega gefið í
skyn að slíkur baksamningur
væri til. Hann þarf þá að draga
fram í dagsljósið. Ef ekki er við
annað að styðjast en íslensk
lög, várnarsamninginn og op-
inber fylgiskjöl hans er valdið í
höndum (slendinga, lagatúlk-
un einföld og enginn vafi á
því að íslendingar þurfa ekki
að framselja manninn.
Fastar
ÞÓRISVATN: Björgunarsveit-
armenn fundu við Þórisvatn
síðdegis í gær tvær konur og
börn á bíl. Konurnar óku út á
illfæran veg við Vatnsfell, þar
sem þær festu bílinn. Hjálp-
samur vegfarandi hafði losað
bíl kvennanna þegar björgun-
arsveitarmenn komu á stað-
inn. Þeir fylgdu konunum til
byggða.
Yf r 5.300 manns á
atvinnuleysisskrá
Töluverð aukning frá því í fyrra
Atvinnuleysi er nú talsvert
meira en á sama tíma í fyrra. (
lok júní voru 5.313 manns
skráðir atvinnulausir á landinu
öllu. Þar af voru flestir á höfuð-
borgarsvæðinu, eða 3.902.
Atvinnuleysið minnkaði á land-
inu í heild um 0,4% í júnímánuði
en að meðaltali yfir mánuðinn var
5.081 einstaklingur skráður at-
vinnulaus hjá Svæðisvinnumiðlun.
Var atvinnuleysið skráð 3,2% af
mannafla á landinu í heild í júní.
Miðað við júnímánuð í fyrra hef-
ur atvinnuleysið aukist um 0,9% á
landinu öllu. Þar af er hlutfallslega
langmest aukningin á Suðurnesj-
um, eða um 2,5%, og næstmest hef-
ur atvinnuleysið aukist á höfuð-
borgarsvæðinu, eða um 1,1%. Það
er aðeins Austurland sem getur
státað af engri aukningu á atvinnu-
leysi, eða 0% miðað við sama tíma í
fyrra.
Miðað við júnímánuð í
fyrra hefur atvinnuleys-
ið aukist um 0,9% á
landinu öllu.
Heldur fleiri konur eru skráðar
atvinnulausar, eða 2.932 á landinu
öllu á móti 2.381 karli. Þegar skoð-
aðar eru meðaltalstölur yflr at-
vinnuleysi síðustu 12 mánaða kem-
ur í ljós að í júlí í fyrra voru 3.530
manns skráðir atvinnulausir á
landinu öllu, eða 1.551 færri en að
meðaltali í júní á þessu ári. At-
vinnuleysi jókst verulega þegar
kom fram í október og nóvember
F'7.og náði hámarki í
I febrúar, eða 5.758
Samtals manns. Síðan
3.902 hefur atvinnu-
854 leysi farið hægt og
96 bítandi minnk-
59 andi en talsvert
32 hefur þó verið um
221 uppsagnir að
85 undanförnu, ekki
141 síst á höfuðborg-
220 arsvæðinu.
2.932 hkr@dv.is
ATVINNULEYSí f LOK JÚNI
Höfuðborgarsvæðið Karlar 1.824 Konur 2.078
Landsbyggðin 1.411 557
- Vesturland 162 66
-Vestfirðir 79 20
- Norðurland vestra 61 29
- Norðurland eystra 367 146
- Austurland 127 42
-Suðurland 217 76
- Suðurnes 398 178
Landið allt 5313 2381
«f*ftö"'
AN VINNU: Heldur fleiri konur eru atvinnulausar en karlar. (heild var atvinnuleysi nokkru meira í júní síðastliðnum en í sama mánuði í
fyrra, þrátt fyrir að þeim sem eru án vinnu hafi fækkað á undanförnum mánuðum.
Uppsveifla í iðnaði
10% veltuaukning á næsta ári
Samtök iðnaðarins gerðu
könnun á stöðu og horfum f
iðnaði í júní sem sýnir aukna
veltu iðnfyrirtækja. Könnunin
náði til 85 meðalstórra og
stórra fyrirtækja í hinum ýmsu
greinum iðnaðar með samtals
um 6.500 starfsmenn.
Sérstaklega var spurt var um
áhrif hins háa gengis krónunnar á
afkomu iðnfyrirtækja í ár. Helstu
niðurstöður eru að áætlað er að
velta í iðnaði aukist um 4% í ár og
yfir 10% á næsta ári. Að raunvirði
nemur aukningin tveim prósent-
um í ár og átta prósentum á næsta
ári.
Þá er áætlað að fjárfesting aukist
yfir tuttugu prósent f ár en sjö pró-
sent á næsta ári. Að raunvirði nem-
ur aukningin tuttugu og einu pró-
senti í ár og fimm prósentum á
næsta ári. Mikil aukning í fjárfest-
ingum í plast- og veiðarfæragerð
og prent- og pappírsfyrirtækjum
skýrir mestan hluta aukningarinn-
ar í ár.
Ahrifin af háu gengi krónunnar á
afkomu iðnfyrirtækja eru á heild-
ina litið neikvæð en mismikil eftir
greinum og stærð fyrirtækjanna.
Á fyrri hluta ársins hef-
ur starfsmönnum í iðn-
aði fjölgað um tæp
fimm prósent en áætl-
að er að hluti þeirrar
aukningar gangi til
baka með haustinu.
Neikvæðust eru áhrifin á lyfja- og
hátæknifyrirtæki, plast- og veiðar-
færagerð og málm- og skipasmíða-
fyrirtæki vegna lakari samkeppnis-
stöðu á alþjóðlegum markaði. Hins
vegar njóta mörg fyrirtæki í jarð-
vinnu, prenti og pappír, matvæl-
um og drykkjarframleiðslu góðs af
háu gengi sem léttir afborganir á
erlendum lánum og lækkar inn-
kaupsverð á erlendum varningi. Þó
skiptast í tvö horn lítil og stór verk-
takafyrirtæki en þau síðarnefndu
eru í alþjóðlegri samkeppni og telja
hágengið til ills. Ef gengið lækkar á
ný munu áhrifin snúast við.
Á fyrri hluta ársins hefur starfs-
mönnum í iðnaði fjölgað um tæp
fimm prósent en áætlað er að hluti
þeirrar aukningar gangi til baka
með haustinu. Tvær greinar, bygg-
ingarstarfsemi og jarðvinna, skýra
mestan hluta aukningarinnar en
samdrátturinn fram undan tengist
fyrirtækjum í lyfjum og hátækni og
plast- og veiðafæragerð.
hkr@dv.is
GENGISÁHRIF: Verktakafyrirtæki í jarð-
vinnu, prenti, pappir, matvaelum og
drykkjarframleiðslu njóta góðs af háu
gengi sem léttir á afborgunarbyrði er-
lendra lána og laekkar innkaupsverð.